Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Síða 11
Rosalegur hvellur
„Við sem búum að staðaldri hér í Hrútafirði
kippum okkur annars ekki upp við þetta,
enda svona veðri vön.“
Karl B. Örvarsson, forstöðumaður
Skólabúðanna á Reykjum, um óveðrið
sem gekk yfir á miðvikudag.
Óvænt úrslit
Hinn tékkneski skíðabretta-
heimsmeistari Ester Ledecka
gerði sér lítið fyrir og vann
gullið í risasvigi kvenna á ÓL.
Hún renndi sér niður brekkuna
á lánsskíðum og skildi ekkert í
því hvers vegna áhorfendur
öskruðu þegar hún kom í mark.
Ledecka skildi heldur ekkert í
því hvers vegna stigataflan
hefði ekki verið uppfærð, og trúði ekki sínum eigin augum þegar hið sanna
kom í ljós. Sannarlega ein óvæntustu úrslit Ólympíuleikanna.
Umskurður drengja
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, leggst gegn því að um-
skurður á drengjum verði gerður
refsiverður með breytingum á
hegningarlögum. Segir hún hættu
á að gyðingdómur og íslam verði
gerð að glæpsamlegum trúar-
brögðum, en umskurður drengja
tíðkast innan trúarbragðanna.
Stal dýrmætum þumli
Hinn 24 ára gamli bandaríski Michael
Rohana var í „ljótu-peysu“ samkvæmi
þegar hann ráfaði inn í sýningarsal þar
sem mátti finna dýrmæta 2000 ára gamla
kínverska leirhermenn. Þar faðmaði
hann einn leirhermanninn og tók sjálfs-
mynd með honum áður en hann braut af
honum þumalfingur og stakk honum í
vasann. Stofnunin sem lánar leir-
hermenn á sýningar hefur krafist þess að
hinum brotlega verði refsað harðlega
enda stytturnar „þjóðargersemi“.
Brugghús vinsæl
„Einu sinni þótti kúl að
eiga sólbaðsstofu eða sjoppu.
Nú eru það brugghúsin.“
Hinrik Carl Ellertsson, um íslensku bjórhátíðina á Kex
Hostel þar sem hægt verður að smakka 300 tegundir bjóra.
Morgunblaðið/Ómar
Enn deyja börnin
Á mánudag féllu 100 almennir borg-
arar, þeirra á meðal mörg börn, í
loftárásum Sýrlandshers. Samtals er
talið að um 300 manns hafi týnt lífi í
árásunum frá því á sunnudag, þar
af um 70 börn. Um 1.400 hafa
særst.
AFP
VIKAN SEM LEIÐ
25.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
ALLIR GÖTUSKÓR Á ÚTSÖLU
MIKIÐ ÚRVAL Á HERRANN
í stærðum 39-47 kr. 9.990,-
Misty
ALLT Á AÐ
SELJAST
Settur saksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinuhefur farið fram á að sakborningar í þessu málisem skók íslensku þjóðina árum saman, verði
sýknaðir. Ég vona að það verði niðurstaðan.
Ekki að ég geti talist neinn sérfræðingur í þessu máli.
Ég var nýorðinn sjö ára þegar Guðmundur Einarsson
hvarf og rétt að verða átta ára þegar síðast sást til Geir-
finns.
Ég var nýfermdur þegar sexmenningarnir voru
dæmdir í Hæstarétti og 28 ára þegar Sævar Ciesielski
fór fram á endurupptöku málsins. Ég var 45 ára þegar
hann lést.
Alla ævi hefur þetta mál fylgt mér og alltaf hafa komið
upp fréttir af því sem hafa hreyft við mér. Sjálfur hef ég,
eins og flestir blaðamenn, átt tímabil þar sem ég hef orð-
ið gagntekinn af þessu máli. Ég hef lesið málskjölin og
allt sem ég hef komist yfir um það. Og alltaf hef ég fund-
ið af því sömu ólyktina.
Mín kynslóð og þær sem á eftir mér koma skilja ekki
hvernig hægt var að reka mál svona. Engar sannanir,
ekkert lík, ekkert vopn og engin vitni. Harðræði, ómann-
eskjuleg einangrunarvist og ótrúlega langt gæsluvarð-
hald. Þvingaðar játningar.
Ég hitti Sævar nokkrum sinnum og reyndar fleiri sak-
borninga. Þau voru orðin þreytt á að halda fram sakleysi
sínu og þreytt á að enginn vildi hlusta á þau. Þetta mál
var eins og óþægileg uppákoma sem átti bara að sópa
undir teppið og gleyma.
Ég hef hitt fólk sem er sannfært um sekt sexmenning-
anna. Sannfært á þeim forsendum að þetta „hafi nú ekki
verið merkilegir pappírar“. En fyrst og fremst blindað af
þörfinni í íslensku þjóðfélagi fyrir að finna sakborninga.
Blindað af rannsókn sem var rekin áfram með fyrirfram
gefinni niðurstöðu á ógeðslegan hátt. Og knúin áfram af
síðdegisblöðunum sem tóku öllu fegins hendi frá lögregl-
unni og rannsakendum.
Það sést vel þegar maður rennir í gegnum blöðin á
þessum tíma og sér tóninn í umfjöllun um sakborninga.
Sannfæringuna um að þeir hafi gert þetta og gleðina
þegar þeir voru loks dæmdir. Það er erfitt að finna í
þessum fréttum gagnrýni á rannsóknina eða óþarflega
og ómannúðlega langt gæsluvarðhald. Hún átti ekki
hljómgrunn á þessum tíma.
Sævar Marinó Ciesielski sat í gæsluvarðhaldi í 1.533
daga. Þar af í einangrun í tæp tvö ár. Honum var haldið
vakandi, hann hræddur og pyntaður. Tryggvi Rúnar sat
degi skemur í gæsluvarðhaldi og Kristján Viðar í 1.522
daga. Það er nánast ómögulegt að setja þetta í samhengi.
Tími Sævars er vel á fimmta ár. Hann var heil fram-
haldsskólaganga og rúmlega það. Hann var tíminn frá
fyrstu koppaferð barns þar til það byrjar í skóla. Það er
engin leið að ná utan um hvernig svona gat gerst. Og
gleymum því ekki að þetta voru krakkar um tvítugt þeg-
ar þetta byrjaði sem máttu sæta harðræði í mörg ár.
Samtals sátu sexmenningarnir í gæsluvarðhaldi í tæp
sautján ár. Þá tók við fangelsisvistin eftir dóm og svo
baráttan utan múranna sem dæmdir morðingar. Það
hefur verið þungur kross að bera.
Ég veit ekki hver myrti Guðmund og Geirfinn. Ég veit
ekki einu sinni hvort þeir voru myrtir og líklega munum
við aldrei komast að því sanna. En þetta mál hefur nógu
lengi verið til skammar fyrir okkur sem þjóð og legið á
okkur í 44 ár. Það er kominn tími til að ljúka því.
1.533 dagar
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’Ég hitti Sævar nokkrum sinnum og reyndar fleiri sakborninga.Þau voru orðin þreytt á að halda fram sakleysi sínu og þreytt á að enginn vildi hlusta á þau. Þetta mál var eins og óþægileguppákoma sem átti bara að sópa undir teppið og gleyma.
UMMÆLI VIKUNNAR
’Ef ég ætti heima á Húsavíktæki ég allt brothætt niður úrhillum á meðan þetta gengur yfir.
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur, um
jarðskjálftahrinuna sem gengur nú yfir norðanlands.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á