Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 35
4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 24.-30. JANÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 ÞorstiJo Nesbø 2 Sigraðu sjálfan þigIngvar Jónsson 3 Stígvélaði kötturinnStella Gurney endursagði 4 Bætt melting betra lífMichael Mosley 5 NáttbirtaAnn Cleeves 6 SakramentiðÓlafur Jóhann Ólafsson 7 Hús tveggja fjölskyldnaLynda Cohen Loigman 8 GatiðYrsa Sigurðardóttir 9 Saga ÁstuJón Kalman Stefánsson 10 Með lífið að veðiYeonmi Park 1 Stígvélaði kötturinnStella Gurney endursagði 2 Hvar er Valli? ÆvintýraferðinMartin Handford 3 Handbók fyrir ofurhetjur, fyrsta bók Elias/Agnes Vahlund 4 Þitt eigið ævintýriÆvar Þór Benediktsson 5 Framúrskarandi konur sem breyttu heiminum Kate Pankhurst 6 Kvöldsögur fyrir upp- reisnargjarnar stelpur Elena Favilli/Francesca Cavallo 7 Dagbók Kidda klaufa 9Jeff Kinney 8 Kiddi klaufi – Þín eigin dagbók Jeff Kinney 9 Góðar gáturGuðjón Ingi Eiríksson 10 Bestu barnabrandararnir – heimsklassa grín Ýmsir höfundar Allar bækur Barnabækur Ég er að lesa athyglisverða bók, eldgamla reyndar, Tvenna tíma eftir Elínborgu Lárusdóttur. Það var verið að gefa hana út aftur, en hún var til gömul hérna í bókasafninu. Þetta er átakan- legur lestur og hlut- ur kvenna var ekki hátt skrifaður í þá daga svo að því leyti hefur okkur farið mikið fram. Ég er með Sakramentið hans Ólafs Jóhanns Ólafssonar á nátt- borðinu. Ég er að- eins byrjuð á henni. Mér finnst hann ágætur höfundur, hann skrifar fallegt mál. Síðan hef ég verið að glugga í Allt þetta fólk, bókina um Þormóðsslysið eftir Jakob Ágúst Hjálm- arsson. Þegar ég var að alast upp hér á Bíldudal vissu náttúrlega allir um Þormóðsslysið en það var aldrei talað um það. Ég held að það hafi verið áfallahjálp fólksins á þeim tíma, það var bara ákveðið að það yrði ekki nefnt. ÉG ER AÐ LESA Sigríður Bjarnadóttir Sigríður Bjarnadóttir er forstöðu- maður Bókasafns Bílddælinga. Þríleikur Jóns Kalmans Stefánssonar, Himna- ríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins hefur verið gefinn út í einu bindi und- ir nafni fyrstu bókarinnar. Bækurnar, sem komu út á árunum 2007 til 2011, eru uppsretta leik- verksins Himnaríkis og helvítis sem nú er á fjölum Borgarleikhússins. Sögusviðið er sjávar- þorp um þarsíðustu aldamót og sagan er þroskasaga pilts sem er einn í heiminum og fót- ar sig á leið til fullorðinsáranna og ástarinnar. Benedikt bókaútgáfa gefur út. Þótt sýrt grænmeti njóti hylli víða um heim og hafi gert það í þúsundir ára er lítil hefð fyrir slíku hér á landi þó áhuginn hafi aukist undan- farin ár. Í bókinni Súrkál fyrir sælkera, sem Vaka-Helgafell gefur út, segir Dagný Her- mannsdóttir frá því hvernig sýra megi græn- meti og birtir fjölmargar uppskriftir, meðal annars af hefðbundnu súrkáli, gúrku-relish, rófu-chutney, kóresku kimchi, sýrðum smá- gúrkum, pækluðum radísum og söltuðum sí- trónum svo dæmi séu tekin. Myndir í bókinni eru eftir Gunnar Sverrisson og Höllu Báru Gestsdóttur. Ellefta bókin í sagnabálki Jo Nesbø um lög- regluforingjann Harry Hole heitir Þorsti og seg- ir frá því er kona finnst látin í íbúð sinni í Ósló eftir að hafa átt stefnumót á bar. Á hálsi kon- unnar eru för sem líkjast bitförum manneskju en ekki alveg nema viðkomandi hafi verið með yddar vígtennur. Fleiri áþekk morð fylgja í kjöl- farið og lögreglan kallar til Harry Hole, sem er orðinn kennari við lögregluháskólann. Hann er tregur en slær svo til þegar ástvinum hans er ógnað. Halla Kjartansdóttir þýddi. NÝJAR BÆKUR Nýjasta bókin í Eddumálaröð Jónínu Leósdótturer Óvelkomni maðurinn og hefst með heldur enekki sviplegu dauðsfalli. - Eins og Edda er nú skemmtileg söguhetja þá veit ég ekki hvort ég myndi þora að umgangast hana of mikið af ótta við að hljóta hörmuleg endalok! „Það er kannski ekki lífshættulegt að umgangast hana Eddu en það er aldrei lognmolla í kringum hana,“ segir Jónína Leósdóttir. „Hún verður líka friðlaus ef hana grunar að einhver eigi sér leyndarmál. Þeir sem vilja lifa í friði og ró ættu því að vara sig á henni, ekki síst ef þeir hafa þar að auki eitthvað að fela.“ - Eitthvað er henni líka í nöp við fólkið í heita pott- inum. „Flestir eru haldnir ákveðinni sjálfsblekkingu og það á einnig við um Eddu. Þannig hefur hún fyrirlitningu á fólki sem nýtur þess að smjatta á lífi annarra, t.d. á með- an það marar í heitum pottum við sundlaugar. En svo er hún sjálf yfirmáta forvitin um náungann og með nefið of- an í hvers manns koppi. Þó myndi hún auðvitað orða þetta þannig að henni væri einfaldlega ekkert mannlegt óviðkomandi.“ - Það er mikill hraði í bókinni og ótrúlega mikið sem gerist á fáum dögum, ertu ekki að ganga fullnálægt henni? „Edda er nú ekki nema 67 ára þannig að hún þolir al- veg smáhasar í nokkra daga. Þegar um hægist slakar hún síðan á með því að lesa bækur, enda fyrrverandi verslunarstjóri í bókabúð og mikill bókaormur. Ég spái því reyndar að brátt leiðist henni svo lífið í hinum helga steini að hún skelli sér aftur út á vinnumarkaðinn. Og þá þurfa nú fleiri en Vesturbæingar að vara sig! Fyrst verð- ur ríkisstjórnin þó að hækka frítekjumark eftirlauna- fólks sem Eddu finnst algjör skandall. Nema hún fari hreinlega í pólitík. Þar gæti hún t.d. barist fyrir bættum kjörum Gustavs, vinar síns, og ann- arra arðrændra útlendinga á Íslandi. Ég myndi hiklaust kjósa hana því við Edda höfum svipaða réttlætiskennd.“ - Þú nefndir það einu sinni að þú fléttaðir gjarnan sannar en stílfærðar sögur úr daglega lífinu inn í bæk- urnar – er sagan af Sibbu og Steven þannig til komin? „Ég hef botnlausan áhuga á fólki, samskiptum þess og örlögum. Ég bókstaflega drekk í mig frásagnir af drama- tískri lífsreynslu, enda má læra margt af því hvernig þroskaðir einstaklingar takast á við áföll og ná að lifa með þeim. Saga Sibbu, móður Viktors sem lesendur Eddubókanna kannast við, er ekki byggð á manneskju sem ég þekki, heldur sprottin af vangaveltum um reynslu sem hlýtur að vera hræðilega erfið. Sibbu hefur tekist að halda þessu leyndu í áratugi en þegar Edda kemst á sporið er auðvitað ekki að sökum að spyrja.“ - Fáum við að heyra meira af fyrrverandi hennar Eddu og gráa fiðringnum hans? „Það hefur alltaf staðið til að segja svolítið frá fyrrver- andi eiginmanni Eddu en vesalings maðurinn hefur ekki enn komist að þótt bækurnar séu orðnar þrjár. Er það ekki alveg dæmigert?“ Yfirmáta forvitin Edda Edda er eftirlaunakona í Vesturbænum, forvitin mjög um hagi annarra og kannski dálítið afskiptasöm, enda má hún ekkert aumt sjá. Af henni eru ýmsar sögur sem Jónína Leósdóttir skráir í bókaflokknum Eddumál. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Jónína Leosdóttir segir Eddu sína yfirmáta forvitna. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.