Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 27
lingadella en árið 1983 hóf ég að taka
myndir af miklum krafti og stundaði
ljósmyndun til 1997. Ég hélt nokkr-
ar einkasýningar, m.a. á Mokka og á
Sóloni Íslandus, en hluti þessa af-
rakstur er ljósmyndabók sem ég gaf
út árið 2011 og ber heitið Óður. Sam-
býliskona mín kom með heitið á bók-
ina enda er það a.m.k. tvírætt. Það
vísar til þess að ég á heima á Óðins-
götu en eftir að hún kynntist mér fór
að kalla götuna Óðs manns götu.
Ég lagði allan metnað í vandaða
útgáfu en bókin er bæði prentuð og
bundin á Ítalíu. Myndirnar eru
svart/hvítar mannlífsmyndir, flestar
teknar á götum, torgum og kaffi-
húsum borgarinnar.
Eftir vinnuna við útgáfu bók-
arinnar hóf ég aftur að taka myndir.
Þær eru teknar á stóra myndavél á
þrífæti og enn er mannlíf borg-
arinnar viðfangsefnið.. Ég hef því
verið að taka þessar myndir í sex ár
og stefni nú á aðra ljósmyndabók.
Til hennar verður mjög vandað og
líklega verður upplagið mjög lítið,
kannski svona 200 eintök.“
Að öðru leyti er Davíð fagurkeri,
smekkmaður í klæðaburði, mikill
áhugamaður um klassíska tónlist og
sérlega vel að sér í íslenskum bók-
menntum, fyrr og síðar, ekki síst
ljóðlist, sem og því helsta sem
heimsbókmenntirnar hafa upp á að
bjóða.
Fjölskylda
Sambýliskona Davíðs er Sigríður
Björnsdóttir, f . 25.11. 1953, verkefn-
isstjóri í stjórnsýslu á framkvæmda-
og tæknisviði Háskóla Íslands. Hún
er dóttir Björns Ólafssonar, f. 6.6.
1920, d. 12.12. 1987, bónda frá Duf-
ansdal í Arnarfirði, og k.h., Önnu
Jónsdóttur, f. 16.4. 1926, d. 6.9. 1979.
Sonur Sigríðar er Hrafnkell Sig-
ríðarson, f. 20.8. 1981, mat-
reiðslumaður í Reykjavík.
Fyrrv. eiginkona Davíðs er Janice
Margrét Balfour, f. 29.3. 1950, forn-
fræðingur í grísku og latínu og
fyrrv. kennari og starfsmaður
Rauða krossins. Davíð og Janice
skildu.
Börn Davíðs og Janice eru 1) Ás-
laug Davíðsdóttir, f. 30.10. 1972,
textílhönnuður og kennari við Háa-
leitisskóla, búsett í Hveragerði, og
eru börn hennar Stella, f. 2000, og
Freyr, f. 2015; 2) Brynja Davíðs-
dóttir, f. 3.10. 1975, hamskeri, nátt-
úru- og umhverfisfræðingur og for-
stöðumaður Kötlu Geopark, búsett á
Selfossi en unnusti hennar er Berg-
ur Þór Björnsson, skógfræðingur
hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti,
og eru börn hennar Bjarmi Valent-
inó, f. 1999, og Díana Rós, f. 2001, og
3) Þorsteinn Davíðsson, f. 10.12.
1980, grafískur hönnuður, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Marí-
anna Said lögfræðingur og eru synir
þeirra Davíð Máni, f. 2013, og
ónefndur sonur, f. 2018.
Systur Davíðs eru Björg Þor-
steinsdóttir, f .21.5. 1940, myndlist-
arkona í Reykjavík, og Halldóra
Þorsteinsdóttir, f. 22.11. 1949, bóka-
safnsfræðingur og lengi bókavörður
við Þjóðarbókhlöðu – Háskóla-
bókasafn, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Davíðs: Þorsteinn Dav-
íðsson, f. 12.2. 1918, d. 12.3. 2003,
verslunarstjóri og kaupmaður í
Reykjavík, og k.h., Guðný Árnadótt-
ir, f. 30.7. 1917, d. 5.12. 1992, hús-
freyja í Reykjavík.
Davíð Þorsteinsson
Guðríður Finnbogadóttir
húsfr. á Vindási og á Galtalæk
Kristófer Jónsson
b. á Vindási og á Galtalæk í Landsveit
Finnbjörg Kristófersdóttir
húsfr. í Rvík
Guðný Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Árni Pálsson
prófessor í sagnfr. við HÍ
Margrét A.Þórðardóttir
húsfr. á Hjaltabakka
Páll Sigurðsson
pr. á Hjaltabakka í
Torfalækjarhreppi
Halldóra Þorsteinsdóttir
bókavörður og lengst
af starfsmaður
Þjóðarbókhlöðu -
Háskólabókasafns
Björg Þorsteinsdóttir
myndlistarkona í Rvík
Þórður Pálsson héraðslæknir í Borgarnesi
Páll Oddgeirsson
kaupmaður í
Vestmannaeyjum
Ísleifur
Pálsson
ramkvstj.
í Rvík
f
Ólafur
Ísleifsson
hagfr. og
alþm.
Oddgeir Þórðarson Guðmundsen
pr. á Ofanleiti í Vestmannaeyjum
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
húsfr. á Sauðanesi, systurdóttir Solveigar,
móður ráðherranna Kristjáns og
Péturs Jónssona og ömmu Haraldar
Guðmundssonar ráðherra, af Reykjahlíðarætt
Arnljótur Ólafsson
alþm. og prestur á Sauðanesi
á Langanesi og höfundur
hagfræðiritsins Auðfræði
Halldóra Arnljótsdóttir
húsfr. í Rvík
Davíð Petersen Kristjánsson
veitingam., útgerðarm. og síðar kaupm. í Rvík
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Kristján Jónsson
verslunarm. á Seyðisfirði
Úr frændgarði Davíðs Þorsteinssonar
Þorsteinn Davíðsson
verslunarstj. og kaupm. í Rvík
Morgunblaðið/Jim Smart
Afmælisbarnið Davíð Þorsteinsson.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Sigurður Guðbrandsson fæddistá Litlu-Gröf í Borgarhreppi4.4. 1903. Hann ólst upp hjá
foreldrum sínum á Hrafnkelsstöðum
í Hraunhreppi, sonur Guðbrands
Sigurðssonar, hreppstjóra þar, og
k.h., Ólafar Gísladóttur húsfreyju.
Sigurður er mjög verðugur
fulltrúi þeirra manna sem umbyltu
mjólkurvinnslu og mjólkurdreifingu
hér á landi í kjölfar aukins þéttbýlis
og breyttra búskaparhátta á fyrri
helmingi síðustu aldar. Hann stund-
aði nám við Hvítárbakkaskóla, lauk
búfræðiprófi frá Hvanneyri, stund-
aði mjólkurfræðinám í Noregi og
lauk þar mjólkurfræðiprófi, fyrstur
Íslendinga. Hann fór síðar aftur til
Noregs að kynna sér ostagerð. Hann
var síðan starfsmaður Mjólkurbús
Borgfirðinga frá upphafi og mjólk-
urbússtjóri þar frá 1933.
Stjórn hinna vinnandi stétta setti
róttæk afurðasölulög árið 1934, sem
komu á opinberri verðlagningu
mjólkur- og sauðfjárafurða og nán-
ast útilokuðu samkeppni á mjólk-
urafurðum. Vinnslu og sölu afurð-
anna var veitt í ákveðinn farveg og
um leið viðurkennt að stéttarsamtök
bænda ættu að verða ráðandi um
þessa þætti framleiðslunnar sem á
endanum var talið bændum til hags-
bóta.
En þó Sigurður starfaði við þessi
einhliða markaðsskilyrði hugsaði
hann um gæði framleiðslunnar og
hag neytenda. Hann var farsæll
mjólkurbússtjóri en skyr og ostar
frá hans samlagi þóttu löngum bera
af sambærilegum vörum annarra
samlaga.
Áhugi Sigurðar á vörugæðum
kemur ekki síst fram í því að hann
var formaður Nautgriparæktar-
félags Borgfirðinga frá stofnun,
1947, og um árabil. Hann var einnig
formaður Félags íslenskra mjólkur-
fræðinga, var lengi sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Mýrasýslu, sýslunefnd-
armaður og formaður Framsóknar-
félags Mýrasýslu í 25 ár.
Sigurður lést 25.4. 1984.
Merkir Íslendingar
Sigurður Guðbrandsson
100 ára
Ágústa Þ. Gísladóttir
90 ára
Borghildur A. Jónsdóttir
Elsa Fanney Þorkelsdóttir
80 ára
Aðalheiður
Halldórsdóttir
Anna Klara Guðlaugsdóttir
Guðlaugur Sveinsson
Ingvar Guðmundsson
Lára Helgadóttir
Lilja Hallgrímsdóttir
75 ára
Amalía Þórhallsdóttir
Birna Magnea Bogadóttir
Björn Sigurðsson
Guðlaug Jóhannsdóttir
Jóna Vestfjörð Árnadóttir
Kristín K. Jakobsdóttir
Þórdór Pálsson
70 ára
Davíð Þorsteinsson
Jóna Gunnarsdóttir
Jón Björn Jónsson
Jónína Hjaltadóttir
Víðir Benediktsson
60 ára
Aðalheiður Steinarsdóttir
Anna Katrín Eyfjörð
Þórsdóttir
Annika María Frid
Bjarnheiður Jóna
Ívarsdóttir
Björn Einarsson
Finnbogi Guðmundsson
Guðlaugur Guðmundsson
Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir
Oddný Bára Birgisdóttir
Ragnar Sævar Erlingsson
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigurlaug Ingibjörg Lövdahl
Valgerður Ásgeirsdóttir
Þorbjörg Erlendsdóttir
50 ára
Ebba Ólafía Ásgeirsdóttir
Guðmundur Hreinn
Sveinsson
Guðrún Bára Þórarinsdóttir
Guðrún Sigurðardóttir
Gunnhildur Peiser
Hanna Þóra Th.
Guðjónsdóttir
Jóhann Þorgilsson
Kristján Halldórsson
Karlsson
Magnús Þór Sveinsson
Pétur Örn Leifsson
Sigrún Lilja
Guðbjörnsdóttir
Unnur B. Friðriksdóttir
40 ára
Dagmar A.R. Clothier
Fjóla Lind Guðnadóttir
Inese Maskina
Jónas Karl Þorvaldsson
Matthías Páll Gunnarsson
Ólafur Örvar Ólafsson
Piotr Myslakowski
Theódór Aldar Tómasson
Þórir Kristmundsson
30 ára
Alice Corra
Ágústa Íris Helgadóttir
Ágúst Heiðar Ólafsson
Beatriz Tasayco Caballero
Björk Sigurðardóttir
Daníel Valgeir Stefánsson
Fanney Vala Arnórsdóttir
Freyr Arnaldsson
Jósep H.Long Jakobsson
Mai Thi Nguyen
Róbert Guðmundsson
Scott Rhodes
Sunna Lind Pétursdóttir
Viktor Orri Dietersson
Til hamingju með daginn
30 ára Björk býr í Reykja-
vík, lauk prófum frá
Flensborg og hefur starf-
að á Hagstofunni.
Systkini: Ásgeir Davíð
Sigurðsson, f. 1980; Ólöf
Ragnarsdóttir, f. 1986, og
Kristjana Sigurðardóttir, f.
1993.
Foreldrar: Sigurður B. Al-
freðsson, f. 1962,
starfsm. við mjölbræðslu
í Eyjum, og Erna Braga-
dóttir, f. 1962, félagsliði í
Danmörku.
Björk
Sigurðardóttir
30 ára Ágústa ólst upp á
Selfossi, býr í Reykjavík
og starfar hjá Nova.
Maki: Rúnar Freyr Ragn-
arsson, f. 1989, rafvirki.
Bræður: Eyþór Helgason,
f. 1992, og Óskar Ingi
Helgason, f. 2005.
Foreldrar: Helgi Jónsson,
f. 1963, bifvélavirki hjá
Nýherja á Selfossi, og
Sigurlaug Gréta Skafta-
dóttir, f. 1968, ræstitækn-
ir. Þau eru búsett á Sel-
fossi.
Ágústa Íris
Helgadóttir
40 ára Þórir ólst upp á
Egilsstöðum, býr í Vogum,
lauk prófi í húsasmíði frá
FB og vinnur við smíðar.
Maki: Steinunn Lilja
Gísladóttir, f. 1979, starfs-
maður hjá Icelandair.
Börn: Sóley Perla, f.
2001; Hákon Snær, f.
2004, og Tristan Dagur, f.
2009.
Foreldrar: Helga Erlings-
dóttir, f. 1956, og Krist-
mundur Hákonarson, f.
1956.
Þórir
Kristmundsson
Baðaðu þig í gæðunum
Vandaðar vörur, gott verð og fjölbreytt úrval
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15