Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 26
Það muna margir eftir tísku-merkinu Don Cano sem komfyrst á markað árið 1981 en vinsældir Don Cano-krumpu- og glansgallanna voru gríðarlegar á sín- um tíma og má í raun segja að þessir eftirminnilegu gallar hafi gersamlega átt íslenskan markað. Hugmyndasmiður Don Cano er Svíinn Jan Davidsson. Jan hefur ein- stakt auga fyrir hönnun og klæð- skurði og hóf sinn feril til að mynda á hinni þekktu klæðskeragötu Lund- úna, Savile Row, þar sem hann útbjó jakkaföt á kóngafólk og leikara áður en hann fluttist til Íslands og snéri tísk- unni, eins og hún þekkt- ist, við. Aðstoðaði við textíliðnaðinn Jan kom fyrst til Ís- lands árið 1970. Hann var þá fenginn af íslenska ríkinu til þess að kynna sér og aðstoða við þróun á textíliðnaðinum hér á landi. Áður hafði hann starfað sem ráðgjafi í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. „Ég vann fyrir flest fyrirtæki hér á Íslandi sem unnu með föt á þessum tíma til að mynda Ála- foss og Sambandið,“ útskýrir Jan sem starfaði til dæmis einnig fyrir Karnabæ og byggði upp framleiðslu fyrir fyrsta íslenska gallabuxnamerk- ið, Bandido, áður en hann stofnaði eigið merki. „Eftir 10 ár í bransanum hefði maður getað sagt að þessi iðn- aður væri búinn hér á landi þar sem fólk var farið að horfa meira út fyrir landsteinana hvað varðaði verslun og framleiðslu,“ útskýrir Jan en það voru afar fáar fataverksmiðjur eftir hér á landi árið 1980 og þá voru hér aðallega fatafyrirtæki tengd útgerð- inni. Árið 1981 hóf Jan því framleiðslu á eigin merki sem bar heitið Don Cano sem einkenndist af sportlegum fatn- aði. Don Cano náði gríðarlegum vin- sældum hér á landi og víðar. „Don Cano varð ekki eingöngu vinsælt hér í landi heldur einnig í Noregi, til að mynda seldum við fyrir 30 milljónir norskra króna í heildsölu árið 1983, og í London þar sem vörumerkið var meðal annars selt í versluninni Har- rods.“ Samhliða Don Cano vann Jan að ýmsum verkefnum víðs vegar um Jan Davidsson hefur búið á Ís- landi frá árinu 1970 og tók þátt í byggja upp fjölda textíl- og tískufyrirtæka hér í landi. Morgunblaðið/Hari Endurkoma Don Cano Don Cano var án efa vinsælasta fatamerki á Íslandi á níunda áratugnum. Svíinn Jan Davidsson sem stofnaði Don Cano hefur nú hafið framleiðslu á merkinu að nýju. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Don Cano 1985. Ljósmynd eftir Sigurgeir Sig- urjónsson frá árinu 1985. Auglýsing fyrir Don Cano frá árinu 1984. Myndina tók Sigurgeir Sigurjónsson. Jan hannaði bún- inga fyrir íslenska ólympíuliðið þegar það keppti í Sarajevo 1984. TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018 Laugardaginn 17. mars verður haldin sölusýning íslenskra hönnuða, Til hamingju, í tilefni af 10 ára afmæli HönnunarMars. Sölusýningin er opin frá 11.00-17.00 á KEX / Gamla Nýló, Skúlagötu 28. Á sýningunni má sjá brot af flóru hönnunar á Íslandi. Sölusýning íslenskra hönnuða

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.