Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 46

Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudaginn 25. mars kl.14: Leiðsögn með sérfræðingi Ljósmyndasafns Íslands Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Sunnudagsleiðsögn 25. mars kl. 14. Bára Kristinsdóttir leiðir gesti um sýninguna Elina Brotherus - Leikreglur. ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR 16.2. - 24.6.2018 KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018 - Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign ORKA 14.9. - 29.4.2018 Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 13.5.2018 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 29.04.2018 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hér á sýningunni má sjá ákveðið ferli og í því er greinilegur tími,“ segir Jó- hanna Kristbjörg Sigurðardóttir myndlistarkona þegar hún gerir hlé á uppsetningu viðamikillar sýningar sinnar á efri hæð Hafnarborgar. Sýninguna kallar hún Margoft við sjáum og margoft við sjáum aftur og verður hún opnuð í dag, laugardag, kl. 15, um leið og sýningin á verkum Jóns Axels Björnssonar á neðri hæð- inni. Jóhanna Kristbjörg segir að elstu verkin á sýningu hennar séu frá árinu 2013. „Þau eru þéttari og fók- useraðri en nýrri verkin, og litirnir aðeins jarðbundnari. Frá þeim fær- um við okkur hingað inn í aðalsalinn og erum þá komin með skúlptúra líka. Málverkin fóru að leysast upp í skúlptúra að hluta. Ég byrjaði sem málari, var svo komin út í að gera samtímis skúlp- túra, og mynda samtal þar á milli. Næst kom „Blue Wave – A Move- ment“, innsetningin þarna í horninu. Upprunalega var ég líka með gjörn- ing í henni en nú eru þetta málverk, vídeó og skúlptúrar – og allt fór að opnast. Ég fór að stíga meira inn í verkin. Og það hefur haldið áfram og hér á veggnum eru nýjustu verkin…“ – …og máluð að hluta á vegginn. „Nákvæmlega. Fyrir mér er mál- verkið eins og íhugun, það er hug- rænt ástand, ákveðið flæði, en skúlp- túrarnir eru hinsvegar mjög líkamlegir. Þar er maður í allt öðru samtali með líkamanum; þeir verða svolítið eins og karakterar.“ – Þetta eru mikð abstrakt form. Líturðu á þig sem abstrakt listamann sem er í samtali við eldri abstrakt- hreyfingar? „Ég kemst aldrei hjá því samtali en ég er samt alltaf ég sjálf að gera það sem flæðir gegnum mig. Í dag kemur þetta allt saman í ljóðrænu; það sem má sjá hér salnum er bara ákveðið tungumál. Abstraktið er eins og nammi, það kemur eins og gotterí sem birtist manni óvænt.“ Jóhanna Kristbjörg lauk MA- gráðu í Belgíu árið 2013 og frekara framhaldsnámi þar í landi 2015. Hún er á mála hjá galleríi í Antwerpen. „Arkitektúr í Belgíu hefur haft mikil áhrif á mig,“ segir hún. „Hann er margþættari en hér en líka klass- ískur og mjög formrænn. Ég tók svo blámann með mér út héðan, blái lit- urinn hefur alltaf fylgt mér, er mín tenging í fjöllin og hafið. Ég var hér heima í heilt ár, 2016, og þá fór ég allt í einu að nota grænan! Sá blái fær samt að vera líka með, er þessi mys- tík sem leggst yfir…“ – Er gott að vinna í Belgíu? „Já, það er gott og til dæmis er auðvelt að nálgast ýmislegt sem mað- ur þarf í verkin. Svo er senan lífleg í Antwerpen. Við íslensku listamenn- irnir sjö sem þar búum stofnuðum ABC Klubhuis, nýtt sýningarrými þar sem við bjóðum listamönnum að sýna. Við erum virkir þátttakendur í listasenunni og það er gaman. Það er frábært að fá að setja upp þessa sýningu hér, með bæði verkum sem ég hef sýnt áður – og sum þurfti að fá lánuð – og mörgum nýjum. Þetta er líka mín stærsta sýning til þessa… Nýjustu verkin eru enn í farvegi en þannig vinn ég, er alltaf á minni leið og ekkert stopp.“ „Abstraktið er eins og nammi“  Sýning á verkum Jóhönnu Krist- bjargar Sigurðardóttur í Hafnarborg Morgunblaðið/Einar Falur Í ljóðrænu „Ég er alltaf á minni leið og ekkert stopp,“ segir Jóhanna Kristbjörg. Hún vinnur hér að uppsetningu eins af nýjustu skúlptúrunum á sýningunni í Hafnarborg en á henni eru fjölbreytileg verk hennar frá síðustu fimm árum. Stóru myndirnar eru frá 2016 og voru ekki hugsaðar sérstaklega fyrir þessa sýningu, en hin málverkin gerði ég í fyrra og vatnslitamynd- irnar eru svo splunkunýjar, hugs- aðar með hinum hér inn,“ segir Jón Axel Björnsson um sýninguna sem hann hefur sett upp í Sverrissal á neðri hæð Hafnarborgar. Hún verð- ur opnuð í dag klukkan 15. Jón Axel hefur haldið markvisst áfram að þróa og vinna úr mynd- heimi sínum, allar götur síðan hann var einn af þeim málurum sem sprungu út í hinum mikla krafti sem fylgdi nýja málverkinu á níunda ára- tug liðinnar aldar. Hér eru flenni- stór málverk og önnur minni; mynd- ir sem sverja sig í hans einstæða myndheim forma og lita þar sem hlutar af mannverum birtast. „Ég stilli upp einföldum kombina- sjónum í litum sem formum en verk- in eru alltaf um manninn, um fígúr- una,“ segir Jón Axel. Hann kallar sýninguna Afstæði og segir umfjöll- unarefnið vera mannlega tilvist. „Það er ekki hægt að segja að þeta séu trúarlegar myndir, eins og ég sagði einhverntíma í gamla daga og einhverjir flissa enn yfir – en það var þó fullt af trúarlegum táknum í elstu myndunum, stórir krossar og uppbygging sem vísaði til þess. En þótt þessi sýning sé ekki trúarleg þá fjalla verkin á sinn hátt um trú og hvernig maðurinn velkist andspænis trúarlegum og siðferðislegum hug- myndum. Í þessum verkum eru vissulega mörg trúarleg tákn, lita, forma og hluta, þau fara inn í haus- inn á mér annað slagið. Og þau eru persónuleg.“ – Í öllum verkunum eru hlutar af mannverum og svo tákn eins og eld- ur og tungl, og hafa merkingu? „Já, öll uppröðun í myndunum hefur ákveðna merkingu. Það er ekki hægt að taka neitt eitt atriði úr án þess að þær verði máttlausar. Ég get ekki ætlast til þess að fólk geti lesið táknin á sama hátt og ég, hver upplifir verkin á sínum for- sendum, en ég vona að myndirnar beri í sér einhverja hleðslu sem fólk skynjar. Eins og Hrafnhildur Haga- lín sagði einhverntíma: skynjist en skiljist ekki … Það er ekki hægt að skilja lífið einum skilningi. Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir hinum ýmsu ólíku þáttum í myndlist, eins og þeim formræna, dekoratífa, og inntakinu, en það er sífelld glíma að sameina þetta allt á einum fleti, í einum ramma.“ – Þú tekur þitt sjónræna tungu- mál sífellt lengra, það er kunnuglegt og nýtt í senn. „Ja, umfjöllunarerfið er það sama en mannleg tilvist er býsna víðfeðmt og breitt svið, er það ekki?“ segir Jón Axel brosandi. „Ég vil gjarnan að hún skiljist á einhvern hátt til- finningin sem fer í verkin; þetta er ekki bara dekoratíft heldur fara líka í verkin hugmyndir, ástand og skoð- un. Það getur enginn gert verk án þess að leggja af sér persónulega og tilfinningalega, ég held það sé ekki hægt.“ efi@mbl.is „Víðfeðmt og breitt svið“  Jón Axel Björnsson sýnir ný myndverk í Sverrissal Morgunblaðið/Einar Falur Málarinn „Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir hinum ýmsu ólíku þáttum í myndlist, eins og þeim formræna, dekoratífa, og inntakinu, en það er sífelld glíma að sameina þetta allt á einum fleti, í einum ramma,“ segir Jón Axel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.