Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 28
FERÐALÖG Á safninu er fjallað um sögu og þróun Hansasambandsinsá helstu tungumálum sem komu við sögu á áhrifasvæði
Hansakaupmanna, þýsku, ensku, sænsku og rússnesku.
Evrópska Hansasafnið
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
Borgin var stofnuð árið 1143.Staðurinn var vandlega valinnmeð tilliti til varna og mögu-
leika til verslunar og siglinga á
Eystrasalti. Heinrich der Löwe, her-
togi af Sachsen, tók yfir borgina árið
1159. Hvatti hann kaupmenn og
handverksmenn til að flytja til borg-
arinnar og hét vernd og víðtækum
verslunarréttindum. Kaupahéðnar
flykktust til borgarinnar sem stækk-
aði ört. Friðrik annar keisari staðfesti
síðan sérstöðu Lübeck árið 1226 með
lögum um að borgin væri frjáls og
óháð og heyrði einungis undir keisara
Þýsk-rómverska ríkisins.
Allt skyldi byggt úr steini
Eftir nokkra stórbruna í Lübeck var
lögfest að byggja skyldi öll hús úr
steini. En jarðvegur í Norður-
Þýskalandi er víða heppilegur fyrir
múrsteinaframleiðslu. Hafið var að
reisa dómkirkjuna í rómönskum stíl
árið 1173. Seinna kom gotneski stíll-
inn til sögunnar og þróaðist þá fal-
legur byggingastíll sem þjóðverjar
nefna „Backsteinsgotik“. Það eru há-
reist og skrautleg múrsteinsgaflhús.
Gaflinn mikið skreyttur og gjarnan
tröppulaga meðfram þakinu. Glugg-
arnir með oddboga að ofan. Mar-
íukirkjan er dæmigerð fyrir þennan
byggingarstíl, en hún er ein stærsta
múrsteinskirkja heims með 38,5
metra lofthæð í miðskipi, en turn-
arnir tveir teygja sig í 125 metra hæð.
Kirkjan var fullgerð árið 1350. Bygg-
ingarstíllinn í Lübeck varð fyrirmynd
annarra borga við Eystrasaltið. Útlit
gaflhúsanna fylgdi síðan tísku-
straumum í byggingarlist í aldanna
rás.
Fleiri borgir í Norður-Þýskalandi
urðu frjálsar verslunarborgir í kjöl-
farið og stofnuðu þær formlega
Hansasambandið árið 1358. Af þeim
ber helst að nefna Hamborg, Bre-
men, Wismar, Greifswald, Rostock,
Danzig, Münster, Stralsund, Lüneb-
urg og Köln auk Lübeck sem var öfl-
ugasta borgin og varð í reynd höf-
uðborg sambandsins. Nánast árlega
mættu fulltrúar Hansaborganna til
þings sem oftast var haldið í ráðhús-
inu í Lübeck. Þar samræmdu kaup-
menn verslunarleiðangra, en gjarnan
var farið í skipalestum til að verjast
sjóræningjum sem voru mikil plága,
einkum á Eystrasalti. Hansa-
kaupmenn töldu að sumir sjóræningj-
anna væru á mála hjá Danakonungi.
Ráðhúsið glæsilega sem var byggt í
áföngum milli 1350 og 1594 stendur
að mestu óbreytt að utan, en hinum
fræga fundarsal Hansakaupmanna
hefur verið skipt í minni herbergi.
Ráðhúsið er opið gestum með leið-
sögn.
Tenging við Hamborg
Árið 1398 var lokið við að grafa
Stecknitz-skipaskurðinn sem tengdi
saman Lübeck og Hamborg svo ekki
þurfti lengur að sigla gegnum dönsku
sundin. Borgirnar tvær komu á mjög
náinni samvinnu, þannig að siglingar
og verslun um Eystrasalt fór í gegn-
Ljósmynd/Ómar Óskarsson
Horft niður eftir Glockengiesserstrasse. Günter Grass-Haus er númer 21.
Lübeck – drottning
Hansasambandsins
Lübeck hlýtur að teljast með fallegri borgum Evrópu. Mestur hluti
gamla borgarkjarnans á hólmanum þar sem árnar Trave og Wakenitz
mætast var settur á heimsminjaskrá UNESCO árið 1987, en
borgarmyndin þar hefur að miklu leyti haldist óbreytt frá 14. öld
Texti og myndir: Ómar Óskarsson omarscz@simnet.is
Göngubrú yfir Obere
Trave. Skemmtibátar
bíða eftir ferðamönnum.
Áður fyrr voru bústaðir hinna fátækari gjarnan í bakgörðunum. Nú eru þar
víða sælureitir eins og hér í Rosengang.