Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018 Í annað eyrað barst samtal í fréttum í útvarpi um að það vanti upp á að íslenska þjóðin hafi staðið við fyrirheit sín gefin á ráðstefnu í Kyoto fyrir aldarfjórðungi, um að draga úr „losun“ út í andrúmsloftið. Hún hafi þá viljað taka þátt í því að stoppa það að jörðin ofhitn- aði af mannavöldum, bræddi úr sér, svo líkingamál bifreiðaverkstæða sé notað. Íslenskur kommissar umhverfismála upplýsti að það vantaði fjórðung upp á það, að Íslendingar hefðu staðið við sitt. Og þetta hafi gerst þrátt „fyrir íslenska ákvæðið“ um 10% afslátt, sem landinn hafi fengið „út á forna frægð í loftslagsmálum“. Sérstaklega var tekið fram að nú þýddi ekki lengur að vísa á þessa fornu frægð. Nú yrðu menn einfaldlega að standa sig „eins og aðr- ir“. En sú forna frægð, sem vísað er til, er fjarri því að vera gömul. Hún nær því varla að vera 30 árum eldri en bréfritari. Hún er þannig miklu yngri en sú forn- aldarfrægð sem Jónas Hallgrímsson spurði um í sömu andrá og um frelsið og manndáðina bestu. Hún er næstum því öldinni yngri en spurning Jónasar um fornaldarfrægðina. Framsýnir fornmenn Þessi meinta fornaldarfrægð segir frá afrekum fram- sýnna manna, eins og Jóns Þorlákssonar og Einars Benediktssonar og fleiri, sem vildu nýta þann kraft sem landið býr yfir og hefur umfram það sem mörg önnur lönd gera. Þeir vildu sýna fram á að landið væri ekki sá útnári og berangur sem ekkert gæfi af sér, eins og stundum var látið. Þessi fornmannakraftur var ekki vegna þess að um- ræða um loftslagsmál væri þá komin í tísku, eins og nú er, þegar umræða um þau er sveipuð bannhelgi, ekkert ósvipaðri þeirri sem einkenndi stundum um- ræðu um trúmál. Íslendingar höfðu vissulega ekki komið sér fyrir í landi sem bjó yfir gæðum sem skjóta þjóðum í fremstu röð ríkisbubba, eins og olíu og kolum eða kopar og enn meira glansandi góðmálmum. Og þá voru þeir ekki með úran, sem er galdrastafur vopna kjarnorkuveldanna og eins kjarnorkuveranna sem stórlönd Evrópu geta ekki þrifist án. Úrgang geislavirkra efna er enn örðugra að losna við en plast, sem nú er í hátísku að fjalla um og for- dæma, eftir frægan þátt Attenboroughs. Það er sagt að plastik sé framleitt á 5 sekúndum, notað í 15 sek- úndur og það taki 500 ár að eyða því. Kjarnorkuframleiðslan er tímafrekari og nýtingar- tíminn lengri en vandræðin við að geyma úrganginn eru svo mikil að menn kjósa helst að fjalla ekki um það. Plastið, þótt vont sé, er ekki eins bráðdrepandi. En það er því prýðilegt efni í umræðu og skaust upp á himinhvolf hennar á sama hraða og kvennamál Harv- eys Weinsteins, en þau hafa orðið til þess að annar hver karl um allan heim liggur undir grun um svipað atferli og kvikmyndamógúllinn. Myndin af plastinu í fjöruborði og svamlandi um öll heimsins höf er einkar ógeðfelld og slær á tilfinningar fólks. Og fáir eru þeir sem finna ekki til sektarkennd- ar í þeim efnum eða ættu að gera það. Til viðbótar við tilfinningaáhrifin bættust þau vandræði að Kína hef- ur lokað fyrir það að taka við plastúrgangi frá sið- menntuðum þjóðum, sem þurfa að koma honum af sér. Það jákvæða og neikvæða Það er svo bannfært hneykslismál, sem ákveðið hefur verið að horfast ekki í augu við, að endurvinnsla á plastumbúðum er að hluta til hreint blekkingartal, til að láta nútímamanninum líða betur. Eins konar proz- ac í ræðuformi. Það er vissulega huggunarríkt að 97% vísinda- manna, sem láta loftslagsmál til sín taka, séu al- gjörlega sammála um þau og að allir stjórnmálamenn heims, nema hugsanlega Donald Trump, séu sam- mála 97 prósentum vísindamannanna. Það má slá því föstu að gjörvallt það mannkyn, sem hægt sé að taka mark á í þessum efnum, telji að öruggt sé að loftslagshættan nú sé af mannavöldum og þess vegna sé raunhæft að leggja til mannlegar mótaðgerðir við henni. Þótt mannkynið sé sökudólg- urinn, þá má segja að það hafi heldur betur dottið í lukkupottinn í þetta sinn, því hingað til hefur enginn mannlegur máttur getað neitt átt við hlýnun eða kólnun veraldarinnar. Það er nú svo að 90% af tímanum er kólnunin aðal- áhættan en hlýnunin aðeins í 10% tilvikanna og nú í fyrsta sinn er hægt að stjórna vörninni beint úr um- hverfisráðuneytum heimsins. Efast um efasemdamenn Þeir eru til sem segja að þessi eindrægni vísinda- manna sé tilkomin með sérstakri tækni. Svo hátt hlutfall vísindamanna sé fundið með því að taka alla þá út fyrir sviga sem hafi efasemdir um það hversu vísindaleg þessi niðurstaða sé. Slíkir séu afgreiddir, þegar af þeirri ástæðu, sem óforbetranlegir afneit- unarmenn og í besta falli efasemdamenn og þar með ekki marktækir vísindamenn. Þeir teljist því ekki með frekar en afneitunarmenn og efasemdamenn á kirkjuþingum forðum tíð. Þrjú prósent vísindamann- anna, sem skeri sig úr fjöldanum, en fái samt að vera með í útreikningunum, séu ekki beinir„afneitarar“ og í sjálfu sér ekki raunverulegir efasemdamenn, því þeir telji aðeins æskilegt að renna enn sterkari stoð- um undir vísindakenningarnar, áður en öllu sé end- anlega slegið föstu. Þess utan væri dálítið glannalegt að tala um 100% hópsins. Leikmönnum þykir dálítið óþægilegt þegar vísinda- leg umræða fellur í slíkan farveg og sé varin með næstum ofsakenndum ákafa og útskúfunum. Mætti ekki ætla, að þeir sem hafa, að eigin sögn, allan vís- indaheiminn með sér, þyrftu ekki að hafa áhyggjur af fáeinum sérvitringum og undirmálsmönnum að auki og vera opnir fyrir því að taka efnislega umræðu við þá? Fyrir okkur leikmenn er þó ekki önnur aðferð tæk en að leggja til grundvallar það sem stutt er af mest- um vísindalegum þunga. Og það hafa flestir gert. Allur hinn pólitíski heimur hefur fylgt hinni „óum- deildu“ niðurstöðu fast eftir og notar sömu aðferð og gert er innan vísindaheimsins og neitar að taka um- ræðu við efasemdamenn og afneitunarmenn. Sá frægi kappi Al Gore neitar að svara þeim blaða- mönnum á fréttamannafundum sem koma upp um sig með spurningum sínum að þeir séu efasemdamenn og jafnvel afneitarar. Þegar einhver þeirra spurði Gore nýlega hvað liði fullyrðingum hans um að ísinn á norðurskautinu yrði horfinn árið 2007 sá varaforset- inn fyrrverandi að þar fór samanfrosinn efasemda- maður og hann þyrfti því ekki að svara honum. Og Gore hitti naglann á höfuðið því að blaðamaðurinn hafði bersýnilega efasemdir um að ísinn á norður- skautinu hefði horfið árið 2007 og það munu fleiri hafa. Fulltrúar fólksins Stjórnmálamenn eiga það flestir sameiginlegt, hvað þetta efni varðar, að sýna næstum vandræðalega undirgefni og þeir spyrja aldrei upphátt spurninga um eitt né neitt, heldur láta nægja að vitna. Nú ætti ekki að vera neitt að því að spyrja spurn- Hefur hjól neanderdals- mannsins ryðgað? Reykjavíkurbréf23.02.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.