Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 17
FRÉTTIR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Tveggja manna tak Það er góður siður að taka upp rusl og enn betri að fjarlægja greinar á leiðinni heim úr skólanum, þó tvo þurfi til.
Kristinn Magnússon
„Þegar um svona
mál er að ræða á Al-
þingi síðasta orðið.
Það er sá fyrirvari
sem menn gera í Evr-
ópusamvinnunni, að
þeir hafa ekki að
stjórnskipunarlögum
heimild til að skuld-
binda Ísland við samn-
ingaborðið úti í Bruss-
el án aðkomu Alþingis.
Það er nú aðalatriðið varðandi fyr-
irvarana.“
Þetta sagði Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins og
fjármálaráðherra, þegar hann svar-
aði 22. mars sl. óundirbúinni fyr-
irspurn um þriðju orkutilskipun
Evrópusambandsins. Tilefnið var
samþykkt landsfundar Sjálfstæð-
isflokksins þar sem segir:
„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar
frekara framsali á yfirráðum yfir
íslenskum orkumarkaði til stofnana
Evrópusambandsins.“
Ummæli sem norskir fjölmiðlar
höfðu eftir þeim er hér heldur um
penna að loknum landsfundi urðu
ekki til að róa þá sem leita lausna á
öllum verkefnum okkar Íslendinga
úti í Brussel. Ég benti á hið aug-
ljósa: Á Alþingi og ekki síst innan
stjórnarflokkanna þriggja séu vax-
andi efasemdir um orkutilskip-
unina.
Orkumál á Íslandi
og innri markaður
Í viðtali við fréttastofu Ríkis-
útvarpsins, nokkrum dögum síðar,
spurði ég einfaldrar spurningar:
„Af hverju þurfa orkumál á Ís-
land að vera hluti af einhverjum
innri markaðsmálum Evrópusam-
bandsins? Það er ekk-
ert sem segir það með
svipuðum hætti að
það á örugglega við
um fjármála-
markaðinn.“
Spurningin er eðli-
leg og í takt við efa-
semdir formanns
Sjálfstæðisflokksins
um fyrirkomulag
orkumála á EES-
svæðinu. „Veltum því
fyrir okkur hvað við
höfum með það að gera á innri
markaði Evrópu að vera að ræða
raforkumál sem eru í einangruðu
mengi á Íslandi úti í Brussel,“
sagði Bjarni Benediktsson þegar
hann svaraði áðurnefndri fyr-
irspurn. Hann velti því fyrir sér
hvað Íslendingar hefðu „með það
að gera að vera að ræða við önnur
ríki Evrópusambandsins raforku-
mál af eyjunni Íslandi“:
„Er það mál sem varðar innri
markaðinn með beinum hætti, þeg-
ar engin er tengingin? Eða treyst-
um við okkur til þess að skipa end-
anlega þeim málum sem varða
íslenskan raforkumarkað til lykta á
okkar forsendum eins og Alþingi
kýs?“
Þetta er kjarni málsins og
spurningar formanns Sjálfstæð-
isflokksins eru „mjög verðugar
mikillar umræðu hér í þinginu“,
eins og hann komst að orði.
Í viðtali við Ríkisútvarpið hélt ég
því fram að það væri „fullkomlega
eðlilegt og það væri ábyrgðarlaust
af okkur sem þingmönnum að taka
ekki umræðuna, annars vegar
þriðju tilskipunina um orkumál en
líka að ræða það hvort hagsmunum
okkar er betur borgið utan hins
sameiginlega orkumarkaðar eða
innan“.
Hæpin fullyrðing – í besta falli
Í fréttaskýringu Viðskiptablaðs-
ins í síðustu viku er fullyrt að
þriðja orkutilskipun Evrópusam-
bandsins hafi lítil áhrif hér á landi –
mikilsverðir orkuhagsmunir séu
ekki í húfi. Vitnað er í svör utanrík-
isráðuneytisins þessu til stuðnings.
Hér er ekki rúm til að draga fram
hversu hæpin (í besta falli) fullyrð-
ingin er.
Skipulag orkumála skiptir okkur
Íslendinga miklu, hefur veruleg
áhrif á samkeppnishæfni atvinnu-
lífsins og bein áhrif á lífskjör al-
mennings. Verði af lagningu sæ-
strengs – líkt og margir vonast til –
mun íslenski orkumarkaðurinn
falla undir valdsvið ACER (Agency
for the Cooperation of Energy Re-
gulators), eftirlitsstofnunar Evr-
ópusambandsins. ACER fær meðal
annars vald til að úrskurða í
ágreiningsmálum. (Sæstrengur
milli Íslands og Bretlands er á lista
Evrópusambandsins yfir mikilvæg
innviðaverkefni í orkumálum.)
Hrein orka er ein dýrmætasta
auðlind okkar Íslendinga. Raforku-
vinnsla á íbúa er hvergi meiri en
hér á landi og yfir helmingi meiri
en í Noregi. Í skýrslu ferða-, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðherra um
raforkumál, sem lögð var fram í
mars, koma þessar upplýsingar
fram. Kanada og Finnland eru í
þriðja og fjórða sæti, langt á eftir
okkur Íslendingum. Að fullyrða að
skipulag orkumála, hvernig og
hvort við aðlögum íslenskt reglu-
verk að orkutilskipunum Evrópu-
sambandsins, hafi ekki mikil áhrif
hér á landi, er í besta falli sér-
kennilegt og í versta falli hættu-
legt.
Ófyrirséðar afleiðingar?
Innan skamms verður Alþingi að
taka afstöðu til þess hvort falla eigi
frá stjórnskipulegum fyrirvara
vegna þriðju orkutilskipunarinnar.
„Stilli Alþingi sér á móti pakkanum
gæti það þó haft ófyrirséðar afleið-
ingar fyrir EES-samstarfið, að
sögn utanríkisráðuneytisins,“ segir
Viðskiptablaðið.
Samkvæmt EES-samningnum er
stjórnskipulegur fyrirvari gagnvart
ákvörðunum sameiginlegu EES-
nefndarinnar þegar lagabreytingar
eru nauðsynlegar. Fyrirvarinn þýð-
ir að þjóðþing EFTA-ríkjanna
þurfa að samþykkja tilskipanir –
aflétta stjórnskipulegum fyr-
irvörum. Ef rétt er að það hafi
„ófyrirséðar afleiðingar“ ef Alþingi
aflétti ekki fyrirvara gagnvart til-
skipunum Evrópusambandsins (í
þessu tilfelli vegna þriðju orku-
tilskipunarinnar) þýðir það í raun
að stjórnskipulegur fyrirvari er
merkingarlaus. Þjóðþing EFTA-
ríkjanna eru áhrifalaus – neydd til
að skrifa undir tilskipanir því ann-
að hefði „ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar“ á EES-samninginn. Þannig
er ákvæði 103 gr. EES-samnings-
ins dauður bókstafur.
Þessi túlkun á ákvæðum samn-
ings EFTA og ESB getur varla
verið rétt enda um leið verið að
halda því fram að þjóðþing Noregs,
Liechtenstein og Íslands séu aðeins
viljalaus verkfæri sem neydd eru til
að fara eftir forskrift embættis-
manna. Sem þingmaður get ég
aldrei tekið undir slíkan skilning á
eðli EES-samningsins.
Björn Bjarnason, fyrrverandi
ráðherra, hefur bent á að í raun
hafi aldrei tekist að hrinda nægi-
lega vel í framkvæmd „sjálfstæðri
stefnu í samskiptum við ESB á
grundvelli EES-samningsins“. Í
dagbókarfærslu í febrúar hélt
Björn því fram að verði viðurkennt
„meira svigrúm til að hafna innleið-
ingu ESB-reglna fellur það að
helstu gagnrýninni á EES-
fyrirkomulagið eins og það er nú –
þetta svigrúm er þó einskis virði sé
aldrei gerð tilraun til að nýta það
og henni fylgt eftir á skipulegan
hátt“.
Þegar Alþingi fær það verkefni
að fjalla um þriðju orkutilskipunina
verða þingmenn að vega og meta
hagsmuni Íslands. Þeir verða að
svara þeirri spurningu hvernig
hagsmunir lands og þjóðar séu best
tryggðir. Þjónar það hagsmunum
okkar að samþykkja þriðju tilskip-
unina? Er best fyrir Íslendinga að
standa utan innri markaðar Evrópu
þegar kemur að orkumálum?
Hvaða rök eru fyrir því „að ræða
raforkumál sem eru í einangruðu
mengi á Íslandi úti í Brussel?“ eins
og Bjarni Benediktsson spurði.
Þetta eru nokkrar þeirra spurn-
inga sem þingmenn þurfa að svara
án þess að hræðast áróður eða hót-
anir um að það hefði „ófyrirsjáan-
legar afleiðingar“ ef þeir ákveða að
nýta sér fullveldisréttinn, sem
gengið er út frá að sé í gildi, meðal
annars í EES-samningnum sjálf-
um.
Eftir Óla Björn
Kárason
»Ef rétt er að það hafi
„ófyrirséðar afleið-
ingar“ ef Alþingi aflétti
ekki fyrirvara vegna til-
skipana ESB eru þjóð-
þing EFTA-ríkjanna í
raun áhrifalaus.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Merkingarlaus stjórnskipulegur fyrirvari?
Boðað hefur verið til „lagadags“ 27. apríl nk.
Sá dagur er haldinn árlega. Þar er fjallað um
lögfræðileg viðfangsefni og þá ekki síst þau
sem efst hafa verið á baugi í samfélaginu á
þeim tíma er lagadagur er haldinn. Einhvern
tíma var talið áhugavert að fá til framsögu lög-
fræðinga sem látið hefðu í ljós mismunandi
skoðanir á þeim lögfræðilegu málefnum sem til
stæði að ræða um. Þannig væri von til þess að
málin yrðu skoðuð frá mismunandi sjón-
armiðum.
En öllu má nú ofgera.
Meðal umræðuefna nú er „skipun dómara“.
Þar eiga þátttakendur að verða Benedikt
Bogason hæstaréttardómari, Björg Thor-
arensen prófessor, Ragnhildur Helgadóttir,
forseti lagadeildar HR, Ingibjörg Þorsteins-
dóttir, formaður Dómarafélags Íslands, og
Reimar Pétursson, formaður LMFÍ. Í ljós
kemur í fundarboði að til standi að ræða um
lagareglu sem kom inn í lög 2010, þar sem
dómurum er sjálfum falið alræðisvald um val á
nýjum dómurum. Síðan á líka að ræða fyr-
irkomulagið á vali dómara í Landsrétt, sem olli
svo miklum deilum núna í vetur og olli því að
tillaga um vantraust var flutt á hendur ráð-
herra dómsmála. Minnast menn þess líklega að
Hæstiréttur neytti aflsmunar til að ná sér
niðri á ráðherranum sem ekki hafði viljað lúta
vilja dómarahópsins í einu og öllu.
Það blasir við að þessi hópur frummælenda
mun á lagadaginn takast hart á. Ef satt skal
segja hafði ég löngun til að mæta og taka þátt
í fræðilegri umfjöllun um þetta efni, sem verið
hefur mér hugstætt. En ég legg ekki í það.
Það er fyrirsjáanlegt að hver höndin verður
upp á móti annarri, þannig að ekki getur orðið
heilnæmt fyrir friðflytjendur eins og mig að
verða vitni að slíku. Ég læt því við það sitja að
óska fundarmönnum góðrar skemmtunar í
þeim átökum sem fram undan eru.
Jón Steinar Gunnlaugsson
Góða
skemmtun
á lagadaginn
Höfundur er friðelskandi lögfræðingur.