Morgunblaðið - 04.04.2018, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
ararfurinn okkar,“ segir Ása og
kallar eftir átaki til að bæta úr
þessu. „Við fáum oft fyrirspurnir
um af hverju við sýnum ekki þessa
mynd eða hina en fólk skilur bara
ekki vandamálið,“ segir Ása.
11 nýjar og þrjár gamlar
Þrjár gamlar kvikmyndir og 11
nýjar í fullri lengd verða á dagskrá
og ættu börn á öllum aldri að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Ein
þeirra er Benji the Dove, bandarísk
endurgerð leikstjórans Kevins Arb-
ouets á íslensku kvikmyndinni
Benjamín dúfu frá árinu 1995 sem
byggð var á samnefndri bók Frið-
riks Erlingssonar. Hún verður
frumsýnd hér á landi á hátíðinni en
myndin er frá síðasta ári. Nokkrar
sígildar barna- og unglingamyndir
verða einnig sýndar, t.d. The Ka-
rate Kid, Stand by Me og Princess
Mononoke og segir Ása að einnig
verði boðið upp á stuttmyndapakka
og að aðgangur að þeim ókeypis.
„Við erum með frábærar stutt-
myndir fyrir yngstu börnin og aðra
eins dagskrá fyrir börn á aldrinum
7-12 ára, erum með allar myndir
textaðar á íslensku en ein þeirra er
íslensk og heitir Búi. Og svo erum
við að sýna þættina um Nonna og
Manna,“ telur Ása upp en fyrstu
tveir þættirnir verða sýndir að við-
stöddum aðalleikurum þáttanna,
Garðari Thór Cortes og Einari Erni
Einarssyni, og leikstjóra þeirra,
Ágústi Guðmundssyni. Þeir munu
svara spurningum úr sal og fer sýn-
ingin fram á föstudaginn, 6. apríl, kl.
18.
Alls konar fyrir alla
„Það er bara alls konar fyrir alla
og þetta er veglegasta hátíðin sem
við höfum verið með hingað til,“ seg-
ir Ása og nefnir til viðbótar tvö nám-
skeið sem verða á dagskrá hátíðar-
innar, annars vegar námskeið í
kvikmyndaleik fyrir börn sem Ólafur
S.K. Þorvaldz, leikari og leiklistar-
kennari, stýrir og hins vegar nám-
skeið í sketsaskrifum, þ.e. skrifum á
stuttum gríninnslögum, undir hand-
leiðslu Dóru Jóhannsdóttur, leik-
konu, leikstjóra og handritshöf-
undar. Upplýsingar um námskeiðin
og dagskrá hátíðarinnar má finna á
vefsíðu Bíós Paradísar, bioparadis.is.
Endurgerð Benji the Dove er bandarísk endurgerð á Benjamín Dúfu frá árinu 1995. Endurgerðin er frá 2017.
Adam Úr lokamynd barnakvikmyndahátíðarinnar. Fyrir þau yngstu Úr teiknimyndinni um Krumma klóka.
Stjórnvöld í Búlg-
aríu upplýstu
snemma í síðustu
viku að Julia
Kristeva, einn
þekktasti fræði-
maður samtím-
ans, hefði njósnað
fyrir kommúnísk
stjórnvöld í Búlg-
aríu á áttunda
áratugnum, þegar hún var flutt til
Frakklands þar sem hún er búsett.
Kristeva, sem er 76 ára, er marg-
verðlaunuð fyrir skrif sín og fræði-
störf. Hún hefur skrifað yfir 30 bæk-
ur sem fjalla meðal annars um
bókmenntafræði, femínisma, mál-
fræði og sálgreiningu, og hefur ver-
ið meðal áhrifamestu fræðimanna á
þeim sviðum, auk þess sem hún hef-
ur skrifað skáldsögur.
Kristeva harðneitar áburðinum
og segir um einskærar lygar að
ræða enda sé hún þekkt fyrir ádeilu
á alræðisstjórnir.
Búlgörsk stjórnvöld birtu þá á
föstudag á netinu meint skjöl sem
sanni njósnir Kristevu. Á hundr-
uðum blaðsíðna er greint frá sam-
tölum tengiliða við konu sem kölluð
er Sabine og er sögð vera Kristeva,
um menn og málefni í frönsku menn-
ingarlífi á þeim tíma. Ekkert skjal-
anna er þó undirritað af Kristevu
sem segir þetta vera tómar fals-
fréttir og hún sé ekki sú kona sem
vitnað sé til.
Kristeva neitar því
að hafa njósnað
Julia Kristeva
Hetjutenórinn fyrrverandi
og núverandi barítón, Plá-
cido Domingo, söng í lið-
inni viku í fyrsta sinn hlut-
verk föður Luisu Miller í
samnefndri óperu Verdis
við Metropolitan-óperuna í
New York. Var það 149.
óperuhlutverkið sem Dom-
ingo syngur á sviði. Hann
er nú 77 ára gamall og fyr-
ir löngu kominn á þann
aldur sem flestir óperu-
söngvarar setjast í helgan
stein.
Fjölmiðlar hafa síðustu
daga birt rýni um upp-
færsluna en Metropolitan-
óperan hefur ekki tekið
hana fram í yfir áratug, og
mun lengra er síðan, að sögn rýnis
The New York Times, Zachary Wo-
olfe, að hún hefur verið jafn áhuga-
verð og góð og nú.
Rýnirinn segir það einstakt í óp-
erusögunni að söngvari kominn á
þennan aldur haldi áfram að bæta
við sig nýjum hlutverkum, og þar að
auki á jafn áhrifamikinn hátt. Dom-
ingo hafi nú sungið barítónhlutverk
í ein tíu ár, og það ekki óumdeilt, en
stór hluti raddsviðs hans hafi þó elst
afar vel. Á lægra tónsviðinu, sem sé
mikilvægt í breidd barítónsöngvara,
geti röddin orðið óljós og hún geti
orðið „skýjuð“ í hröðum köflum. Það
hafi til að mynda bitnað á einum
þekktasta söng hlutverks hans í
Luisa Miller. Hins vegar hafi
frammistaða Domingos styrkst þeg-
ar leið á sýninguna og röddin hljóm-
að heilbrigð. Hvetur rýnir óp-
eruunnendur til að missa ekki af
Domingo í hlutverkinu, þeir muni
vart trúa augum sínum eða eyrum.
Þá hrósar hann sópransöngkonunni
Sonya Yoncheva fyrir frammistöð-
una.
Gagnrýnandi Observer í Bret-
landi, James Jorden, er sammála um
frammistöðu Yoncheva, og segir
hana bera af. Domingo segir hann
hins vegar sýna enn og aftur sterk
tök á stíl ópera Verdis, með því sem
sé nú „ekki mikið meira en minning
um rödd“.
Söngvararnir Plácido Domingo og Sonya Yoncheva
í Luisa Miller eftir Verdi í Metropolitan-óperunni.
Plácido Domingo frumflutti sitt 149.
óperuhlutverk í New York, 77 ára gamall
Ljósmynd/Chris Lee – Metropolitan Opera
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Þri 15/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn
Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn
Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Nýtt leikverk byggt á hrífandi skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur.
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Efi (Kassinn)
Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu Fös 6/4 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Faðirinn (Kassinn)
Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn
Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 33.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Þri 10/4 kl. 11:00
kirkjub.klaustur
Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss
Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið)
Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og
úlfurinn
Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og
Siggi
Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og
Siggi
Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get
ð
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna