Morgunblaðið - 12.03.2018, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þegar hvaðharðast vartekist á um
útgöngu Breta úr
Evrópusamband-
inu fyrir bráðum
tveimur árum, vakti það at-
hygli að forkólfar bresks sjáv-
arútvegs lögðust flestallir á
árarnar með útgöngusinnum,
á meðan flestir kollegar þeirra
úr öðrum geirum samfélags-
ins reyndu allt hvað þeir gátu
til þess að halda landinu innan
Evrópusambandsins.
Þetta þurfti þó ekki að
koma á óvart, þar sem talað
hafði verið um það í mörg ár,
að sameiginleg sjávarútvegs-
stefna Evrópusambandsins
hefði í raun gert bresku út-
gerðunum enn meiri skráveifu
en ósigurinn í þorskastríð-
unum, þar sem þær sætu ekki
einar að fiskimiðum Bret-
lands. Yfirmenn útgerð-
arinnar í Bretlandi fögnuðu
því mjög þegar niðurstaðan í
Brexit-atkvæðagreiðslunni lá
fyrir og vonir vöknuðu um
betri tíð.
Þær vonir minnkuðu fyrir
helgi, þegar greint var frá því
að Evrópusambandið gerði
það að skilyrði fyrir fríversl-
unarsamningi við Bretland að
fiskiskip frá ESB-ríkjunum
myndu áfram njóta sama að-
gangs að breskri efnahags-
lögsögu og áður. Raunar má
segja að verði þær hugmyndir
að veruleika muni Bretar
standa frammi fyrir því að
sameiginlega sjávarútvegs-
stefnan nái í raun út yfir gröf
og dauða, og að engin leið sé
að losna undan oki hennar.
Þessi krafa ESB er um-
hugsunarverð, ekki síst fyrir
okkur Íslendinga sem eigum
talsvert meira undir sjávar-
útvegi en Bretar. Á það hefur
margoft verið bent, að við inn-
göngu í Evrópusambandið
myndi Ísland þurfa á end-
anum að gangast undir hina
hörmulegu sjáv-
arútvegsstefnu
sambandsins, sem
meðal annars hef-
ur ýtt undir of-
veiði og leikið
Breta grátt.
Nú lítur að auki út fyrir að
tækist íslenskum aðild-
arsinnum að draga landið inn í
Evrópusambandið, sætu
landsmenn uppi með sjáv-
arútvegsstefnuna, jafnvel þó
að þeir slyppu einhvern tím-
ann út úr sambandinu á ný. Og
þetta skiptir máli, því að það
ótrúlega er að enn finnast
stjórnmálaflokkar og stjórn-
málamenn hér á landi sem eru
svo fastir í fortíðinni að þeir
leggja enn áherslu á aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu,
vilja stofna enn eina „þver-
pólitísku“ nefndina til að
vinna að því markmiði, sem
þeir segja að sé „raunhæfur
valkostur“, eins og hljómaði
um helgina.
Aðild er ekki raunhæfari nú
en áður. Hún er raunar enn
fjarstæðukenndari en áður
þegar horft er til ástandsins
innan sambandsins. En hún er
líka fullkomlega óraunhæfur
kostur þegar horft er til þess
að þegar lagt var af stað í slík-
an leiðangur fyrir nokkrum
árum tókst ekki einu sinni að
opna kaflana um sjávar-
útvegsmál. Bæði Evrópusam-
bandinu og þeim íslensku
stjórnmálamönnum sem unnu
að því að koma Íslandi þangað
inn, varð ljóst að viðræðunum
yrði nánast sjálfhætt þegar
kröfur Evrópusambandsins
yrðu gerðar kunnar hér á
landi. Reynsla Breta af sjáv-
arútvegsstefnu sambandsins
hefði þó átt að reynast nægt
víti til varnaðar áður en
ákveðið var að „kíkja í pakk-
ann“. Og hún ætti, ef allt væri
með felldu, að koma í veg fyrir
að íslenskir stjórnmálamenn
hjökkuðu enn í því sama fari.
Sameiginlega
sjávarútvegsstefnan
hundeltir Breta}
Út yfir gröf og dauða
LöggjafarþingAlþýðu-
lýðveldisins Kína
staðfesti í gær
ákvörðun, sem
legið hefur í loft-
inu, að heimila forseta lands-
ins að sitja í embætti ótíma-
bundið í stað til tíu ára eins og
verið hefur. Stuðningurinn
við stjórnarskrárbreytinguna
var óvenjulega mikill, jafnvel
á kínverskan mælikvarða, en
2.958 þingmenn af 2.964
greiddu henni atkvæði sitt.
Þessi niðurstaða segir meira
en mörg orð um þau tök sem
Xi Jinping hefur
nú á Kína.
Þó að greidd
séu atkvæði á
þingi Kína er það
vitaskuld ekki lýð-
ræðisríki. Engu að síður er
áhyggjuefni að Kína skuli, á
sama tíma og afl þess og um-
svif í veröldinni fara vaxandi,
ekki feta sig lýðræðisbrautina
en þokist þess í stað í öfuga
átt.
Full ástæða er fyrir önnur
ríki að taka tillit til þessarar
þróunar í samskiptum sínum
við Kína.
Áhyggjuefni er að
Kína skuli færast
enn fjær lýðræðinu}
Forseti fyrir lífstíð
Ö
flugt samfélag byggist á góðri heilsu
og líðan sem flestra. Sem flestir
ættu að geta notið æviáranna við
góða heilsu og til þess að stuðla að
því þurfa lýðheilsusjónarmið að
vera ríkjandi í allri stefnumótun og aðgerðum
stjórnvalda.
Áhættuþættir sjúkdóma sem tengjast lífsstíl
eru vaxandi vandi í heiminum öllum. Í heims-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna og leiðbein-
ingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
kemur fram að áhættuþættir lífsstílstengdra
sjúkdóma séu eitt helsta viðfangsefni samfélags-
ins á sviði lýðheilsu.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur
fram að leggja skuli áherslu á forvarnir og lýð-
heilsu og ég mun leggja sérstaka áherslu á það í
embætti heilbrigðisráðherra að tryggja fram-
gang verkefna á því sviði. Markmiðið með öflugu lýðheilsu-
starfi er bæði að stuðla að góðri heilsu, lífsgæðum og vellíð-
an landsmanna og tryggja örugga og góða heilbrigðis-
þjónustu. Með því að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu
drögum við til framtíðar úr beinum og óbeinum kostnaði
fyrir samfélagið.
Það getum við til dæmis gert með því að leggja sérstaka
áherslu á verkefni tengd geðrækt, offitu, vímuvörnum og
skaðaminnkun og baráttuna gegn kynbundnu og kynferð-
islegu ofbeldi. Nú þegar er verkefnið Heilsueflandi samfélag
í gangi á vegum Embættis landlæknis. Verkefnið hefur
þann tilgang að efla lýðheilsu og felst í því að sveitarfélög,
landsfjórðungar, sýslur eða hverfi vinna skipulega að því að
heilsa og líðan allra íbúa sé höfð í fyrirrúmi í allri
stefnumótun. Í heilsueflandi samfélagi er stöðug
áhersla lögð á að bæta bæði hið manngerða og fé-
lagslega umhverfi íbúa, draga úr ójöfnuði og
draga úr tíðni og afleiðingum langvinnra sjúk-
dóma með margvíslegu forvarnar- og heilsuefl-
ingarstarfi.
Mikilvægt er að styðja áfram við verkefni á
borð við Heilsueflandi samfélag og hrinda fleiri
slíkum verkefnum úr vör. Einnig að styðja við
íþrótta- og æskulýðsstarf, öldrunarstarf og
heilsueflingu á vinnustöðum. Svæðisbundnir lýð-
heilsuvísar veita yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju
umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild.
Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitar-
félögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna
í sínu umdæmi, finna styrkleika og veikleika og
skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti unnið
saman að því að bæta heilsu og líðan, og þeir eru nytsamlegir
til að tryggja eftirfylgni verkefna á sviði lýðheilsu. Forvarnir
þarf einnig að efla, m.a. með því að efla skimun, þ.m.t. skim-
un fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi og að skimunin nái
til fleiri aldurshópa.
Við megum ekki gleyma því að öflug lýðheilsa er forsenda
fyrir heilbrigðu og góðu samfélagi. Mikilvægt er að lýðheilsa
sé höfð að leiðarljósi í öllum aðgerðum og stefnumótun
stjórnvalda til þess að markmiðum lýðheilsustarfs verði náð.
Þannig verður lýðheilsustefna hluti af samfélaginu en ekki
verkefni sem stendur eitt á báti.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Eflum lýðheilsu
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Meiriháttar ofbeldi meðalsamfanga innan fangelsaríkisins jókst lítillegamilli áranna 2016 og
2017. Á sama tímabili fækkaði minni-
háttar ofbeldisbrotum meðal sam-
fanga. Meiriháttar ofbeldi gagnvart
starfsfólki jókst lítillega, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Suður-
landi og Fangels-
ismálastofnun rík-
isins.
Í skráningum
Fangelsis-
málastofnunar er
að finna tvö atvik í
fyrra sem teljast
til meiriháttar of-
beldis milli sam-
fanga og sjö atvik
sem töldust til
minniháttar ofbeldis milli samfanga.
Árið 2016 var eitt atvik skráð sem
taldist til meiriháttar ofbeldis milli
samfanga en átta atvik sem töldust til
minniháttar ofbeldis. Þetta er hins
vegar fækkun frá árinu 2015 þar sem
sex atvik um meiriháttar ofbeldi meðal
samfanga voru skráð og 12 minnihátt-
ar ofbeldisbrot. Meiriháttar ofbeldi
gagnvart starfsfólki hefur einnig auk-
ist. Tvö atvik sem teljast til meirihátt-
ar ofbeldis gagnvart starfsfólki voru
skráð í fyrra, einungis eitt atvik árið
2016 en ekkert tilvik um meiriháttar
ofbeldi gagnvart starfsfólki er skráð
árið 2015. Þá var ekkert minniháttar
ofbeldisbrot gagnvart starfsfólki
skráð árið 2017 en eitt árið áður.
Litið alvarlegum augum
„Ofbeldi í fangelsum er litið al-
varlegum augum og þegar slík mál
koma upp er tekið á þeim af mikilli
festu. Fangar sem verða uppvísir að
slíkum brotum eru úrskurðaðir í aga-
viðurlög í formi einangrunarvistar auk
þess sem öll mál eru kærð til lög-
reglu,“ segir Páll Winkel fangels-
ismálastjóri í samtali við Morg-
unblaðið. Hann segir að
lagabreytingar síðustu ára hafi valdið
því að harðari kjarni einstaklinga sitja
inni í lokuðum fangelsum en áður.
„Verkefni okkar sem vinnum í
kerfinu er flóknara í dag en áður
vegna aukinnar áherslu á afplánun ut-
an fangelsa. Lagabreytingar hafa leitt
af sér að stærri hópur dómþola af-
plánar utan fangelsa, ýmist hluta tím-
ans með ökklabandi eða að öllu leyti
með samfélagsþjónustu. Þá eru þrisv-
ar sinnum fleiri rými í opnum fang-
elsum núna en fyrir um áratug. Af
þessu leiðir að mun harðari kjarni ein-
staklinga situr í lokuðum fangelsum
landsins,“ segir Páll. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi
hefur hún einu sinni í ár verið kölluð til
að fangelsinu Litla-Hrauni vegna lík-
amsárásar. Var lögreglan kölluð á
Litla-Hraun tvisvar árið 2017 vegna
líkamsárása.
Fíkniefnamálum fækkar
Mun færri fíknefnamál komu upp
á Litla-Hrauni í fyrra en síðustu ár á
undan. Samkvæmt tölum lögregl-
unnar komu einungis upp sjö fíkni-
efnamál á Litla-Hrauni árið 2017. Til
samanburðar voru þau 22 árið 2016 og
15 árið 2015. Ekkert fíkniefnamál hef-
ur komið upp á Litla-Hrauni það sem
af er ári. Smygltilraunir hafa einnig
minnkað. Var lögreglan kölluð til
vegna fimm smygltilrauna í fyrra en
þær höfðu verið 12 árið 2016. Engin
smygltilraun hefur verið tilkynnt til
lögreglu það sem af er ári. Lögreglan
á Suðurlandi slær hins vegar varnagla
við þessum tölum þar sem brot gegn
lyfjalögum (varsla á lyfjum) eða önnur
agabrot koma ekki inn á hennar borð.
„Það er tilfinning okkar að neysla og
varsla á lyfjum meðal fanga sé tals-
verð,“ segir Elís Kjartansson lög-
reglufulltrúi.
Meiriháttar ofbeldi
meðal fanga eykst
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Litla-Hraun Lögreglan á Suðurlandi hefur einu sinni verið kölluð á Litla-
Hraun vegna líkamsárásar í ár. Var hún tvisvar kölluð til í fyrra.Páll
Winkel
Fangelsismálastofnun ríkisins
rekur fimm fangelsi víðs vegar
um landið. Þau skiptast í opin
og lokuð fangelsi. Stærsta
fangelsi landsins er fangelsið á
Litla-Hrauni sem rúmar 87
karlfanga og starfa þar alls 57
starfsmenn.
Þann 10. júní 2016 var fang-
elsið við Hólmsheiði opnað
formlega en fangelsið er
gæsluvarðhalds- og móttöku-
fangelsi með deild fyrir kven-
fanga og aðstöðu fyrir af-
plánun styttri fangelsis-
refsinga. Á Hólmsheiði eru 56
fangapláss og starfa þar 18
fangaverðir.
Í opna fangelsinu Sogni er
pláss fyrir 22 fanga og starfa
þar samtals 9 starfsmenn.
Opna fangelsið á Kvíabryggju
getur nú tekið við 23 föngum
eftir að byggt var við það árið
2007. Fangelsið á Akureyri er
með aðstöðu fyrir 10 afplán-
unarfanga og einn gæslu-
varðhaldsfanga.
Flestir fangar
á Litla-Hrauni
FANGELSI Á ÍSLANDI