Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
Amelia Earhart fæddist 24.
júlí 1897 í Atchison, Kansas í
Bandaríkjunum. Árið 1920 fór
hún í sína fyrstu flugferð en frá
þeirri stundu vissi hún að hún
yrði að læra að fljúga.
Eftir að hafa náð tökum á
fluginu keypti Amelia sína
fyrstu flugvél. Á þeirri vél setti
hún sitt fyrsta met, að verða
fyrsta konan til að fara upp í
14.000 fet.
Árið 1928 varð hún fyrsta
konan til þess að fljúga yfir
Atlantshafið, en hún var far-
þegi í þessu flugi. Síðar ætlaði
hún að fljúga í kringum jörð-
ina umhverfis miðbaug ásamt
flugleiðsögumanninum Fred
Noonan. Sú ferð endaði ein-
hvers staðar yfir Kyrrahafinu
þegar vélin hvarf og ekkert
spurðist til þeirra fyrr en ný-
lega að staðfest var að
bein sem fundust þremur
árum eftir slysið, tilheyra
Earhart. Flugkonan hug-
djarfa er því loks fundin.
Sagan af hvarfi Ameliu Earharthefur ætíð verið sveipuðdularfullum ævintýrablæ.
Þessi einstaka kona gerði tilraun til
þess að verða fyrsta konan til þess
að fljúga í kringum heiminn en flug-
vél hennar hvarf yfir Kyrrahafi og
var talið að hún hefði farið í sjóinn.
Nú er hins vegar næsta víst að bein
sem fundust á Kyrrahafseyjunni
Nikumaroro séu af þessari ævin-
týrakonu sem fæddist seint á næst-
síðustu öld.
Það var 2. júlí 1937, nálægt Howl-
andeyju í Kyrrahafinu, að hún og
siglingafræðingurinn Fred Noonan,
hurfu og ekkert hefur spurst til
þeirra síðan. Fyrr en nýlega.
Beinin tilheyra Earhart
Þremur árið eftir hvarfið, árið 1940,
fannst beinagrind á eyjunni Nikum-
aroro, en frá 1998 hafa samtökin
TIGHAR (International Group for
Historic Aircraft Recovery) freistað
þess að sanna að um sé að ræða lík-
amsleifar Earhart. Bresk yfirvöld
töldu beinin ekki tilheyra konu, en
beinin voru skoðuð árið 1941 af dr.
D. W. Hoodless, yfirmanni lækna-
skólans á Fiji, sem sagði þau vera af
karlmanni. Beinin týndust í kjölfarið
og það var ekki fyrr en árið 1998 að
TIGHAR komst yfir skýrslurnar
sem innihéldu mælingar á bein-
unum.
Richard Jantz, prófessor við Ten-
nessee-háskóla, stýrði nýrri rann-
sókn á skýrslum með mælingum
beinanna. Flórída-háskóli greindi
fyrst frá niðurstöðunum en Jantz
komst að því að beinin væru af konu
af sömu hæð og uppruna og Ear-
hart. Jantz notaði upplýsingar um
líkamsbyggingu Earharts og bar
saman við mælingar á beinunum.
Þessi greining sýndi að Earhart
passar betur við Nikumaroro beinin
en 99% fólks í samanburðarhópi.
Gamlar ljósmyndir og jafnvel fatn-
aður hennar var notaður, en hann
hafði verið geymdur í öll þessi ár.
Eftir allar þessar mælingar komst
Jantz að þeirri niðurstöðu að beinin
gætu aðeins tilheyrt Ear-
hart.
Ein á eyðieyju
Margt bendir til að
Earhart hafi ekki farist
við lendingu á sjón-
um. Á síðasta ári
greindi TIGHAR-
teymið frá því að
Earhart hefði sent
frá sér fleiri en 100
neyðarsendingar dagana 2.-6. júlí
1937, sem sannar þá að hún var á lífi
eftir lendinguna. Þykir líklegt að öld-
urnar hafi hrifið vélina með sér og
hún því ekki sést þegar leit var gerð.
Á eyjunni fundust merki um að
kveikt hefði verið í bálköstum á
svæðinu þar sem beinin fundust.
Einnig fundust bein úr fiskum og
fuglum sem talið er að Earhart hafi
lifað á í vikur, jafnvel mánuði.
Talið er að Noonan hafi látist við
lendingu eða stuttu síðar, því aðeins
fundust bein af einni manneskju.
Earhart hefur því verið ein á eyði-
eyju þar til hún lést.
Varð hún bensínlaus?
„En það er heill lokakafli í lífi Ear-
hart sem fólk hefur ekki vitneskju
um. Hún varði dögum, mögulega
mánuðum, í hetjulegri baráttu sem
skipbrotsmaður,“ sagði Ric Gil-
lespie, framkvæmdastjóri TIGHAR.
„Við teljum að hún hafi lifað hetju-
lega, og ein, um tíma, við hræðilegar
aðstæður. Sagan þarf hins vegar að
vera rétt,“ segir hann.
Ef Earhart hefði tekist áætlunar-
verkið og komist fljúgandi umhverf-
is hnöttinn hefði henni verið hampað
sem hetju. En með því að hverfa
sporlaust varð sagan af henni við-
varandi ráðgáta og spruttu upp ýms-
ar skemmtilegar getgátur í gegnum
tíðina.
Ein var sú að Japanar hefðu tek-
ið hana höndum og notað flugvélina
hennar, Lockheed 10E Electra,
sem módel fyrir bardagavélina
Zero. Önnur kenning er að hún hafi
komist óséð til Bandaríkjanna og
hafi lifað lífi sínu undir fölsku
nafni.
Þriðja kenningin var að hún hefði
verið njósnari fyrir bandarísk
stjórnvöld og að forseti Bandaríkj-
anna, Franklin D. Roosevelt, hefði
vitað að hún væri í haldi Japana en
þagað yfir því.
Svo er auðvitað leiðinlegasta
kenningin; að hún hafi hreinlega
orðið bensínlaus.
Það eru auðvitað einhverjir efa-
semdarmenn sem ekki trúa því að
beinin á eyðieyjunni tilheyra Ear-
hart. En þá vaknar ný spurning:
Hver bar beinin þarna?
Amelia Ear-
hart loksins
fundin?
Ráðgátan um hvarf flugkonunnar Ameliu Earhart
virðist leyst. Sérfræðingar telja 99% líkur á að bein
sem fundust á eyðieyju í Kyrrahafi séu hennar. Dul-
úð hefur legið yfir þessari ráðgátu í rúm áttatíu ár.
Dularfull saga Ameliu Earhart hefur lifað með
kynslóðum en flugvél hennar hvarf yfir Kyrra-
hafi árið 1937. Nýlega var staðfest að bein sem
fundust á eyðieyju séu líkamsleifar hennar.
Margar kenningar um hvarfið hafa verið á lofti.
Amelia
Earhart
er fundin.
Flugkon-
an Amelia
’
En það er heill lokakafli í lífi Earhart sem fólk hefur
ekki vitneskju um. Hún varði dögum, mögulega
mánuðum, í hetjulegri baráttu sem skipbrotsmaður.
Ric Gillespie, framkvæmdastjóri TIGHAR.
ERLENT
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
asdis@mbl.is
TYRKLAND
Tyrkneska fótboltaliðið
Besiktas hefur verið kært
af UEFA, Knattspyrnusam-
bandi Evrópu, fyrir „lélega
skipulagningu” en stöðva
þurfti leik við Bayern
München í vikunni vegna
kattar sem hljóp inn á völlinn. Bayern vann leikinn 3-1 og 8-1
samanlagt og komst í átta liða úrslit. Þýskir stuðningsmenn völdu
köttinn „mann” leiksins. Málið verður tekið fyrir hjá UEFA 31. maí.
FRAKKLAND
Franskur dómstóll gaf út þann 15. mars handtökuskipun á
prinsessu Hassa bint Salman, dóttur kóngsins í Saudi Arabíu.
Hún er ákærð fyrir að skipa lífverði sínum að ganga í skrokk
á verkamanni í íbúð sinni í París árið 2016. Ástæða fyrir því
að hún fyrirskipaði árásina var að verkamaðurinn tók mynd í
íbúð prinsessunnar og álitið var að hann hefði í hyggju að selja
myndirnar. Áður var búið að ákæra lífvörðinn. Verkamaðurinn
segist hafa verið kýldur, bundinn og neyddur til þess að kyssa fætur prinsessunnar.
Greint hefur verið frá í fjölmiðlum að prinsessan hafi fl úið Frakkland stuttu eftir atvikið.
ENGLAND
Stjórnvöld í Egyptalandi þrýsta á bresk yfi rvöld að bregðast við morðinu á átján
ára gamalli egypskri námsstúlku í Bretlandi. Mariam Moustafa varð fyrir árás
í febrúar og lá í dái áður en hún lést á miðvikudaginn.
Árásin átti sér stað í Nottingham fyrir utan verslunar-
miðstöð en hópur stúlkna lét höggin dynja á henni. 17 ára
stúlka var handtekin en var síðan sleppt. Moustafa undir-
gekkst níu aðgerðir áður en hún lést. Getgátur eru uppi
um að árásin hafi verið vegna kynþáttafordóma. Egypsk
stjórnvöld vilja senda sendinefnd til Bretlands til þess að
rannsaka dauðsfallið og fá réttlætinu fullnægt. Mikil reiði
hefur gripið um sig í Egyptalandi vegna málsins.
BANDARÍKIN
Leikkonan Heather Locklear var handtekin á sunnu-
dag fyrir heimilisofbeldi. Locklear, sem frægust er fyrir
hlutverk sitt í Melrose Place, var ákærð fyrir að hafa
ráðist á kærasta sinn og síðar á þrjá lögreglumenn.
Locklear þurfti að borga 20 þúsund dollara tryggingu
og var látin laus. Hún mætti fyrir rétt í vikunni en
kæran fyrir árásina á kærastann var látin niður falla.
Hún á enn yfi r höfði sér kæru fyrir árásir á lögreglu-
þjóna en hún veitti mótspyrnu við handtökuna.