Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 15
4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 ekki rétta nálgunin. Betra er að nálgast við- fangsefnið á jákvæðan hátt til dæmis í gegnum foreldra og vini.“ Ekki er sjálfgefið að börn alist upp við bók- lestur og Brynhildur bendir á, að rannsóknir sýni að háskólamenntaðir foreldrar séu líklegri til að lesa fyrir börnin sín og þar með hafi þau forskot á önnur börn þegar kemur að lestrar- námi. Eins séu mæður líklegri til að lesa fyrir börn en feður og þar sé klárlega sóknarfæri í að virkja feðurna. „Við þurfum að reyna að ná bet- ur til hins breiða hóps og virkja alla foreldra. Sumir foreldrar lesa auðvitað ekki íslensku og þá koma hljóðbækur í góðar þarfir. Lausnirnar eru til, við þurfum bara að vera opin fyrir þeim.“ Að dómi Hrefnu eru foreldrar besta fyrir- myndin. „Reynsla mín sem foreldri hefur kennt mér að fyrirmyndir eru mjög mikilvægar í þessu sambandi en lestraráhuginn kviknar heima; ef við foreldrarnir lesum aukast líkurnar á því að börnin okkar geri það líka. Svo hafa krakkar auðvitað rosalega gaman af því að láta lesa fyrir sig og einnig er mikilvægt að tala um það sem við lesum.“ Bókin lifir! Um leið og við þurfum að vera raunsæ hvetur Hrefna okkur til að gleyma okkur ekki í svart- sýninni þegar kemur að læsi barna og unglinga. Heimur versnandi fer! Börn geta ekki lengur les- ið sér til gagns! og allt það. „Þegar allt er saman tekið eru jákvæð teikn á lofti. Þetta virðist halla í rétta átt en lestrarátak er ekki tímabundið held- ur áframhaldandi verkefni. Það er eins með lest- urinn og forvarnirnar, starfinu er aldrei lokið.“ Brynhildur tekur undir þetta; segir okkur geta verið þakklát og stolt af því hversu mörg börn og unglingar teygi sig þó eftir bókinni á tímum óvenju harðrar samkeppni um athygli. „Þegar við hugsum um sjónvarpið, allar efnis- veiturnar, alla tölvuleikina og hvað þetta allt heitir þá hlýtur að vera stórkostlegt að börn séu enn að lesa. Bókin lifir.“ Samkeppni um athygli barna og unglinga hef- ur aldrei verið meiri en nú um stundir. Morgunblaðið/Hari ’Lestur verður að veraskemmtilegur eigi hannað standast samkeppni viðaðra afþreyingu. Hér er bók, farðu og lestu í fimmtán mín- útur! er ekki rétta nálgunin. Nýjasta verkefni Barnabókaseturs er að fara í gang þessa dagana. Um er að ræða mynd- bandasamkeppn- ina Siljuna sem haldin verður í fjórða sinn. Allir grunnskólanemar á landinu geta keppt, peninga- verðlaun eru í boði en aðal- verðlaunin eru þó 100.000 króna bókaúttekt fyrir skólasafn sigur- vegaranna sem Barnabókasetur og Félag ís- lenskra bókaút- gefenda standa saman að. „Staða skólasafna landsins hefur verið slæm enda voru fjárveitingar skornar harkalega niður við hrun og hafa sjaldnast skilað sér til baka. Bókaúttektin hefur því skipt heilmiklu máli fyrir þá skóla sem átt hafa sigurvegara hingað til,“ segir Brynhildur Þórarinsdóttir. Í fyrra voru það Bláskógaskóli í Reykholti (yngri flokkur 5.-7. bekkur) og Vogaskóli í Reykjavík (8.-10. bekkur) sem fóru með sigur af hólmi. „Fyrir lítinn skóla eins og Bláskógaskóla geta 100.000 krónur stór- bætt bókakostinn og stuðlað að auknum yndislestri nemenda. Við förum fram á það að nemendur séu hafð- ir með í ráðum um val á bókum, að gerðir séu óska- listar með aðstoð nemenda og fyrst og fremst valdar bækur sem krakkana langar til að lesa,“ segir Bryn- hildur. Siljan er keppni sem hefur m.a. það hlut- verk að efla bókakost grunnskólanna. Siljan að fara í gang „Ef marka má nýjustu kannanir og þau viðbrögð sem ég fæ þegar ég mæti í skólana og spjalla við börnin þá virðist stór hluti þeirra vera að lesa. Og það sem meira er, þau eru að lesa sér til ánægju en ekki bara vegna þess að þau eiga að gera það í skólanum. Þannig viljum við auðvitað hafa það – bókaorma út um allt.“ Þetta segir Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari, en auk þess að hafa sent frá sér vinsælar barnabækur hefur hann undanfarin misseri staðið fyrir lestrarátaki Ævars vísindamanns í grunnskólum. Slagorðið í átaki Ævars er: Hvað lang- ar þig að lesa? „Ef ein bók er skemmti- leg, þá er önnur bók það líka. Börn þurfa bara að finna fyrstu skemmtilegu bókina og hún má vera um hvað sem er. Bara eitthvað sem viðkomandi barn langar að lesa. Þess vegna hef ég barist fyrir því að við fullorðna fólkið drögum úr snobbinu þegar við ákveðum hvað má og hvað má ekki lesa. Skemmtilegustu bækurnar eru ekkert endilega þær sem við mælum með, þvert á móti verð- um við að treysta krökkunum. Þeir finna þetta sjálfir.“ Tinni auðgar orðaforðann Hann kveðst oft nefna teiknimyndasögur í þessu sambandi en þær njóta ekki alltaf hylli meðal fullorðna fólksins. „Margir læra að lesa af myndasögusyrpum, Tinna, Ástríki og öllu þessu og komast þannig á bragðið; ég tala nú ekki um ef þýð- ingarnar eru eins góðar og í Tinna. Margir hafa lært ýmislegt og bætt í orðaforðann með því að lesa hann.“ Sem vinsæll höfundur finnur Ævar til ábyrgðar; efnið þurfi að vera vandað. En ábyrgðin liggur víðar. „Þá er ég að tala um þá sem veita listamannalaun; þeir þurfa að muna eftir barnabókahöfundum við úthlutunina svo þetta sé hægt. Það mættu að ósekju fara fleiri mánuðir til barna- og unglingabókahöfunda.“ Eigi börn og unglingar að lesa verður nýtt lesefni að koma út og að dómi Ævars þyrftu bækur fyrir þennan hóp helst að koma út jafnt og þétt yfir árið, eins og tíðkast erlendis. Hér heima kemur lang- mest af þeim út fyrir jólin og duglegustu krakkarnir eru búnir með það efni strax í janúar eða febrúar. „Þess vegna væri æskilegt að dreifa útgáfunni betur yfir árið.“ Nýjasta bók Ævars, Þitt eigið ævintýri, náði fjórða sæti Bóksölulistans á nýliðnu ári og bók Gunnars Helgasonar, Amma best, var í sætinu fyrir ofan. Ævari þykir að vonum ánægjulegt að sjá barnabækur svona ofarlega á listanum en segir áber- andi að mun minna sé fjallað um þessar bækur en efni fyrir fullorðna. Ævar skrifar þetta óhikað á fordóma. „Ég hef reynt það á eigin skinni, hvort sem það er með bækur fyrir börn eða sjónvarpsefni fyrir börn, að fólki hættir til að setja orðið „bara“ fyrir framan. Þetta er „bara“ barnabók! Það er hins vegar ekkert „bara“ við það að búa til efni fyrir börn og fólk er smám saman að átta sig betur á því. Við höfundarnir þurfum samt að halda áfram að hamra á þessu enda þótt það sé auðvitað orðið pínulítið þreytandi.“ Sem dæmi má nefna að Þitt eigið ævintýri fékk ekki eina einustu ritrýni á prenti, í sjónvarpi eða útvarpi fyrir jólin. „Það var ekki í fyrsta skipti sem það gerist með bækurnar mínar. Auðvitað er pláss af skornum skammti í blöðunum, það komu út 300 bækur í október, en er virkilega enginn forvitinn að vita hvað það er sem börn á Íslandi eru að sækja í? Þarf barnaefnið alltaf að mæta afgangi?“ Lestrarátak Ævars vísindamanns stendur til 1. mars, allir í 1.-10. bekk geta tekið þátt og allar upplýsingar eru á www.visindamadur.is. Ekkert sem heitir „bara“ barnabók Lestrarátak Ævars vísindamanns stendur nú sem hæst í grunnskólum landsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.