Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 22
MATUR Hellið hálfum lítra af rjóma í pott. Rífið út í ca. hálfan piparost. Hræriðvel á meðan þetta hitnar og osturinn leysist upp í rjómanum. Náið upp suðu, setjið eina msk. af sósujafnara og hrærið. Unaðsleg sósa! Fljótleg piparostasósa 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018 Getty Images/iStockphoto Sunnu- dags- steikin Á sunnudögum gefst oft tími til að nostra við matar- gerðina og fá fjölskylduna í mat. Það er auðvitað klass- ískt að hafa íslenska lambið en margt annað sómir sér vel á sunnudegi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fyrir 4 1 meðalstór kjúklingur 2 meðalstórir laukar 2 gulrætur 2 stangir sellerí 1 hvítlaukur ólífuolía 1 sítróna 1 búnt ferskar kryddjurtir, eins og timían, rósmarín og lárviðarlauf Takið kjúklinginn úr ísskáp hálftíma áður en hann er eldaður þannig að hann sé við stofuhita. Hitið ofninn í 240°C. Hreinsið og skerið grænmetið gróft; óþarfi að skræla. Brjótið hvítlaukinn í rif, en látið vera að afhýða. Setjið allt grænmeti, hvítlaukinn og kryddjurtirnar í fat og hellið yfir ólífuolíu. Hellið einnig ólífuolíu yfir kjúklinginn og saltið vel og piprið með svörtum pipar. Nuddið kjúklinginn vel. Stingið varlega göt í sítrónuna með beitt- um hnífi og setjið hana inn í kjúklinginn, ásamt slatta af kryddjurtum. Leggið í fatið. Setjið fatið inn í ofninn og lækkið strax hitann í 200°C og eldið í einn klukkutíma og 20 mínútur. Ef þú hyggst hafa með kartöflur, bættu þeim út í fatið 45 mínútum áður en eld- unartíminn er búinn. Þegar 45 mínútur eru liðnar, skaltu ausa soðinu yfir fuglinn. Ef grænmetið virkar mjög þurrt, skaltu skvetta smá vatni yfir. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn, taktu hann út og settu á bretti og láttu hann hvíla í korter eða svo. Breiddu yfir hann álpappír og viskustykki og geymdu hann þannig á meðan þú býrð til sósuna. Gott er að nota soðið sem kemur af grænmetinu og vængina til að búa til gott soð í sósu. Berðu fram með kartöflum og sósu og öðru sem hugurinn girnist. Klassískur kjúlli í ofni Fyrir 4 4 feitir andaleggir 4 msk. sojasósa 3 tsk. fimm krydda blanda (five-spice) 1 handfylli af stjörnuanís ½ stöng kanill 1 msk. ólífuolía 1-2 belgir af ferskum rauðum pipar, fræhreinsaðir og skornir smátt 16 plómur, steinhreinsaðar og skornar til helminga 2 msk. ljósbrúnn púðursykur Setjið andaleggina í plastpoka sem hægt er að renna fyrir, ásamt sojasósunni, fimm krydda blöndunni, stjörnuanísnum, kanil- stönginni og ólífuolíunni og látið marínerast í lágmark tvo klukkutíma. (Ef þú vilt ná besta bragðinu er gott að láta leggina mar- ínerast í poka í ísskáp allt upp í tvo daga.) Takið fram eldfast mót. Setjið chili, sykurinn og plómurnar neðst og hellið svo maríneringunni úr pokanum yfir. Blandið þessu saman með fingrum og setjið svo efst andaleggina. Setjið eldfasta mótið í forhitaðan ofn sem stilltur er á 170°C og eldið í 2 til 2½ tíma þar til kjötið losnar frá beinunum. Takið út og fjarlægið stjörnuanísinn og kanilstöngina. Smakkið til soðið til að at- huga hvort bæta þurfi það með smá auka sojasósu. Hægt er að bera leggina fram með grjón- um eða núðlum og plómusósunni. Einnig gott með kartöflum og grænmeti að eigin vali. Andaleggir með plómum og stjörnuanís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.