Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 21
Rebekka og Ellert útskrifuðust bæði úr arkitektúr úrSCAD-háskólanum í Bandaríkjunum fyrir rúm-lega fimm árum. Rebekka er í dag arkitekt hjá
Arkís arkitektum og Ellert hjá Archus. „Við bjuggum í
fimm ár í yndislegu borginni Savannah,“ útskýrir Re-
bekka sem segir fjölskylduna þó kunna vel við sig í Hlíð-
unum. Í hverfinu séu til að mynda Klambratún, Kjarvals-
staðir og Reykjavík Roasters í eftirlæti. „En vinirnir sem
búa í hverfinu standa klárlega upp úr.“
Hjónin segja stílinn á heimilinu mínimalískan, hráan og
persónulegan. „Jarðlitir og náttúruleg efni eru ríkjandi á
heimilinu í bland við nóg af plöntum,“ útskýrir Rebekka.
Aðspurð hvað sé efst í huga þegar heimilið er innréttað
segir Rebekka mikilvægt að byrja að huga að heildar-
myndinni og að skapa heildrænt útlit. Velja sér ákveðna
liti og efnispallettu til að vinna með. Skapa rétt hlutföll í
rýminu og nota lýsingu til þess að skapa ákveðið andrúms-
loft eða stemningu. „Svo er það líka að gera heimilið sitt
svolítið persónulegt, að persónuleiki eigandans fái að
skína í gegn. Svo þarf skipulagið að vera gott til að heim-
ilið haldist nú hreint.“
Hjónin versla helst í Epal og Willamia hér á Íslandi.
„Svo er alltaf hægt að finna fallega smáhluti í Hrím og
Snúrunni. Petit er svo með einstaklega fallega hluti í
barnaherbergið. Erlendis verslum við helst í CB2 og svo
finnst mér skemmtilegast að versla í litlum „local“ búðum
þar sem hægt er að finna persónulega eða handgerða
muni. Það er hefð að kaupa allavega einn slíkan hlut í
hverri utanlandsferð.“
Hvað varðar innblástur nefnir Rebekka fyrst ferðalög
bæði innan og utanlands. „En annars skoða ég síður eins
og archdaily og dezeen daglega og elska að setjast niður
með góðan kaffibolla og gott tímarit eða bók. Þar stendur
Rum Magazine upp úr eins og er.“
Aðpurð að lokum hvað sé á óskalistanum inn á heimilið
svarar Rebekka: „Fleiri Wishbone-stólar frá Hans Wegn-
er eða nýr bekkur við borðstofuborðið. Svo hefur staðið til
lengi að skipta út bekknum í forstofunni.“
Eldhúsið er
mínimalískt
og smart.
Hjónin sækja meðal ann-
ars innblástur í ferðalög
bæði innanlands og utan.
Heillandi heimili
arkitekta í Hlíðunum
Hjónin Rebekka Pétursdóttir og Ellert Hreinsson búa í skemmtilegri
íbúð í Hlíðunum ásamt dóttur sinni. Hjónin, sem bæði eru arkitektar,
sækja innblástur til að mynda í ferðalög.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hjónaherbergið er hlýlegt,
persónulegt og hrátt í senn.
Hjónin Ellert og Rebekka hafa búið sér afar fallegt heimili.
Á heimilinu er
nóg af fallegum
plöntum.
25.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
www.husgagnahollin.is
VE
FVERSLUN
A
LLTAF OP
IN
TAXFREE AFSLÁTTUR*
af La-Z-Boy og Broyhill
* Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti. Gildir ekki af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær
ríkissjóður viðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.