Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 14

Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ýmsar breytingar má lesa út úr skýrslu um talningu á fuglum á helstu vötnum og mýrlendi í Garðabæ í fyrra. Þannig á flórgoði misjöfnu gengi að fagna, en Garðbæingar hafa reynt að búa í haginn fyrir hann með því að útbúa hreið- urstæði á Vífilsstaðavatni. Skúfönd styrkti sig í sessi á efri vötnunum og er algengasta öndin þar. Duggöndin er hins vegar nær horfin og hef- ur henni fækkað mikið á landinu öllu síðustu ár. Talningarnar voru gerðar á Vífilsstaðavatni, Vatnsmýri, Urriðavatni, Bessastaðatjörn, Kast- húsatjörn og Breiðabólsstaðatjörn. Talninguna önnuðust Jóhann Óli Hilmarsson og Ólafur Ein- arsson og var verkið unnið fyrir umhverfisnefnd Garðabæjar. Alls var talið 13 sinnum og voru niðurstöður bornar saman við eldri talningar, m.a. frá 2013 og 2014. Hættur að verpa við Bessastaðatjörn Alls sáust 50 fuglategundir á öllum talning- arsvæðum, flestar á Bessastaðatjörn (43) og fæstar á Vífilsstaðavatni og í Vatnsmýri (24). Mýri við austanverða Kasthúsatjörn var end- urheimt í ársbyrjun 2017 og jafnframt var mýri við Urriðavatn endurheimt síðla árs. Skúfönd var algengasta öndin á Vífilsstaða- vatni eins og undanfarin ár. Þær fyrstu sáust 11. apríl og sáust þær fram í október. Tæplega 120 skúfendur voru á vatninu frá miðjum júlí og fram í september. Aðeins færri fuglar sáust nú að meðaltali á Vífilsstaðavatni en 2013 eða 64 nú á móti 72 þá. Árið 2004 var meðaltalið 69 og 2005 var það 72 fuglar á talningu, svo það eru ekki miklar sviptingar í fjölda fugla á vatninu. Grágæs og æðarfugl voru algengustu fugl- arnir á Bessastaðatjörn, en stórt æðarvarp er í Bessastaðanesi. Hettumáfur er hættur að verpa við Bessastaðatjörn, en þar var um tíma stærsta hettumáfsvarp landsins. Eina stóra varpið á Innnesjum er á Ástjörn við Hafnarfjörð. Stormmáfur, háleggur og hrísastelkur Stormmáfur varp í Vatnsmýri í fyrsta sinn en varpið misfórst. Kríur eru að sækja í sig veðrið á ný á Álftanesi, eftir lægð frá árinu 2005. Ekk- ert varp að ráði er þó á talningarsvæðunum. Fáeinir sjaldgæfir flækingsfuglar sáust, þar má nefna hálegg, fugl sem sást til skiptis á Suð- urnesjum, Seltjarnarnesi og við Kasthúsatjörn. Þessi tegund hefur ekki sést á landinu fyrr. Hrísastelkur er einnig nýr fugl á Álftanesi en þar sáust tveir fuglar. Svo aftur sé vikið að flórgoða þá verpti hann bæði við Urriðavatn og Vífilsstaðavatn í fyrra. Sumarið 2016 reyndu flórgoðar varp á sjö til- búnum hreiðurstæðum með misjöfnum árangri, fimm ungar komust á legg. Í fyrra voru útbúin tvö hreiðurstæði á vatninu og voru þau bæði nýtt, en einungis einn ungi komst á legg. Skortur á varpstöðum og óskýrð vanhöld „Flórgoðar hófu að verpa við Vífilsstaðavatn sumarið 2008 og hafa orpið þar síðan, en voru áður og eru enn mest áberandi síðsumars. Skortur á varpstöðvum virðist há fuglinum, en einnig óskýrð vanhöld og jafnvel truflun af mannavöldum,“ segir í skýrslunni. Á Urriðavatni komust a.m.k. tveir ungar á legg bæði árin. Flórgoðinn er að færa út kví- arnar á Innnesjum, þótt honum gangi brösug- lega á Vífilsstaðavatni. Nú fannst hann með unga á Hvaleyrarvatni í fyrsta skipti og á Rauðavatni í fyrsta sinn í rúm 100 ár. Lítið varp var aftur á móti við Ástjörn, segir í skýrslunni. Sáu 50 fuglategundir á vötnum og mýrlendi  Misjafnt gengi flórgoða í Garðabæ  Skúfönd sterkari á efri vötnunum  Duggönd nær horfin Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Aufúsugestur Fyrsta flórgoðaparið hefur oft sést á Vífilsstaðavatni fyrri hluta aprílmánaðar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vífilstaðavatn Gissur Hrafn Gíslason og Ásta Leifsdóttir útbúa hreiður fyrir flórgoða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.