Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 21
18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Þ
að eru hönnuð-
irnir Anna Þór-
unn Hauksdóttir
hjá Anna Thor-
unn, Sigríður
Hjaltdal Pálsdóttir hjá By-
bibi og Þórunn Hannesdóttir
hjá Færid fyrir North Limi-
ted og Ingibjörg Hanna
Bjarnadóttir og Iðunn
Brynja Sveinsdóttir hjá Ih-
anna Home sem standa á
bak við Mun. Mun er tilvísun
í muni og minningar og
leggja hönnuðirnir upp úr
klassískri, hágæða hönnun.
Sýningar Mun vegna Hönn-
unarmars verða opnar til 24.
mars en þar mun einnig
hönnunartvíeykið Flétta,
sem þær Birta Rós Brynj-
ólfsdóttir og Hrefna Sigurð-
ardóttir skipa, sýna hand-
gerða kertastjaka auk þess
sem munir frá Studio Tripp-
in verða til sölu.
Vinnustofa fyrir börn
Laugardaginn 17. mars verð-
ur haldin spennandi vinnu-
stofa fyrir börn á milli
klukkan 12 og 15. Þar gefst
börnum tækifæri á að
skreyta sinn eigin Krumma í
tilefni þess að Krummi,
hönnun Ihönnu, verður 10
ára á árinu.
Hönnunarveisla á Barónsstíg
Mun er hönnunarverslun og vinnustofa á Barónsstíg. Það eru hönnunarstúdíóin Anna Thorunn, Bybibi, Færid, North Limited og
Ihanna Home sem standa á bak við Mun sem tekur þátt í Hönnunarmars með nýjum verkum og spennandi viðburði.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Þær Anna Þórunn, Sigríður Hjaltdal, Iðunn Brynja, Ingibjörg Hanna og Þórunn Hannesdóttir reka Mun á Barónsstíg 27.
Morgunblaðið/Eggert
Anna Þórunn Hauksdóttir sýnir þrjá
hluti unna út frá hringforminu sem
bera nafnið STILLNESS, hliðarborð/
bakkaborð úr duftlökkuðum málmi,
kertastjaka úr hvítum marmara í
tveimur stærðum og bakka á fótum
sem einnig er gerður úr duftlökkuðum
málmi.
„Ég var byrjuð í allt öðru ferli en í
þetta skiptið leyfði ég mér að snúa ferl-
inu við því yfirleitt held ég mig við það
sem ég er byrjuð á. Lífið einkennist oft
af miklum hraða og ég fann þörf til að
vinna með einfalt form eins og hringinn
sem ég teikna oft ósjálfrátt og ró færist
yfir mig. Hringformið á sér margar
þýðingar sem eiga mikið við það sem
ég vil koma frá mér. Hringformið er
okkur eðlislægt og þegar við sjáum
hringlaga form þá meðtökum við það
fyrirhafnarlaust. Í þetta skiptið vil ég að
fólk meðtaki vöruna mína án þess að
þurfa að hugsa svo mikið og upplifi frið
og ró sem er frekar ólíkt fyrri vörum
frá mér,“ útskýrir Anna sem þykir afar
mikilvægt að taka þátt í Hönnunar-
Mars. „Mér finnst gaman að sýna að
maður sé virkur og hluti af þessu frá-
bæra hönnunarsamfélagi hér á Íslandi
sem ég er afar stolt af.“
Það er margt spennandi að gerast hjá
Önnu Þórunni en Feed Me-skál hennar
er að koma á markað í svörtu, 70%
borðin eru einnig að koma aftur á
markað og svo er hún að fara að taka
þátt í hönnunarsýningu í Kaupmanna-
höfn.
„Svo er bara að halda áfram að koma
fleiri vörum í framleiðslu og njóta þess
að láta MUN dafna.“
Anna Þórunn segist að þessu sinni vilja að fólk meðtaki vöruna án þess að þurfa að hugsa svo mikið
og upplifi frið og ró, sem einkennir oft hringformið.
Anna sýnir þrjá hluti unna út frá hringforminu. Kertastjaka úr hvítum marmara í tveimur stærðum,
hliðarborð eða bakkaborð úr duftlökkuðum málmi og bakka á fótum úr sama efni.
Hringformið á sér
margar þýðingar