Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Síða 28
Fólk sem situr allan daginn ívinnunni hefur gott af því aðfara í frí þar sem lögð er
áhersla á hreyfingu. Það er líka
bara svo gott að setjast niður eftir
að hafa fengið góða útrás og teygja
úr þreyttum vöðvum og finna að
hvíldin er verðskulduð.
Strandfrí þarf ekki endilega að
þýða letilíf heldur er vel hægt að
hreyfa sig á ströndinni, eða nánar
til tekið í sjónum. Brimbrettafrí er
góður valkostur og er hægt að
heimsækja marga staði þar sem
hægt er að læra á brimbretti í frí-
inu.
Hægt er að stunda brimbretti við
Ísland eins og atvinnumaðurinn
Heiðar Logi Elíasson hefur sannað
fyrir landanum en það þarf heldur
ekki að fara langt til þess að komast
í hlýrra veður og sjó. Auðvelt er að
finna stærri brimbrettaskóla sem
jafnvel bjóða líka upp á gistingu en
einnig er vel hægt að mæla með því
að finna kennslu einn og einn dag til
GettyImages/iStockphoto
Brimbretti
og baðströnd
Það þarf ekki að vera samasemmerki á milli þess að fara í frí á strönd-
ina og þess að liggja allan daginn í sólstól. Brimbrettafrí hafa notið
aukinna vinsælda undanfarið og er hægt að heimsækja marga staði
bæði nær og fjær til þess að læra þessa krefjandi íþrótt.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
’ Það getur verið sniðugt að fara í frí þar sem lögð er áhersla á hreyfingu.því er þetta góð hreyfing fyrir skrif-
stofufólk sem eyðir of miklum tíma
innandyra. Fyrir þá sem hafa áhuga
á að kynna sér brimbrettafrí nánar
er síðan surfholidays.com hjálpleg.
að prófa íþróttina undir öruggri
leiðsögn.
Það tekur líkamlega mikið á að
vera á brimbretti en það hreinsar
líka hugann að vera við sjóinn og
Fyrir þá sem vilja fara aðeins
lengra til að fara á brimbretti er
Marokkó góður valkostur. Þar
er hægt að fara á brimbretti allt
árið.
Best er fyrir byrjendur að fara
í september til apríl (suður- og
miðhluti landsins) eða í maí til
september (norðurhluti).
Brimbrettaiðkun barst til
landsins með bandaríska hern-
um á sjötta áratug síðustu ald-
ar. Essaouira og Taghazout
urðu síðan vinsælir bæir á
hippatímabilinu og flestir sem
fara í brimbrettafrí til landsins í
dag dvelja nálægt síðarnefnda
bænum. Taghazout er brim-
brettahöfuðborg Marokkó og
góður staður til að flýja kalda
vetur í Evrópu. Strandirnar þar
eiga að hæfa bæði byrjendum
og lengra komnum en þarna
eru langar sandstrendur. Bær-
inn er í 20 mínútna fjarlægð frá
Agadir. Sjávarhiti er um 23°C.
Paradis Plage er hótel og
skóli á ströndinni norður af Tag-
hazout, þar sem hægt er að
læra á brimbretti, stunda jóga
eða heimsækja spa og er þetta
fyrsti staðurinn af sínu tagi í
landinu en svæðið var opnað ár-
ið 2012. Ef til dæmis par er að
ferðast saman en deilir ekki
áhugamálum getur annað farið
í jógaskólann og hitt á brim-
bretti. Þarna er að minnsta
kosti hægt að þjálfa bæði líkama
og huga á sama staðnum.
MAROKKÓ
Gott allt árið
GettyImages/iStockphoto
FERÐALÖG Brimbrettafrí heilla kannski ekki alla en það er margtannað hægt að gera til þess að hreyfa sig á ferðalagi.Til dæmis er hægt að fara í gönguferðir, synda, hjóla,
fara í hestaferð eða stunda jóga.
Í formi á ferðalagi
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018