Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Qupperneq 24
HEILSA Samtök í Kaliforníu hafa höfðað mál á hendur bandarískum kaffirisumfyrir að hafa ekki varað neytendur við að í kaffinu væri að finnakrabbameinsvaldinn akrílamíð. Verjendur segja að heilsubætandi áhrif
kaffis séu mun meiri en hættan af örsmáum skömmtum af akrílamíði.
Vilja varúðarmerkingar á kaffi
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018
Hópi japanskra og ástralskra vísindamanna hefur
tekist að þróa blóðsýnapróf sem getur greint pró-
tein sem tengist myndun Alzheimer-sjúkdómsins.
Vísindamennirnir birtu niðurstöður sínar í tíma-
ritinu Nature og reyndist prófið gefa rétta niður-
stöðu í 90% tilfella, hvort sem skoðað var sýni úr
heilbrigðu fólki, fólki með minnistap eða fólki sem
greint hafði verið með Alzheimer-sjúkdóminn.
Próteinið sem um ræðir er afbrigði af mýlildi,
sem kallast amyloid beta og byrjar að safnast upp í
heilanum eftir því sem Alzheimer-sjúkdómurinn
ágerist. Alzheimer-sjúklingar greina ekki minnistap
fyrr en mörgum árum eftir að sjúkdómurinn hefur
tekið að þróast í heila og gæti skimun á blóði þýtt
að hægt væri að greina sjúkdóminn mun fyrr og þar
með hefja meðferð áður en minni sjúklingsins tek-
ur að skerðast. Til þessa hefur aðeins verið hægt að
greina Alzheimer-sjúkdóminn með sneiðmynda-
töku á heila sem er bæði dýr og flókin aðferð sem
hentar ekki til almennrar skimunar. ai@mbl.is
ÆTTI AÐ VERA HÆGT AÐ GREINA SJÚKDÓMINN MUN FYRR
Geta greint Alzheimer með blóðprufu
Blóðsýnaprufan gaf rétta niðurstöðu í 90% tilvika.
Elsa Guðrún Jónsdóttir á ekkilangt að sækja skíðaáhugannþví faðir hennar Jón Árni
Konráðsson var mikil skíðakempa og
keppti m.a. á heimsmeistaramóti fyr-
ir Íslands hönd árið 1982. Snjóinn
vantaði heldur ekki norður á Ólafs-
firði þar sem Elsa hefur búið alla sína
tíð, og hefur hún verið á skíðum alla
vetur frá því hún man eftir sér. „Við
vorum á bólakafi í þessu öll fjöl-
skyldan, og ég og systkini mín ólumst
upp við að spila fótbolta allt sumarið
en vera á skíðum allan veturinn.“
Elsa tekur þátt í Vetrarólympíu-
leikunum sem haldnir verða í Suður--
Kóreu síðar í mánuðinum og keppir
fyrir Íslands hönd í 10 km skíða-
göngu með frjálsri aðferð. Er gaman
að nefna að leiðin á Ólympíuleikana
hófst á Andrésar Andar-leikunum
þegar Elsa var lítil hnáta. „Ég var
ekki endilega flinkust á gönguskíð-
um, en var strax sem barn með
svakalegt keppnisskap, ætlaði mér
að vinna og hamaðist því eins og ég
gat.“
Áfram lá leiðin á unglingalands-
mót, bikarmót og í landsliðið. Elsa
gerði atlögu að því að komast á
Vetrarólympíuleikana 2006 en náði
ekki þátttökulágmarki. Í kjölfarið
ákvað hún að hægja ögn á skíðaiðk-
uninni og gaf sér tíma fyrir barn-
eignir, uppeldi og nám, en tók svo
aftur til við að skíða af kappi þegar
börnin voru orðin nógu stór til að
reima sjálf á sig skíðaskóna. Tíu ár-
um eftir að hún reyndi fyrst að kom-
ast á Ólympíuleikana 2006 var Elsa
komin á fleygiferð með landsliðinu,
og náði loks því markmiði sínu að
komast á Ólympíuleikana.
Skíðaganga skiptist í hefðbundna
göngu og frjálsa aðferð, og ýmist er
keppt í sprettgöngu eða lengri vega-
lengdum. Lengri vegalengdir sem
eru í boði í keppnum á Íslandi geta
verið frá 5 km og upp í 50 km og
keppt bæði í karla- og kvennaflokki.
Á Ólympíuleikunum gafst Elsu kost-
ur á að keppa annaðhvort í sprett-
göngu eða 10 km göngu með frjálsri
aðferð, og varð síðari kosturinn fyrir
valinu enda sú grein þar sem hún er
sterkust.
Endurnærð eftir æfingar
En hvað er það sem fékk Elsu til að
leggja gönguskíðin fyrir sig, frekar
en einhverja aðra skíðaíþrótt? Hún
segir íþróttina bjóða upp á mjög góða
hreyfingu sem reyni á allan líkam-
ann, og einnig ákaflega gefandi að
arka um í hvítum snjónum í fallegri
náttúru. „Eftir góða æfingu í vetrar-
ríkinu kem ég alltaf endurnærð til
baka,“ segir hún og bætir við að ekki
þurfi eins mikinn snjó til að fara á
gönguskíði og þarf til að fara á brun-
eða svigskíði. „Það þarf ekki lyftur
eða troðara, og ekki einu sinni sér-
staka braut, og má t.d. halda út á
næsta fótboltavöll strax og byrjar að
snjóa og æfa sig þar.“
Skíðaganga getur verið líkamlega
krefjandi, og á listum yfir þær
vetraríþróttir sem brenna flestum
hitaeiningum lenda gönguskíðin
mjög ofarlega. Elsa segir að þetta
þýði ekki að íþróttin sé óaðgengileg
enda getur fólk gengið á eigin hraða
og farið þá vegalengd sem það
treystir sér til. „Amma mín er t.d.
komin yfir sjötugt og fer á göngu-
skíði oft á hverjum vetri,“ segir hún.
„Það sem helst flækist fyrir byrj-
endum er samhæfingin og jafn-
vægið, enda þarf vinstri hönd að
hreyfast fram með hægri fæti, og öf-
ugt, en flestir eru fljótir að ná góðum
tökum á undirstöðunum.“
Til að byrja að stunda íþróttina
þarf líka að fá lánuð, eða kaupa, góð
gönguskíði, gönguskíðastafi og -skó.
„Fólk er líka í léttari fatnaði á
gönguskíðum en á svigskíðum eða
snjóbretti, og eru t.d. hefðbundnar
snjóbuxur allt of þykkur fatnaður
fyrir gönguskíðin. Þess í stað á að
klæðast léttum buxum og jakka, ekki
ósvipað og þegar farið er út að
skokka í kulda,“ útskýrir Elsa. „Best
er að byrja á flatlendi til að æfa
tæknina og ná upp þoli og hraða
áður en tekist er á við brekkurnar.“
Elsa segist mæla með gönguskíð-
um fyrir jafnt unga sem aldna. „Það
geta þetta allir og um mjög gott fjöl-
skyldusport að ræða. Mikill upp-
gangur er líka í gönguskíðaíþróttinni
í dag, og vinsælt hjá þeim sem
stunda hlaup og hjólreiðar af kappi
að skipta yfir í gönguskíðin á vet-
urna.“
Elsa segir skíðagöngu aðgengilega. „Það þarf ekki lyftur eða troðara,
og ekki einu sinni sérstaka braut, og má t.d. halda út á næsta fót-
boltavöll strax og byrjar að snjóa og æfa sig þar.“ Elsa er einn þriggja
íslenskra keppenda í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum 2018.
Hinir eru Isak S. Pedersen og Snorri Einarsson. Auk þeirra keppa
Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason í alpagreinum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Með mikið
keppnisskap á
Andrésar
Andar-leikum
Elsa Guðrún byrjaði kornung að keppa í skíða-
göngu og æfir nú fyrir Vetrarólympíuleikana í
Suður-Kóreu í febrúar. Hún verður fyrsta konan
til að keppa í íþróttinni fyrir Íslands hönd.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
32.500kr
HILLA MEÐ SNÖGUM
24.900kr
GLERBOX
3.600kr
BEKKUR