Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 37
heimili Ívars, sem er strákurinn í
ÍBV. Við lögðum okkur líka fram við
að finna flottar leiðir til að taka upp
leikina, fljúga yfir vellina á ákveðinn
hátt og koma inn úr Herjólfsdal með
svakalegum þyrluskotum. Þetta er
bara eins og risastór hollywood-
mynd tekin í Vestmannaeyjum,“
segir hann en krakkar eru kröfu-
harðir kvikmyndagestir.
Mynd fyrir alla ættina
„Það er nú málið, þeir bíógestir sem
gera mestar kröfur eru einmitt
krakkar. Þeir eru ekkert að pæla í
því hvort þetta sé lítil íslensk mynd
eða risastór ofurhetjumynd. Þeir
gera bara þær kröfur að þessar
myndir séu jafnvígar. Við erum svo-
lítið að veðja á það, maður tekur
stórt upp í sig en við förum alla leið í
þessu. Það eru notaðir allir helstu
fagmenn kvikmyndaiðnaðarins og
helstu leikarar á Íslandi. Við erum
að reyna að gera þetta að íslenskri
stórmynd fyrir krakkana og fjöl-
skyldur þeirra,“ segir hann og bætir
við að myndin ætti að höfða til breiðs
aldurshóps.
„Þetta er ættarmynd, ekki einu
sinni bara fjölskyldumynd, það á að
halda ættarmót í bíósölum Íslands
næstu vikurnar finnst mér,“ segir
hann og hlær.
Var eitthvað óvænt sem kom upp
við tökurnar síðasta sumar?
„Óveður setti pínu strik í reikn-
inginn; við fengum vont verður
fyrsta og annan daginn og það riðl-
aði tökuplaninu okkar. Það var mjög
vel skipulagt og það mátti eiginlega
ekkert klikka vegna samninga við
mótsnefnd og síðan voru það leik-
arar sem þurfti að koma út í eyju og
aftur til baka,“ segir Bragi Þór en
allt gekk upp á endanum.
Sjóveiki og sprang
Honum er einnig minnisstæður
tökudagur með átján krakka á báti
heilan dag. Þá hafi leikstjórinn, að-
stoðarleikstjórinn og framleiðendur
átt fullt í fangi með að passa upp á að
börnin yrðu ekki sjóveik, skutla í
land til að jafna sig og gefa kakó til
að hressa við.
„Það þurftu allir að vera jafn-
hressir í senunni og það var ævintýri
að ná því í gegn án þess að það sæist
að einhver væri veikur. Það er svona
eftirminnilegast,“ segir Bragi Þór
og minnist líka á daginn þegar farið
var inn í Spröngu.
„Við vorum með risastóran krana
sem elti aðalhetjurnar okkar upp
klettinn þar sem þeir komu sér í
stöðu til að spranga. Fyllsta öryggis
var gætt en við notum myndavél-
arnar til að láta þetta líta svolítið
hættulega út.“
Fyrsta bíóástin
Bragi Þór hlakkar til að sýna krökk-
unum myndina en hann fékk sjálfur
bíóbakteríuna snemma, níu ára gam-
all eftir að hafa séð mynd Stevens
Spielbergs E.T. árið 1983. Önnur
bíóminning úr æsku er að hafa verið
að bíða eftir miðum á Löggulíf á
Ráðhústorginu á Akureyri.
„Ég var fyrir norðan um helgina
og það eru plaköt utan á Nýja-Bíói á
Akureyri af Víti í Vestmannaeyjum
og Ready Player One, nýrri mynd
Spielbergs, míns helsta átrúnaðar-
goðs í kvikmyndum. Það kom mér í
opna skjöldu þegar ég sá þetta á
plakataveggnum og var pínu
móment fyrir mig,“ segir Bragi Þór.
Allra eftirminnilegast finnst hon-
um samt samstarfið við leikarana
ungu.
„Krakkarnir koma ómótaðir í að-
stæðurnar en það er hlutverk mitt
sem leikstjóra að fá þá til að leika
óþvingað og eðlilega. Ég vil gefa
þeim mikið lof fyrir hvernig þau
eignuðu sér aðstæður, myndina og
andrúmsloftið í henni. Þessi mynd er
um krakkana og fyrir þá og alla ís-
lenska krakka.“
Fálkar og Fylkir. Það
eru mörg ævintýri utan
vallarins í myndinni.
Ljósmynd/Elma Karen
’
Við förum alla leið í
því og reynum að
skapa fótboltaatriðin eins
raunveruleg, hættuleg og
stór og hugsast getur með
tilheyrandi hljóðmynd,
tónlist og leik
TÓNLIST Elton John hefur tilkynnt útgáfu nýrrar plötu sem
mun bera nafnið Revamp en á henni verður að finna mörg af
hans þekktustu lögum í flutningi tónlistarfólks á borð við
The Killers, Lady Gaga, Florence & The Machine og
Queens Of The Stone Age. Platan kemur út 6. apríl næst-
komandi en á henni verður að finna lög hans í nýjum út-
gáfum og má þar nefna „We All Fall In Love“, „Candle
In The Wind“ og „Your Song“. Á plötunni koma enn-
fremur við sögu Coldplay, Ed Sheeran, Sam Smith,
Miley Cyrus og Mumford & Sons.
„Það er alltaf mikið hrós þegar listamaður elskar
lag þitt nógu mikið til að taka sér tíma til þess að
endurvinna það að sínum hætti,“ hefur NME.com eftir
tónlistarmanninum.
Elton John í nýjum búningi
Elton John er þekktur m.a.
fyrir skrautlegan klæðnað.
AFP
18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
SJÓNVARP James Corden gerði grín
að Trump og rannsókn Roberts Muell-
ers á því hvort núverandi Bandaríkja-
forseti hafi unnið með Rússum í kosn-
ingabaráttu sinni. Corden lék í atriði í
spjallþætti sínum The Late Late Show
á móti söngvaranum Shaggy sem tók
lag sitt „It Wasn’t Me“ ásamt Corden,
sem er liðtækur söngvari. Lagið var þó
með nýjum og gamansömum texta sem
tók á mörgu því sem hefur gerst í for-
setatíð Trumps. Trump (Shaggy) svar-
aði þar Mueller (Corden) ítrekað „It
Wasn’t Me “.
Shaggy sem Trump
James Corden og Shaggy.
Helga Mogensen
Kristin Sigfríður Garðarsdóttir
Vagg og velta
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Atvinna