Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Það vantar stundum gleði í um-ræðuna um móðurmálið. –En snúum okkur að efnidagsins. Í námskrá í íslensku eru lagðar línur um helstu áherslur. Skólarnir útfæra svo markmiðin nánar í skólanámskrá sinni. Þetta er dýrmætt frelsi. En frels- ið skerðist reyndar af annarri ástæðu, nefnilega þeirri kvöð að þurfa að kaupa nánast allt námsefni af „stóra bróður“ (=Menntamálastofnun). Fyrir rúmum áratug gátu skólar sótt í sæmilega digr- an sjóð til kaupa á námsefni af öðrum en „stóra bróður“ og þannig valið á milli kosta. En sá sjóður hefur nánast tæmst. Svo kemur spurningin um samræmd próf – sem „stóri bróðir“ ber ábyrgð á. Þurfum við á þeim að halda (burtséð frá skakkaföllum í fram- kvæmdinni)? Ég er kominn á þá skoðun að senda mætti skólunum „sýnishorn prófa“ sem kennarar gætu haft til viðmiðunar ef þeim sýndist svo. Fólk úr skólasamfélaginu (nýtt fólk á hverju ári) mundi semja þessi sýnis- horn; þannig mætti fyrir- byggja einsleitnina sem hef- ur sett nokkurn svip á samræmdu prófin um árabil. Menn hafa gagnrýnt krossaprófin. En þau eru ekki alslæm, t.d. í mál- fræðikennslunni, því að þau vísa nemanda veginn að réttu svari: hann sér málfræðiheiti sem hann kannski getur ekki beitt af öryggi en kann- ast við um leið og það birtist sem svarmöguleiki á blaði. Tökum dæmi: Hvað eiga skáletruðu orðin hér að neðan sameiginlegt? auk þess/ vegna kosninganna/ til drottningarinnar/ milli mín og þín. ( ) Þetta eru atviksorð og þau eru óbeygjanleg. ( ) Þetta eru forsetningar sem stýra þolfalli. ( ) Þetta eru forsetningar sem stýra þágufalli. ( ) Þetta eru forsetningar sem stýra eignarfalli. (Setjum krossinn við neðstu línu.) Það þarf að kynna nemendum algengustu hugtök í málfræði, m.a. til að auðvelda þeim nám í öðrum tungumálum en ekki síður til að gera þeim kleift að ræða um eigin tungu. Tengjum beygingafræðina við raun- veruleikann. Kennari á Akureyri: „Jæja, krakkar mínir, er ekki gata hér í bænum sem heitir Drottningubraut?“ Nemandi: „Jú, nei, ha, bíddu, hún heitir Drottningarbraut.“ Kennarinn: „Hvers vegna segja þá sumir: ‚Hann fór til drottningunnar‘?“ Umræðan er komin á fleygiferð. Við getum líka gripið til fyrirsagna dagblaðanna: „Ræðumenn þagn- arinnar“; „Æpandi þögn“. Þessar fyrirsagnir úr smiðju gamals skóla- bróður sýna hvað þversögnin er áhrifamikið stílbragð. Við erum komin út í stílfræði. „Ó, öryggið!“ stendur í verðlaunabókinni Elín, ýmislegt (bls. 12) eftir Kristínu Eiríksdóttur. Merking þessara orða snýst við ef þau eru töluð (en ekki skrifuð). Það er ekkert öruggt í þessum heimi. Þrjár auglýsingar að lokum sem góðkunningi sendi mér: Hillur – hillur fyrir alla muni. – Húsgagnahöllin Heilsteypt fyrirtæki. – Steypustöðin Sumir fara aldrei aftur fram úr. – Umferðarráð Prestakall = eiginmaður prests Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Eftir að lífeyrissjóðir urðu ráðandi hluthafar íflestum stærstu fyrirtækjum landsins, semskráð eru á markaði, var ljóst að til þessmundi koma, fyrr eða síðar, að einhvers konar sprenging yrði vegna launakjara æðstu stjórnenda þeirra sömu fyrirtækja. Stjórnir lífeyrissjóðanna eru skipaðar af þeim atvinnu- vegasamtökum og launþegafélögum, sem að þeim standa, hverjum fyrir sig. Þær stjórnir velja síðan full- trúa lífeyrissjóðanna í stjórnir fyrirtækjanna, sem um er að ræða. Þeir fulltrúar eru síðan ábyrgir fyrir launa- kjörum æðstu stjórnenda fyrirtækjanna. Hvernig gengur það upp fyrir launþegafélögin, að fulltrúar, sem þau bera óbeina ábyrgð á í stjórnum fyr- irtækjanna, samþykki launakjör æðstu stjórnenda, sem eru í engu samhengi við launakjör félagsmanna þeirra? Það gengur ekki upp. Í raun og veru á það sama við um atvinnurekendur. Það gengur ekki upp fyrir þá, að Samtök atvinnulífsins haldi uppi málflutningi, sem út af fyrir sig er á rökum reistur um bolmagn fyrirtækja til launagreiðslna en fulltrúar á þeirra vegum í stjórnum viðkomandi fyrirtækja fylgi allt ann- arri stefnu, þegar kemur að launa- kjörum stjórnenda. Þessir augljósu hagsmunaárekstrar komu loks upp á yfirborðið í tengslum við aðalfund eins olíufélaganna, N1, fyrir nokkrum dögum. Fyrstu fréttir um launakjör for- stjóra fyrirtækisins voru misvísandi að því leyti til að þær bentu til þess að föst laun hans hefðu verið hækkuð mun meira en launaþróun í landinu gaf tilefni til. Í ljós kom að um var að ræða bónusgreiðslur. Það skiptir hins vegar ekki máli vegna þess að reglur um bónusgreiðslur geta líka verið út úr kortinu og raun- ar er það svo að í sumum löndum í okkar heimshluta er unnið markvisst að því að takmarka slíkar greiðslur og setja hæfilegt hámark á þær. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn, sem upp koma deil- ur um bónusgreiðslur í stórum fyrirtækjum. Um slíkt tilvik var fjallað í bók minni Umsátrið – fall Íslands og endurreisn, sem út kom haustið 2009. Þar seg- ir (bls-123-124): „Það skortir traust á milli okkar og stjórnvalda,“ segir Hreiðar Már. „Af hverju?“ „Hann (Davíð) vildi skapa „run“ á bankann hjá okkur 2003.“ Og vísaði til þess, þegar Davíð Oddssyni, forsætisráð- herra, ofbauð kaupréttarsamningar, sem gerðir höfðu verið við þá Sigurð (Einarsson) og Hreiðar Má, og tók út innistæður, sem hann átti á bankabók í bankanum í mót- mælaskyni. Þann dag hringdi Hreiðar Már í bókarhöfund og sagði: „Við ætlum að bakka út úr þessu, en ég er sannfærður um að þetta kerfi (þ.e. kaupréttarkerfið) á eftir að koma hér eins og í öðrum löndum.“ Kannski má segja að hvatningar úr ýmsum áttum um að kaupa ekki benzín hjá N1 séu í ætt við þessa aðferð þáverandi forsætisráðherra til mótmæla á sínum tíma. Það voru ekki bara formenn nokkurra verkalýðsfélaga og almennir borgarar, sem létu andúð sína í ljós af þessu tilefni nú. Í tilkynningu frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, einum stærsta hluthafa í olíufélaginu, hinn 16. marz sl., sagði: „Í starfskjarastefnu N1 hf. kemur fram að kjör for- stjóra skuli vera samkeppnishæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfsins. Lífeyrissjóðurinn telur það orka mjög tvímælis hvort fjárhæð launa forstjóra og hækkun þeirra samræmist þessum viðmiðum og þeim sjónarmiðum, sem hluthafastefna sjóðsins byggist á.“ Fyrir nokkrum dögum sendi Landssamband íslenzkra verzlunarmanna frá sér svohljóðandi ályktun: „Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega þeirri sjálftöku launa, sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenzkum fyrirtækjum. Allt frá því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna stofn- ana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks. Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt harðlega og þrátt fyrir að ríkisstjórninni hafi gefizt kostur á að leiðrétta þessa óhæfu, þá reyndist hún ekki hafa þann kjark, sem til þurfti þegar á reyndi. Á sama tíma er því haldið að launafólki að vera hófstillt í launakröfum til þess að viðhalda stöðugleika í samfélag- inu. Það ríkir hins vegar ekki stöðugleiki hjá íslenzku launafólki, sem þarf á sama tíma að takast á við skerð- ingar barna- og vaxtabóta og raunlækkun á persónu- afslætti, sem ekki fylgir almennri launaþróun og hefur ekki gert í áraraðir. Slík ögrun verður ekki liðin og mun valda upplausn á almennum vinnumarkaði verði ekkert að gert. Stjórn LÍV skorar á stjórnvöld og stjórnir lífeyr- issjóða að vinda ofan af þessari þróun aukinnar misskipt- ingar“. Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur nú þegar komið til móts við þessa áskorun með því að lækka nokk- uð laun forstjóra sjóðsins. Það mun hins vegar ekki duga til, hvorki fyrir þann líf- eyrissjóð eða aðra. Fulltrúar launþegafélaganna í stjórn- um lífeyrissjóða hljóta að setja þessi mál á dagskrá og knýja á um að afstaða fulltrúa þeirra í stjórnum ein- stakra fyrirtækja til launakjara æðstu stjórnenda fyr- irtækjanna verði í samræmi við sjónarmið þeirra, sem þeir sækja umboð sitt til. Samtök atvinnulífsins hljóta að horfast í augu við að málflutningur þeirra um launamál verður ekki marktæk- ur nema fulltrúar þeirra í stjórnum sömu fyrirtækja fylgi yfirlýstri stefnumörkun þeirra í kjaramálum í stjórnum fyrirtækjanna. Það er komið að þáttaskilum í þessum efnum. Sprenging í lífeyrissjóðum Fulltrúar lífeyrissjóða í stjórnum fyrirtækja hljóta að fylgja afstöðu umbjóðenda sinna Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Sjötíu ár eru nú liðin frá sögulegriheimsókn norska skáldsins Arn- ulfs Øverlands til Íslands. Hann hafði verið róttækur á yngri árum, en gekk úr norska kommúnista- flokknum eftir hreinsanir Stalíns og sýndarréttarhöld 1938. Hann hafði ort mergjað ádeilukvæði um nas- ismann, sem Magnús Ásgeirsson sneri á íslensku. Eftir hernám Nor- egs handtóku nasistar hið norska skáld og sendu í fangabúðir í Sach- senhausen. En í stríðslok sá Øver- land og skildi, að ekki höfðu allir al- ræðissinnar verið lagðir að velli í stríðinu. Þeir réðu enn Rússlandi. Uppnám varð á norrænu rithöf- undaþingi í Stokkhólmi í árslok 1946, þegar Øverland leyfði sér að ræða um hina harkalegu sjálfsritskoðun Finna eftir ósigur þeirra fyrir Stalín 1944. Úr finnskum bókasöfnum voru þá til dæmis fjarlægðar allar bækur, sem talist gátu gagnrýnar á Stalín og stjórnarfar hans. Skrifuðu 25 rit- höfundar á þinginu undir mótmæli við orðum Øverlands, þar á meðal þau Jóhannes úr Kötlum, Jón úr Vör og Þórunn Magnúsdóttir. Næsta árið talaði Øverland víða fyrir varnarbandalagi gegn Stalín. Þegar vitnaðist, að hann kæmi til Ís- lands vorið 1948, hófu íslenskir kommúnistar áróðursherferð gegn honum. Jóhannes úr Kötlum skrifaði grein í tímaritið Rétt um væntanlega komu hans og valdi honum hin verstu orð. Eftir að Øverland flutti í Austurbæjarbíói fyrirlestur gegn kúgun kommúnista, birtu þeir Sverrir Kristjánsson og Halldór Kiljan Laxness svæsnar árásir á hann. Øverland hefði svikið æsku- hugsjónir sínar og gengist banda- rísku auðvaldi á hönd. Kallaði Lax- ness hann boðbera stríðs og haturs. Á stúdentafélagsfundi í Háskólanum stóð Jónas H. Haralz upp og flutti svipaðan boðskap, sem hann birti síðan í Þjóðviljanum. Aðrir tóku Øverland betur, og var húsfyllir á fyrirlestrum hans og upplestra- kvöldum. Sjö fyrirlestrar Øverlands komu síðan út á íslensku vorið 1949, Milli austurs og vesturs. Er enginn vafi á því, að hið orðsnjalla, einlæga skáld hafði talsverð áhrif í þeim um- ræðum, sem fram fóru eftir stríð í Noregi og Danmörku og á Íslandi um, hvort þessar þjóðir ættu erindi í varnabandalag vestrænna þjóða. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Heimsókn Øverlands KRINGLU OG SMÁRALIND SKECHERS GO WALK MAX HERRASKÓR HERRASKÓR MEÐ GOGA MAX INNLEGGI. STÆRÐIR 41-47 VERÐ 9.995

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.