Morgunblaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2018
✝ Björn MárSveinbjörnsson
fæddist í Reykjavík
17. mars 1969.
Hann varð bráð-
kvaddur í Kenía
10. febrúar 2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
laug Einarsdóttir
bókari, f. 7.1. 1936,
d. 28.11. 2008, og
Sveinbjörn Björns-
son, fyrrum háskólarektor, f.
28.10. 1936. Systkini Björns
Más eru: 1) Droplaug, tann-
læknir, f. 8.7. 1957, d. 13.9.
1993, maki Þorvaldur Bragason
landfræðingur, f. 2.8. 1956.
Dóttir þeirra er Birna, líffræð-
ingur, f. 2.8.1989. Sambýlis-
maður hennar er Gunnar Júl-
íusson læknir, f. 5.10. 1988.
Þorvaldur er kvæntur Guðrúnu
Jóhannsdóttur kennara, f. 11.1.
1957. Sonur þeirra er Bragi, f.
5.11. 2002. 2) Einar Örn, pró-
fessor, f. 19.5.1964, maki Guð-
rún Karls Helgudóttir sóknar-
prestur, f. 27.4.1969. Sonur
fræðistofunni Hönnun hf við
framkvæmdaeftirlit og verk-
stjórn. Síðan vann hann sem
verktaki ýmis verkefni fyrir
Orkustofnun á sviði jarðvarma
og stundaði framhaldsnám við
Háskólann í Reykjavík. Þar
lauk hann MSc. prófi í fram-
kvæmdastjórnun 2010. Lokarit-
gerð hans fjallaði um kostn-
aðar- og óvissumat
háhitaborana á Hengilssvæðinu
og í kjölfar hennar fylgdu
verkefni fyrir Orkustofnun um
bættar ákvarðanir við háhita-
boranir og mat á árangri jarð-
hitaborana um allt land. Þessi
verkefni vann hann sem und-
irverktaki Íslenskra orkurann-
sókna en gerðist starfsmaður
þeirra árið 2015. Jafnhliða
sinnti hann nokkurri kennslu
og leiðbeiningu nemenda við
Jarðhitaskóla Háskóla Samein-
uðu þjóðanna.
Björn Már var ókvæntur og
barnlaus. Hann var í sambúð
með Dagmar Jónasdóttur og
tveimur börnum hennar á ár-
unum 2012-2016. Árið 2017 trú-
lofaðist hann Alice Mbeke Ki-
lonzo í Kenía og hann var í
heimsókn þar er hann lést.
Útför Björns Más fer fram
frá Grafarvogskirkju í dag, 12.
mars 2018, og hefst athöfnin
klukkan 13.
þeirra er Ísak
Helgi, f. 13.3. 2007.
Dóttir Guðrúnar er
Hólmfríður Frosta-
dóttir, f. 5.4. 1992.
Maki hennar er
Bjarki Geirdal
Guðfinnsson, f. 4.2.
1992. Dóttir þeirra
er Viðja, f. 19.12.
2017.
Björn Már ólst
upp í Reykjavík og
Kópavogi og náði góðum ár-
angri í knattspyrnu og frjálsum
íþróttum. Ungur hóf hann störf
hjá Jarðborunum ríkisins við
borun eftir jarðhita, lærði
blikksmíði og vann við smíði og
uppsetningu loftræsikerfa hjá
Blikkiðjunni sf. og Íslofti blikk
og stálsmiðju ehf. Hann lauk
raungreinadeildarprófi frá
Tækniskóla Íslands 1996,
stundaði nám í tæknifræði við
Danmarks Tekniske Universi-
tet og Tækniskóla Íslands og
lauk BSc. prófi í bygginga-
tæknifræði á lagnasviði 2001.
Því fylgdi vinna hjá verk-
Leiðir mínar og Björns Más
frænda míns lágu saman fyrir
rúmum sex árum. Hann var þá bú-
inn að snúa baki við neyslu og
óreglu fortíðarinnar. Þá þarf að
taka til í lífinu og ná sáttum við
sjálfan sig og sína nánustu. Það
þarf líka að lagfæra líkamann og
sálina og ná úr sér líkamlegum og
andlegum kvillum. Björn Már birt-
ist í mínu lífi á fullri ferð við þessi
viðfangsefni. Hver kvillinn á fætur
öðrum var lagfærður, sumir með
þjálfun, en aðrir þurftu hníf skurð-
læknisins. Þoka og hörmungar
neyslunnar voru að baki og Björn
Már var orðinn að fyrirmynd ann-
arra og fór um til þess að hjálpa
þeim sem voru að leggja af stað í
sömu vegferð. Hann þurfti líka að
finna sér starfsvettvang. Björn
Már náði að klára nám í tækni-
fræði með ágætum árangri, þrátt
fyrir þoku neyslunnar. Hann vildi
nýta menntun sína og starfa við
jarðhitanýtingu, svið sem við átt-
um sameiginlegt. Hann fékk nokk-
ur verkefni hjá Íslenskum orku-
rannsóknum (ISOR), sem varð til
þess að hann var ráðinn þar í fast
starf. Skýrsla hans fyrir ISOR um
möguleika á vinnslu varma og raf-
orku úr meðalheitum jarðhita-
svæðum á Íslandi (Medium Ent-
halpy Geothermal Systems in
Iceland. Thermal and Electric Po-
tential) er mikið og gott verk, og
kortleggur hvar unnt er að vinna
raforku með tvívökvavirkjunum á
Íslandi. Framtíðin var orðin björt,
lífinu lifað í sátt við allt og alla og
starfsframinn kominn á góðan
skrið. Og síðan blossar ástin upp.
Hann varð ástfanginn af konu í
Kenía, jarðfræðingi sem vann við
jarðhitanýtingu. Það eru mörg ljón
á veginum fyrir slíkri ást, og ekki
auðvelt að koma með konu frá þró-
unarlandi til þessa virkis sem við
höfum reist okkur hér í norðri með
múrum landvistarleyfa og vega-
bréfsáritana. Þess vegna urðu þau
að rækta samband sitt í Kenía. Það
var í slíkri Keníaferð sem kallið
kom, einmitt þegar erfiðleikarnir
og hörmungarnar eru langt að
baki og framtíðin blasir við.
Ég kveð hér frænda minn, koll-
ega, vin og vopnabróður.
Páll Valdimarsson.
Kveðja frá Íslenskum orku-
rannsóknum.
Þau hörmulegu tíðindi bárust
okkur mánudaginn 12. febrúar að
vinur okkar og vinnufélagi á ÍSOR,
Björn Már Sveinbjörnsson, hefði
orðið brákvaddur í fríi í Kenía,
tæplega 49 ára að aldri.
Björn Már lauk BS-námi í
byggingartæknifræði frá Tækni-
skóla Íslands árið 2001. Áhugi
hans beindist síðar að jarðhita-
rannsóknum og lauk hann meist-
araprófi í framkvæmdastjórnun
frá Háskólanum í Reykjavík árið
2010. Meistararitgerð Björns Más,
Kostnaðar- og óvissumat háhita-
borana á Hengilssvæðinu, fól í sér
úttekt á borunum Orkuveitu
Reykjavíkur og var Sverrir
Þórhallsson, deildarstjóri á ÍSOR,
annar leiðbeinenda hans. Segja má
að Björn hafi fengið jarðhitabakt-
eríuna með þessu verkefni og öll
hans vinna upp frá því tengdist
jarðhita. Hann var sjálfstætt starf-
andi fyrstu árin eftir nám og vann
þá ýmis jarðhitaverkefni fyrir
ÍSOR og Orkustofnun og sinnti
kennslu við Jarðhitaskóla Háskóla
Sameinuðu þjóðanna.
Björn Már var ráðinn sérfræð-
ingur á jarðhitaverkfræðideild
ÍSOR árið 2015. Verksvið hans var
víðtækt, hann sinnti borholumæl-
ingum, einkum hita- og þrýstimæl-
ingum, og framkvæmdi aflmæling-
ar á háhitaholum. Hann vann
úttekt á sjóðandi jarðhitakerfum á
Íslandi og kannaði möguleika á því
að nýta þessi 100-180 °C heitu jarð-
hitakerfi til raforkuvinnslu. Hann
sinnti ýmsum athugum á borunum
og borholum í anda meistaraverk-
Björn Már
Sveinbjörnsson
✝ Kristín JórunnMagnúsdóttir
fæddist 16. maí
1925 í Reykjavík.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 3. mars 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Pálmason banka-
ritari, f. 15. júní
1897, d. 28. nóv-
ember 1985, og
Guðbjörg Erlendsdóttir hús-
freyja, f. 17. nóvember 1901, d.
17. nóvember 1991.
Systur Kristínar eru Sig-
urbjörg, f. 1. ágúst 1926, Erla, f.
27. september 1927, og Hrafn-
hildur, f. 17. febrúar 1938.
Kristín giftist 18. febrúar
1951 Andrési Hafliða Guð-
mundssyni lyfjafræðingi, f. 10.
júlí 1922, d. 10. mars 2013. For-
eldrar hans voru Guðmundur
Jónsson skipstjóri, f. 15. júní
1897, d. 6. september 1946, og
Ingibjörg Pétursdóttir hús-
freyja, f. 20. september 1892, d.
24. desember 1980. Börn þeirra
eru: 1) Örn, f. 19. ágúst 1951,
börn hans og Ragnheiðar Hin-
riksdóttur eru a) Andrés Haf-
f. 30. janúar 1978, maður henn-
ar er Hallgrímur Þór Sigurðs-
son, börn þeirra eru Hrafn, Lóa
og Már. b) Andrés Már, f. 21.
janúar 1986. 4) Magnús, f. 26.
apríl 1957, börn hans og Þórdís-
ar Ólafsdóttur eru a) fóst-
ursonur Magnúsar, Róbert
Ágústsson, f. 12. febrúar 1975,
kona hans er Heiðrún Hafliða-
dóttir, börn þeirra Magnús
Máni, Eysteinn Ari og Helgi
Jens. b) Kristín Jórunn, f. 1.
september 1979, maður hennar
er Robert Dillard Atwater, börn
Tara Þórdís, Lena Elizabeth og
Liam Tómas. c) Anna Björk, f.
28. maí 1986, sambýlismaður
hennar er Guðlaugur Ingason,
börn Sóley Rut og Viktor Ingi.
d) Ólafur Skúli, f. 22. ágúst
1991.
Kristín ólst upp á Þórsgötu 5,
gekk í Austurbæjarskóla og
gagnfræðaskóla Ingimars.
Vann í Reykjavíkurapóteki sem
ung stúlka þar sem hún kynnt-
ist Andrési. Árið 1948 var hún
við nám á húsmæðraskóla í
Roskilde í Danmörku.
Árið 1954 flutti fjölskyldan til
Neskaupstaðar og bjó þar í níu
ár. Þar sinnti Kristín börnum
og búi. Frá 1963 bjó fjölskyldan
í Reykjavík þar sem Andrés rak
Háaleitisapótek og bjuggu þau
lengst af í Hlyngerði 11.
Kristín verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag, 12. mars
2018, klukkan 13.
liði, f. 8. júlí 1977,
börn hans og Þor-
bjargar Svönu
Gunnarsdóttur eru
Lilja Nótt Lárus-
dóttir, Anna Lísa
og Gunnar Rökkvi.
b) Berglind, f. 19.
apríl 1980, hennar
börn eru Ragnheið-
ur Kolbrún Har-
aldsdóttir og El-
ísabet Þóra
Árnadóttir. c) Hinrik, f. 18.
ágúst 1981, kona hans er Signý
Helga Jóhannesdóttir, börn Örn
Bragi og Ásta Sif. 2) Guðbjörg
Erla, f. 13. nóvember 1953, börn
hennar og Friðgeirs Sveins
Kristinssonar eru a) Guð-
mundur, f. 18. mars 1979, kona
hans er Hildur Björk Hafsteins-
dóttir, börn þeirra eru Daníel
Örn, Kári Steinn og Grímur
Orri. b) Margrét, f. 14. ágúst
1982, sambýlismaður Baldur
Hrafn Gunnarsson, þeirra börn
eru Friðgeir Örn og Gunnar
Hrafn. c) Kristinn Örn, f. 7. maí
1985, d. 17. október 2009. 3)
Ingibjörg Ólöf, f. 5. ágúst 1955,
d. 9. maí 2013. Börn hennar og
Loga Ólafssonar eru a) Kristín,
Elsku amma Kiddý er látin
eftir stutt veikindi.
Amma skilur eftir sig frábær-
ar minningar um yndislega
konu sem vildi öllum það besta.
Við komum úr stórri og sam-
heldinni fjölskyldu sem hefur
átt margar skemmtilegar stund-
ir saman. Amma og afi áttu
sumarbústað í Vaðnesi þar sem
fjölskyldan hefur oft komið
saman og átt skemmtilegar
stundir. Þegar við vorum yngri
dvaldi meirihluti stórfjölskyld-
unnar þar yfir verslunarmanna-
helgina á hverju ári og við eig-
um góðar minningar frá þeim
ferðum. Í dag förum við síðan í
bústaðinn með börnin okkar og
það er alltaf jafn gaman.
Nú á seinni árum hefur stór-
fjölskyldan, afkomendur ömmu
og systra hennar, komið saman
og haldið jólaball með öllum
börnunum og notið samverunn-
ar.
Það er gott að rifja upp allar
góðu og skemmtilegu stundirn-
ar með ömmu og hugsa til þess
hversu góð amma og langamma
hún var. Amma var ótrúlega
þakklát fyrir allt sem við gerð-
um. Hún passaði alltaf upp á að
okkur börnunum væri ekki kalt
og sagði oft og iðulega: „Voða-
lega ertu illa klædd/ur, þú verð-
ur lasin/n ef þú klæðir þig ekki
betur.“
Elsku amma, takk fyrir allt,
nú ertu farin á vit nýrra tíma og
hittir þar fyrir hann elsku afa
okkar.
Þín
Andrés, Berglind og Hinrik.
Elsku amma mín er látin, arf-
leifð hennar er mikil og margt
mun ég geyma í hjarta mínu.
Amma var mér góð fyrir-
mynd um siði og hugprýði. Hún
var óspör á hrós, hvort heldur
það var gagnvart heimilinu eða
fjölskyldunni, við töluðum mikið
saman í síma og ávallt hrósaði
hún mér fyrir dugnað. Amma
var gjafmild með eindæmum og
gaf það henni mikið að gleðja
fjölskyldu sína og vini. Þetta
erfði móðir mín heitin frá henni
og mun ég hafa þessa kosti í
huga í lífi mínu.
Amma var fagurkeri fram í
fingurgóma, það skipti ekki máli
hvað það var; matur, heimilið
eða fatnaður. Allt var fallegt og
gott. Hún lagði mikið upp úr
góðri matseld og bakaði af mik-
illi list, og eru uppskriftir henn-
ar notaðar enn þann dag í dag
við miklar vinsældir.
Hún var afar smekkleg og
hafði næmt auga fyrir fallegum
hlutum og bar heimili hennar og
afa þess glöggt merki. Hún
nostraði við það og var það
ávallt hreint og snyrtilegt. Það
var mjög notalegt að koma í
heimsókn til þeirra, heimsókn-
irnar einkenndust af dekri og
hlýleika. Það var oft líflegt í
Hlyngerðinu þar sem við frænd-
systkinin komum saman og átt-
um við ótal margar góðar stund-
ir þar.
Amma og afi ferðuðust víða
um heim og voru þau mjög dug-
leg að koma í heimsókn þar sem
ég hef búið erlendis, bæði sem
barn og fullorðin. Mér er minn-
isstæð heimsókn þeirra til Ósló-
ar þar sem ég bjó með foreldr-
um mínum sem barn, ég var
fimm ára og amma fór með mér
í Hennes & Mauritz og keypti
handa mér bláa og gyllta skó
með örlitlum hælum, mikið sem
ég var sæl með þá. Amma hafði
sjálf unun af því að vera fín og
vel til fara, en hún hafði mikinn
áhuga á tísku og var ávallt
glæsileg og „hæst móðins“.
Eftir að hafa stundað nám í
Danmörku tileinkuðu amma og
afi sér mikið úr danskri menn-
ingu og þegar ég flutti til Dan-
merkur um aldamótin var ég
uppfull af fróðleik um land og
þjóð, og má þar helst nefna kon-
ungsfjölskylduna. Þau komu
síðar oft í heimsókn til okkar
fjölskyldunnar til Árósa og
Kaupmannahafnar. Í heimsókn-
unum gæddum við okkur á góð-
um dönskum mat og nutum við
þess einnig að keyra um og
skoða, enda hafði amma mikið
dálæti á bíltúrum.
Árið 2007 giftum við Halli
okkur í Kaupmannahöfn, það
var mikil gleðihelgi og var gam-
an að amma og afi skyldu geta
komið og tekið þátt í gleðinni
með okkur. Á meðal þeirra efstu
á gestalistanum í brúðkaupið
voru einnig systur ömmu, þær
Erla, Bíbí og Addý, en systurn-
ar allar eru með skemmtileg-
ustu konum sem ég hef kynnst.
Það hefur verið aðdáunarvert
að fylgjast með úr fjarlægð
hversu þétt systurnar hafa stað-
ið saman ásamt dætrum sínum,
sérstaklega síðustu árin. Þær
hafa verið duglegar að hittast
og átt góðar stundir saman. Ég
varð snortin þegar að amma lá á
dánarbeðinum og þær systur
sátu hjá henni og umvöfðu hana
ást og umhyggju, betri systur
er vart hægt að hugsa sér.
Við fráfall ömmu er stórt
skarð höggvið í líf okkar til við-
bótar við fráfall afa og mömmu,
hún var góð og umhyggjusöm
amma og langamma. Þeirra
allra er sárt saknað en við yljum
okkur við góðar minningar.
Kristín Logadóttir.
Við systkinin vorum svo
heppin að alast upp í götunni við
hliðina á ömmu og afa og vorum
mikið í Hlyngerðinu á okkar
yngri árum. Þar fannst okkur
gott að vera og það var ávallt
tekið á móti manni með mikilli
hlýju. Oftar en ekki var Kiddý
amma heima þar sem afi vann í
apótekinu. Hún bauð okkur upp
á normalbrauð og kakómalt á
meðan við lásum nýjustu Andr-
ésblöðin. Það var alltaf stjanað
við okkur og sérstaklega þegar
við fengum að gista hjá þeim. Þá
var boðið upp á staur og lakkr-
ísrör og við fengum að vaka
frameftir. Það var gaman að
sitja og spjalla við ömmu því að
hún hafði mjög ákveðnar skoð-
anir og var ekkert af skafa af
hlutunum. Sérstaklega var
gaman að fylgjast með þeim afa
stríða hvort öðru eða frekar afa
að stríða henni.
Kiddý ömmu var mjög um-
hugað um okkur barnabörnin og
spurði okkur reglulega hvort
okkur væri nokkuð kalt eða
hvort við þyrftum að fara á kló-
settið. Þá skipti ekki máli hvort
það væri hávetur í janúar eða
sólskinsdagur um sumar. Þetta
gerði hún þrátt fyrir að við vær-
um langt komin á þrítugsaldur-
inn og höfðum við alltaf mjög
gaman af þessu.
Nú þegar við kveðjum ömmu
minnumst við hennar með mikl-
um hlýhug. Við munum sakna
hennar og minningarnar um
yndislega ömmu lifa um ókomin
ár.
Guðmundur og
Margrét (Mummi
og Magga).
Kristín Jórunn
Magnúsdóttir
Elskulegur faðir minn, sonur okkar,
sambýlismaður og hálfbróðir,
STEFÁN KRISTJÁNSSON
skákmeistari,
sem lést miðvikudaginn 28. febrúar 2018,
verður jarðsunginn frá Neskirkju í Reykjavík
fimmtudaginn 15. mars klukkan 13.
Kristján Stefánsson
Margrét Stefánsdóttir
Kristján Matthíasson Guðrún Bryndís
Guðmundsdóttir
Lilja Björk Erlingsdóttir
Lára Kristín Óskarsdóttir Anna Margrét Óskarsdóttir
Ingunn Erla Kristjánsdóttir Egill Axfjörð Friðgeirsson
Matthías Már Kristjánsson
og aðrir aðstandendur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna fráfalls móður okkar, ömmu
og langömmu,
GUÐBORGAR FRANKLÍNSDÓTTUR
frá Litla-Fjarðarhorni,
sem andaðist þann 12. febrúar sl.
Útför fór fram frá Siglufjarðarkirkju 24.
febrúar sl. og var gerð í kyrrþey að hennar
ósk.
Þeim sem vildu minnast Guðborgar er bent á Systrafélag
Siglufjarðarkirkju, kt. 680499-2849, reikn. 0348-13-300115.
Sigurmar K. Albertsson Álfheiður Ingadóttir
Guðmundur J. Albertsson Áslaug Traustadóttir
Óskar H. Albertsson Aðalheiður Erla Jónsdóttir
og fjölskyldur
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT NORLAND,
lést á Landspítala, Fossvogi, fimmtudag 8.
mars.
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristín Norland, Halla Norland,
Jón Norland og Sigríður L. Signarsdóttir