Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
LESBÓK
FÓLK Margar stjörnur úr tónlistar- og kvikmynda-
heiminum hafa lýst opinberlega yfir stuðningi við nem-
endur víða um Bandaríkin sem mótmæltu í vikunni með
því að ganga út úr skólum. Tilgangurinn er að berjast
fyrir breyttri byssulöggjöf.
„Ég er stoltur af krökkunum mínum og öllum krökk-
unum sem tóku þátt í dag,“ tísti Ben Stiller. „Þessir
krakkar eru frábærir,“ sagði Seth MacFarlane um mót-
mælendurnar úr Marjory Stoneman Douglas-skólanum í
Flórída þar sem fjórtán nemendur og þrír starfsmenn
létu lífið í skotárás í febrúar. Liam Gallagher hvatti
nemendurna áfram á Twitter. „Það er nóg komið,“
skrifaði hann og Amy Schumer hvatti fólk til að taka
þátt í mótmælunum March For Our Lives þann 24. mars.
Amy
Schumer.
AFP
TÓNLIST Katy Perry hefur sætt gagnrýni
fyrir að hafa kysst ungan strák sem var að
taka þátt í prufum fyrir American Idol en
hún er dómari í þáttunum. Benjamin Glaze,
sem var 19 ára þegar upptökurnar fóru fram,
sagði Perry og hinum dómurunum frá því að
hann hefði aldrei kysst stelpu og vildi Perry
bæta úr því.
Glaze segir að sér hafi þótt þetta mjög
óþægilegt. Hann leggur þó áherslu á að hon-
um finnist hann ekki hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegri áreitni. Gagnrýnendur benda á að
þetta hefði verið talið algjörlega óviðeigandi
ef Perry væri karl og Glaze stúlka.
Óþægilegur koss í Idol
Katy Perry.
AFP
stærsta fótboltamót í heimi fyrir
stráka á þessum aldri og er fullur af
kvíða og óöryggi vegna sinnar eigin
frammistöðu því honum finnst hann
ekki alveg nógu góður og sjálfs-
traustið er ekki upp á það besta. Svo
tekst hann á við sjálfan sig og aðra
og verður óvænt örlagavaldur í lífi
annars stráks sem er í ÍBV,“ segir
hann en fótbolti og mót virðist vera
góður grunnur til að fjalla um ýmsa
hluti á borð við liðsheild og sam-
bönd.
„Algjörlega. Og hvað það er sem
gerir mann að góðum karakter, að
góðri manneskju. Við köfum alla leið
ofan í allt þetta. Myndin fjallar um
sigur og ósigur, kærleika, vináttu og
dug. Það er virkilega langt seilst til
að láta fótboltann vera sem eðlileg-
astan,“ segir Bragi Þór og hrósar
krökkunum í myndinni í hástert.
Miklar kröfur
„Það voru yfir 1.000 krakkar sem
komu í prufu í það heila. Við fórum
til Vestmannaeyja að leita að krökk-
um og héldum prufur í Langholts-
skóla fyrir krakka hvaðanæva. Það
var tími sem var rosalega vel varið
og við gátum virkilega vandað okkur
og ég stóð uppi með rosa gott leik-
araval. Það voru engar smá kröfur
sem við settum á þau; þau þurftu að
kunna að leika, hafa aga og náttúr-
lega vera framúrskarandi í fótbolta,“
segir hann.
Að vonum skipa fótboltaatriðin
stóran sess í myndinni. „Við förum
alla leið í því og reynum að skapa
þau eins raunveruleg, hættuleg og
stór og hugsast getur með tilheyr-
andi hljóðmynd, tónlist og leik,“ seg-
ir hann en jafnframt var heilmikið
tekið upp á mótinu sjálfu.
Var það mikil áskorun? „Það hefði
aldrei verið hægt nema með frábæru
samstarfi við mótsnefndina í Eyjum.
Við fengum að skrá liðið okkar inn í
mótið, ekki beint til að taka þátt í því
heldur til að við næðum myndum af
þeim að keppa. Þetta voru fyrirfram
æfð atriði, fyrirfram ákveðin og
partur af handritinu. Það var yndis-
legt. Liðið okkar Fálkar keppti við
É
g fór á fyrsta mótið en þá
hét þetta Tommamótið.
Það var haldið í fyrsta
skipti árið 1984 og ég fór
á það með KA á Akur-
eyri. Við erum að gera myndina svo-
lítið fyrir alla þá sem hafa farið á
mótið,“ segir Bragi Þór Hinriksson,
leikstjóri kvikmyndarinnar Víti í
Vestmannaeyjum, sem verður frum-
sýnd næstkomandi föstudag, 23.
mars. Sögusvið myndarinnar er
Orkumótið í Vestmannaeyjum og
fjallar myndin um hinn tíu ára gamla
Jón sem keppir þar með liði sínu,
Fálkum. Þar kynnist hann Ívari,
jafnaldra sínum úr ÍBV, sem þarf
óvænt á hjálp að halda en utan vallar
gengur á ýmsu.
Eldmóður og lífsgleði
Myndin er gerð eftir samnefndri
vinsælli skáldsögu Gunnars Helga-
sonar. Sagafilm keypti réttinn en
Bragi Þór kom inn í verkefnið fyrir
um tveimur árum. „Þess var farið á
leit við mig að leikstýra bíómynd eft-
ir handriti sem Gunni og fleiri voru
búnir að gera eftir bókinni. Ég þekki
Gunna og eldmóð hans og lífsgleði
og það var strax góð byrjun,“ segir
Bragi Þór sem fékk bókina senda í
kjölfarið.
„Ég náði ekki að lesa hana alla því
ég var að fara í frí með fjölskyldunni.
Ég náði mér því í hana sem hljóðbók
og hlustaði á hana í bílnum þegar við
vorum að keyra út á land. Það var
svo gaman því Gunni var að lesa
sjálfur. Hann lýsir öllu og er svo
æstur og það er svo ofboðslegur
kraftur og lífsgleði í því að hlusta á
hann lesa bókina að ég bara sá þá
strax að ég yrði að gera þetta, sá
hvað ég þyrfti að gera og að markið
yrði sett hátt. Mig langaði að stand-
ast hans kröfur og sýn og skilst á
honum á því sem hann hefur séð að
það gangi eftir,“ segir hann en stikl-
an sem var frumsýnd fyrr á árinu
lofar sannarlega góðu.
„Þetta er mikil íþróttamynd og
fjallar um mótið sjálft en þarna eru
líka ofsalegar tilfinningar. Myndin
segir frá tíu ára dreng sem fer á
ÍBV, Þór Akureyri, Stjörnuna, Val,
Fylki og FH. Þetta var stórkostlegt
ævintýri.“
Sú ákvörðun var tekin að búa til
nýtt lið, Fálka, sem allir ættu að
geta sameinast um þannig að liðs-
hollusta ætti ekki að flækjast fyrir
áhorfendum myndarinnar.
„Sú leið var farin en það setur þær
kröfur að fólki verður að líða eins og
þetta sé alvörulið. Við lögðum okkur
í líma við að finna gott nafn og búa til
gott merki og hafa búningana þeirra
flotta. Helga Rós V. Hannam bún-
ingahönnuður hafði veg og vanda af
þeim í samstarfi við Errea,“ segir
hann og útskýrir að tilgangurinn
hafi verið sá að maður geti horft á
búningana og hugsað: „Þetta er
alvörufótboltalið.“
Himnaríki í Eyjum
Vestmannaeyjar hljóma eins og
skemmtilegur bakgrunnur fyrir
svona mynd.
„Þetta er stórkostlegt lands-
lag að vinna í, hvert sem maður
lítur. Við vorum búin að fara
nokkrar ferðir út í Eyjar og
finna okkar óskastaði
sem okkur fannst
hvað myndræn-
astir. Það er atriði
sem gerist á báti
úti í hellinum og
við erum að
fljúga yfir Eyj-
arnar, yfir hraun-
ið og við lögðum
metnað í að finna fal-
legt hús sem væri
Bragi Þór hefur leikstýrt fjöl-
skyldumyndum áður en hann
er þekktur fyrir Sveppa-
myndirnar. „Það er öðruvísi
því í þeim eru fullorðnir
menn að leika börn. En svo
gerði ég sjónvarpsþættina
Klukkur um jól og Loforð,
sem voru sýndir á RÚV,“ seg-
ir hann.
„Þar eru krakkar að leika.
Mér finnst gaman að vinna
textann og andrúmsloftið
með krökkum og leyfa þeim
að eigna sér söguþráðinn og
andrúmsloftið því þá verð-
ur þetta um þau á sann-
færandi hátt,“ segir
hann og útskýrir að
krakkar finni strax ef
eitthvað er ekki alveg
ekta.
Sjónvarpsþáttaröð
sem byggist á kvikmynd-
inni Víti í Vestmanna-
eyjum verður
síðan sýnd á
RÚV með
haustinu
en þætt-
irnir eru í
eftirvinnslu núna.
Þáttaröð með
haustinu
Bragi Þór Hinriks-
son á tökustað í
Vestmannaeyjum.
Tilfinningar
og takkaskór
Bragi Þór Hinriksson leikstýrir kvikmyndinni
Víti í Vestmannaeyjum, sem verður frumsýnd
næstkomandi föstudag. Hann segir krakka
kröfuharða kvikmyndagesti.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Helga Rós V. Hannam hannaði búninga Fálka í samstarfi við Errea.
Stjörnur styðja mótmælendur