Morgunblaðið - 04.04.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
vegna kosninga
til sveitarstjórna,
sem fram fara 26.
maí, hófst sl.
laugardag.
Ekki er hægt
að segja að fólk
hafi hópast til að
kjósa en samkvæmt upplýsingum
frá sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu kusu sex á laugardag. Sam-
kvæmt upplýsingum frá sýslumann-
inum höfðu tveir kosið um miðjan
dag í gær og fjöldinn þá kominn í
átta.
Atkvæðagreiðslan fer í fyrstu
fram á skrifstofu embættisins að
Hlíðasmára 1 í Kópavogi á af-
greiðslutíma á virkum dögum; kl.
8.30-15.00, og klukkan 12-14 um
helgar.
Átta höfðu
kosið utan
kjörfundar
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Ef þetta mál er um ekkert eins og
Guðríður segir hvers vegna leitaði
þá Kennarasamband Íslands (KÍ)
til fokdýrrar lögmannsstofu, en
ekki til lögmanns hússins, til að
verjast því að láta okkur í stjórn
Vísindasjóðs í té okkar eigið bók-
hald sem við áttum að sjálfsögðu að
fá umyrðalaust þegar við báðum
um það, enda bárum við ábyrgð á
því,“ segir Linda Rós Michaelsdótt-
ir og svarar þar ummælum Guð-
ríðar Arnardóttur, formanns Fé-
lags framhaldsskólakennara (FF), í
blaðinu í gær.
Í Morgunblaðinu 31. mars birtist
viðtal við Lindu Rós, Erlu Elínu
Hansdóttur og Þóreyju Hilmars-
dóttur, sem hafa setið í stjórn Vís-
indasjóðs sem er endurmenntunar-
sjóður FF og stjórnenda í
framhaldsskólum, þar sem þær
segja KÍ skulda Vísindasjóði tugi
milljóna vegna trassaskapar með fé
sjóðsins. Guðríður sagði í blaðinu í
gær að þetta mál snérist ekki um
nokkurn skapaðan hlut en hefði
kostað KÍ yfir 20 milljónir króna í
lögfræðiálit, stefnur og málskostn-
að. Um hræðilegt innanfélags-
drama væri að ræða.
Fengu ekki að sjá bókhaldið
Átökin ná um tíu ár aftur í tím-
ann þegar þáverandi stjórn Vís-
indasjóðs óskaði eftir að sjá bók-
hald sjóðsins sem KÍ hélt utan um.
Þeim var neitað um það og það var
ekki fyrr en eftir sáttaferli fyrir
héraðsdómi sem stjórnin fékk bók-
haldið árið 2014. Kom þá í ljós að
æði mikið var að að sögn Lindu
Rósar, bæði vanskil á vöxtum og
óútskýrðar stórar upphæðir teknar
út af reikningi sjóðsins. Þær fóru
með vafaatriði í bókhaldinu til sér-
staks saksóknara sem vísaði kæru-
liðunum í einkamál árið 2016. Guð-
ríður segir í Morgunblaðinu í gær
að sérstakur saksóknari hafi ekki
séð neitt athugavert við vinnubrögð
KÍ í tengslum við Vísindasjóð.
„Embætti sérstaks saksóknara
sá verulega mikið að enda hefðu
þeir aldrei tekið málið til skoðunar
eftir innlögn ef þeir hefðu talið
ekkert athugavert. Í niðurstöðun-
um frá sérstökum saksóknara kem-
ur líka fram að KÍ viðurkennir
tvenn mistök í sambandi við sjóð-
inn svo það var ýmislegt athuga-
vert.
Formaðurinn segir að stjórn Vís-
indasjóðs hafi ekki skilað frá sér
undirrituðum ársreikningum í
nokkur ár. Uppgjör vegna ársins
2011 var með þeim fyrirvara að KÍ
neitaði að afhenda gögn en 2014
voru lagðir fram endurskoðaðir
reikningar fyrir tímabil milli aðal-
funda eins og lög félagsins gera ráð
fyrir. Næst á að leggja fram árs-
reikninga fyrir aðalfund núna í apr-
íl samkvæmt lögum. Guðríður segir
líka að FF sé innan KÍ og því sé
vinstri höndin að deila við þá hægri
með ærnum tilkostnaði. Með því er
hún að segja að KÍ eigi fjármunina
en sjóðurinn er sjálfstæð lögper-
sóna, er endurmenntunarsjóður
kennara á eigin kennitölu.“
Orkan sett í að ærudraga fólk
„Hefði stjórn KÍ orðið við þeirri
sjálfsögðu beiðni okkar að afhenda
lögmætri stjórn Vísindasjóðs bók-
haldið strax og beiðni þess var lögð
fram hefði málið orðið ekkert. Í
staðinn ákvað stjórn KÍ að beina
orku sinni í að ærudraga fólk og
hælbíta fyrir það eitt að vilja hafa
gagnsæi og heiðarleika í sjóðum fé-
lagsmanna,“ segir Linda Rós.
Segir málið miklu meira en ekkert
Fyrrverandi formaður stjórnar Vísindasjóðs framhaldsskólakennara svarar formanni Félags fram-
haldsskólakennara Segir embætti sérstaks saksóknara hafa séð verulega mikið að bókhaldi sjóðsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórn Þórey Hilmarsd., Erla Elín
Hansd. og Linda Rós Michaelsd.
Ekki er líklegt að kuldakaflinn um
og eftir páska hafi áhrif á gróður.
Til þess er gróður of skammt á veg
kominn.
Veðurstofa Íslands spáir áfram
norðlægum áttum og frosti um allt
land næstu daga. Veðurkortin sýna
rauðar tölur á Suður- og Suðvestur-
landi á daginn en bláar tölur um
allt land á nóttunni. Ekki er annað
að sjá fram yfir helgi.
Fram kemur í veðurbloggi
Trausta Jónssonar veðurfræðings
að eitthvað gæti hlýnað um næstu
helgi og evrópska reiknimiðstöðin
sýni hugsanlegar sunnanáttir í
næstu viku.
Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykjavík-
ur, hefur ekki áhyggjur af trjá-
gróðri í þessu kuldakasti. Segir að
ekki hafi komið nógu langur hlýr
kafli til þess að gróður hafi náð að
taka við sér.
Færð er þokkaleg um allt land.
Hálka eða hálkublettir eru víða um
land og skafrenningur á sumum
heiðum.
Gróður skemmist
ekki í kuldakaflanum
Frost verður fram yfir helgi
Morgunblaðið/Eggert
Borgarfjörður Þótt kalt sé er veður stillt og ágætt til útivistar.