Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 15

Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skattbyrði þeirra tekjulægstu hélt áfram að aukast á árunum 2016 og 2017 en því var þveröfugt farið hjá hinum tekjuhæstu. Þetta er niður- staða hagdeildar ASÍ sem hefur upp- fært útreikninga sína á skattbyrði tekjuhópa eftir tekjuárum til ársins 2017. Um er að ræða framreikning á út- reikningum í skýrslu um skattbyrði launafólks sem birt var í ágúst í fyrra og náði til áranna 1998 til 2016. Nið- urstaða hennar var að skattbyrði jókst í öllum tekjuhópum frá 1998 til 2016 en mest hjá þeim tekjulægstu og eru meginástæðurnar m.a. þær að persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun sem jók skattbyrði lægri launa mest. Uppfærðu útreikning- arnir leiða í ljós að þessi þróun hefur haldið áfram með sama hætti milli seinustu tveggja ára. Minni stuðningur úr vaxtabótakerfinu „Meginniðurstaðan um þróun á skattbyrði milli áranna 2016 og 2017 er sú að skattbyrði á lægri tekjur heldur áfram að aukast einkum vegna minni stuðnings úr vaxtabóta- kerfinu og misræmis í þróun per- sónuafsláttar og launþróunar. Þannig heldur aukin skattbyrði lægri launa áfram að vinna gegn árangri í kjara- samningum þar sem kaupmáttur lægstu launa jókst um ríflega 6% milli ára en að teknu tilliti til skattbyrði lægstu launa jókst kaupmáttur ráð- stöfunartekna einungis um 1,5%. Þessu er hins vegar öfugt farið hjá tekjuhæsta hópnum,“ segir á nýju minnisblaði hagdeildar ASÍ. Fram kemur að kaupmáttur launa við efri fjórðungsmörk tekna jókst um 5% milli áranna 2016 og 2017 en að teknu tillit til heildarskattbyrði jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna þessa tekjuhæsta hóps um 6% á sama tíma vegna minni skattbyrði. Á minnisblaðinu er að finna nánari greiningu á breytingum á skattbyrði eftir tekjuhópum og fjölskyldugerð- um. Þá kemur í ljós að ef þróun á skattbyrði er skoðuð án tillits til til- færslna frá barna- og vaxtabótakerf- unum, þ.e. eingöngu greiddur tekju- skattur og útsvar að teknu tilliti til persónuafsláttar, eykst skattbyrðin um eitt prósentustig á milli áranna 2016 og 2017 í tekjulægsta hópnum. En hún lækkar um sama hlutfall á seinasta ári í tekjuhæsta hópnum. „Hér sjást vel áhrif þess að persónu- afsláttur fylgir þróun verðlags en ekki launa sem hefur umtalvert meiri áhrif á lægri tekjur en hærri,“ segir í umfjölluninni. Bent er á að fjárhæðum og eigna- skerðingarmörkum í vaxtabótakerf- inu var haldið óbreyttum milli áranna 2016 og 2017 á sama tíma og húsnæð- isverð tók miklum hækkunum. Þetta þýði að óbreyttu að stuðningur í vaxtabótakerfinu minnki og skatt- byrði þeirra sem reiða sig á það auk- ist. „Hlutfall vaxtabóta af launum við neðri fjórðungsmörk hjá þeim sem eiga lágmarks eigið fé í hóflegu hús- næði heldur áfram að minnka og er nú orðið hverfandi.“ Einnig er í útreikningum ASÍ skoðuð heildarskattbyrði einstæðra foreldra og para með tvö börn sem eiga 20% eigið fé í hóflegu húsnæði að teknu tilliti til staðgreiddra skatta og vaxta- og barnabóta. Þá er niðurstað- an sú að skattbyrði eykst í tekju- lægsta hópnum milli áranna 2016 og 2017, hjá einstæðum foreldrum um eitt prósentustig og hjá pörum um þrjú prósentustig. „Hjá einstæðum foreldrum eru það einkum minni áhrif persónuafsláttar sem hafa áhrif en hjá pörum er aukin skattbyrði til- komin bæði vegna minni áhrifa per- sónuafsláttar og minni vaxtabóta,“ segir á minnisblaðinu. Að lokum eru skoðuð áhrif nýja húsnæðisbótakerfisins fyrir leigjend- ur, sem tók gildi í upphafi árs 2017. Þá kemur á daginn að skattbyrði lækkar hjá tekjulágum einstakling- um en nýtt kerfi styður ekki nema að mjög takmörkuðu leyti við pör á leigumarkaði. Aukin skattbyrði lægstu launa ’16 - ’17  Útreikningar ASÍ sýna að kaup- máttur lægstu launa jókst um 6% en ráðstöfunartekna um 1,5% vegna skatta Með vaxta- og barnabótum 1998-2017 40% 30% 20% 10% 0% -10% -20% -30% ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 Útreikningar: ASÍ. Heimild: RSK, Hagstofa Íslands og Þjóðskrá. Efri fjórðungsmörk Miðgildi Neðri fjórðungsmörk Lágmarkslaun 29% 25% 26% 18% -23% 23% 8% 1% Skattbyrði para m. tvö börn – 20% eigið fé Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skattar og laun Persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.