Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
endilega æskilegt. „Oftast næst að
bólusetja með góðu móti ef fólk
kemur með ekki minna en sex
vikna fyrirvara, og ætti að vera
hægt að leysa málin ef jafnvel bara
mánuður er til stefnu, en það er
alltaf betra að hafa meiri tíma frek-
ar en minni. Ef margar bólusetn-
ingar eru veittar í einu er meiri
hætta á að fólk finni fyrir einkenn-
um eins og hita og verkjum, en yf-
irleitt er það samt hægt ef um er
að ræða fullfrískt fólk.“
Sem dæmi um bólusetningar
sem þarf að endurtaka í nokkur
skipti má nefna kólerubólusetn-
ingu, sem veitt er í drykkjarformi,
og bólusetningu við lifrarbólgu A
og B sem þarf að veita í þrígang
yfir sex mánaða tímabil til að veita
ævilanga vörn.
Haga þarf bólusetningunum
með ákveðnum hætti fyrir börn,
aldraða og fólk með skert ónæmi
s.s. vegna lyfjameðferðar eða
óléttu. Segir Helgi að ferðalangar
sem taka ónæmisbælandi lyf þurfi
stundum að tímasetja bólusetn-
ingar sínar í samræmi við lyfjagjöf-
ina og vanfærar konur megi ekki fá
bólusetningu við mýgulu vegna
hættu á fósturskaða. „Börn gætu
síðan þurft aðra skammta en full-
orðnir, og sumar bólusetningar
virka ekki fyrr en við 18 til 24 mán-
aða aldur svo að foreldrar verða að
huga að því að mögulega er ekki
hægt að verja yngstu börnin gegn
sjúkdómum sem gætu verið land-
lægir á vissum svæðum.“
hættulegur,“ segir Helgi en bætir
við að bólusetningin við mýgulusótt
sé ekki dýr og veiti vörn í tíu ár.
„Í Afríku þarf sömu bólusetn-
ingarnar og í Suður-Ameríku, auk
þess sem getur verið ástæða til að
bólusetja við taugaveiki, og á
ákveðnum svæðum verður að bólu-
setja gegn heilahimnubólgu. Þá
þarf fólk sem fer til Sádi-Arabíu,
hvort heldur sem það er vegna
vinnu eða pílagrímsferðar, að hafa
fengið fjölgilda bólusetningu gegn
heilahimnubólgu.“
Ef bólusetningarnar eru ekki í
lagi geta ferðalangar stundum átt
von á því að vera snúið við á landa-
mærunum, ellegar vísað til læknis
eða hjúkrunarfræðings sem veitir
þeim bólusetninguna.
„En það eru aðstæður sem
fólk vill forðast enda ótryggt að
hreinlætið eða bóluefnin séu eins
og best verður á kosið,“ segir
Helgi.
Getur tekið tíma
Best er ef byrjað er að undir-
búa bólusetningarnar með hálfs árs
fyrirvra, og gefst þá örugglega
nægur tími til að endurtaka spraut-
ur og dreifa bólusetningunum til að
lágmarka möguleg óþægindi. Helgi
segir hægt að bólusetja við
mörgum sjúkdómum í
einu en það sé
ekki
AFP
Undur Heimurinn er fullur af ævintýrum og áhugaverðu fólki, en gæta verður að heilsunni og sýna hæfilega aðgát.
Nú þegar raunin er sú að
skortur er á dagforeldrum,
þeim sem taka að sér að gæta
barna sem ekki eru komin á
leikskólaaldur, er ekki úr vegi
fyrir þá foreldra sem bíða eft-
ir plássi fyrir börnin sín að
nýta sér bókasöfnin í borg-
inni. Þau bjóða upp á sér-
stakar samverustundir fyrir
ung börn og fjölskyldur
þeirra, en samverustundir
þessar eru haldnar í ólíkum
útibúum í hverri viku. Tekið er
fram að eldri börn séu líka
velkomin, en stundin sé sér-
staklega sniðin að þörfum lít-
illa barna. Kosturinn við sam-
verustundirnar er að þar geta
börnin hitt leikfélaga og þar
geta foreldrar kynnst öðrum
foreldrum. Og stundum er
boðið upp á fræðslu eða önn-
ur skemmtilegheit. Sam-
verustund er í dag, miðviku-
dag, á tveimur bókasöfnum, sem og alla miðvikudaga, á bókasafninu í
Gerðubergi í Breiðholti kl. 9.30-11 og í bókasafninu Sólheimum kl. 11-12. Sam-
verustundin er alla fimmtudaga í bókasafninu Grófinni kl. 10.30-11.30, og í
bókasafninu í Spönginni alla þriðjudaga kl. 14-15. Frítt inn og allir velkomnir.
Samverustund í bókasöfnum borgarinnar
Gæðastund Samvera foreldra og barna, hvort
sem hún er innan heimilis eða utan, er dýrmæt
og eflir tilfinningalegu tengslin.
Samvera skiptir miklu máli
Getty Images
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Loftpressur - stórar sem smáar