Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Qupperneq 17
Bianca og Stephany ásamt einni konunni sem þær aðstoðuðu heima í Mexíkó. Sú er á tíræðisaldri, hús hennar skemmdist gríðarlega í skjálftanum mikla en þær náðu að kosta lagfæringarnar. 4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ’Okkur líður dásamlega áAkureyri. Við gætum al-veg hugsað okkur að setjasthér að og höfum íhugað það. Fljótlega eftir að mjög harður jarðskjálfti reið yfir Mexíkó síðastliðið haust fengu Stephany Mayor og Bianca Sierra þá hug- mynd að safna fé til þess að aðstoða þá sem áttu um sárt að binda í kjölfar skjálftans. Þeirra fyrsta verk var að stofna til happ- drættis þar sem vinningurinn var árituð landsliðstreyja framherjans Stéphany, besta og markahæsta leikmanns Íslandsmótsins í fyrra. Treyjunni hafði hún klæðst í leikjum á heimsmeistaramótinu árið áður. Þær renndu nokkuð blint í sjóinn en létu slag standa. Svo fór að miðarnir seldust upp á augabragði, þeim til mikillar ánægju og dregið var í hálfleik viðureignar Þórs/KA og Stjörnunnar á Þórsvellinum, hálfri annarri viku eftir skjálftann. Það var ung stúlka, Ingibjörg Lóa Sævarsdóttir, sem datt í lukkupottinn. Hátt í 400 manns létust í jarðskjálftanum, um 6.000 slösuðust og fjöldi bygginga hrundi eða skemmdist mjög mikið. Auk happrættisins stóðu þær Bianca og Stephany fyrir fjársöfnun á netinu og fljót- lega eftir að keppnistímbilinu lauk hérlendis síðastliðið haust héldu þær á skjálftasvæðið í Morelos héraði, en þangað er um tveggja klukkustunda akstur frá heimili Stephany í Mexíkóborg. „Eyðileggingin var ótrúleg og mjög sorg- legt að sjá hvernig komið var. Eftir því sem nær dró sáum við að vegir höfðu skemmst mjög mikið en mesta eyðileggingin blasti við þegar við komum á leiðarenda. Fjöldi húsa var rústir einir, þök voru horfin af mörgum og veggir brotnir,“ segir Bianca. „Mexíkósk yfirvöld gátu sem betur fer hjálpað mjög mörgum því verulegar fjár- hæðir söfnuðust til hjálparstarfs. Hins vegar voru ekki allir svo heppnir og við gátum að- stoðað konur sem höfðu til dæmis misst eiginmanninn; ef eignin var skráð á hann gátu þær ekki fengið hjálp frá ríkinu þar sem þær áttu ekki húsin miðað við op- inbera skráningu. Sumar þessara kvenna höfðu misst allt sitt.“ Í stað þess að afhenda beinharða peninga voru aðstæður metnar á hverjum stað og Bianca og Stephany keyptu síðan það sem þurfti til þess að koma húsakynnum fólksins í samt lag. „Það var yndislegt að geta kom- ið löndum okkar til hjálpar og við áttum margar tilfinningaríkar stundir með fólk- inu.“ Yndislegt að geta hjálpað fólki í neyð í Mexíkó Sævar Helgason, Ingibjörg Lóa Sævarsdóttir með treyjuna góðu, Bianca og Stephany. Bianca Sierra, til vinstri, og Stephany Mayor Gutiérrez bregða á leik í snjónum heima á Akureyri.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.