Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég efast um að við hér séum þau einu sem rýna ekki í hverja einustu línu á hverri blaðsíðu á 40 blaðsíðna og flóknum símareikningi sem kem- ur mánaðarlega. Ég efast um að við séum eina fyr- irtækið eða fjöl- skyldan sem rukkað er um þjónustu sem ekki er veitt,“ segir Kristján Zophoníasson, framkvæmda- stjóri Inter Med- ica ehf. Hæsti- réttur hefur dæmt Símann til að endurgreiða fyrirtækinu gjald fyrir þjónustu sem það greiddi í mörg ár en var ekki innt af hendi. Reikningar komu áfram „Ég fór ekki í þetta mál til að fá peningana til baka. Ég vissi frá upp- hafi að þótt ég myndi vinna málið myndi kostnaðurinn verða meiri en endurgreiðslukrafan. Var jafnvel tilbúinn til að tapa málinu,“ segir Kristján. Áætla má að kostnaður beggja málsaðila fyrir héraðsdómi og Hæstarétti sé samtals 5-6 millj- ónir króna en krafan hljóðaði upp á um 950 þúsund krónur. Þá er ótalinn kostnaður dómstólanna við mála- reksturinn en hann er greiddur af ríkinu. Málið snýst um það að Síminn sá um hýsingu á tölvupósti fyrir Inter Medica ehf., auk annarrar þjónustu. Á árinu 2009 hóf fyrirtækið sjálft að hýsa tölvupóstinn og sagði þjónust- unni upp á árinu 2011 en gjald fyrir hýsinguna var áfram á símareikn- ingum allt til þess að Inter Medica náði að stoppa það af á árinu 2016. Kristján segir að þegar málið upp- götvaðist og óskað var eftir endur- greiðslu hafi Síminn boðist til að endurgreiða sex mánuði. Því hafi verið borið við að það væri stefna fyrirtækisins að endurgreiða ekki meira. Þá var Síminn búinn að inn- heimta mánaðarlega í sex eða sjö ár fyrir þjónustu sem ekki var innt af hendi. Kristján sætti sig ekki við þetta og höfðaði mál sem miðaðist við endur- greiðslu á fjögurra ára ofteknum þjónustugjöldum. Síminn var sýkn- aður í héraðsdómi á þeim forsendum að Inter Medica hefði sýnt af sér verulegt tómlæti við að fylgja því eft- ir að innheimtunni yrði hætt á árinu 2011 og hafa uppi kröfu um endur- greiðslu. Inter Medica skaut málinu til Hæstaréttar sem sneri dómnum við. Þar var vísað til þess að báðir aðilar hefðu sýnt af sér verulegt hirðuleysi í viðskiptum sínum sem hefði leitt til þess að Síminn hefði fengið með órættmætum hætti mánaðarlegar greiðslur. Var ekki talið að Síminn hefði mátt hafa réttmæta ástæðu til að ætla að hann hefði getað haldið umræddum greiðslum og að endur- greiðsla þeirra væri ekki sérlega bagaleg fyrir hann. Síminn ætti því frekar að axla afleiðingar af gagn- kvæmu hirðuleysi fyrirtækjanna en Inter Medica. Síminn var dæmdur til að greiða Inter Medica tæplega 950 þúsund krónur auk dráttarvaxta frá því mál- ið var höfðað. Hins vegar voru báðir aðilar látnir bera sinn hluta máls- kostnaðar. Þreyta minni fyrirtækin Kristján setur málið í það sam- hengi í samtali við Morgunblaðið að mörg dæmi séu um að stórfyrirtæki og jafnvel ríkið komist upp með það að þreyta lítil og meðalstór fyrirtæki fyrir dómstólum. Fyrirtæki hans á mest í viðskipum erlendis en hann segist ekki hafa kynnst slíkum vinnubrögðum þar. Mistök geti alltaf orðið og fyrirtækin gangist við þeim og reyni að leysa málin utan dómstóla. Kristján telur að gott aðgengi að dómstólum hér á landi sé skýringin. „Auðvitað veit Síminn að hann er að rukka okkur í vondri trú og ber að borga til baka. Hann treystir því hinsvegar að lítil fyrirtæki leggi ekki í þann kostnað sem fylgir því að sækja endurgreiðsluna fyrir dóm- stólum,“ segir Kristján. Kostar 5 milljónir að skera úr ágreiningi um 950 þúsund  Síminn dæmdur til að endurgreiða fyrirtæki fyrir þjónustu sem ekki var veitt Morgunblaðið/Jim Smart Heilbrigði Inter Medica vinnur að því að gera fólki með marga algengustu sjúkdóma samtímans kleift að ná betri heilsu og meiri lífsgæðum. Kristján Zophoníasson Strandveiðar verða heimilar í tólf daga í hverjum mánuði í sumar nái frumvarp til bráðabirgða til eins árs um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða fram að ganga. Það er at- vinnuveganefnd Alþingis sem leggur frumvarpið fram. Fiskistofa getur stöðvað strand- veiðar þegar sýnt er að heildarafli báta fari umfram það magn, sem ráðstafað er til strandveiða. Áður var kerfið þannig að þegar tilteknum afla var náð á hverju veiðisvæðanna fjögurra voru veiðar stöðvaðar á svæðinu í þeim mánuði. Veiðidagar hafa því verið mjög mismargir innan svæða yfir sumarið, eða frá sex dög- um upp í um 20. Frá árinu 2011 hef- ur þorskafli í strandveiðum ekki fylgt aukningu heildarafla og vantar 7.968 tonn þar upp á. „Markmið frumvarpsins er að bæta umhverfi strandveiða og hverfa frá innbyggðum þætti þess sem skapar aukna áhættu til veiða. Horfið verði frá því að loka svæðum í hverjum mánuði þegar ætluðu veiði- magni er náð. Uppsafnaðri spennu eins og myndast í hverjum mánuði verði eytt,“ segir í greinargerð. aij@mbl.is Morgunblaðið/Alfons Strandveiðar Rýmri reglur. Veiðar í tólf daga  Dregur úr áhættu og spennu á strandveiðum HÓTEL 19 tveggja til þriggja manna herbergi, stór veitingasalur/veislusalur, veitingasala, setustofa, bar, sjoppa, verslun, salernisaðstaða fyrir ferðafólk, fullbúið eldhús með öllum búnaði. 6 SMÁHÝSI 6 fullbúin 20 m2. smáhýsi. ÞJÓNUSTUSKÁLI OG TJALDSVÆÐI Salernis-,eldunar og sturtuaðstaða. Góð aðstaða fyrir tjaldgesti, hjólhýsi og húsbýla. Heitt og kalt vatn. Rafmagnsinnstungur á tjaldstæði. Leiktæki fyrir börn. VEIÐI-BÁTALEIGA Berufjarðarvatn sem er ca. 15 hektarar er inn á landareigninni. Góð veiði í vatninu og aðstaða fyrir báta. Sala á veiðileyfum og bátaleiga á staðnum. STÓR JÖRÐ Landareignin er samtals 58,5 hektarar, þar af er Berufjarðarvatn 15. hektarar. Mikið og fjölbreytt fuglalíf er við vatnið. Jörðin er mjög falleg og gróðursæl með miklu landslagi. Margar fallegar gönguleiðir. FERÐAÞJÓNUSTA Stöðugur vöxtur í fjölgun ferðamanna á Íslandi og á svæðinu. Mikil eftirspurn varðandi bókanir 2018. Mikil og stöðugt vaxandi umferð um svæðið. BJARKALUNDUR Til sölu Hótel Bjarkalundur og tilheyrandi eignir ásamt 58,5 hektara jörð á einum fallegasta stað landsins, margar náttúruperlur eru í nánasta umhverfi. Fasteignir á landareigninni eru alls 9 talsins, samtals 1.015 fm. og skiptast í hótel, þjónustumiðstöð, 6 smáhýsi og starfsmannahús. Samtals gistirými er fyrir yfir 50 manns og miklir stækkunarmöguleikar. Hótelið býður uppá fjölbreytta möguleika. Stórt bílaplan er við hótelið til að taka á móti stórum rútum. Hótel Bjarkalundur stendur við þjóðveginn aðeins 200 km. frá Reykjavík. N1 rekur bensínstöð á staðnum. Reykhólahreppur hefur samþykkt nýja veglínu um Teigskóg sem stór eykur umferð í nánustu framtíð. Hér er um að ræða einstakan og verðmætan möguleika fyrir réttan aðila. Nánari upplýsingar Karl Jónsson hdl. Sími 896 2822. TIL SÖLUHÓTEL BJARKALUNDUR - í fögru og stórbrotnu umhverfi á sunnanverðum Vestfjörðum, í alfaraleið við þjóðveginn Verð: kr. 148 millj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.