Morgunblaðið - 04.04.2018, Side 17

Morgunblaðið - 04.04.2018, Side 17
FRÉTTIR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018 Tveggja manna tak Það er góður siður að taka upp rusl og enn betri að fjarlægja greinar á leiðinni heim úr skólanum, þó tvo þurfi til. Kristinn Magnússon „Þegar um svona mál er að ræða á Al- þingi síðasta orðið. Það er sá fyrirvari sem menn gera í Evr- ópusamvinnunni, að þeir hafa ekki að stjórnskipunarlögum heimild til að skuld- binda Ísland við samn- ingaborðið úti í Bruss- el án aðkomu Alþingis. Það er nú aðalatriðið varðandi fyr- irvarana.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, þegar hann svar- aði 22. mars sl. óundirbúinni fyr- irspurn um þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins. Tilefnið var samþykkt landsfundar Sjálfstæð- isflokksins þar sem segir: „Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“ Ummæli sem norskir fjölmiðlar höfðu eftir þeim er hér heldur um penna að loknum landsfundi urðu ekki til að róa þá sem leita lausna á öllum verkefnum okkar Íslendinga úti í Brussel. Ég benti á hið aug- ljósa: Á Alþingi og ekki síst innan stjórnarflokkanna þriggja séu vax- andi efasemdir um orkutilskip- unina. Orkumál á Íslandi og innri markaður Í viðtali við fréttastofu Ríkis- útvarpsins, nokkrum dögum síðar, spurði ég einfaldrar spurningar: „Af hverju þurfa orkumál á Ís- land að vera hluti af einhverjum innri markaðsmálum Evrópusam- bandsins? Það er ekk- ert sem segir það með svipuðum hætti að það á örugglega við um fjármála- markaðinn.“ Spurningin er eðli- leg og í takt við efa- semdir formanns Sjálfstæðisflokksins um fyrirkomulag orkumála á EES- svæðinu. „Veltum því fyrir okkur hvað við höfum með það að gera á innri markaði Evrópu að vera að ræða raforkumál sem eru í einangruðu mengi á Íslandi úti í Brussel,“ sagði Bjarni Benediktsson þegar hann svaraði áðurnefndri fyr- irspurn. Hann velti því fyrir sér hvað Íslendingar hefðu „með það að gera að vera að ræða við önnur ríki Evrópusambandsins raforku- mál af eyjunni Íslandi“: „Er það mál sem varðar innri markaðinn með beinum hætti, þeg- ar engin er tengingin? Eða treyst- um við okkur til þess að skipa end- anlega þeim málum sem varða íslenskan raforkumarkað til lykta á okkar forsendum eins og Alþingi kýs?“ Þetta er kjarni málsins og spurningar formanns Sjálfstæð- isflokksins eru „mjög verðugar mikillar umræðu hér í þinginu“, eins og hann komst að orði. Í viðtali við Ríkisútvarpið hélt ég því fram að það væri „fullkomlega eðlilegt og það væri ábyrgðarlaust af okkur sem þingmönnum að taka ekki umræðuna, annars vegar þriðju tilskipunina um orkumál en líka að ræða það hvort hagsmunum okkar er betur borgið utan hins sameiginlega orkumarkaðar eða innan“. Hæpin fullyrðing – í besta falli Í fréttaskýringu Viðskiptablaðs- ins í síðustu viku er fullyrt að þriðja orkutilskipun Evrópusam- bandsins hafi lítil áhrif hér á landi – mikilsverðir orkuhagsmunir séu ekki í húfi. Vitnað er í svör utanrík- isráðuneytisins þessu til stuðnings. Hér er ekki rúm til að draga fram hversu hæpin (í besta falli) fullyrð- ingin er. Skipulag orkumála skiptir okkur Íslendinga miklu, hefur veruleg áhrif á samkeppnishæfni atvinnu- lífsins og bein áhrif á lífskjör al- mennings. Verði af lagningu sæ- strengs – líkt og margir vonast til – mun íslenski orkumarkaðurinn falla undir valdsvið ACER (Agency for the Cooperation of Energy Re- gulators), eftirlitsstofnunar Evr- ópusambandsins. ACER fær meðal annars vald til að úrskurða í ágreiningsmálum. (Sæstrengur milli Íslands og Bretlands er á lista Evrópusambandsins yfir mikilvæg innviðaverkefni í orkumálum.) Hrein orka er ein dýrmætasta auðlind okkar Íslendinga. Raforku- vinnsla á íbúa er hvergi meiri en hér á landi og yfir helmingi meiri en í Noregi. Í skýrslu ferða-, iðn- aðar- og nýsköpunarráðherra um raforkumál, sem lögð var fram í mars, koma þessar upplýsingar fram. Kanada og Finnland eru í þriðja og fjórða sæti, langt á eftir okkur Íslendingum. Að fullyrða að skipulag orkumála, hvernig og hvort við aðlögum íslenskt reglu- verk að orkutilskipunum Evrópu- sambandsins, hafi ekki mikil áhrif hér á landi, er í besta falli sér- kennilegt og í versta falli hættu- legt. Ófyrirséðar afleiðingar? Innan skamms verður Alþingi að taka afstöðu til þess hvort falla eigi frá stjórnskipulegum fyrirvara vegna þriðju orkutilskipunarinnar. „Stilli Alþingi sér á móti pakkanum gæti það þó haft ófyrirséðar afleið- ingar fyrir EES-samstarfið, að sögn utanríkisráðuneytisins,“ segir Viðskiptablaðið. Samkvæmt EES-samningnum er stjórnskipulegur fyrirvari gagnvart ákvörðunum sameiginlegu EES- nefndarinnar þegar lagabreytingar eru nauðsynlegar. Fyrirvarinn þýð- ir að þjóðþing EFTA-ríkjanna þurfa að samþykkja tilskipanir – aflétta stjórnskipulegum fyr- irvörum. Ef rétt er að það hafi „ófyrirséðar afleiðingar“ ef Alþingi aflétti ekki fyrirvara gagnvart til- skipunum Evrópusambandsins (í þessu tilfelli vegna þriðju orku- tilskipunarinnar) þýðir það í raun að stjórnskipulegur fyrirvari er merkingarlaus. Þjóðþing EFTA- ríkjanna eru áhrifalaus – neydd til að skrifa undir tilskipanir því ann- að hefði „ófyrirsjáanlegar afleið- ingar“ á EES-samninginn. Þannig er ákvæði 103 gr. EES-samnings- ins dauður bókstafur. Þessi túlkun á ákvæðum samn- ings EFTA og ESB getur varla verið rétt enda um leið verið að halda því fram að þjóðþing Noregs, Liechtenstein og Íslands séu aðeins viljalaus verkfæri sem neydd eru til að fara eftir forskrift embættis- manna. Sem þingmaður get ég aldrei tekið undir slíkan skilning á eðli EES-samningsins. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hefur bent á að í raun hafi aldrei tekist að hrinda nægi- lega vel í framkvæmd „sjálfstæðri stefnu í samskiptum við ESB á grundvelli EES-samningsins“. Í dagbókarfærslu í febrúar hélt Björn því fram að verði viðurkennt „meira svigrúm til að hafna innleið- ingu ESB-reglna fellur það að helstu gagnrýninni á EES- fyrirkomulagið eins og það er nú – þetta svigrúm er þó einskis virði sé aldrei gerð tilraun til að nýta það og henni fylgt eftir á skipulegan hátt“. Þegar Alþingi fær það verkefni að fjalla um þriðju orkutilskipunina verða þingmenn að vega og meta hagsmuni Íslands. Þeir verða að svara þeirri spurningu hvernig hagsmunir lands og þjóðar séu best tryggðir. Þjónar það hagsmunum okkar að samþykkja þriðju tilskip- unina? Er best fyrir Íslendinga að standa utan innri markaðar Evrópu þegar kemur að orkumálum? Hvaða rök eru fyrir því „að ræða raforkumál sem eru í einangruðu mengi á Íslandi úti í Brussel?“ eins og Bjarni Benediktsson spurði. Þetta eru nokkrar þeirra spurn- inga sem þingmenn þurfa að svara án þess að hræðast áróður eða hót- anir um að það hefði „ófyrirsjáan- legar afleiðingar“ ef þeir ákveða að nýta sér fullveldisréttinn, sem gengið er út frá að sé í gildi, meðal annars í EES-samningnum sjálf- um. Eftir Óla Björn Kárason »Ef rétt er að það hafi „ófyrirséðar afleið- ingar“ ef Alþingi aflétti ekki fyrirvara vegna til- skipana ESB eru þjóð- þing EFTA-ríkjanna í raun áhrifalaus. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Merkingarlaus stjórnskipulegur fyrirvari? Boðað hefur verið til „lagadags“ 27. apríl nk. Sá dagur er haldinn árlega. Þar er fjallað um lögfræðileg viðfangsefni og þá ekki síst þau sem efst hafa verið á baugi í samfélaginu á þeim tíma er lagadagur er haldinn. Einhvern tíma var talið áhugavert að fá til framsögu lög- fræðinga sem látið hefðu í ljós mismunandi skoðanir á þeim lögfræðilegu málefnum sem til stæði að ræða um. Þannig væri von til þess að málin yrðu skoðuð frá mismunandi sjón- armiðum. En öllu má nú ofgera. Meðal umræðuefna nú er „skipun dómara“. Þar eiga þátttakendur að verða Benedikt Bogason hæstaréttardómari, Björg Thor- arensen prófessor, Ragnhildur Helgadóttir, forseti lagadeildar HR, Ingibjörg Þorsteins- dóttir, formaður Dómarafélags Íslands, og Reimar Pétursson, formaður LMFÍ. Í ljós kemur í fundarboði að til standi að ræða um lagareglu sem kom inn í lög 2010, þar sem dómurum er sjálfum falið alræðisvald um val á nýjum dómurum. Síðan á líka að ræða fyr- irkomulagið á vali dómara í Landsrétt, sem olli svo miklum deilum núna í vetur og olli því að tillaga um vantraust var flutt á hendur ráð- herra dómsmála. Minnast menn þess líklega að Hæstiréttur neytti aflsmunar til að ná sér niðri á ráðherranum sem ekki hafði viljað lúta vilja dómarahópsins í einu og öllu. Það blasir við að þessi hópur frummælenda mun á lagadaginn takast hart á. Ef satt skal segja hafði ég löngun til að mæta og taka þátt í fræðilegri umfjöllun um þetta efni, sem verið hefur mér hugstætt. En ég legg ekki í það. Það er fyrirsjáanlegt að hver höndin verður upp á móti annarri, þannig að ekki getur orðið heilnæmt fyrir friðflytjendur eins og mig að verða vitni að slíku. Ég læt því við það sitja að óska fundarmönnum góðrar skemmtunar í þeim átökum sem fram undan eru. Jón Steinar Gunnlaugsson Góða skemmtun á lagadaginn Höfundur er friðelskandi lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.