Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 37
Þátttakendur í hinum rótgróna og
víðfræga spurningaþætti Masterm-
ind í breska ríkissjónvarpinu, BBC,
geta ekki lengur valið spurningar
sem tengjast sjónvarpsþáttunum
Fawlty Towers og Blackadder,
bókaflokknum Chronicles of
Narnia og skáldinu Roald Dahl.
Skýringin er einföld: Þessir flokkar
hafa orðið svo oft fyrir valinu gegn-
um tíðina að spurningahöfundar
þáttarins eru þurrausnir.
Mastermind hóf göngu sína árið
1972 undir stjórn Magnúsar okkar
Magnússonar, en í seinni tíð spyr
John nokkur Humphries spurning-
anna. Þátturinn er frægur fyrir
snúnar spurningar og enda þótt
keppendur velji spurningaflokkana
sjálfir komast sárafáir alla leið í
mark. Sem dæmi má nefna að 262
keppendur vildu í fyrra spreyta sig
á spurningum um galdradrenginn
Harry Potter en aðeins einn af
þeim stóðst prófið og komst áfram
í næstu umferð, þar sem spurning-
arnar geta verið um allt milli him-
ins og jarðar. Potter var vinsælasta
viðfangsefnið á liðnu ári.
Keppendur mega velja hvaða
efni sem er svo lengi sem það særir
ekki blygðunarkennd áhorfenda
BBC Two á föstudagskvöldum. Af
nægu þarf þó að vera að taka.
Þannig þykir flokkurinn „Rómeó
og Júlía“ of þröngur og flokkurinn
„höfundarverk Shakespeares“ of
víður, að sögn framleiðanda þátt-
anna.
Mastermind hefur sætt gagnrýni
fyrir að hleypa að léttmeti eins og
Friends og Frasier en þar á bæ
verja menn sig með þeim rökum
að hvor sjónvarpssería sé yfir 200
þættir og því sé af nægu að taka.
Reuters
MASTERMIND SETUR SKORÐUR
Spurningahöfund-
arnir þurrausnir
Magnús heitinn
Magnússon.
Morgunblaðið/Sverrir
Harry Potter og fé-
lagar eru vinsælasta
viðfangsefnið.
4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
MÁLMUR Alissa White-Gluz, hin kanadíska söngkona
sænska dauðamálmbandsins Arch Enemy, upplýsir í ný-
legu viðtali við Spark TV að illa þurfi að liggja á henni
þegar hún semur söngtexta, auk þess sem henni þyki
alltaf best að stinga niður penna í skjóli nætur, helst
undir morgun. Vel fer líklega á því í ljósi þess hvernig
tónlist Arch Enemy flytur. Þá kveðst White-Gluz gefa
frá sér alla stjórn við iðjuna, orðin fái bara að flæða í
frelsi sínu. „Ég læt þetta bara gerast og finn alltaf hve-
nær textinn er tilbúinn. Það er eins með textagerð og
málverk; lengi má bæta einni pensilstroku við,“ segir
hún. White-Gluz yrkir ekki bara þegar á þarf að halda
fyrir plötur, heldur þegar andinn kemur yfir hana sem
þýðir að hún á yfirleitt tilbúið efni í handraðanum.
Best að yrkja í fýlu Alissa
White-
Gluz. SJÓNVARP Bretar hafa löngum sérhæft sig
í stuttum spennuseríum og ein slík, Collate-
ral, verður aðgengileg á efnisveitunni Netflix
síðar í mánuðinum. Flatbökusendill finnst
myrtur í Lundúnum og þrjósk rannsóknar-
lögreglukona, leikin af Carey Mulligan, neit-
ar að trúa því að hér sé um handahófs-
kenndan verknað að ræða. Hún gefur því allt
í rannsóknina í þeirri von að draga myrk öfl
fram í dagsljósið. Í öðrum helstu hlutverkum
eru John Simm, Nicola Walker og Billie
Piper. Handritshöfundur er David Hare og
leikstjóri S.J. Clarkson sem meðal annars
hefur leikstýrt þáttum af Dexter.
Flatbökusendill finnst myrtur
Carey Mulligan reynir að leysa morðgátu.
AFP
Það gekk á ýmsu í heimi popplistanna
í vikunni úti í hinum stóra heimi. Rýr
hlutur kvenna þegar Grammy-
verðlaununum var úthlutað var mikið
í umræðunni og ekki síður ummæli
forseta verðlaunanna, Neil Portnow,
þess efnis að konur yrðu hreinlega að
„stíga upp“ til að auka hlut sinn.
Hann bætti því raunar við að auknu
framlagi kvenna á hinum ýmsu svið-
um tónlistarinnar yrði fagnað.
Ýmsar málsmetandi konur í popp-
bransanum tóku ummælin óstinnt
upp, þeirra á meðal hin litríka söng-
kona Pink, sem ekki tókst að landa
verðlaunum á hátíðinni. „Konur hafa
verið stígandi frá örófi alda,“ sagði
hún í handskrifuðu bréfi á Twitter.
„Þær hafa stigið upp og líka stigið til
hliðar.“
Verður risaeðlan kona?
#metoo-byltingin, sem farið hef-
ur eins og eldur í sinu um
heimsbyggðina, hefur nú
náð í skottið á James
gamla Bond, ef marka má
umfjöllun í breska blaðinu
The Guardian í vikunni, en
þar veltir greinarhöfundur
fyrir sér hvort ekki
þurfi að hoppa yf-
ir svartan Bond
og fara hreinlega
beint í kvenkyns
Bond í næstu kvik-
mynd um njósnara
hennar hátignar. Það
yrði eitthvað! Engar
leikkonur eru þó nefndar
á nafn í þessu sambandi.
Í greininni kemur einnig fram að
karlremba Bonds hafi verið tónuð
niður í seinni tíð en frægt er að yfir-
maður hans, leikinn af Dame Judi
Dench, kallaði njósnarann „risa-
eðlu“ í Quantum of Solace fyrir
heilum áratug.
Aðdáendur Meryl Streep
hafa verið með böggum
hildar í vikunni
en Donna, kar-
akter hinnar
margverð-
launuðu
leikkonu í
nýju
söngva-
myndinni
Mamma Mia!
Here We Go Aga-
in, er vart sýnileg
í tveimur stiklum
sem komið hafa fyrir augu almenn-
ings. Donna opnar víst ekki einu sinni
munninn. Gera menn því nú skóna að
Donna muni jafnvel sálast í mynd-
inni, sem er framhald af hinni víð-
frægu söngvamynd Mamma Mia! og
byggist á tónlist Abba-flokksins sí-
vinsæla.
Talandi um sívinsæla tónlistar-
menn þá var upplýst í vikunni að Paul
Simon, sem orðinn er 76 ára gamall,
myndi stíga á svið í hinsta sinn í Hyde
Park í Lundúnum 15. júlí næstkom-
andi. Goðsögninni til halds og trausts
verða Bonnie Raitt og James Taylor.
Tónleikar Simons verða rúsínan í
pylsuendanum á tíu daga langri tón-
leikahátíð í garðinum. Simon hefur
lengi íhugað að draga sig í hlé. „Það
er hugrekki að láta staðar numið,“
sagði hann við The NY Times fyrir
tveimur árum.
Bandaríska söng-
konan Pink á
Grammy-hátíðinni
um síðustu helgi. Hún
er hvorki hress með
rýran hlut kvenna né
ummæli forseta
verðlaunanna.
AFP
VIKA ER LANGUR TÍMI Í POPPINU
Stígandi konur, kvenkyns
Bond og er Donna dáin?
Nafnið er Bond.
Jane Bond.
Reuters
Opið alla daga vikunnar.
Viðburðardagatal á norraenahusid.is
Hlýlegtmenningarhús
í Vatnsmýrinni
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu