Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 42

Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Smáratorgi 1, Kópavogi, s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 afsláttur boxum, skúffum... 20% af Port-Bag töskum,TILB OÐ Örn Þórðarson húsasmíðameistari á 60 ára afmæli í dag. Hanná Trésmiðjuna Ölur ásamt bróður sínum, Hrafni húsgagna-smíðameistara, en þeir stofnuðu hana fyrir 31 ári. „Við erum í innréttingum og sérsmíðum. Við erum með flottar vélar sem geta gert nánast hvað sem er.“ Ölur sá til dæmis um all- ar innréttingar í menningarhúsinu Hofi. „Við höfum aðallega ein- beitt okkur að heimamarkaði, þótt við höfum fengið verkefni víða á landinu.“ Örn er Akureyringur í húð og hár og hefur alltaf búið þar fyrir utan eitt ár í Reykjavík. Hann er Þórsari og fylgist með íþróttum en stundaði sjálfur mest skíði. „Annars er það vinnan og fjöl- skyldan sem er aðaláhugamál, ég hef einbeitt mér alveg að smíð- unum, ekki öðru handverki. Smíðarnar eru yfirdrifið nóg. Kona Arnar er Ingibjörg Eyjólfsdóttir grunnskólakennari og starfar í Lundarskóla. Synir þeirra eru Davíð, viðskiptafræðingur í Reykjavík, Eyþór, sem er að ljúka vélaverkfræði í Karlsruhe í Þýskalandi, og Kári, í MS-námi í lyfjafræði við Háskólann í Kaup- mannahöfn. Barnabörnin eru orðin tvö. „Við ákváðum að eyða helginni í Kaupmannahöfn með yngsta syni okkar, en hann býr á Norðurbrú. Við erum hérna í ískulda, en hitinn er nánast við frostmark,“ sagði Örn Þórðarson húsasmíða- meistari þegar blaðamaður ræddi við hann í gær. Hann ætlar að taka því rólega í dag og fara út að borða í kvöld. Skírn Örn og Ingibjörg ásamt Davíð, Arminu Ileu og Eyjólfi sl. sumar. Fagnar deginum í Kaupmannahöfn Örn Þórðarson er sextugur í dag H alla Halldórsdóttir fæddist í Bjargi, Grundargötu 8 í Grundarfirði 25.3. 1948 og ólst upp í Grunarfirði. Hún lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Stykkishólms, var einn vetur í Kennaraskóla Íslands, hóf síðar nám við Ljóðsmæðraskóla Íslands 1968, útskrifaðist 1970 og lauk hjúkrunarfræðinámi frá Hjúkr- unarskóla Íslands 1973, settist aftur á skólabekk í hjúkrunarfræði og þá við HÍ, árið 1998, og lauk BSc-prófi 2003, og lauk síðar meistaranámi í lýðheilsufræði (MPH) 2010 og dip- lómu í kennslufræði frá HR. Eftir námið við Kennaraskólann vann Halla nokkra mánuði á hrepps- skrifstofu Eyrarsveitar í Grundar- firði, og hjá Sparisjóði Grundar- fjarðar. Hún var síðan „aupair“ stúlka á Englands í tæpt ár og starf- aði um skeið á sjúkrahúsi í Englandi. Eftir nám við Hjúkrunarskólann starfaði Halla á Borgarspítala og Landspítala, lengst af á kvennadeild Landspítalans. Fjölskyldan dvaldi í Kaupmannahöfn 1977-79 en þar var Halla ljósmóðir og hjúkrunarfræð- ingur á Herlev-sjúkrahúsi. Hún starfaði síðan á kvennadeild Land- spítalans til 1980, kenndi við Hjúkr- unarskóla Íslands frá 1981 og síðan við Nýja hjúkrunarskólann þar sem hún var kennslustjóri í hjúkrunar- námi fyrir ljósmæður til 1986. Hún hafði síðan umsjón með öryggistæki fyrir eldri borgara „litli lífvörðurinn“, á vegum Öryggismiðstöðvarinnar Vara í eitt ár. Halla var deildarstjóri á sængur- kvennadeild 22-B 1987-98. Að loknu BSc-námi við HÍ starfaði Halla á sýkingavarnadeild Landspít- alans og hafði þar yfirumsjón með kvennadeild og Barnaspítala. Halla var bæjarfulltrúi í Kópavogi Halla Halldórsdóttir, ljósmóðir og lýðheilsufræðingur – 70 ára Kátar konur Halla með Sólrúnu systur, Lilju dóttur hennar, Ernu tengdadóttur og Freyju Vilborgu, dóttur Höllu. Hefur starfað að heilbrigð- is- og félagsmálum í 50 ár Hjónin Halla og Þórarinn spóka sig í göngutúr í Vancouver í Kanada. Bifröst Katla Ísold Ívars- dóttir fæddist 24. mars 2017 kl. 20.04 og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 2.678 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Amy Ósk Ómarsdóttir Hentze og Ívar Örn Bergsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.