Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018 VETTVANGUR Sjálfstæðisflokkurinn verðurníutíu ára á næsta ári. Allanþann tíma hefur grundvall- arstefnan um einstaklingsfrelsi og at- hafnafrelsi í allra þágu ekki glatað grammi af gildi sínu. Leiðarljós hennar er jafn skært og í upphafi. Þetta er ástæða þess að níutíu árum síðar er flokkurinn stærsti flokkur landsins í öllum kjördæmum. Fjöldahreyfingin Skýr hugsjón hristir að lokum af sér jafnvel hörðustu persónuátök. Og hún leikur sér að því að umbera blæ- brigðamun í skoðunum flokksmanna, sem er að sjálfsögðu fyrir hendi eins og vera ber í breiðri fjöldahreyfingu. Þrátt fyrir skýra hugsjón boðar Sjálfstæðisflokkurinn ekki allt- umlykjandi hugmyndakerfi sem ætl- að er að vera forskrift að öllu lífi og lífsviðhorfi manna. Sjálfstæð- isstefnan er ekki „stjórnmála- trúarbrögð“ sem geymir svör við öll- um spurningum án þess að skilja eftir pláss fyrir sjálfstæða hugsun. Þannig má á vissan hátt segja að umburð- arlyndi og svigrúm fyrir ólík viðhorf séu innbyggð í sjálfstæðisstefnuna. Ég tel að það sé styrkur fremur en veikleiki. Úr þremur flokkum í átta Það er merkilegt að hugsa til þess að eftir fyrstu þingkosningarnar sem Sjálfstæðisflokkurinn tók þátt í voru aðeins þrír flokkar á Alþingi. Í dag eru þeir átta. Spyrja má hvort grundvallarhug- sjónir Íslendinga séu virkilega svo margbreytilegar að það þurfi átta flokka til að endurspegla þær. Ég tel svo ekki vera. Hinn mikli fjöldi flokka skýrist að hluta til af því að oft ráða persónur úrslitum frekar en málefnin. Önnur líkleg ástæða er að umburðarlyndi gagnvart blæbrigðamun í skoðunum fari þverrandi. Með öðrum orðum: Að fleiri en áður kjósi að tilheyra minni flokkum, þar sem allir eru sammála um allt. (Sagan sýnir auð- vitað að það endist sjaldan lengi.) Erindi Sjálfstæðisflokksins Í fjöldahreyfingu á borð við Sjálf- stæðisflokkinn fylkjum við okkur um grundvallarhugsjón en leyfum okkur rökræðu um annað – og sækjum beinlínis kraft í málefnalegt samtal. Okkur þykir langsótt að stofna stjórnmálaflokk um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hvað þá að stofna flokk um að auka eignarhald ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Aukið úrval á hlaðborði stjórnmál- anna hefur ekki dregið úr erindi Sjálfstæðisflokksins. Þvert á móti. Skattamál eru þar einna efst á blaði. Sú staðreynd kom skýrt fram í kosningabaráttunni síðastliðið haust. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokk- urinn sem berst með trúverðugum hætti fyrir lækkun skatta á fólk og fyrirtæki. Það skiptir öllu máli að flokkurinn standi vörð um þann trú- verðugleika og efni það sem kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum um tekjuskatt einstaklinga og trygginga- gjald. Ísland er háskattaríki. Við get- um lækkað skatta og eigum að gera það. Einstaklingar og fyrirtæki þessa lands – sem eru vel að merkja lang- flest lítil eða meðalstór – þurfa eðli- legt svigrúm fyrir atorku sína. Það er vanmetin staðreynd að út- gjöld eru ekki ávísun á betri þjónustu eða meiri afköst. Og sumum verk- efnum er ofaukið. Það er eðlileg krafa á stjórnmálamenn að þeir hafi kjark til að forgangsraða. Kröfurnar um aukin útgjöld og allskonar liðsinni ríkisins eru látlausar, og það úr mörgum áttum, sumum óvæntum. Pilsfaldakapítalisminn er víða og Sjálfstæðisflokkurinn á að mínu viti að stemma stigu við honum, á sama tíma og við leggjum kapp á að efla samkeppn- ishæfni Íslands og tryggja atvinnulífinu góð skilyrði. Áhersla á félagsmál hefur verið samofin sjálfstæðisstefnunni frá upp- hafi og sá þráður er sterkur í okkar hugsjón. Takmark okkar er að tryggja öllum tækifæri til að njóta sín til fulls. Og gleymum því aldrei að þau tækifæri eiga að ná til landsins alls. Ég býð mig fram Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til varaformennsku í Sjálfstæðis- flokknum. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að gegna trúnaðarstörfum fyr- ir flokkinn á undanförnum árum sem framkvæmdastjóri þingflokksins, að- stoðarmaður ráðherra, frambjóðandi í tvennum alþingiskosningum og ráð- herra í tveimur ríkisstjórnum. Þetta hafa verið krefjandi verkefni en fyrst og fremst gefandi, því að það er í senn ástríða mín og forréttindi að vinna að framgangi sjálfstæðisstefn- unnar, eiga samtöl og samvinnu við fólk og hlúa að framtíð og tækifærum íslensks samfélags. Það hefur verið dýrmætt að fá hvatningu víða að og hún vegur þungt í minni ákvörðun. Ég hlakka til að eiga samtöl við sem flesta á næstu dögum og vikum um sóknarfæri okk- ar sjálfstæðismanna. Erindi okkar ’Ég hef ákveðið aðbjóða mig fram tilvaraformennsku íSjálfstæðisflokknum. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brynjar Níelsson þingmaður skrifaði á Facebook: „Mörgum finnst skrítið, að ég sem hef skoð- un á öllu og ekki síst á því sem ég hef ekki vit á, skuli ekki hafa tjáð mig um umskurðar- frumvarpið. Ég er í eðli mínu ekki mikill bannstefnu- maður. Fram hafa komið ýmis góð rök með og á móti þessu frum- varpi. Samt hefði ég haldið að líkams- meiðingar af þessu tagi væru nú þegar refsiverðar í íslenskum hegn- ingarlögum og veit ekki til þess að umskurður hafi verið undanskilinn. Kannski væri réttara að leggja fram sérstakt frumvarp um að um- skurður á börnum sé heimill ef menn vilja að svo sé. Minnir að Þjóðverjar hafi farið þá leið.“ Kristín Ómarsdóttir rithöf- undur skrifaði á Facebook: „Fyr- irlitning á fólki sem vill drekka áfengi og taka eit- urlyf oftar en ekki er blettur á þjóð- arsál, er ekki í boði, maður skyldi vakna morgun hvern og hugsa á hverjum einasta morgni og merkja við dagana og sleppa því að fá sér nammi þegar maður gleymir því að hugsa: ég elska fólk sem kann ekki að hóf- stilla notkun á áfengi og lyfjum, ég elska það, ég elska það, ég elska það, eftir mánuð hefur maður kannski tamið sér smá ást.“ Tónlistarmaðurinn og skáldið Atli Sigþórsson, eða Kött Grá Pje, tísti: „Er almennt nei- kvæður. En kann að meta ýmislegt. Ætla að gera smá skurk í að hafa orð á því hvað ég fíla, í bland við röflið. Fyrst: Ég fíla kirsuber mjög vel. Þau eru næs. Samt stundum bragð- laus og sökkí. En ef þau eru góð eru þau ýkt góð. Jákvæðni # 2: Ég kann að meta Conga-súkkulaðikex. Kremið er aðeins of sætt, það er aðeins of mikið af vanillu í súkkulíkishjúpnum og svo eru stórar saltflygsur í kex- inu. Það er pínu krapp en ég fílaða, samt bara einstöku sinnum.“ Sænsku spennuþáttaröðinni Brúnni lauk á mánudagskvöldið og sátu margir eftir uppi með spurn- ingar. Saga Garðarsdóttir leik- kona auglýsti eftir svörum á tístum fyrir móður sína, sem spurði: „Var mamma hans Tommy og amma mannsins í hjólastólnum eftir allt saman góð? Í Broen altså?“ Kristján Freyr Halldórsson, trommari, texta- og hugmynda- smiður, var með svör á reiðum höndum: „Já, hún var eftir allt saman bara töff týpa á húsbíl sem syrgði son sinn og var réttilega ósátt við lögregluna á sínum tíma. En að hún skuli ekki hafa vitað að fyrirætl- unum sonarsonarins, sem n.b. bjó hjá henni, er frekar skrýtið.“ Veðrið gerði mörgum lífið leitt í vikunni, meðal annars Nönnu Rögnvald- ardóttur, mat- argúru með meiru: „Gat ekki notað gangbrautarljósin á Bústaðaveginum í morgun; þegar ég reyndi að sópa snjónum af takkanum til að ýta á hann þjappaðist hann bara saman og takkinn virkaði ekki.“ AF NETINU Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð ColourFutures2018 Cobalt Night

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.