Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018
Litið framhjá þátttöku kvenna
Litið hefur verið framhjá þátttöku kvenna ísjávarútvegi og gögn skortir um hlut-verk þeirra að sögn Alexöndru Yingst
sem skrifaði meistararitgerð sína um hlutverk
og stöðu kvenna sem starfa við sjávarútveg á
norðanverðum Vestfjörðum. Niðurstöður henn-
ar sýna að það er mikill munur á milli lífsgæða
kvenna frá ólíkum löndum sem starfa í sjávar-
útvegi og íslenskra kvenna. Íslenskar konur búa
við meiri lífsgæði en konur af öðrum þjóðernum
og pólskar konur búa við verst lífskjör.
Yingst nam líffræði við háskólann í Pitts-
burgh í Bandaríkjunum og hlaut Fulbright-
styrk til þess að nema haf- og strandsvæða-
stjórnun við Háskólasetur Vestfjarða, sem er
þverfræðilegt meistaranám á sviði auðlinda-
stjórnunar. Meistararitgerð hennar ber heitið
Konur í sjávarútvegi á norðanverðum Vest-
fjörðum á Íslandi: hlutverk, skynjun og vonir.
Ég hafði mikinn áhuga á að rannsaka kynja-
hlutverk og sjávarútveg í mínu framhaldsnámi
og Ísland virtist fullkominn staður til að læra
það. Þið hafið náð árangri bæði í jafnrétti
kynjanna og í sjálfbærum veiðum. Upphaflega
fékk ég hugmyndina að því að rannsaka sér-
staklega þátt kvenna í störfum tengdum sjávar-
útvegi út frá bókinni Seawomen of Iceland eftir
Margaret Wilson. Hún vakti áhuga minn á því
að koma til Íslands. Svo fann ég fullkomið
meistaranám við Háskólasetur Vestfjarða og
nýtti Fulbright-styrkinn til að koma hingað og
rannsaka þetta efni.
Kjörið að læra um sjávarbyggðir
í sjávarbyggð
Yingst bjó á Ísafirði í tæpt ár meðan hún vann
að rannsókn sinni. Hún segir reynsluna ómet-
anlega fyrir líffræðing með áhuga á sjávar-
byggðum og hafsvæðum. Á Vestfjörðum séu
kjöraðstæður til að nema fræði tengd hafinu,
fiskveiðum og málefnum sjávarbyggða.
Meginspurningin sem Yingst lagði upp með
að svara var hver eru hlutverk, vonir og kjör
kvenna sem starfa í sjávarútvegi á Íslandi. Það
kom henni á óvart þegar hún hóf rannsókn sína
að flestar konurnar sem starfa við fiskvinnslu
eru af erlendum uppruna. Hún skoðaði því jafn-
framt mismun á hlutverkum, vonum og kjörum
íslenskra kvenna og erlendra kvenna.
Þegar ég kom til Ísafjarðar komst ég að því
að konur sem starfa í sjávarútvegi, við annað en
stjórnunarstörf, eru mest konur af erlendum
uppruna, flestar frá Pólland en einnig margar
frá Filippseyjum. Það er einnig mikil skipting
milli karla og kvenna, mjög hefðbundin kynja-
skipting. Konur vinna ákveðin störf tengd
vinnslu sjávarafurða og karlar önnur. Konur
starfa helst á línunni, í sjálfri fiskverkuninni. Ég
komst að því að margar þeirra eru ósáttar við
þessa klassísku verkaskiptingu og vildu fá önn-
ur tækifæri.
Telja sig verða undir í samfélaginu
Yingst notaði spurningalista og tók einnig
lengri viðtöl við konurnar. Ég skoðaði hvernig
þær upplifa hlutverk sitt og hvaða hindranir
mættu þeim. Pólsku konurnar töldu sig vera
undir í samfélaginu og á vinnustaðnum, upplifðu
að starf þeirra væri ekki virt og vildu einnig fá
fleiri tækifæri til að sinna ólíkum störfum. Þær
filippseysku upplifðu óöryggi í starfi, voru til
dæmis ekki vissar um hvort samfélagið kæmi
þeim til hjálpar ef þær myndu slasast við störf.
Þær íslensku upplifðu einnig að litið væri niður
á starf þeirra. Þeim leið eins og horft væri á
starf þeirra sem eitthvað sem þú neyðist til að
gera ef þú kláraðir ekki skóla. Fyrri rannsóknir
benda til þess að áður hafi verið litið á störf í
fiskvinnslu sem mikilvægan hluta af fæðufram-
leiðslu landsins, en það er ekki upplifun
kvennanna nú.
Yingst skoðaði einnig kjör kvennanna, ekki
aðeins út frá tekjum þeirra heldur líka almennt
út frá lífsgæðum, starfsánægju þeirra og
ánægju með lífið almennt og bar sérstaklega
saman kjör íslenskra kvenna og þeirra erlendu í
greininni.
Pólskar konur eru ósáttastar við kjör sín og
búa við minnst lífsgæði. Þær skortir tengsl við
samfélagið og eru ekki ánægðar með það hvern-
ig þeim er tekið. Þær íslensku hafa það mun
betra og búa almennt við mun meiri lífsgæði,
segir Yingst og bætir við að mikill munur hafi
verið á ánægju og lífsgæðum íslensku
kvennanna og þeirra erlendu almennt.
Mikilvægt fyrir smærri samfélög að
huga að aðbúnaði fiskverkafólks
Spurð að því hvaða þýðingu svona rannsókn
hafi segist Yingst vonast til þess að sveitarfélög
og fyrirtæki í sjávarútvegi finni leiðir til að
halda betur utan um konur af erlendum upp-
runa sem vinna við sjávarútvegi.
Innflytjendur, sérstaklega konur, halda fisk-
vinnslu gangandi á Íslandi. Enginn Íslendingur
vill vinna þessi störf. Innflytjendurnir sem
flytja til þessara staða halda þeim á lífi með því
að koma og vinna þarna en þetta fólk upplifir sig
ekki alltaf velkomið. Mögulega þarf líka að
skoða ráðningarferlið, því konurnar upplifðu oft
að þeim væru aðeins boðin ákveðin störf en
fengju ekki tækifæri til að spreyta sig á störfum
sem ekki eru talin hefðbundin kvennastörf.
Yingst hafði ekki mikinn tíma til að ræða við
blaðamann því hún var á leið til Afríku til að
starfa á rannsóknarskipi. Draumur hennar er
þó að rannsaka þetta efni betur, hún nefnir að
til dæmis þyrfti að gera svipaða rannsókn á
körlum og skoða hvernig þeirra upplifun er. Þá
náði hún ekki að tala við þá einstaklinga sem
starfa í sjávarútvegi en tala hvorki ensku né ís-
lensku. Mjög líklega eigi þeir enn erfiðara upp-
dráttar og búi við minni lífsgæði.
Hún vinnur nú að fræðigrein upp úr ritgerð
sinni sem hún vonast til að fá birta í ritrýndu
tímariti á næstu mánuðum.
Framlag kvenna til sjávar-
útvegs er vanmetið og hef-
ur lítið verið rannsakað.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Konur hafa gegnt veigamiklu hlutverki í sjávarútvegi á Íslandi gegnum aldirnar en í dag er litið framhjá þátttöku þeirra.
Konur sem starfa í fiskverkun upplifa að litið sé niður á störf þeirra. Alexandra Yingst skoðaði hlutverk kvenna í sjávar-
útvegi á norðanverðum Vestfjörðum í meistararitgerð sem hún vann við Háskólasetur Vestfjarða. Hún segir konur í
greininni sem eru af erlendum uppruna búa við mun minni lífsgæði en þær íslensku.
’
Pólsku konurnar töldu sig vera undir í samfélaginu og
á vinnustaðnum, upplifðu að starf þeirra væri ekki virt
og vildu einnig fá fleiri tækifæri til að sinna ólíkum störfum.
Alexandra Yingst
INNLENT
EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
Um 40 háskólanemar stunda meist-
aranám í haf- og strandsvæða-
stjórnun og sjávartengdri nýsköpun
við Háskólasetur Vestfjarða. Í haust
fer af stað nýtt meistaranám í sjávar-
byggðafræðum þar sem fengist er við
þróun byggða í fortíð og framtíð.
Áhersla er lögð á sjávarbyggðir við
Norður-Atlantshaf og norðurskauts-
svæðið. Háskólasetrið er einnig fjar-
námssetur og þjónar um hundrað
fjarnemum.
Nýtt meistara-
nám í sjávar-
byggðafræði