Morgunblaðið - 04.04.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 04.04.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018 Vöðuselurinn á myndinni er í hópi um 50 dýra sem undanfarnar vikur hafa haldið til í Öxar- firði. Vöðuselur er svipaður landsel að stærð, en mjög ólíkur að lit. Ungir selir eru gráir með svörtum blettum en fullvaxnir eru svart- skjöldóttir, með svart höfuð og svartan dindil. Vöðuselir eru félagslyndir og oftast margir sam- an á ferðinni. Þaðan er íslenska heitið dregið. Þeir eru árlegir gestir við Íslandsstrendur, sér- staklega fyrir norðan, koma yfirleitt á vorin og eru hér yfir sumarið. Í Norður-Atlantshafi eru þrír stofnar, þeir kæpa í Barentshafi, Íslandshafi (norðan Jan-Mayen) og við Nýfundnaland. Talið er að vöðuselir sem hingað koma séu úr Jan- Mayen-stofninum. Fjölmargir vöðuselir hafa haldið sig í Öxarfirði undanfarnar vikur Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Árlegur gestur við Íslandsstrendur Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar tvö ökutæki rekast saman á 90 kílómetra hraða eru miklar líkur á því að alvarleg slys verði. Bílar eru eiginlega ekki hannaðir til að verja farþega og ökumenn á svona mikilli ferð. Þess vegna erum við að aðskilja akstursáttir á umferðar- miklum vegum,“ segir Sævar Helgi Lárusson, rannsakandi á umferðar- sviði Rannsóknarnefndar sam- gönguslysa. Aukinn umferðarþungi hér á landi samfara miklum ferðamanna- straumi síðustu ár hefur falið í sér fleiri umferðarslys. Af fréttum af slysum að undanförnu má ætla að algengara sé nú en áður að bílar fari yfir á rangan vegarhelming. Þetta virðist hafa verið tilfellið í tveimur alvarlegum umferðarslys- um um helgina, við Blönduós og á Grindavíkurvegi. Sama var uppi á teningnum í alvarlegu slysi við Kirkjubæjarklaustur í síðasta mán- uði, svo dæmi séu tekin. Sævar segir að erfitt sé að slá neinu föstu um að slíkum slysum hafi fjölgað. „En það liggur fyrir að þrjú af fjórum banaslysum ársins eru vegna framanákeyrslna. Í fyrra voru 13 banaslys og þar af voru þrjú vegna framanákeyrslna,“ segir hann. Sævar segir að með aukinni um- ferð aukist líkurnar á slíkum slys- um. „Þetta gerist, fólk veikist, sofn- ar eða gleymir sér við akstur. Það er bara þannig að mannskepnan er ekki fullkomin. Inni á milli eru líka óhæfir ökumenn sökum ölvunar, fíkniefna, veikinda eða einhvers slíks. Því miður getur þetta alltaf gerst, að einhver fari yfir á öfugan vegarhelming.“ Sævar segir að auk mikillar um- ferðar sé í þessu tilliti ástæða til að hafa áhyggjur af ástandi vega hér. „Það er ekkert hægt að líta fram hjá því. Áralangur niðurskurður í viðhaldi er að koma niður á okkur núna. Þetta vita allir sem hafa aug- un opin þegar þeir aka um þjóðveg- ina. Ég vona að nú verði unnið kröftuglega í að hefja viðhald þar sem þess er þörf.“ Þrjú banaslys vegna framanákeyrslna  Tvö alvarleg umferðarslys um helgina þar sem bíl var ekið á röngum vegarhelmingi  Sérfræðingur hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir líkurnar á slysum sem þessum aukast með aukinni umferð Víkurfréttir/Hilmar Bragi Slysstaður Þrír fólksbílar skullu harkalega saman á Grindavíkurvegi. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum að skoða upptökur úr öryggismyndavélum, hvaða mann- skapur var hér á ferðinni. Það er auðvitað allskonar fólk sem liggur inni á spítalanum. Þetta er tiltölu- lega lítið verk og því ekki flókið að taka það með sér. Verk merkt Tolla hefur einfaldlega verið of freistandi fyrir einhvern,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, að- stoðarmaður forstjóra Landspítala. Eftirprentun af verki lista- mannsins Tolla, Morgunstemning á Mýrunum, var stolið af gjör- gæsludeild Landspítalans í Foss- vogi fyrir helgi. Verkið var í her- bergi sem ætlað er aðstandendum á deildinni. Verkið er ein 20 áritaðra eft- irprentana sem Tolli færði styrkt- arfélaginu Von að gjöf árið 2013. Von var stofnað af starfsmönnum gjörgæsludeildar árið 2007 og hef- ur félagið safnað fé til að styrkja sjúklinga og bæta húsnæði deild- arinnar. Von kom til að mynda upp umræddu aðstandendaherbergi þaðan sem myndinni var stolið. Eftirprentanir af Tolla-verkinu voru seldar starfsmönnum deild- arinnar og ágóðinn rann til Vonar. Landspítalinn á umtalsvert safn málverka og prýða verk þekktustu listamanna þjóðarinnar veggi spít- alans. Anna Sigrún segir að haldin sé skrá yfir frumgerðir verka í eigu spítalans. Málverkin séu kirfi- lega fest upp á veggi og hún þekki ekki dæmi þess að þeim hafi verið stolið. Vel sé fylgst með ástandi þeirra og hvort þau séu á sínum stað. „Það er almennt ekki algengt að hlutir hverfi hér á spítalanum. Nema kannski spritt,“ segir hún. Tolla-mynd stolið á gjörgæslu  Verið að kanna mannaferðir í ör- yggismyndavélum Tolli Eftirprentun af þessu glæsi- lega verki var stolið á Landspítala. Ríkissaksóknari hefur áfrýjað máli ákæruvalds- ins gegn Magn- úsi Ólafi Garð- arssyni til Landsréttar. Er því Tesla- rafbifreið hans sem lögreglan lagði hald á enn í vörslu lögreglu, samkvæmt upplýsingum embættis ríkissaksóknara, og verður það að öllum líkindum þar til dómur Landsréttar hefur gengið. Magnús er stofnandi og fyrrver- andi forstjóri kísilvers United Sili- con í Helguvík. Hann var í byrjun febrúar dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í fjögurra mánaða fang- elsi, skilorðsbundið, fyrir hrað- akstur á Tesla-bifreið sinni á Reykjanesbraut í desember 2016 og fyrir að hafa valdið umferðarslysi. Ákæruvaldið krafðist þess að bif- reið Magnúsar sem hann ók í um- rætt sinn yrði gerð upptæk á grundvelli greinar í umferðarlögum sem heimilar að ökutæki séu gerð upptæk þegar um sérlega vítaverð- an akstur er að ræða. Hérðasdóm- ur féllst ekki á kröfuna. Tesla enn í vörslu lögreglu Bíll Ökutækið er af Tesla-gerð.  Dómi yfir Magnúsi Garðarssyni áfrýjað Meiðsli þeirra sem slösuðust í árekstri á Grindvíkurvegi á mánudag voru minniháttar. Sjö einstaklingar sem fluttir voru á spítala eru útskrifaðir. Þrír slösuðust alvarlega við Blönduós og voru fluttir á Land- spítalann. Ekki fengust upplýs- ingar um líðan þeirra í gær. Aðr- ir fjórir sem slösuðust minna fengu aðhlynningu á Heilbrigð- isstofnun Norðurlands. Flestir eru útskrifaðir 14 FLUTTIR Á SLYSADEILD RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk gæða heimilistæki Þvottavél tekur 17 kg og þurrkari tekur 10 kg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.