Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018 H inn sköllótti, freknótti, hressi maður með áberandi mikið frekjuskarð, Hjálmar Örn Jó- hannsson, hefur skemmt fólki í nokkur ár sem íslensk snappstjarna. Tíu þúsund manns fylgjast dag- lega með þessum hálffimmtuga manni sem vinnur á daginn hjá fjölskyldufyrirtækinu Brimborg. Heima í Árbænum er allt með kyrr- um kjörum og Hjálmar er heima, enda í fæð- ingarorlofi þessa mánuðina. Á meðan litla barnið Logi sefur úti í vagni segir Hjálmar frá því hvernig bekkjartrúðurinn endaði á hvíta tjaldinu en hann leikur nú aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd. Skylda að vinna á leikskóla Leikföng liggja á gólfinu í stofunni hjá Hjálm- ari, enda býr þarna lítill átta mánaða snáði. Hjálmar er kominn aftur á æskuslóðirnir eftir að hafa búið víða um bæinn. „Ég er alinn upp í þessu húsi,“ segir Hjálm- ar en litla fjölskyldan býr á hæðinni fyrir neð- an foreldra Hjálmars. Hann á einnig tvær dæt- ur, 18 og 22 ára, frá fyrra sambandi, sem hann segir „nánast fullorðnar“. „Svo fékk ég einn lítinn kút í verðlaun, á gamalsaldri,“ segir hann og hlær. „Annars er það mjög gott, maður er búinn að ganga í gegnum alls konar, gera mistök og læra betur inn á sjálfan sig, þannig að það er eiginlega miklu betra núna. Ekki það að ég sé að fara að mæla með því að eignast börn svona seint, en það er eitthvað gott við það. Annað sem hefur hjálpað mér gríðarlega var að ég vann á leik- skóla. Það vil ég meina að ætti að vera í lögum, að allir ættu að vinna á leikskóla áður en þeir eignast börn. Það er ákveðin forvörn í því,“ segir hann og hlær. „Það að eignast barn er nefnilega ekki bara krúttlegt. Þetta er full vinna.“ Óagaður í eðli mínu Hjálmar segir æskuna hafa verið áhyggju- lausa; hann gekk í Árbæjarskóla á milli þess sem hann sparkaði bolta. Lærdómur hafi ekki verið hans sterkasta hlið, að hans sögn, enda er hann með ADHD sem truflaði alla einbeit- ingu. „Mér gekk sæmilega í grunnskóla. Svo fór ég í Menntaskólann við Sund og þá yfirtók fé- lagslífið allt annað, ég gat ekki fókuserað á að læra. Mér fannst svo gaman. Ég er rosalega óagaður, þó ég sé ekkert alinn þannig upp. Ég er óagaður í eðli mínu,“ segir Hjálmar og segir að menntaskólanámið hafi tekið enda eftir tvö ár. „Ég sá aldrei eftir því að hafa ekki klárað og farið í háskóla, fyrr en kannski núna, það er pínu eftirsjá. En á móti, þá fór ég bara aðra leið.“ Hjálmar segir að alltaf hafi verið stutt í grín- ið, alveg frá blautu barnsbeini. „Ég hafði rosalega gaman af því að fá fólk til að hlæja. Ég var trúðurinn í bekknum og í menntaskóla tók ég þátt í uppistandskeppni og lenti í þriðja sæti. Þetta var skemmtilegt en á þeim tíma var enginn stökkpallur í þetta, uppi- stand var ekkert byrjað. Þannig að þetta fjar- aði bara út og eftir á að hyggja er ég rosalega feginn að þessi athygli sem ég er að fá núna sé að koma svona seint í lífinu. Ég er ekkert viss um að ég hefði höndlað það á yngri árum, eins og ég var. Mér finnst stundum eins og mér hafi verið ætlað að gera þetta svona seint.“ „Þú ert með ADHD“ Hjálmar fór fljótlega að vinna hjá fjölskyldu- fyrirtækinu Brimborg og var lengi sölustjóri notaðra bíla, en vinnur nú með öldruðum föður sín- um við að ferja bíla á milli staða. Eftir tæpan áratug sem sölustjóri færði Hjálmar sig yfir á Vef- pressuna og seldi þar auglýsingar. Þaðan fór hann að vinna á leikskól- anum Múlaborg og er nú kominn aftur til Brim- borgar, ásamt því að skemmta á kvöldin og um helgar. Fyrir utan að skemmta tíu þúsundum á snappinu. Hjálmar nefnir að hann sé augljóslega með ADHD, en ekki hafi verið farið að greina börn í þá daga. „Menn bara sáu það,“ segir Hjálmar og nefnir að sumir sjái það strax, enn í dag. „Þegar ég var að vinna á leikskólanum Múlaborg, þar sem eru krakkar með alls kyns greiningar, þá sá deildarstjórinn minn það strax. Þegar ég spurði hana eitt sinn hvort ég ætti ekki að fara eftir einhverju plani, eins og allir aðrir, svaraði hún: „Veistu Hjálmar, ég sá það bara strax, þú ert með ADHD og það bara hentar þér ekki. Ég ætla bara að leyfa þér að stjórna þessu sjálfur, það gengur svo rosalega vel.“ Þetta er í fyrsta skipti sem einhver mann- eskja tók eftir þessu strax, þetta var magnað,“ segir hann og lofar starfið. „Þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef unnið, og deildarstjórinn var ekki að reyna að troða mér í neinn kassa. Ég fékk rosalegt frelsi.“ Hvítvínskonan mjög vinsæl Hjálmar fær útrás fyrir sprelligosanum í sér í gegnum snapchat-forritið þar sem hann kemur fram í gervi ýmissa persóna sem hann hefur skapað. Ævintýrið hófst fyrir fimm árum. „Árið 2013 keypti ég gamlan snjallsíma og setti inn þetta snapchat-forrit. Fyrst var ég bara með vini og vandamenn, tíu, fimmtán manns. En á einu og hálfu ári var ég kominn með 500 manns,“ segir hann. „Mér fannst svo merkilegt að fimm hundruð manns væru að fylgjast með mér, alveg magn- að. Þá fór ég að gera lítil leikrit, og búa til kar- aktera. Ég gerði oft langar sögur, svona sketsa. Ég notaði forritið til að koma á fram- færi því sem ég vildi skapa. Svo vatt þetta upp á sig og allt í einu var ég kominn með tvö þús- und, svo fimm þúsund og er með tíu þúsund fylgjendur í dag. Það er óraunverulegt að vera Snapparinn og kvikmyndaleikarinn Hjálmar Örn Jóhannsson er nú heima í fæðingarorlofi og nýtur þess að vera með syni sínum Loga. Morgunblaðið/Ásdís Ég var trúðurinn í bekknum Einn vinsælasti snappari landsins, Hjálmar Örn Jóhannsson, er kominn á hvíta tjaldið. Grínmyndin Fullir vasar var frumsýnd á föstudag, og leikur Hjálmar aðalhlutverkið. Hann trúir að fólk geti látið drauma sína rætast ef það hefur jákvæðni að leiðarljósi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Svo vatt þetta upp á sigog allt í einu var ég kom-inn með tvö þúsund, svofimm þúsund og er með tíu þúsund fylgjendur í dag. Það er óraunverulegt að vera með svona marga, en ég er samt mjög þakklátur að það séu svona margir að horfa.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.