Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
»Djasstríóið Hot Eskimos hélt tónleika á
Kex hosteli í gærkvöldi. Tríóið skipa þeir
Karl Olgeirsson píanóleikari, Jón Rafnsson
kontrabassaleikari og Kristinn Snær Agn-
arsson trommuleikari. Fluttu þeir eigin út-
setningar af þekktum popplögum úr ýmsum
áttum. Tríóið var stofnað árið 2010 og hefur
meðal annars sent frá sér plötuna Songs
from the top of the world.
Djasstríóið Hot Eskimos kom fram á Kex hosteli í gærkvöldi
Aðdáun Gestir kunnu vel að meta spilamennskuna og fylgduust með tónlistarmönnunum af athygli.
Taktur Góður tónn gerir það að verkum að sumir sitja eins.
Þægindi Fátt er betra á tónleikum en að láta fara vel um sig og njóta líðandi stundar.
Hot Eskimos Kristinn Snær Agnarsson, Jón Rafnsson og Karl Olgeirsson kunna sitt fag og komu viðstöddum í rétta gírinn.
Morgunblaðið/Hari
Barack Obama hlaut góðar viðtökur
í Chicago þegar hann í seinasta mán-
uði kynnti menningarmiðstöð sem
reist verður í hans nafni við Jackson-
garðinn á South Side-svæði borg-
arinnar. Hefð er fyrir því að reist
séu söfn eða menningamiðstöðvar í
nafni fyrrum Bandaríkjaforseta í
heimaríkjum þeirra. „Þetta á að
verða miðstöð breytinga fyrir South
Side og atvinnuskapandi, skapa
fleiri viðskiptatækifæri, tækifæri til
menntunar og auka von. Þetta er
okkar gjöf,“ sagði Obama og talaði
fyrir hönd þeirra Michelle Obama.
Samkvæmt frétt The Washington
Post líst íbúum bæjarhlutans þó
mátulega á uppbygginguna og ótt-
ast að framkvæmdirnar verði til
þess að sprengja upp húsnæðisverð
á svæðinu. Samkvæmt rannsókn
sem unnin var á vegum stofnunar
sem rannsakar húsnæðismál þurfa
um 14 þúsund heimili í nágrenni við
miðstöðina á félagslegum búsetu-
úrræðum að halda. Af þeim sökum
hefur á þriðja tug hagsmuna-
samtaka farið þess á leit við Obama-
stofnunina, bæjaryfirvöld Chicago
og Chicago-háskóla að gripið verði
til mótvægisaðgerða til að koma í
veg fyrir að bágur fjárhagur íbúa
neyði þá til að flytjast búferlum.
Meðal aðgerða væri loforð um að
eignaskattur myndi ekki hækka á
svæðinu og að framkvæmdaaðilar
ráði heimafólk til byggingastarfa.
Framkvæmdaaðilar vilja ekki ganga
að því. „Við munum ekki flæma íbúa
burt,“ segir Obama og bendir á að
framkvæmdirnar sem nema um
þremur milljörðum dala skapi 5.000
störf til framtíðar. „Ef húsaleigan [á
svæðinu] hækkar munu íbúar hafa
efni á henni sökum þess að þeir hafa
fengið vinnu,“ segir Obama.
Ljósmynd/DBOX fyrir Obama-stofnunina
Miðstöð Ráðgert er að Obama-
miðstöðin rúmist á 20 ekrum.
Uppbygging Obama
mætir mótstöðu
ICQC 2018-20