Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 22

Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í bréfi sem Landsnet hefur ritað umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er bent á að Landsneti hafi ekki verið veittur þriggja mánaða frest- ur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu jarðarinnar Hóla í Öxnadal eins og tillaga Umhverfisstofnunar kveður á um. Þá fullyrðir Landsnet að ákvæða náttúruverndarlaga hafi ekki verið gætt við ferlið og að uppfylla þurfi ákvæði í þeim lögum til þess að ljúka megi friðlýsingu svæðisins með lögmætum hætti. Bendir fyrirtækið á að sú staða valdi því að fyrir hendi sé „ólögmætisástæða er hamlar töku stjórnvaldsákvörð- unar af hálfu ráðherra á þessu stigi.“ Í bréfinu, sem dagsett er á föstudag í síðustu viku, er farið yf- ir þá stöðu sem fyrirtækið telur í uppsiglingu á grundvelli frétta- flutnings um fyrirhugaða friðlýs- ingu sem stendur fyrir dyrum. Bendir fyrirtækið á að óskilyrt friðlýsing á jörðinni myndi setja áform þess um styrkingu raforku- kerfisins í uppnám og að svæðið hafi „umtalsverða þýðingu fyrir samfélagslega hagsmuni tengda flutningskerfi raforku,“ eins og það er orðað. Um svæðið liggur nú þegar Rangárvallalína 1 sem er hluti af hinni svokölluðu byggða- línu. Þannig hafi Landsnet lagt mat á tvo möguleika við uppfærslu flutn- ingskerfisins sem sé orðin knýj- andi. Annars vegar sé mögulegt að tengja milli suðurs og norðurs um Sprengisand og styrkingar milli Blöndustöðvar og Fljótsdalsstöðv- ar. Hins vegar sé gert ráð fyrir uppbyggingu kerfisins meðfram núverandi byggðalínu. Báðir þessir kostir geri ráð fyrir uppbyggingu á nýrri 220 kV tengingu milli Blöndu og Fljótsdals og þeir kostir hafi báðir að geyma hina svokölluðu Blöndulínu 3. Sú lína sé fyrirhuguð um Öxnadal en með friðlýsingu Hóla verði lokað á þann möguleika, ekki síst vegna þess að jörðin Hraun í sama dal var friðlýst sem fólkvangur árið 2007. Heildstætt mat jarðstrengja Landsnet bendir einnig á að ef friðlýsing jarðarinnar Hóla muni fela í sér kröfu um að raforkuflutn- ingur um svæðið verði um jarð- streng þá kunni það að hafa áhrif á möguleika fyrirtækisins á lagningu jarðstrengja á öðrum hlutum línu- leiðar Blöndulínu 3. „Slíkt gengi gegn þeirri hugsun sem felst í í 9. tölul. A-liðar tillögu til þingsálykt- unar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins […] skuli tryggja að ákvarðanir um einstaka jarðstrengskafla, þeg- ar það á við, byggist á heildstæðu mati á þeim hluta flutningskerf- isins þar sem lengd jarðstrengs- kafla er háð takmörkunum og inn- byrðis háð.“ Auk þess er bent á að gengið sé út frá því að jarðstrengs- kaflar séu nýttir á svæðum þar sem jarðstrengur hafi í för með sér mestan ávinning umfram loftlínu en að mat á því hvar það eigi við hafi enn ekki farið fram í tilfelli Blöndulínu 3. Málið í höndum setts ráðherra Möguleg friðlýsing Hóla í Öxna- dal er í höndum Svandísar Svav- arsdóttur, setts umhverfis- og auð- lindaráðherra í málinu. Málið var falið henni til úrlausnar eftir að Guðmundur I. Guðbrandsson, um- hverfis- og auðlindaráðherra, lýsti sig vanhæfan vegna málsins. Sif Konráðsdóttir, sem til skamms tíma var aðstoðarmaður Guðmund- ar, er eigandi jarðarinnar. Þá hafði Sif einnig lýst því yfir, meðan hún gegndi starfi aðstoðarmanns, að Guðmundur væri ekki vanhæfur til að taka ákvörðun í málinu, þrátt fyrir eignarhald hennar á jörðinni. Lagaskilyrði skorti fyrir friðlýsingu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Raforka Landsnet bendir á að í stjórnarsáttmála komi fram að flutnings- og dreifikerfi raforku verði að mæta betur þörfum atvinnulífs og almennings.  Landsnet segir rök hníga að því að ekki sé tímabært að ljúka afgreiðslu á friðlýsingu Hóla í Öxnadal  Lagaskilyrði skorti til ákvörðunarinnar vegna formgalla  Tryggja þurfi lagningu Blöndulínu 3 Langt ferli » Fjögur ár eru liðin frá því að leitað var athugasemda við fyrirhugaða friðlýsingu. » Landsnet hefur ákveðið að framkvæma nýtt umhverfis- mat fyrir Blöndulínu 3. » Af þeim sökum hefur línan verið tekin af framkvæmda- áætlun næstu þriggja ára. ● Í lok fyrstu heilu viðskiptaviku Kviku á First North-markaði Kauphallarinnar var markaðsverðmæti félagsins komið í 15 milljarða króna og hafði þá aukist um hálfan milljarð frá fyrsta viðskipta- degi. Gengi félagsins hækkaði um 0,6% í gær og alls um liðlega 3% í vikunni. Góð fyrsta viðskipta- vika Kviku á First North 24. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.33 99.81 99.57 Sterlingspund 140.53 141.21 140.87 Kanadadalur 77.12 77.58 77.35 Dönsk króna 16.425 16.521 16.473 Norsk króna 12.854 12.93 12.892 Sænsk króna 12.112 12.182 12.147 Svissn. franki 104.76 105.34 105.05 Japanskt jen 0.94 0.9454 0.9427 SDR 144.35 145.21 144.78 Evra 122.36 123.04 122.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.3256 Hrávöruverð Gull 1342.35 ($/únsa) Ál 2057.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.63 ($/fatið) Brent Litið er á það neikvæðum augum af mögulegum viðskiptavinum gagna- vera að einungis eitt fyrirtæki, Farice, bjóði nettengingar við um- heiminn. Auk þess er bandvídd dýr- ari hér en í samkeppnislöndum. Þetta kemur fram í úttekt KPMG. Fram kemur í skýrslunni að sam- keppnisforskotið sem Ísland hafði, að bjóða upp á rafmagn á hagstæð- ara verði, sé að hverfa. Gagnaver- um hérlendis bjóðist svipuð verð og í Norður-Evrópu, og hærri verð en í Danmörku og Svíþjóð. Á sama tíma er verð bandvíddar að verða steinn í götu gagnavera, líka fyrir starfsemi sem krefst lítillar bandvíddar. Efla þarf nettengingar til lands- ins til þess að gagnaver hérlendis geti keppt alþjóðlega. Það verður æ erfiðara fyrir þau ef ekkert verður aðhafst í málinu. Ákjósanlegast væri, að mati höfunda skýrslunnar, ef það væru tveir netstrengir í einkaeigu og sá þriðji væri í eigu ríkisins sem tryggði áreiðanlega og hagkvæma varatengingu við um- heiminn. Næstbesti kosturinn væri að greiða fyrir því að einkaaðilar fjár- festi í þriðja neðansjávarkaplinum til Evrópu. Hann þyrfti að tengjast veltengdu svæði. Takist ekki að koma upp þriðja kaplinum er nefnt sem möguleg skammtímalausn að koma einum af sæstrengjum Farice til einkaaðila. Við þá ráðstöfun væri ekki einungis einn aðili sem annaðist nettenging- ar við umheiminn. helgivifill@mbl.is Einkaaðilir fjár- festi í nettengingu  Rafmagn til gagnavera er ekki ódýrt Gagnaver Verð á bandvídd fer að verða steinn í götu gagnavera. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 TILBOÐSVERÐ FRÁ 2.459.000 KR. ÁN VSK TILBOÐSVERÐ 3.05 0.000 KR. MEÐ VS K CITROEN.IS CITROËN JUMPY MODUWORK - aukið flutningsrýmiNálægðarskynjarar að aftan Þrjár lengdir – allt að 4 metra flutningsrými FJÖLHÆFUR & STERKUR LENGDIN SKIPTIR MÁLIBAKKAÐU AF ÖRYGG I KOMDU &MÁTAÐU CITROËN JUMPY Í DAG! AÐEINS Í NOKKRA D AGA! 300.000KR. AFSLÁTTUR GILDIR TIL 2 8. MARS!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.