Morgunblaðið - 12.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
TENERIFE
14.mars í 10 nætur & 15. mars í 9 nætur
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
2FYRIR1
áflugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Miklar launahækkanir eru óraun-
hæfar í íslenskri ferðaþjónustu. Það
hefur enda hægt á vexti greinarinn-
ar samhliða því
sem launakostn-
aður er orðinn
hár í alþjóðlegu
samhengi.
Þetta er mat
Ólafs Torfasonar,
stjórnarfor-
manns Íslands-
hótela, stærstu
hótelkeðju lands-
ins.
Hann segir
nýtt skeið hægari vaxtar runnið
upp í íslenskri ferðaþjónustu. Verð-
mætasköpun muni því ekki aukast
jafn mikið og undanfarin ár. Fyrir
vikið muni fjárfesting væntanlega
dragast saman.
„Það er þegar farið að hægja á
vextinum og er áskorunin í dag að
viðhalda góðri stöðu. Það er ekki
sjálfgefið að það takist,“ segir Ólaf-
ur.
Beita á mikilli hörku
Tilefnið er meðal annars yfirlýs-
ingar nýrra verkalýðsforingja um
að láglaunafólk hafi setið eftir.
Leiðrétta þurfi kjör þessara hópa
og hækka launin mikið.
„Maður heyrir tóninn í nýja for-
ystufólkinu. Það á að beita öllum til-
tækum ráðum til að ná fram betri
kjörum og hærri launum. Auðvitað
hefur maður áhyggjur af því ef
langt verður gengið í þessum efn-
um. Það væri ekki gott að fá það of-
an í hátt gengi krónunnar og mögu-
lega hækkun á virðisaukaskatti á
ferðaþjónustu. Ef verðbólgan fer af
stað [vegna launahækkana] fellur
gengi krónunnar. Við þekkjum það
öll,“ segir Ólafur.
Miklar launahækkanir kjararáðs
séu óheppilegar. Það sama gildi um
tuga prósenta launahækkanir ein-
hverra forstjóra. „Um er að ræða
fámennan hóp í stóru myndinni sem
veldur því að aðrir hópar telja sig
hafa setið eftir,“ segir Ólafur.
Útvista ræstingu
Alls 17 hótel eru í keðju Íslands-
hótela og eru starfsmennirnir yfir
1.100 um háannatímann.
Ólafur segir laun starfsmanna
hafa hækkað verulega hjá Íslands-
hótelum síðustu misseri. Önnur
hótel glími við sama vanda. Dæmi
séu um að hótelkeðjur á Íslandi hafi
útvistað ræstingu til að bregðast við
hækkandi launakostnaði. Íslands-
hótel hafi ekki gripið til slíkra ráða.
„Laun starfsmanna okkar hafa
hækkað. Þar koma til samnings-
bundnar hækkanir og launaskrið.
Afkoma ferðaþjónustunnar í heild á
árinu 2017 er ekki eins góð og hún
var 2016 og skýrist það einkum af
sterkara gengi og umræddum
launahækkunum,“ segir Ólafur.
Lítið svigrúm fyrir launahækkun
Stjórnarformaður Íslandshótela telur kröfur nýrra verkalýðsforingja óraunhæfar Hægt hafi
á vextinum í ferðaþjónustunni Önnur hótel útvisti ræstingu vegna hækkandi launakostnaðar
Ólafur
Torfason
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný staða Afkoma ferðaþjónustunnar á Íslandi var lakari í fyrra en árið 2016.
Fólki sem fer í offituaðgerðir fjölgar
en slíkar aðgerðir eru dýrar og ekki
hættulausar, tvö dauðsföll hafa orðið
á árinu í kjölfar slíkra aðgerða á
einkastofu. Aðgerðin sjálf er bara
brot af ferlinu, mestu skiptir eftir-
meðferðin og að sjúklingur sé vel
undirbúinn. Lífsgæði og -líkur geta
aukist verulega ef sjúklingurinn fær
góðan stuðning frá þeim sem fram-
kvæmir aðgerðina og ef ekki koma
upp fylgikvillar. Þeir eru óalgengir
en geta verið mjög alvarlegir.
Töluverð bið er eftir aðgerð á
Landspítalanum en styttri á einka-
stofum og sumir fara til útlanda.
Kostnaður við aðgerð á eigin vegum
fellur alfarið á sjúklinginn, en komi
upp fylgikvillar fellur sjúkra-
húskostnaður á samfélagið. Læknar
í Noregi og Svíþjóð bera ábyrgð á
slíkum kostnaði þarlendis og bjóða
því góða aðstöðu til meðhöndlunar
fylgikvilla. Ítarleg umfjöllun er um
málið á mbl.is. guna@mbl.is
Tveir dánir
eftir offitu-
aðgerð í ár
Offituaðgerðir eru
ekki hættulausar
Laufey Guðmundsdóttir bóndi var á
leið til vinnu í íshellunum í gærmorg-
un þegar þessi grjóthnullungur varð
á vegi hennar á þjóðvegi 1 við Slétta-
leiti, skammt frá Hala í Suðursveit.
„Hann bara stóð þarna á miðjum
veginum, það var ekkert annað
grjóthrun þarna. Steinninn var flott-
ur, en þetta var mjög vondur staður
og aðkoman úr beygju svo þetta
hefði getað verið hættulegt,“ segir
Laufey í samtali við Morgunblaðið.
Hún gerði Vegagerðinni viðvart og
sagði þá hafa verið mjög snögga á
staðinn.
„Maður er vanur stóru grjóti en
ekki á þessum stað,“ segir Þorleifur
Olsen hjá Vegagerðinni á Höfn. Að
hans sögn gekk vel að ná grjótinu af
veginum með hjálp traktorsgröfu.
Tilkynningin barst upp úr kl. átta en
tíma tók að fá gröfuna á staðinn.
„Það var að byrja traffík en það var
vel fært framhjá steininum og ég
setti merki við hann. Hann er stór og
mikill og það er bara heppni að eng-
inn varð fyrir honum.“
thorgerdur@mbl.is
Stórgrýti hafnaði á miðjum þjóðvegi í Suðursveit
Ljósmynd/Laufey Guðmundsdóttir
Vegagerðin
fjarlægði
grjótið fljótt
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þetta kemur ekki á óvart og við
væntum samstarfs við að rýna þenn-
an möguleika,“ segir Helga Árnadótt-
ir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, um ummæli
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, á
flokksþingi Framsóknarflokksins,
þess efnis að ríkisstjórnin hyggist
leggja á komugjöld hér á landi.
„Þetta er í samræmi við það sem
kemur fram í Stjórnarsáttmálanum,
þar segir að ríkisstjórnin ætli að
skoða gjaldtökumöguleika eins og
komugjöld í samstarfi við greinina.
Við væntum þess því að eiga við þau
gott samstarf, en komugjöld eru auð-
vitað eitthvað sem við höfum skoðað
áður og á þeim eru ákveðnir ann-
markar,“ segir Helga, og nefnir þar
meðal annars að einnig þurfi að leggja
komugjöld á innanlandsflug. Þá sé Ís-
land í Schengen og hafi skrifað undir
ýmiskonar alþjóðlegar skuldbinding-
ar sem takmarki möguleika.
„Svo þarf að skoða samkeppnis-
stöðu áfangastaðarins og eins hver
stefna stjórnvalda á að vera hvað
varðar það að gera Keflavík að alþjóð-
legri tengimiðstöð.“
Helga segir Samtök ferðaþjónust-
unnar hér eftir og hingað til hafa ver-
ið tilbúin að skoða hlutina í góðu sam-
starfi við stjórnvöld. Hún leggur hvað
helst áherslu á ólíka samkeppnisstöðu
landsins yfir sumar- og vetrartímann.
„Við erum auðvitað ennþá að byggja
upp áfangastaðinn Ísland yfir vetrar-
mánuðina og það verður að horfa til
þess í hvaða samkeppnisumhverfi við
erum á hverjum tímapunkti og meta
stöðuna út frá því.“
Hún segir greinina skila verulegum
tekjum í ríkissjóð og að tryggja þurfi
að þær haldi áfram að skila sér. „Það
er mikilvægt að horfa til stöðu grein-
arinnar og samkeppnishæfni hennar
hverju sinni þannig að við tryggjum
þátt ferðaþjónustunnar í hagsæld
þjóðarinnar til langs tíma.“
Ferðaþjónustan væntir
samstarfs um komugjöld
Mikilvægt sé að skoða samkeppnisstöðu yfir vetrartímann
Morgunblaðið/Ómar
Flugstöð Margir ferðast hingað.