Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 14
Menntamálastofnun er ekki skylt að veita að- gang að prófspurningum eftir að prófin hafa verið lögð fyrir, samkvæmt reglugerð um framkvæmd samræmdra prófa. Foreldrar sem lagt hafa fram beiðni til Menntamálastofnunar um aðgang að samræmdum prófum sem hafa verið lögð fyrir börn þeirra hafa fengið neitun og nú nýlega hafa foreldrar a.m.k. tveggja barna skotið synjuninni til úrskurðarnefndar upp- lýsingamála sem er enn með málin til með- ferðar. „Prófin eiga að hjálpa nemendum að finna hvar skórinn kreppir svo þeir geti tekið sig á í 10. bekk. En þar sem við fáum aldrei að sjá prófin er erfitt að undirbúa þau og einnig er erfitt að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda að bæta sig eftir prófið því ég veit ekki hvað það var sem gerði það að verkum að ákveð- inn nemandi fékk svona eða hinsegin ein- kunn. Hjá okkur hafa verið nemendur sem hafa verið afburða nemendur en hafa fengið ein- kunn sem þeir hafa verið ósáttir við og við kennarar getum ekki fengið að vita hvað lá til grundvallar þeirri einkunn. Og öfugt, við höf- um verið með nemendur sem hafa átt mjög erfitt með að fóta sig og hafa fengið háa ein- kunn og sökum fyrirkomulagsins höfum við ekki getað fengið að sjá hvar styrkleikar þeirra liggja.“ Hulda D. Proppé, kennari „Menntamálastofnun hefur undanfarin ár unnið að innleiðingu rafrænna sam- ræmdra könnunarprófa og eru ein- staklingsmiðuð próf endanlegt markmið þeirrar vinnu. Einungis er mögulegt að leggja slík próf fyrir á rafrænu formi þar sem prófkerfið þarf að geta fylgt getu nem- andans eftir sjálfvirkt með því að leggja fyrir hann spurningu við hæfi, þannig velur prófkerfið hærra hlutfall erfiðra prófspurn- inga fyrir nemendur sem sýna fram á góða hæfni, en hærra hlutfall auðveldra próf- spurninga hjá nemendum þar sem hæfnina skortir. Í slíku prófaumhverfi fer niðurstaðan eftir því hve þungum prófspurningum nem- andi svarar rétt, en ekki hve mörgum. Er- lendar rannsóknir sýna fram á að með ein- staklingsmiðuðum prófum er hægt að fá ýtarlegri upplýsingar um námsárangur nem- enda sem er bæði nemandanum og skólakerf- inu til hagsbóta. Einstaklingsmiðuð próf byggja á mjög stórum banka af prófaspurn- ingum, raunar svo stórum að ekki er raun- hæft að semja ný atriði fyrir hverja próffyr- irlögn. Bæði þarf að vera til staðar fjölbreytni í því hvaða hæfni prófspurningar reyna á og um leið ákveðinn fjöldi prófspurninga sem reyna á sömu hæfni og eru svipuð að þyngd. Í prófaumhverfi sem þessu eru prófatriði alla jafnan notuð í nokkur ár og gerð opinber þeg- ar notkun er hætt. Til þess að unnt sé að ná fram markmiðinu um einstaklingsmiðuð próf raunverulega prófið er, annars er það verra en ekki neitt. Ef það er raunin, þá er sýni- prófið nákvæmlega eins og prófin voru áður og þau hafa mikið verið gagnrýnd og eru meingölluð. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor „Menntamálastofnun gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að nemendur, kennarar og foreldrar geti skoðað árangur nemenda á prófi, hvar nemandinn sýndi fram á góða hæfni og hvar hann getur ef til vill bætt sig frekar. Því hefur stofnunin útbúið rafræna próf- úrlausn sem grunnskólar geta látið foreldrum í té, þar sem kemur fram hvernig nemandi svar- aði hverri prófspurningu, lýsing á þeirri hæfni sem viðkomandi prófspurning krafðist og sýn- ishorn af prófspurningu sem reynir á sömu hæfni. Einnig er unnið að mælaborði í Skóla- gátt fyrir samræmd könnunarpróf.“ Arnór Guðmundsson, Menntamálastofnun „Ég vil halda því fram að gagnrýni á prófin hafi gert það að verkum að lokað var fyrir að- gang að innihaldi prófanna. Ég var einn af þeim sem gagnrýndu innihald íslenskuprófsins á sínum tíma og nú fáum við ekki að sjá þau lengur. Við vitum ekki hvernig þessi próf eru og þegar þetta eru próf sem eiga að skipta máli þá er stórmerkilegt að við fagfólkið fáum ekki að sjá þau. Ef við vitum ekki hvernig próf- in eru, eigum við þá að senda börnin í þau? Rafræn prófúrlausn sem grunnskólar fá hafa nánast ekkert nýst. Aðeins er hægt að sjá hvernig t.d. dæmið var, ekki hvers vegna nem- andinn leysti verkefnið ekki rétt. “ Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Enginn fær að sjá er nauðsynlegt að prófspurningarnar komi ekki fyrir augu almennings þann tíma sem þær eru í notkun ef prófspurningar eiga ekki að falla úr gildi. Ef prófspurningar hefur bor- ið fyrir augu nemenda sem eiga að fara í próf, foreldra eða kennara þeirra er ljóst að ekki er hægt að nota þær aftur.“ Arnór Guðmundsson, Menntamálastofnun „Ég skil ekki þessa leynd og hef lengi talið að hún standist ekki upplýsingalög eins og ver- ið er að láta reyna á núna. Kennarar vita í raun ekki í hvernig próf nemendur þeirra eru að fara í og alltaf eftir próf fæ ég pósta frá kenn- urum sem hafa kannski gægst yfir öxlina á nemendum í prófum og eru að spyrja mig hvort hitt og þetta sé rétt. Kennarar hafa svokallað sýnispróf á vef MMS til undirbúnings og maður hlýtur að ætla að það gefi góða mynd af því hvernig ÚTTEKT 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018 VIÐMÆLENDUR Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði Hafsteinn Karlsson skólastjóri Helga Birgisdóttir kennari Hulda D. Proppé kennari „Ég held það sé ekki nokkur vafi á að sam- ræmdu prófin hafa áhrif á viðhorf barna og unglinga til móðurmálsins. Í málfræðihluta prófanna, þar sem spurt er um rétt og rangt, gott og vont mál, er ofuráhersla á þágufalls- sýki og margar spurningar í hverju prófi snú- ast um það atriði eitt og sér. Mikið snýr að orðflokkagreiningu, það er spurt um sterka og veika beygingu, sem segir nákvæmlega ekki neitt um málkunnáttu. Ég hef heyrt það frá mörgum, nemendum og foreldrum, að þetta mótar neikvætt viðhorf til íslenskunnar. Íslenskan er viðkvæmari en mörg önnur fög, í stórri könnun sem við Sigríður Sigurjóns- dóttir prófessor stöndum fyrir núna, þar sem við erum að skoða viðhorf ungs fólks til ís- lenskunnar og ensku, hefur komið í ljós að yngstu kynslóðinni þykir ekki eins mikilvægt að vera góður í íslensku eins og þeim sem eldri eru og talar stundum ensku við félaga sína í að- stæðum þar sem allir eru íslenskumælandi. Ef viðhorfið til móðurmálsins verður nei- kvætt hrindir það af stað svo mikilli keðju- verkun og tungumál veiklast. Þessi próf við- halda þeirri röngu ímynd að íslenska og íslenskukennsla gangi út á orðflokkagrein- ingu og utanbókarlærdóm.“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor Hafa prófin áhrif á viðhorf til íslensku? Samræmd könnunarpróf eiga að meta hæfni allra nemenda með sama hætti og við sam- bærilegar aðstæður. „Tilgangurinn er að meta hvernig mark- miðum aðalnámskrár hefur verið náð og veita endurgjöf til nemenda, foreldra, kenn- ara og fræðsluyfirvalda. Með þessari endurgjöf er til dæmis hægt að fá upplýsingar um þekkingu og hæfni hvers nemanda, hvort breyta þurfi áherslum í námi, hvað þurfi að bæta og almennt hver séu gæði menntunar. Nemandi, foreldrar/forráðamenn og kenn- arar geta þannig notað niðurstöður prófsins til að ígrunda frekari áherslur í náminu í framhaldinu.“ (Vefsíða Menntamálastofnunar, mms.is) „Með samræmdu prófunum eiga kennarar að geta metið stöðu nemenda í faginu. Raun- in er sú að það er afar erfitt að fá að vita sér- staklega hvað vel er gert eða verr, niðurstöð- urnar er erfitt að nota til gagns og kennarar fá takmarkaðar upplýsingar. Þá er verið að prófa mjög lítinn hluta og á einhæfan hátt og prófin eru bara alls ekki í samræmi við aðalnámskrá grunn- skóla og taka aðeins á örfáum hæfni- viðmiðum. Nemendur fá ákveðna rað- einkunn eða þennan bókstaf en það er verið að prófa svo lítinn hluta námsefnis, á svo einhæfan hátt, að nemendur fá ekki að sýna hvað í þeim býr.“ Hulda Dögg Proppé kennari Af hverju samræmd próf? Við tökum alla inn í almenna grunnskóla, krakka sem flytja frá útlöndum, krakka með ýmiss konar fatlanir og raskanir. Fyrir þessi börn eru prófin kvalræði og gera ekkert ann- að en setja þau til hliðar. Samræmd próf eru því skaðleg fyrir nútímaskólastarf þar sem markmiðið er að rækta margs konar eiginleika og hæfni og koma algjörlega á skjön inn í það starf og vinna gegn hinni op- inberu skólastefnu. Samræmdu prófin eru eldgamalt fyrirbæri og í seinni tíð eru þau orðin að einhvers konar stofnun sem lifir sjálfstæðu lífi og er ekki í neinum tengslum við starfið í skólanum lengur.“ Hafsteinn Karlsson skólastjóri „Það er mikilvægt að átta sig á því að samræmd próf heita samræmd próf því þau eru í samræmi við aðalnámskrá. Hinn þátt- urinn í að þau eru samræmd er að þau eru samanburðarhæf, milli nemenda, sveitar- félaga og landshluta. Í niðurstöðum þeirra koma fram mikilvægar niðurstöður fyrir þá sem reka grunnskóla og þurfa að fylgjast með frammistöðu nemenda og fyrir menntayfirvöld til að fylgjast með stöðu menntakerfisins. Það er til dæmis áhyggju- efni sá vaxandi munur sem birtist milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins í niðurstöðum þessara prófa og það væri ekki hægt að bregðast við því ef þessi saman- burður væri ekki fyrir hendi. Það væri því mjög bratt að afnema þessi próf.“ Arnór Guðmundsson, Menntamálastofnun ? „Samræmdu prófin eru afar takmörkuð og sjónarhorn þeirra er þröngt, sniðið fyrir lít- inn hóp nemenda. Hér á landi er „skóli án að- greiningar“ opinber skólastefna og í dag er eðlilega mikil pressa frá ríki og sveitar- félögum á að við vinnum eftir þeirri stefnu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.