Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 36
Í þessari nýju þáttaröð af Para-dísarheimt ræði ég við fanga.Fólkið sem er lokað inni og úti- lokað frá mannlegu samfélagi. „Utangarðsmenn“ ef þannig má að orði komast. Þetta er fólk eins og ég og þú, menn og konur, þrátt fyrir sekt þess eða sakleysi. Og svo eru oft fórnarlömb sem eiga um sárt að binda.“ Þetta segir sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðarson en sýningar á Paradísarheimt hefjast að nýju á RÚV í kvöld, sunnudagskvöld. Fangar og fangelsi eru viðkvæmt umfjöllunarefni en Jón Ársæll segir sér og samstarfsfólki sínu hafa verið afskaplega vel tekið, bæði af föng- unum sjálfum og fangelsismála- yfirvöldum. „Við höfum unnið náið með fangelsismálayfirvöldum sem hafa sýnt verkinu mikinn skilning og svo auðvitað föngunum sjálfum. Af- staða, félag fanga, hefur líka verið með í ráðum.“ Fjöldi manna kemur að verkefn- inu með Jóni Ársæli. Fyrst og síðast nefnir hann vin sinn og samstarfs- félaga, Steingrím Jón Þórðarson, framleiðanda, myndatökumann og mann sem er allt í öllu. Þeir hafa unnið saman í aldarfjórðung. Jón Ársæll segir gerð þáttanna hafa tekið á. „Það að geta valsað inn og út úr fangelsum landsins með myndavél og hljóðnema er eitt en það að sitja inni, lokaður frá um- heiminum, er dálítið annað og meira. Reyndar eru margir þeirra sem ég ræddi við búnir að vera lengur inni í fangelsum en úti. Það er hinn kaldi raunveruleiki. Fangar eru hluti af því kerfi sem við höfum skapað. Þeir eru hluti af okkur. Hluti af samfélag- inu. Ég veit líka að margir eiga um sárt að binda vegna margra þeirra sem lokaðir hafa verið inni. Þeir eru einfaldlega að taka út sinn dóm. Og svo eru það börn, foreldrar, ætt- ingjar og vinir. Mitt hlutverk er að- eins að hlusta á raddir fanga. Heyra þeirra sögur. Þeirra sýn á lífið og til- veruna án þess að dæma. Það er ekki mitt.“ Allir menn eiga sér von Stundum er sagt að í grunninn séu til tvær gerðir af föngum; annars vegar óforbetranlegir glæpamenn og hins vegar menn sem villst hafa af leið, til dæmis vegna fíkniefna- neyslu, en eru í grunninn hjarta- hreinir og eiga sér von. Jón Ársæll tekur undir þetta að hálfu leyti. „Ég held að allir menn eigi sér von. Franski heimspekingurinn Rouss- eau sagði að maðurinn væri í sínu innsta eðli góður. Ég kvitta undir það. Við erum ef til vill misjafnlega góð.“ Það er upplifun Jóns Ársæls að á margan hátt sé mjög vel búið að ís- lenskum föngum og hann kveðst hafa kynnst mörgum frábærum fangavörðum og yfirmönnum þeirra þá mánuði sem hann dvaldist í fang- elsunum. „Hitt er annað mál að allt- af má gera betur. Það vantar spýtu og það vantar þjöl. Fangar á Íslandi þyrftu að fá meiri vinnu og ýmiss konar aðstoð til að betrunin standi undir nafni.“ Spurður hvort áherslan í fang- elsum eigi að vera á betrun eða refs- ingu svarar Jón Ársæll: „Með lögum skal land byggja, eins og kerlingin sagði. Auðvitað verður að refsa fólki sem brýtur lög og reglur. Það er eins og að ala upp börn. Sumt má, annað er bannað. Betrunin verður þó alltaf að vera fyrir hendi. Annars er þetta ef til vill ekki rétta spurn- ingin. Ég er fyrst og fremst í þessum þáttum að kynnast föngum og kynn- ast þeirra sýn á lífið og tilveruna hvað svo sem þeir hafa brotið af sér. Hvaða skaða þeir hafa valdið eða ekki. Ég hlusta, þeir tala.“ Þegar kemur að sanngjörnum tækifærum úti í samfélaginu eftir að afplánun lýkur má þó klárlega gera miklu, miklu betur, að dómi Jóns Ár- sæls. „Hér er ekki bara við yfirvöld að sakast. Það er við okkur öll að sak- ast. Taka þarf miklu betur við föng- um þegar þeir hafa tekið út sinn dóm. Margir hafa í ekkert hús að venda, fangar eru margir svo að segja á götunni þegar þeir koma út og við tekur sama gamla munstrið.“ „Fangar á Íslandi þyrftu að fá meiri vinnu og ýmiss konar aðstoð til að betrunin standi undir nafni,“ segir Jón Ársæll Þórðarson. Ljósmynd/RÚV Fangar eru hluti af okkur Fyrsti þátturinn af sex í annarri þáttaröðinni af Paradísarheimt er á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld, sunnudagskvöld. Að þessu sinni eru viðmælendur Jóns Ársæls Þórðarsonar fangar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018 LESBÓK Fyrsta þáttaröðin af Para- dísarheimt, sem fjallaði um geðræna erfiðleika, fékk glimrandi viðtökur vítt og breitt um samfélagið. Það ylj- aði Jóni Ársæli um hjartaræt- urnar. „Þau kynni sem stofn- að var til þar urðu mér ómetanleg og gefandi. Auð- vitað er gott að finna ef geng- ið hefur verið til góðs en það er svo víða í íslensku þjóð- félagi og reyndar heiminum öllum sem við þurfum að taka til hendinni. Það er verk að vinna. Ég stend þó ekki fyrir neinni herferð með logandi kyndil. Ég held bara á hljóð- nema og spyr spurninga. Það þarf einhvern í það líka.“ Og raðirnar af Paradísar- heimt verða að óbreyttu fleiri. „Við Steini erum rétt að byrja eftir 25 ára frábæra samvinnu,“ segir Jón Ársæll en verst þó frétta af næsta verkefni. „Guð einn veit hvar við dönsum næstu jól!“ Spyr bara spurninga Frá Litla- Hrauni. MÁLMUR „Þegar ég stofnaði Megadeth gerði ég ekki ráð fyrir því að lifa í 35 ár til viðbótar sjálfur, hvað þá að bandið mitt næði þeim merka áfanga,“ sagði Dave Must- aine við blaðamenn á dögunum en þrassbandið goð- sagnakennda hyggst halda rækilega upp á afmælið á árinu, meðal annars með því að dusta rykið af marg- víslegu efni sem sjaldan heyrist á tónleikum. „Ég vil þakka nánast öllum sem ég hef kynnst, unnið með og spilað með undanfarna þrjá og hálfan áratug,“ bætti Mustaine við en gríðarleg starfsmannavelta hefur verið í Megadeth gegnum árin. Nú eru með þeim Dave Ellef- son í bandinu brasilíski gítarleikarinn Kiko Loureiro og belgíski trymbillinn Dirk Verbeuren. Alþjóðleg útgerð. Nýrrar plötu er að vænta á næsta ári. Óvænt langlífi Mustaine hress á Nasa. Morgunblaðið/Sverrir SJÓNVARP Aðdáendur bandaríska spé- dramans Shameless þurfa ekki að örvænta þrátt fyrir að áttunda serían hafi nú runnið sitt skeið á enda; Showtime, sem framleiðir þættina, hefur upplýst að tökur á níundu þáttaröðinni hefjist fljótlega á þessu ári. Það þýðir að Shameless er fyrsti þátturinn sem nær þeim áfanga í fjörutíu ára sögu Show- time; seríurnar af Dexter og Weed urðu átta og gerð áttundu seríunnar af Homeland stendur nú yfir. Ævintýrum hinnar litríku og úrræðagóðu Gallagher-fjölskyldu er því hvergi nærri lokið á skjánum. Vinsamlegast hafið því beltin áfram spennt! Shameless snýr aftur og slær met Emmy Rossum leikur Fionu Gallagher. AFP Heida Reed fer með hlutverk Stellu. Blómlegur kvistur SJÓNVARP SÍMANS Andhetjan, tálkvendið og lögfræðingurinn Stella Blómkvist, sem fetar sínar eigin slóðir, heldur áfram að rann- saka dularfull morðmál á sunnu- dagskvöldið kl. 21. Í starfi sínu sem lögfræðingur vílar hún ekki fyrir sér að beita brögðum til að fá sínu framgengt og tekur að sér mál þar sem hún sér möguleika á að upp- ræta spillingu og glæpastarfsemi hjá einstaklingum í valdastöðum. Þetta er fjórði þáttur af sex. RÁS 2 Fram og til baka nefnist morgunþáttur rásarinnar á laugardögum frá kl. 9 og fram að hádegisfréttum kl. 12.20. Felix Bergs- son stýrir klukku- tímanum frá 9 og 10, spilar notalega tónlist, býður upp á hlustendagetraun og fær til sín góða gesti úr hinum ýmsu áttum. Felix fer svo á tímaflakk ásamt Margréti Blöndal á milli kl. 10 og 11. Þau fara fram og til baka og rifja upp tónlist og atburði lið- inna áratuga. Felix og Margrét eru bæði þrautreynd þegar kemur að dagskrárgerð fyrir útvarp og hafa lengi unnið saman. Fram og til baka Margrét Blöndal STÖÐ 2 Bein útsending frá Hlust- endaverðlaunum Bylgjunnar, X-ins 977, FM957 og Tónlist í Háskólabíói hefst kl. 19.55 í kvöld, laugardags- kvöld. Kynnir er Kjartan Atli og Steindi Jr. verður með innslög. Ís- lenskir popptónlistarmenn verða verðlaunaðir fyrir framlag sitt á árinu og sjá hlustendur um að velja sitt uppáhald. Fjölmörg tónlistar- atriði eru á dagskrá kvöldsins. Steindi Jr. kemur fram. Verðlaun í beinni

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.