Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018 Hví ekki íslensku félagsliðin? Östersunds FK er líklega um-talaðasta fótboltafélag Evr-ópu þessi dægrin. Lið fé- lagsins var í fjórðu efstu deild Svíþjóðar fyrir sex árum en lék í vik- unni í 32 liða úrslitum Evrópudeild- arinnar. Tapaði um daginn 3:0 heima fyrir Arsenal en vann seinni leikinn í London, 2:1. Lygileg frammistaða og sannkallað Öskubuskuævintýri. Aðeins eru liðlega tveir áratugir síðan Östersunds FK var stofnað. Það var 1996 að nokkur félög á svæð- inu gengu til samstarfs og óhætt er að fullyrða að það skref var skyn- samlegt. Landslið Íslands hafa verið mjög í sviðsljósinu síðustu ár og árangur karlaliðsins á Evrópumótinu í Frakk- landi 2016 þótti ótrúlegt ævintýri. Þar komust Íslendingar í átta liða úr- slit, eftir að hafa slegið Englendinga út úr keppni. Því má spyrja: hvers vegna ætti íslenskt félagslið ekki að ná sambærilegum árangri og „smá- lið“ Östersunds FK eða landslið Ís- lands? Það fyrsta sem oft er nefnt eru peningar. Einnig aðstaða til æfinga og keppni. Þegar bisnessmaðurinn Daniel Kindberg tók við stjórn Öst- ersunds FK árið 2010 samsvaraði ársvelta félagsins fjórum milljónum íslenskra króna en er nú um 700. Og hún vex og vex, eins og þar stendur. Vegna árangursins í Evrópudeildinni í vetur fær félagið nefnilega upphæð sem samsvarar 645 milljónum ís- lenskra króna, frá UEFA, Knatt- spyrnusambandi Evrópu. Peningar eru þó ekki allt. Alls ekki. Skýr sýn og þolinmæði eru atriði sem Ólafur H. Kristjánsson, nýráð- inn þjálfari FH, nefnir að séu greini- lega í hávegum hjá sænska félaginu. Það séu lykilatriði. Ólafur hefur reynslu af þjálfun í Danmörku. Starfaði hjá Nordsjæll- and og Randers, áður en hann kom heim á ný í haust. „Árangur er ekki bara bein lína. Þolinmæði og auð- mýkt með tilliti til árangurs skipta miklu máli; ef blæs á móti eru menn oft mjög fljótir að ákveða að nauðsyn- legt sé að gera eitthvað, að skipta verði um kúrs.“ Málið er hins vegar ekki svo ein- falt, segir Ólafur. „Bæði í fyrirtækja- rekstri og íþróttum er nauðsynlegt að fara af stað með skýra sýn. Menn verða að vita hvaða leið þeir ætla að fara og á þeirri leið skipta margir litl- ir hlutir máli, kosta ekki endilega all- ir mikla peninga en geta gert viðkom- andi samkeppnishæfari.“ Ólafur segir því árangur liðs eins og Östersunds ekki snúast um neina töfra „heldur ofboðslega marga litla hluti sem þurfa að smella saman. Ár- angur Östersunds getur ekki verið tilviljun. Hann er klárlega afraksturs einhvers.“ Ólafi virðist þjálfarinn, Graham Potter hinn enski, ekki starfa við þjálfun sjálfum sér til dýrðar. „Hann sýnir ákveðna auðmýkt og er greini- lega mjög vel skrúfaður saman. Hann er augljóslega góður þjálfari, fer sín- ar eigin leiðir og félagið er til dæmis í nánum tengslum við samfélagið. Hjá forráðamönnum Östersunds snýst ekki allt bara um fótbolta heldur líka um lífið utan vallar.“ Fregnir herma að fótboltaliðið hafi t.d. sett upp söngleik í því skyni að láta leikmennina stíga út fyrir þann þægindaramma sem afreks- íþróttamenn festast oft inni í. Östersund er 500 km norðvestur af Stokkhólmi, „uppi í fjöllunum fyrir norðan,“ eins og stundum er sagt í Svíþjóð. Þekkt skíðasvæði. „Þess vegna er augljóst að félagið getur ekki keypt bestu leikmenn sem eru á markaðnum. Það hefur hins vegar án efa lagt áherslu á að fá til sín sterka karaktera sem átta sig á því fyrir hvað félagið stendur.“ Árangur er ekki alltaf skilgreindur með sama hætti. „Þegar hinn al- menni áhugamaður opnar Moggann á morgnana getur hann skoðað stöðutöflu á íþróttasíðu og myndað sér skoðun en sé kafað undir yfirboð- ið átta menn sig á því að árangur er ekki bara að vinna leik eða vera efst- ur. Líti menn þannig á málið eru þeir búnir að takmarka mjög tækifæri til að finna gleðitilfinninguna. Ég horfi til dæmis mikið til þess hvort mitt lið bætir sig í sóknarleik, hvort við eig- um fleiri skot á mark í dag en í gær, hvort við fáum á okkur færri skot og mörk en áður. Þegar árangur af þessu tagi batnar trúi ég því sem þjálfari að afleiðingin verði góð úrslit. Þjálfarar og forráðamenn félaga verða einmitt að vita að velgengni er ekki bein lína. Mótlætið er miklu meira en velgengnin á leiðinni. Ég er til dæmis viss um að Ísland væri ekki með svona gott landslið í dag ef það hefði ekki áður lent í mótlæti. Skúff- elsið yfir því að tapa fyrir Króötum í umspili um að komast á HM í Brasilíu mótíveraði leikmenn til dæmis örugglega í barátt- unni um að komast á EM í Frakklandi tveimur árum seinna,“ segir Ólafur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Öskubuskuævintýri sænska fótboltaliðsins Östersunds í Evrópudeildinni í knattspyrnu leiðir hugann að því hvað íslensk félög þurfa að gera til að ná sama árangri. Svíarnir fá andvirði 645 milljóna frá Knattspyrnusambandi Evrópu fyrir frammistöðuna. „Við hjá KSÍ reynum auðvitað að skapa eins góðar aðstæður í sambandi við skipulagningu Ís- landsmótsins og varðandi allan aðbúnað og við getum,“ sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, spurður hvort hann teldi sam- bandið geta gripið til einhverra sérstakra ráðstafana í því skyni að auka líkur á að íslensk fé- lagslið komist lengra í Evrópu- keppni en hingað til. Guðni benti á að vegna góðs árangurs karlalandsliðsins hefði KSÍ getað greitt mikið fé út til félaganna á undanförnum miss- erum en það dreifðist víða og dygði ekki til að kaupa fjölda góðra leikmanna eða bæta að- stöðu verulega. Formaður KSÍ minnir á að íbúar Svíþjóðar séu 10 milljónir. „Þótt Östersund sé lítið félag starfar það því í miklu stærra umhverfi en Íslendingar eiga að venjast.“ Hann er þó bjartsýnn: „Það er langtíma- markmið að íslensk félög kom- ist lengra í Evrópukeppninni en hingað til og ég er viss um að það gerist,“ segir Guðni. „Langtímamarkmið“ Þjálfari Östersunds FK er Englendingurinn Graham Potter. Hann tók við liðinu ár- ið 2011, þá 36 ára, og hafði í raun enga alvöru reynslu af þjálfun. Menntaði sig á því sviði, starfaði við háskólann í Hull og kom að þjálfun há- skólaliðs Englands, þegar Daniel Kindberg, fram- kvæmdastjóri Östersunds, réð hann. Þá var velta sænska félagsins andvirði 4 milljóna íslenskra króna en er nú 700 milljónir. Potter stendur undir nafni og galdrar fram góðan árang- ur, Kindberg sér um að galdra peninga í kass- ann. Graham Potter, hinn enski þjálf- ari Östersunds FK í Svíþjóð. AFP Göldrótt- ur Potter ’ Bæði í fyrirtækjarekstri og íþróttum er nauðsynlegt að fara af stað með skýra sýn. Menn verða að vita hvaða leið þeir ætla að fara og á þeirri leið skipta margir litlir hlutir máli, kosta ekki endi- lega allir mikla peninga en geta gert viðkomandi samkeppnishæfari. Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari knattspyrnuliðs FH. INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is Stuðningsmenn íslenska landsliðs- ins á EM í Frakklandi 2016. Skyldi styttast í að jafn gaman verði hjá áhangendum íslenskra félagsliða?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.