Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018
Kynntu þér keppnina á Landsvirkjun.is/samkeppni
Landsvirkjun, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, óskar
eftir tillögum að hönnuðu verki eða listaverki sem sett verður
upp á Þeistareykjum. Verkið þarf að falla vel að umhverfinu og
auka upplifun þeirra sem um svæðið fara.
Við hvetjum alla áhugasama að taka þátt í samkeppninni
og nýta sér leiðsögn sem verður um svæðið á keppnistíma.
Tillögum skal skila fyrir 1. júní 2018
og er heildarverðlaunafé 3,5 milljónir króna.
Hugmyndasamkeppni
um listaverk eða hannað
verk í náttúru Þeistareykja
Jarðvarmastöðin á Þeistareykjum er nýjasta aflstöð
Íslendinga. Stöðin var gangsett þann 17. nóvember
2017 og nú efnir Landsvirkjun til hugmyndasam
keppni um verk sem staðsett verður í víðáttumikilli
náttúru Þeistareykja.
Í samstarfi við
OPIÐ RÝMI
Opið r
ými
Vegagerðin hefur ákveðið að taka
tilboði Skrauta ehf. í Hafnarfirði í
gerð göngubrúar yfir Breiðholts-
braut við Norðurfell í Reykjavík.
Þetta er þriðja tilraunin sem gerð
er til að fá þessa göngubrú smíð-
aða. Í fyrri tveimur tilraununum
voru tilboðin svo há að þeim var öll-
um hafnað.
Tilboð Skrauta ehf. hljóðaði upp
á 146 milljónir króna. Er það
nokkru yfir áætluðum verktaka-
kostnaði, sem var 125 milljónir. Eitt
annað tilboð barst, frá Munck Ís-
landi ehf. Það var 155,5 milljónir.
Göngubrúin verður úr eftir-
spenntri steinsteypu og verður 95
metra löng. Þetta er steypt bitabrú
í fjórum höfum þar sem eitt hafið
nær yfir Breiðholtsbraut. Í brúnni
verða stálsúlur úr ryðfríu stáli og
einnig er handrið úr ryðfríu stáli.
Innifalin í tilboðinu er nauðsynleg
færsla á lögnum meðan á fram-
kvæmdum stendur og uppsetning,
rekstur og niðurtekt á viðvörunar-
búnaði vegna hárra bíla. Verkinu
skal vera að fullu lokið 1. október
2018. Gerð göngubrúarinnar er
samstarfsverkefni Vegagerðar-
innar og Reykjavíkurborgar. Borg-
in mun annast stígagerð við brúna
og er reiknað með að það verk
verði boðið út fljótlega.
Verkið var fyrst boðið út í byrjun
árs 2017, aftur síðastliðið haust og
loks í byrjun þessa árs. Göngu-
brúnni er ætlað að bæta til muna
tengingu og umferðaröryggi gang-
andi og hjólandi vegfarenda á leið
milli Fellahverfis og Seljahverfis.
sisi@mbl.is
Göngubrúin Hin nýja brú mun tengja saman tvö hverfi í Efra-Breiðholti.
Loksins var tekið
tilboði í göngubrú
Nú brú byggð yfir Breiðholtsbraut
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Auðun Freyr Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða, hluta-
félags um eignarhald og rekstur fé-
lagslegs leiguhúsnæðis á vegum
Reykjavíkurborgar, segir að ekki
liggi fyrir hvenær leiguverð þjón-
ustuíbúða í Seljahlíð þar sem eru
þjónustuíbúðir fyrir aldraða muni
hækka.
Tilefni þess að Morgunblaðið hafði
samband við Auðun Frey var upp-
hringing á ritstjórn frá íbúa í Selja-
hlíð sem sagði farir sínar ekki slétt-
ar. Hingað til hefði leigan sem
greidd væri fyrir þjónustuíbúð fyrir
aldraða í Seljahlíð verið innan við 60
þúsund krónur á mánuði en nú lægi
fyrir að innan skamms yrði hún
hækkuð um fleiri tugi þúsunda.
Gríðarlega viðkvæmt mál
„Félagsbústaðir keyptu Seljahlíð
af Reykjavíkurborg í árslok 2016 og
fengu heimilið, sem er bæði þjón-
ustuíbúðakjarni og hjúkrunarheim-
ili, afhent í apríl 2017, eða fyrir tæpu
ári. Við höfum vitað það frá því við
tókum við Seljahlíð að það var gríð-
arlega viðkvæmt mál hjá íbúum
Seljahlíðar hvernig leiguverðskerfið
er hjá Félagsbústöðum,“ sagði Auð-
un Freyr í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að íbúar Seljahlíðar
hafi, áður en Félagsbústaðir eignuð-
ust heimilið, ekki notið húsnæðisbóta
eða sérstaks húsnæðisstuðnings.
Þess vegna hafi leiguverðið þar verið
niðurgreitt af Reykjavíkurborg í
áraraðir.
„Ég held að það sé yfirlýst stefna
allra flokka í borginni að leiguverð
eigi að endurspegla raunkostnað og
síðan taka húsnæðisbætur og hús-
næðisstuðningur mið af tekjum og
eignastöðu hvers og eins íbúa. Til
samræmis við það sem gengur og
gerist í hinum 307 þjónustuíbúðun-
um í eigu Félagsbústaða erum við að
undirbúa að taka upp sama kerfi í
Seljahlíð,“ sagði Auðun Freyr.
Vildu gefa aðlögunartíma
Hann sagði að þeir hjá Félagsbú-
stöðum hefðu gert sér fulla grein
fyrir því hversu viðkvæm þessi kerf-
isbreyting væri í augum íbúa Selja-
hlíðar og því hefði verið ákveðið þeg-
ar þeir tóku við heimilinu fyrir ári að
fresta leiguverðshækkuninni til þess
að gefa íbúunum ákveðinn aðlögun-
artíma. Nú færi að líða að því að
kerfisbreytingin tæki gildi, en ekki
væri komin nein ákvörðun um það
hvenær nákvæmlega það yrði.
Loks sagði Auðun Freyr að það
væri undir fjárhagslegri stöðu, eign-
um og tekjum hvers og eins leigj-
anda komið hversu háar fjárhæðir
hann eða hún gæti gert sér vonir um
að fá í húsnæðisbætur og/eða hús-
næðisstuðning. Sumir íbúar sem
væru vel staddir fjárhagslega ættu
engan slíkan húsnæðisbóta- eða
stuðningsrétt.
Leiguverð í Seljahlíð
mun hækka mjög mikið
Húsnæðisbætur dragi hjá sumum íbúum úr hækkuninni
Morgunblaðið/Golli
Seljahlíð Í Seljahlíð eru 49 þjónustuíbúðir fyrir aldraða og þar er jafnframt
hjúkrunarheimili. Félagsbústaðir eignuðust Seljahlíð í árslok 2016.