Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 34
Ég býð listamönnum að koma hingað inn ásýninguna og taka upp þriggja mínútnalöng hljóðlaus myndskeið, þeirra eigin verk, meðan myndavélin snýst einn hring hér um súluna og tekur upp. Svo skeyti ég verk þeirra allra saman og kvikmyndin gengur hér látlaust í innri salnum – og sífellt bætast fleiri verk við hana meðan á sýningunni stendur.“ Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarkona er að útskýra sýninguna sem hún kallar „Evolve- ment“ og verður opnuð í Kling & Bang í Mar- shallhúsinu kl. 17. Eins og kemur fram í lýs- ingu hennar á kvikmyndatökunum sem verða í innsta sal Kling & Bang þá er hún í samstarfi við fjölda annarra myndlistarmanna, og skálda að auki, við að „festa sköpunina sjálfa í form,“ eins og hún segir. Sýningin er sögð vera „óút- reiknanlegt ferli þar sem sköpunin, núið og til- viljunin leika stöðugt ærslafullt spiladósarlag“. Samhliða opnun sýningarinnar kemur út bókin „Ég er hér“ sem gefur yfirlit um feril Heklu Daggar og eru auk þess birtar í henni hugleiðingar um verk hennar og feril, eftir Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, sýningarstjóra sýningarinnar, og Markús Þór Andrésson. Myndritstjóri bókarinnar er Lilja Gunnars- dóttir og hönnuður Ragnar Helgi Ólafsson. Hekla Dögg hefur starfað sem myndlistar- maður í rúma tvo áratugi. Hún er einnig pró- fessor við myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands og er einn stofnenda og virkur meðlimur í listamannarekna rýminu Kling & Bang. Ljósskúlptúrinn fréttaveita skálda „Það er eftir að koma í ljós hve margir lista- menn eiga eftir að taka hér upp þriggja mín- útna verk,“ segir Hekla Dögg og kveikir á raf- drifnum bílnum sem ekur þá hring um súluna í salnum með tökuvélina á þremur mínútum. „Þetta verða jafn ólík verk og listamennirnir eru margir en þau verða öll jafn löng og eru öll tekin innan þessa hringlaga ramma í þessu ferkantaða rými – ég er glöð ef ég fæ tækifæri til að vinna með mörgum og ólíkum listamönn- um. Ég fékk á sínum tíma þrjátíu listamenn til að vinna með mér í Hafnarborg og það var tek- ið upp á 16 mm filmu,“ segir hún og vísar til sýningarinnar „Framköllun“ sem hún setti upp í Hafnarborg 2014. Framar á sýningunni er hljóðnæmur ljósa- skúlptúr sem Hekla Dögg skapar einnig í sam- starfi við listamenn og í því tilfelli skáld. „Ég kalla skúlptúrinn „2018“ og fæ skáld til að skrifa fyrir hann ljóð og lesa inn í hann. Skúlptúrinn lifnar síðan við þegar ljóðin streyma úr honum. Hann verður einskonar fréttaveita fyrir þetta ár en ljóðin fjalla öll um eitthvað sem á sér stað núna, í lífi þeirra eða í heiminum. Listamenn eru í raun alltaf að fjalla um og vinna úr því sem gerist í heiminum hverju sinni – þeir fjalla á annan hátt um það en við þekkjum úr hefðbundum fréttum en engu að síður geta verið meiri upplýsingar, dýpt og sannleikur í umfjöllun þeirra en við þekkjum úr fréttum.“ Og Hekla segir að meðal annars vegna þessarar endurspeglunar sam- tímans sem birtist í nýjum verkum á hverjum tíma njóti hún þess að fylgjast með samtíma- list. „Á Documenta-sýningunni í Þýskalandi í fyrra, sem haldin er á fimm ára fresti, var til að mynda mikið af gömlum verkum og þótt það hafi í sjálfu sér verið áhugavert, þá langaði mig frekar að sjá ný verk og sjá listamenn draga upp nýjar myndir af heiminum eins og þeir upplifa hann núna,“ segir hún. „Ég hef oft unnið með ljós í verkum og þeg- ar ég setti upp í Norðurlandahúsinu í Fær- eyjum árið 2016 sýningu þar sem fólk samdi sérstaklega tónlist fyrir skúlptúrana, þá upp- lifði ég ótrúlega skemmtilega tengingu milli listamannanna og skúlptúranna. Það var eins og óskastund þar sem maður tengdist beint í sköpunina – og hún er svo spennandi hvort sem sköpunarþátturinn er minn eða annarra.“ Reynir að fanga töfrana Þegar gestir koma á sýningu Heklu Daggar þá ganga þeir gegnum einskonar „confetti“-regn; marglit pappírssnifsi sáldrast yfir þá. „Gestirnir ganga úr hversdagsheiminum inn í þennan töfraheim, inn í þessa uppsprettu sköpunarinnar,“ segir Hekla Dögg. „Hér inni þarf að opna fyrir skilningarvitin og hlusta á fréttir með öðrum hætti en vanalega.“ Við undirbúning sýningarinnar bjó hún til einskonar laug í salnum, fjögurra metra langa á hverja hlið, og í henni vann hún flennistór pappírsverk með svokallaðri marmoringu, þar sem arkirnar eru lagðar í vatn með litum í og sjúga þá í sig svo skrautleg mynstur birtast. Orðið marmoring vísar til marmara-áferðar sem margir þekkja til að mynda innan af spjöldum eldri bóka. Hvers vegna réðst Hekla Dögg í að gera þessar stóru „vatnslitamyndir“ með þessari tækni? „Þetta eru í raun bakgrunnar í passlegri stærð sem listamönnunum býðst að nota þegar þeir taka upp myndskeið,“ svarar hún og dreg- ur til marglitar myndirnar sem eru vel á fjórða metra á kant hver. „Vissulega eru þetta einhverskonar vatns- litaverk en ég set þetta fram sem bakgrunna. Fólk hugsar öðruvísi um eitthvað sem er sagt bakgrunnar en það sem er sagt listaverk – ef þetta er hins vegar hvort tveggja getur fólki þótt það ruglandi, mörkin verða óljós og ég hef einmitt áhuga á því. Ég fékk fjölda fólks til að vinna þetta með mér og óvissuþátturinn í aðferðinni var mjög áhugaverður, ekki síst út af stærðinni. Maður veit ekkert hvað gerist þegar blaðið lendir í vatninu, það er eins og töfrabrögð – ekki ósvip- að því sem gerist í myrkraherberginu með ljósmyndun. Enn og aftur töfrar í sköpunar- ferlinu.“ Og enn og aftur skapar Hekla grundvöll fyr- ir þátttökuverk sem hún fær aðra til að vinna með sér, eins og einkennir þessa sýningu. „Já, ég skapa aðstæður, mæti hér öðrum listamönnum í samtali og þá verður vonandi til eitthvað nýtt; rétt eins og þegar tveimur efn- um er blandað saman og eitthvað nýtt verður til með efnahvarfi. Ég vinn sífellt á einhverskonar mörkum. Það má spyrja: er þetta mín myndlist eða þeirra sem taka þátt í henni – en auðvitað er sköpunin á einhvern hátt okkar allra sem tök- um þátt. Mér finnst gott að hlutir sem lista- menn gera á sýningum mínum eigi sér fram- haldslíf hjá þeim, en það fylgir þeim samt við hvaða aðstæður þeir urðu upphaflega til.“ Að lokum berst talið að bókinni nýju um feril Heklu Daggar og hún segir vissulega ánægjulegt að hafa þar yfirlit yfir hann. „Mig langaði til að kalla fyrstu einkasýn- inguna mína þetta á sínum tíma, „Ég er hér“, en þorði það ekki. Mér finnst það þó eiga við núna,“ segir hún og brosir. „Auðvitað næst aldrei allt inn í verk sem þetta en þetta er samt yfirlit og mikið af myndum. Það eru birt viss lykilverk sem lýsa mögulega einmitt því sem ég vinn með hér, þessari leit að töfrunum sem felast í sköpuninni. Og því að reyna að fanga töfrana – ég er alltaf að eltast við það.“ Hekla Dögg með stór vatnslitaverkin sem hún vann með svokallaðri marmoringu. Hún segir þetta vera bakgrunna fyrir aðra listamenn að nota. Morgunblaðið/Einar Falur Inn í þennan töfraheim „Ég skapa aðstæður, mæti hér öðrum listamönnum í samtali og þá verður vonandi til eitthvað nýtt,“ segir Hekla Dögg Jónsdóttir um forvitnilega sýninguna sem hún opnar í Kling & Bang í dag. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is ’Ég vinn sífelltá einhverskon-ar mörkum. Þaðmá spyrja: er þetta mín myndlist eða þeirra sem taka þátt í henni – en auðvitað er sköp- unin á einhvern hátt okkar allra sem tökum þátt. Í innsta sal Kling & Bang ekur myndavél kringum súlu og tekur upp þriggja mín- útna löng verk annarra listamanna. LESBÓK Píanóleikarinn snjalli Paul Lewis heldur á sunnudag kl. 17 einleiks-tónleika í Norðurljósasal Hörpu. Hann leikur verk eftir þrjá meistara frá Vínarborg á 18. og 19. öld – þá Haydn, Beethoven og Brahms. Lewis leikur verk eftir meistara 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.