Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018
Í Fréttablaðinu
birtist nýverið frétt
sem rakti sögu upp-
byggingar Landspít-
alans við Hringbraut.
Í fréttinni birtist full-
yrðing og tímalína
sem standast enga
skoðun.
Hin rétta tímalína
2001 Ementor gerir úttekt á Foss-
vogi og Hringbraut. Niðurstaða:
Best er að byggja nýjan spítala frá
grunni, ef það er ekki hægt er best
að byggja í Fossvogi, ekki Hring-
braut, þar eru byggingar meira og
minna ónýtar og erfitt verður þar
með að byggja spítalann sem heild.
Niðurstöðunni var stungið undir
stól og ekki var talað um hana.
2001 Sænskir arkitektarnir
WHITE eru fengnir til að bera
saman sitt eigið skipulag við Hring-
braut við hugsanlegar fram-
kvæmdir við Vífilsstaði og Fossvog.
Þeir gefa sjálfum sér topp einkunn,
eðlilega og mæla með að halda
áfram við Hringbraut.
2002 Heilbrigðisráðherra setur
nefnd, skipaða forystufólki frá
LSH, heilbrigðisráðuneytinu og HÍ.
Niðurstaða: Framtíðarsjúkrahús
við Hringbraut, nálægt HÍ aug-
ljóslega. Helstu rökin: „Kostnaður
við uppbyggingu við Hringbraut er
minnstur af fyrirliggjandi kostum,
m.a. þar sem mest er af nýtan-
legum byggingum.“ Bygging nýs
spítala frá grunni var ekki gefinn
sem kostur. Hringbraut var end-
anlega fest í kerfinu.
2003 Ákveðið var að færa Hring-
brautina til að koma nýja Landspít-
alanum fyrir.
2005 Alþjóðleg arkitektasamkeppni
haldin um stækkun Landspítala við
Hringbraut. Hlutskarpastir eru
dönsku arkitektarnir C.F. Möller
ásamt samstarfsatarfsaðilum frá
Noregi og Íslandi.
2008 Verður efnahagshrun og spít-
alaverkefnið er í uppnámi.
2009 Ríkið virðist vera búið að
missa áhuga á verkefninu og LSH
fær norska ráðgjafa til að meta
áætlun sína að byggja við Hring-
braut. Skoðaðir eru 3 kostir:
Óbreytt ástand, uppbygging við
Hringbraut og meiri uppbygging
við Hringbraut. Niðurstaða: Að
uppbygging við Hringbraut sé fýsi-
legastur þessara fjölbreyttu kosta.
2010 Alþjóðleg samkeppni er hald-
in um frumhönnun stækkunar
Landspítala við Hringbraut. Ís-
lenska teymið Spital er hlutskarp-
ast, í teyminu eru einnig sjúkra-
húshönnuðir frá Noregi. Stofnað er
opinbert hlutafélag, NLSH ohf., um
byggingu við Hringbraut.
2013 Allar skipulagsáætlanir sam-
þykktar að hálfu Reykjavíkur-
borgar, borgin vill halda í stærsta
vinnustað landsins.
2015 Hagfræðistofnun HÍ gefur út
skýrslu „Kostnaður og ábati af
smíði nýs Landspítala,“ að beiðni
HÍ. Í skýrslunni eru bornir saman
tveir kostir: Óbreytt staða og mikil
uppbygging við Hringbraut. Nið-
urstaða: Hringbraut. Athygli vekur
að í skýrslunni segir líka: „Hús-
næðiskostnaður er tiltölulega lítill
hluti af kostnaði við að reka sjúkra-
hús. Því getur borgað sig að rífa
gamlan húsakost, þótt hann sé
langt frá því að vera kominn að
hruni, en ný hönnun er hagkvæm-
ari.“
2015 NSLH ohf. fá KPMG til að
útbúa glærusýningu, sem þeir kalla
skýrslu, þeir fengu viku til verks-
ins. Skýrslan myndi vart standast
akademíska skoðun varðandi heim-
ildavinnu og endurspeglar sögu-
skoðun NLSH ohf. á því hvernig
verkefnið um nýja Landspítalann
við Hringbraut kom til. Þar er
skautað yfir niðurstöðu Ementors
sem segir Landspítalann við Hring-
braut of lítinn. Í byrjun skýrsl-
unnar eru fyrirvarar um „áreiðan-
leika og nákvæmni“ settar fram af
höfundum. Samtök um betri spítala
á betri stað gerðu úttekt á skýrsl-
unni og leiðréttu margt.
2018 Þingmenn Miðflokksins leggja
fram tillögu um að gerð verði óháð
fagleg staðarvalsgreining fyrir nýtt
þjóðarsjúkrahús, m.a. með tilliti til
fjárhags-, gæða-, samgöngu-, um-
ferðar- og öryggismála. Þingmenn-
irnir telja bæði rökrétt og skyn-
samlegt að taka stöðuna, athuga
hvort forsendur séu þær sömu og
þær voru fyrir 16 árum.
Engin staðarvalsgreining
Engin staðarvalsgreining hefur
verið framkvæmd sem skoðar alla
kosti. Aðeins hafa verið bornir sam-
an kostirnir: Óbreytt ástand, upp-
bygging við Hringbraut og upp-
bygging í Fossvogi. Uppbygging
við Vífilsstaði hefur ekki verið
skoðuð með sannfærandi hætti né
aðrir staðir, sem óháðu ráðgjafarnir
Ementor mæltu með. Skýrslur hafa
verið gerðar á forsendum fárra
hagsmunaaðila. Það er hagkvæm-
ara að hafa spítalann allan á einum
stað, það er þjóðhagslega hag-
kvæmt að byggja nýjan spítala frá
grunni.
Í Danmörku er verið að byggja
hátt í 30 spítala þegar þetta er rit-
að, flestir eru reistir í útjaðri
byggðar þar sem aðkoma er góð,
og nægt rými. Sumir spítalarnir
eru svipaðir að stærð og þjóð-
arsjúkrahúsið okkar þarf að vera,
það er því auðvelt að fá samanburð.
Það tekur engin 2 ár að velja stað.
Það tekur ekki 10-15 ár að byggja
ef það er gert á svæði þar sem
samgöngur eru góðar.
Það þarf ekki að hætta við allt
plottið við Hringbraut. Vissulega
þarf að gera við húsakostinn sem
fyrir er, rakaskemmdir, myglu o.fl.
sem einkennir húsin. Það þarf að
klára sjúkrahótelið og byggingu
sem hýsir jáeindaskanna. En það
er mikilvægt að hefjast handa strax
við að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús
sem gagnast sjúklingum, aðstand-
endum og starfsfólki fyrst og
fremst. Það er bæði rökrétt og
skynsamlegt að reisa þjóðarsjúkra-
húsið á besta stað sem hentar um
langa framtíð. Við þurfum að hugsa
lengra en Hringbraut.
Hugsum lengra en Hringbraut
Eftir Önnu
Kolbrúnu Árna-
dóttur og Viðar
Frey Guðmundsson
» Það er hagkvæmara
að hafa spítalann
allan á einum stað, það
er þjóðhagslega hag-
kvæmt að byggja nýjan
spítala frá grunni.
Viðar Freyr
Guðmundsson
Anna Kolbrún er þingmaður Mið-
flokksins og Viðar Freyr skipar 8.
sæti á lista Miðflokksins til borg-
arstjórnar.
annakolbrun@althingi.is; vid-
arfreyrgudmundsson@gmail.com
Anna Kolbrún
Árnadóttir
Glostrup spítali í Herning tekur aðeins 8 ár í byggingu. Hann er enda byggður frá grunni í útjaðri borgar.
Fjöldi sérfróðra að-
ila ásamt þingflokki
Miðflokksins hefur að
undanförnu óskað eft-
ir því við stjórnvöld
að unnin verði óháð
staðarvalsgreining á
nýjum Landspítala. Í
greinargerð Mið-
flokksins um tillögu
til þingsályktunar
kemur m.a. fram að:
„Á árunum 2001-2008 skrifuðu ís-
lenskir og erlendir sérfræðingar
fjölmargar álitsgerðir og í flest-
öllum var komist að þeirri nið-
urstöðu að best væri að byggja
nýtt þjóðarsjúkrahús frá grunni á
nýjum stað.“
Ástæða þess að þingflokkur
Miðflokksins leggur þessa þings-
ályktunartillögu fram er mjög ein-
föld – það eru hreinlega mistök að
reisa nýtt þjóðarsjúkrahús við
Hringbraut!
Af hverju eru það mistök? – Það
hefur verið bent á það og stutt
með fullgildum rökum að með til-
liti til byggingarhraða; fjárhags-,
gæða-, samgöngu-, framkvæmda-,
umferðar- og öryggismála, að þá
sé réttast að byggja nýjan land-
spítala austar í Reykjavík og þá í
Keldnaholti, í Víðidal eða jafnvel
að byggja hann í öðru sveitarfé-
lagi, á Vífilsstöðum.
Staðarvalið
Við staðarval á nýjum Landspít-
ala þarf að taka tillit til margra
þátta og horfa þarf m.a. til:
byggðaþróunar til langs tíma litið,
áhrifa umhverfis og
húsnæðis á líðan sjúk-
linga og starfsfólks og
hversu aðgengilegir
staðirnir eru m.t.t.
bráðaflutninga með
sjúkrabílum og þyrl-
um þar sem mannslíf
eru í húfi, en ekki
krónur og aurar.
Ef skoðuð er loft-
mynd af höfuðborg-
arsvæðinu, sést vel
hve galið það er að
ætla að klastra ný-
byggingum við hlið úr sér geng-
inna bygginga við Hringbraut.
Þungamiðja búsetu á höfuðborg-
arsvæðinu er í dag á miðjum fót-
boltavelli, Kópavogsmegin í Foss-
vogsdalnum og er að færast
austar og sunnar; þ.e. að fjarlægj-
ast Hringbraut. Að auki þá búa
aðeins 7-8% þjóðarinnar á skag-
anum vestan við Hringbraut í
póstnúmerum 101, 107 og 170.
Aðgengi landsbyggðar
Fjölmennustu byggðarkjarn-
arnir í námunda við höfuðborg-
arsvæðið eru Akranes, Reykjanes-
bær og Selfoss. Fólk með króníska
sjúkdóma s.s. tauga-, hjarta- og
æðasjúkdóma er einnig að finna á
þessum stöðum. Þetta fólk þarf
reglulega að nýta sér sérfræði-
þjónustu á Landspítala og víðar
um höfuðborgina. Það má einnig
nefna það, svona til að benda aftur
á það augljósa, að á þessum stöð-
um geta einnig komið upp bráða-
tilfelli hvar flytja þarf sjúklinga
með hraði á Landspítalann til að-
hlynningar – vegna þess að ekki
er hægt að hlúa að fólki í sinni
heimabyggð er slík tilfelli koma
upp.
Það tekur um og yfir 30 mín-
útur að aka frá þessum bæjum um
gatslitna og úr sér gengna þjóð-
vegina að jaðri höfuðborgarinnar.
Hvað tekur svo við? – það sem
tekur við er umferðarteppa. Al-
þjóð er vel kunnugt um bágt
ástand samgöngukerfisins í
Reykjavík og þarf ekki að fjölyrða
meira um það hér. Ferðatími
gesta, sjúklinga og annarra íbúa
nágrannabæja höfuðborgarinnar
sem eiga erindi á Landspítalann
við Hringbraut getur hæglega tvö-
faldast við að lenda í þeirri teppu.
Skynsamlegasta staðsetningin
fyrir nýjan Landspítala er þar
sem mest nálægð er við hvert
þungamiðja búsetu höfuðborg-
arsvæðisins er að stefna og sam-
gönguásar Vesturlands, Suður-
lands, Reykjaness og höfuðborgar
mætast þ.e. í Keldnaholti, í Víðidal
eða á Vífilsstöðum. – Verum skyn-
söm og byggjum nýjan Landspít-
ala nær landsbyggðinni.
Nýjan Landspítala
nær landsbyggðinni
Eftir Tómas Ellert
Tómasson »Ef skoðuð er
loftmynd af
höfuðborgarsvæðinu,
sést vel hve galið það
er að ætla að klastra
nýbyggingum við hlið
úr sér genginna bygg-
inga við Hringbraut.
Tómas Ellert Tómasson
Höfundur er verkfræðingur
og oddviti framboðs
Miðflokksins í Árborg.
tomasellert@midflokkurinn.is
Kærleiksríki Guð,
þú sem ert höfundur
og fullkomnari lífsins,
miskunna þú okkur!
Við þökkum þér
fyrir þennan dag og
alla þína náð. Viltu
vaka yfir okkur í dag,
leiða okkur og vernda.
Blessaðu þau sem við
unnum heitast og svo
líka bara öll þau sem
á vegi okkar verða. Blessaðu sam-
skiptin og hjálpaðu okkur að vera
nærgætin og koma fram hvert við
annað af virðingu.
Blessaðu hugsanir mínar allar,
öll mín áform, markmið, drauma og
verk. Hjálpaðu mér að koma auga á
þarfir náungans, koma honum til
hjálpar og reynast honum vel. Vera
faðmur, öxl og skjól þegar á þarf að
halda.
Kenndu mér að hlusta á um-
hverfi mitt og lesa í aðstæður.
Hjálpaðu mér að vera kærleiks-
ríkur, jákvæður, uppörvandi og
hvetjandi. Þolinmóður og dæma
ekki, sýna umhyggju, skilning og
umburðarlyndi.
Viltu gefa mér styrk til að takast
á við þau verkefni sem á vegi mín-
um verða í dag. Hjálpaðu mér að
ganga þakklátur, jákvæður og glað-
ur til verka, ekki með ólund, nöldri
eða neikvæðni, tor-
tryggni eða leiðindum.
Opnaðu augu mín
fyrir þeim tækifærum
sem blasa við og hjálp-
aðu mér að nýta þau,
vinna úr þeim og um
leið að njóta lífsins og
þeirrar fegurðar sem
það hefur upp á að
bjóða.
Gef að ég fái lifað í
sannleika og sátt við
sjálfan mig, þig,
samferðafólk mitt og
umhverfi. Að ég mætti þannig um-
gangast alla menn í heiðarleika og
með góðri samvisku og fái að vera
farvegur kærleika þíns, friðar og
fyrirgefningar.
Þess bið ég í nafni okkar upp-
risna frelsara og eilífa lífgjafa, Jesú
Krists. Amen.
Bæn dagsins,
alla daga
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Blessaðu samskiptin,
hjálpaðu okkur að
vera nærgætin, koma
fram við hvert annað af
virðingu. Kenndu mér
að hlusta á umhverfi
mitt og lesa í aðstæður.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS