Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Mig langar til að minnast Benedikts eða Benna eins hann var alltaf kallaður. Þegar nafn hans er nefnt kemur Matta hans alltaf upp í hugann. Þau voru samhent, glæsileg hjón svo eftir var tekið, glaðleg og vin- samleg. Þegar ég var unglingur og kynntist þeim átti ég ekki von á að við myndum seinna tengjast nán- um fjölskylduböndum sem varð raunin, þegar börnin okkar felldu hugi saman. Það var gott að vita af Freyju okkar í höndum þeirra hjóna þegar hún flutti austur á Eskifjörð til ástarinnar sinnar, enda kom það á daginn. Benni var einstakur vinur barna sinna og yndislegur afi. Þegar fjölskyld- urnar fluttu suður kom ekki annað til greina en að búa í sama hverfi og hefur unga parið notið stuðn- ings og ekki síður hafa barnabörn- Benedikt Jón Hilmarsson ✝ Benedikt JónHilmarsson fæddist 21. maí 1957. Hann lést 15. mars 2018. Útför Benedikts fór fram 22. mars 2018. in okkar, Sonja Salín og Steinunn Matt- hildur, notið nálægð- ar þeirra. Daglega hugsum við kannski ekki um merkingu orðsins fjölskylda, en hún felur í sér fjölda af skyldum, sem Benni sinnti af alúð svo aðdáanlegt var. Það sem hann skilur eftir sig er lífsspeki sem byggist á sam- heldni, vinsemd og elsku og hún mun áfram lifa í börnum hans og litlu afstelpunum. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir) Elsku Matta, elskulegur tengdasonur okkar Hilmar, Sonja Björk, Símon, litlu afa- og ömmu- stelpurnar Sonja Salín og Stein- unn Matthildur, Freyja okkar og Arnrún, megi minning um ein- stakan mann lifa með ykkur og styrkja á erfiðum tímum. Ólína Freysteinsdóttir, Viðar Ólason og börn. Það er svo ótrú- lega erfitt að þurfa að hripa niður þessi orð um okkar ynd- islega Gest á þess- um tímamótum. Um leið rifjum við upp allar þær fjöl- mörgu stundir sem við áttum með honum og tilfinningin því ljúfsár á þessum erfiðu tímum. Gesti kynntumst við hjóna- kornin fyrst þegar hann mætti til að pípa í kjallaranum okkar litla á Brávallagötunni þar sem við hreiðruðum um okkur í byrjun okkar samvista. Þá höfðu þau Oddný verið nýbyrjuð að slá sér upp saman. Við áttuðum okkur snemma á því að Gestur var traustur maður og einstaklega hlýr enda var inn- koma hans inn í okkar líf og fjöl- skyldu svo áreynslulaus og þægi- leg að í baksýnisspeglinum virðist sem hann hafi alltaf verið þar. Það er okkur minnisstætt þeg- ar Oddný hringdi og bað okkur að mæta stundvíslega kl. 14 til þeirra í kaffi í Mosó þar sem þau höfðu komið sér fyrir fyrir ofan bílaverkstæði. Okkur þótti þetta í meira lagi grunsamlegt þar sem þau voru yfirleitt sultuslök yfir því hvort fólk mætti á slaginu eða ekki. Kom svo upp úr dúrnum að í miðri veislu á verkstæðinu birtist séra Pétur Þorsteinsson og straujaði þau saman innan um bílaparta, skiptilykla og pípu- lagningagræjur við undirleik Tinu Turner: The Best! Það var Gesti og Oddnýju líkt að vilja hafa þetta jarðbundið og lág- stemmt innan um nánasta fólkið sitt. Gestur átti það sameiginlegt með Oddnýju að vera framtaks- og vinnusamur og þau voru fljót Gestur Kristinsson ✝ Gestur Krist-insson fæddist 26. júlí 1950. Hann lést 10. mars 2018. Útför Gests fór fram 21. mars 2018. að finna sér verkefni saman, í akstrinum, í pípulögnunum, á verkstæðinu í Mos- fellsbænum og svo í Gaulverjaskóla þar sem þau ráku sam- an farfuglaheimili. Þó oft væri ákaflega mikið að gera hjá þeim voru þau bæði ákaflega greiðvikin og ég minnist þess ekki að hafa heyrt þau nokkurn tíma kvarta yfir álagi. Gestur var afi barnanna okkar og tók það hlutverk alvarlega. Þeim þótti sjálfsagt og í raun mikill lúxus að eiga þrjá afa. Þau hjónin tóku þeim alltaf opnum örmum og sinntu þeim af ást og alúð. Afi Gestur og Hugi Freyr sonur okkar tengdust sérstökum og órjúfanlegum böndum strax í barnæsku Huga. Sá stutti ljóm- aði ef hann frétti af því að hann ætti að hitta afa og afi sömuleiðis. Þeir „afarnir“ voru ákaflega sam- rýndir og Hugi leit ákaft upp til afa, ætlaði t.a.m. að verða pípari eins og afi þegar hann yrði stór. Hugi rifjaði upp góða minningu þegar hann fékk að „stelast“ í framsætið í bílnum hans afa við Gaulverjaskóla og afi keyrði óvart upp á grasið. Afi sagði bara: „úps“! Það þótti þeim ákaf- lega fyndið báðum tveim. Elsku Gestur, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig. Við hugg- um okkur við allar góðu minning- arnar sem við eigum saman. Við sjáum þig fyrir okkur brillera á golfbrautinni í Sumarlandinu, elsku afi. Þín Haraldur Vignir, Elín Oddný, Hekla Björt og Hugi Freyr. Elsku pabbi. Það er ekki auðvelt að skrifa niður minningar um þig þar sem þú ert í huga mér ekki farinn. Margar eru minningarnar og af ólíkum toga. Þú áttir fjölbreytta og litríka ævi og varst ófeiminn við að prufa ólíka hluti. Þú varst ævintýragjarn og elskaðir að ferðast og kynnast nýju fólki. Hestamennska er eitt af því sem tók hug þinn allan um langan tíma og þar smitaðist ég hressi- lega sem endaði með því að ég fékk Kirkjubæjarmeri í ferming- argjöf frá þér og mömmu. Við eyddum oft löngum stundum inn- an um hestana okkar og nutum samverunnar. Ég minnist þess með hlýju þegar ég var au-pair í Californiu og þú komst í heim- sókn. Ég átti afmæli og þú tókst með þér ýmislegt góðgæti eins og Ora grænar baunir, mömmu rab- arbarasultu, harðfisk o.fl. Við brölluðum hitt og þetta saman þennan tíma sem þú varst hjá mér og m.a. leigðum við Ford Mustang-blæjubíl. Þú sagðir með bros á vör að nú væri draumur þinn að rætast frá því þú varst 16 ára, þegar við brunuðum hrað- brautina á leið okkar til San Francisco með blæjuna niðri og vindinn í hárinu í sól og sumaryl. Ég gæti eflaust skrifað heila bók með minningum en kýs frekar að varðveita þær í hjartastað og í huga mér. Þú kenndir mér margt, bæði hvernig manneskja ég vil vera og líka hvernig mann- eskja ég vil ekki vera. Þú varst börnunum mínum, Rebekku Þurý og Hannesi Má, góður og kærleiksríkur afi og þín verður sárt saknað, elsku pabbi. Von- andi líður þér betur núna hvar svo sem þú ert staddur í veröld- inni. Ég kveð þig með þessum orð- um: Margt þú hefur misjafnt reynt, mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint, gleði bak við tárin. (JÁ) Þín dóttir, Hjördís. Elsku afi. Ég er ekki viss um að við höf- um alveg áttað okkur á því að þú sért farinn frá okkur ennþá. Við systkinin getum talað endalaust um allt sprellið og ævintýrin sem við brölluðum hjá þér og ömmu í sveitinni. Ég minnist þess alltaf þegar ég fór með þér og ömmu og Rikka frænda í fyrstu og einu veiðiferðina mína. Þú skildir ekk- ert í því af hverju ég kom alltaf til baka í húsbílinn öll vot í fæturna og bölvaðir mömmu fram og aft- ur fyrir að senda barnið hennar í götóttum stígvélum í veiðiferð. Það var ekki fyrr en þú sendir mig og langömmu á Ísafjörð að kaupa ný stígvél að þú sást að hin stígvélin voru í fullkomnu lagi. Ég óð hreinlega bara alltaf of langt út í vatnið þannig að það flæddi yfir. Við töluðum oft um þessa ferð og gerðum grín að okkur. Ég man það bara fyrir nokkrum dög- um þegar ég hitti þig, þá hlógum við enn og aftur að veiðiferðinni okkar góðu. Hannes bróðir á margar góðar minningar um þig, þar á meðal veiðiferðina sem hann fór í með þér, ömmu og Eydísi. Eydís fékk fisk trekk í trekk en ekkert gekk hjá Hannesi. Hann var orðinn verulega leiður og afbrýðisamur en þá komst þú til hjálpar þar sem þú sást hvernig honum leið og reddaðir þessu fyrir hann og þá loksins fékk hann vænan fisk á öngulinn sem honum tókst að landa. Þú varst alltaf svo hjálp- samur og skilningsríkur. Lexíurnar og minningarnar eru óteljandi margar og svo góð- ar og hamingjusamar. Þannig munum við muna eftir þér, afi. Hressum og kátum. Þú varst besti afinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga svona góðan og kærleiksríkan afa sem var alltaf tilbúinn að hlusta á endalausa blaðrið í okkur og allt- af hafðir þú ráð við öllu. Þú hafðir alltaf gaman af okkur og vildir að við lifðum lífinu til fulls. En það munum við svo sannarlega gera, elsku afi. Þín verður svo sárt saknað. Alltaf. Þín barnabörn, Rebekka Þurý og Hannes Már. Kær vinur, Björgúlfur, er fall- inn frá langt fyrir aldur fram. Okkur setur hljóðar, við syrgjum og rifjum upp góðar minningar frá liðnum tíma. MR klíkan okkar var góð, sterk og samheldin. Bjöggi var í miðpunkti hennar. Hár og grannur með ljóst hárið í óreiðu, fjörugur, frumlegur en umfram allt svo skemmtilegur. Lífið var létt og leikandi, ung- dómurinn horfði bjartsýnn fram á veginn, allar leiðir voru færar. Leiðir okkar Bjögga lágu sam- an á þessum árum. Hann var stólpinn í hópnum og alltaf til í allt. Bjöggi var afar vinamargur enda var gott að vera í kringum hann. Hann hafði hárfínan og beittan húmor sem hann spar- aði ekki á mannamótum. Það fylgdi honum hressileiki. Við minnumst góðu stundanna við eldhúsborðið á Unnarbrautinni. Þar átti hann sitt sæti. Pönnu- kökuát, skemmtisögur og hlát- urköst. Staður til að ræða nýjustu uppákomurnar í skól- anum, fjörugt félagslífið og drekka te. Við minnumst líka heimilis Bjögga á Tjarnarstíg Björgúlfur Ólafsson ✝ BjörgúlfurÓlafsson fædd- ist 6. nóvember 1961. Hann lést 9. mars 2018. Útför Björgúlfs fór fram 20. mars 2018. þar sem hann stóð fyrir vinsælustu samkundunum í hópnum, heiti pott- urinn, stóri garður- inn og fjaran lokk- uðu. Supertramp, Sumar á Sýrlandi og Pink Floyd á fóninum og dansað fram á rauða nótt. Svo var lagst í ferðalög bæði er- lendis og innanlands og alltaf var tjaldið með í för. Stundum var farið á gömlu grænu fólksvagenbjöllunni, Græna slíminu, sem við systurnar höfð- um til umráða. Bíll sem var svo ryðgaður í gólfi að gæta þurfti að svo ekki væri stigið óvart í gegn. Í þessum ferðum naut sögumaðurinn í Bjögga sér vel, hann gat spunnið ótrúlegustu sögur úr því sem fyrir augu bar. Bjöggi hafði gaman af útivist og var afburðagóður skíðamað- ur. Hann fór létt með að skíða í glæsilegu svigi niður brekkurn- ar og munaði ekkert um að skíða með vinkonu á bakinu. Slíkar ferðir voru ævintýralegt samflug. Kæri vinur, við vitum að þú flýgur hátt á útþöndum vængjum núna í eilífðargeislum sólarinnar. Við minnumst þín með hlýju og þakklæti. Við vott- um fjölskyldu Björgúlfs og öðr- um ástvinum okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning hans. Siv Friðleifsdóttir, Ingunn Friðleifsdóttir. Ólafur Þórðarson, eða „Óli afi“ eins og hann var kallaður á mínu heimili, var einstaklega hjarta- góður maður. Hann var ekki líf- fræðilegur afi minn en hann taldi sig alltaf vera afa minn og barna minna og fyrir okkur var hann það. Hann var með hjartað á rétt- um stað. Óli afi var alltaf kátur og sérstaklega barngóður. Eitt sinn þegar ég var um sex ára gamall kom hann vestur til Bolungarvíkur til þess að sækja Peugeot-bíl sem hann hafði lánað Skarphéðni og mömmu. Bíllinn hafði staðið undir snjó um veturinn og ekkert verið notaður. Óli var að reyna að koma bílnum í gang með því að hlaða raf- geyminn. Krakkarnir í víkinni flykktust að til þess að fylgjast með þessum skemmtilega karli við bílaviðgerðir. Þegar hann settist inn í bílinn til þess að starta sagði hann við okkur krakkana „ef bíll- inn fer í gang býð ég öllum upp á kók og prins“. Bíllinn rauk í gang og Óli stóð við sitt. Hann fór með allan krakkaskarann niður í sjoppu og keypti kók og prins og einnig fyrir þá krakka sem voru í sjoppunni fyrir. Ég var mikið hjá Óla afa og Álfu ömmu í Njarðvík á sumrin enda Ólafur Eiríkur Þórðarson ✝ Ólafur EiríkurÞórðarson fæddist 4. apríl 1943. Hann lést 13. mars 2018. Útför Ólafs fór fram 22. mars 2018. var bara eitt ár á milli okkar Ástmars og vorum við miklir vinir. Óli var alltaf tilbúinn til að gera eitthvað skemmtilegt með okkur. Hann fór oft með okkur í sund og á hverju sumri var farið í Bláa lónið. Okkur Ástmari leiddist gjarnan þeg- ar ekið var um Reykjanesbrautina og fannst okk- ur Óli keyra fullhægt. Þá áttum við það til að fara í leik sem hvatti Óla til að keyra hraðar. Við gáfum hon- um stig fyrir hvern bíl sem hann ók fram úr og mínusstig fyrir þá sem fóru fram úr okkur. Auðvitað pössuðum við okkur á því að Óli heyrði um hvað við vorum að tala og þá var ekki að spyrja að karli, hann gaf í og tók fram úr hverjum bílnum á fætur öðrum. Þá vorum við alsælir með kallinn. Þegar við fjölskyldan komum suður var skyldumæting í dekur hjá þeim hjónum. Þau léku við hvern sinn fingur í kringum krakkana. Má til dæmis nefna að alltaf var vatn í heita pottinum fyr- ir börnin sem áttu þar gæðastund- ir með þeim hjónum. Óli minn, takk fyrir allar stundirnar sem ég og fjölskylda mín höfum fengið að njóta með þér. Nú ertu kominn í faðm Ástmars og Skarphéðins sem voru teknir frá okkur alltof snemma. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur, hvíldu í friði, elsku Óli afi minn. Kristinn Ísak Arnarsson. Mig langar til að minnast ömmu minnar, Sigríðar Margrétar Ei- ríksdóttur, alltaf kölluð Didda, í fáeinum orðum. Þegar ég hugsa um ömmu hugsa ég alltaf um hana og afa í Fróðasundi 9. Þó að þau hafi búið síðustu árin í Lindasíðu þá eru svo ótalmargar yndislegar æskuminningar um ömmu frá þeim tíma sem þau bjuggu í Fróðasundinu. Gott að borða hjá ömmu, amma og afi að hlusta á fréttirnar, skúffukaka og mjólk, bestu jólagjafirnar, sniðug viðurnefni, þvottur á snúrunni, sól og garðurinn ilm- andi grænn og fallegur, amma úti í blómabeði og amma að selja konum úr hverfinu blóm, rifs- berjarunnar, spennandi kjallar- inn, leyndardómsfulla brúðan úr Kínaferð ömmu, amma að spjalla við mann um heima og geima. Amma var hagmælt og hafði mikinn og smitandi áhuga á ís- lensku máli, orðtökum og máls- háttum, vísum, þulum og sögum hverskonar og það voru ófá orð- in sem maður hváði við að heyra en fékk útskýringar á hjá henni. Maður fann alltaf hvað ömmu Sigríður Margrét Eiríksdóttir ✝ Sigríður Mar-grét Eiríks- dóttir fæddist 11. febrúar 1929 á Dvergsstöðum í Eyjafirði. Hún lést 4. mars 2018. Útför hennar fór fram í kyrrþey 16. mars 2018. þótti vænt um mann og hafði gam- an af manni þótt maður væri stund- um frekur krakki og skapvondur ung- lingur en hún var aldrei með neina væmni eða tilfinn- ingasemi. Maður skynjaði bara til- finningar hennar og ég man eftir húmor og hlýjum faðmlögum. Amma var örlát, hlý og góð en samt al- gjör nagli, eflaust mótuð af sín- um tíðaranda og uppvexti. Dugnaðarforkur sem gekk allt sem hún fór, saumaði og eldaði og sá um alla og kvartaði ekki. Það var mjög sárt að vita þegar hún greindist með parkinson- sjúkdóminn sem háði henni mjög undir það síðasta. Nú hefur hún fengið lausn frá veikum líkama, södd lífdaga og ég er þakklát fyrir að hafa átt svona vel gefna, góða og frábæra ömmu. Ég enda þessa minningargrein um elsku ömmu mína með ljóðabút sem hún kenndi mér þegar ég var unglingur, erindi úr ljóðinu Lífs- hvöt eftir Steingrím Thorsteins- son. Guð geymi þig elsku amma mín, elsku afa votta ég samúð mína. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber: Guð í alheims geimi, Guð í sjálfum þér. (Steingrímur Thorsteinsson) Sigríður Ásta. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.