Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Rekstrarniðurstaða borgarsjóðs Reykjavíkur
var jákvæð um tæplega 5 milljarða á síðasta ári.
Er það nærri þrisvar sinnum betri niðurstaða en
gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Sameiginleg
rekstrarniðurstaða borgarsjóðs og fyrirtækja
borgarinnar var jákvæð um rúma 28 milljarða
sem er nærri tvöfalt betra en gert var ráð fyrir.
„Þetta sýnir ábyrgan rekstur borgarinnar,
að tekist hafi að ná vel utan um fjármálin,“ segir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Orkuveita
Reykjavíkur var stóra verkefnið framan af. Á
þessu kjörtímabili tókst okkur að snúa við
rekstri borgarsjóðs og nýta svigrúmið til að
bæta við fjárveitingar til skólanna, velferð-
armála og húsnæðismála. Við erum að njóta þess
núna að mikill kraftur er í uppbyggingunni. Svo
bætast einskiptistekjur vegna lóðasölu við hefð-
bundnar tekjur.“
Eyþór Laxdal Arnalds, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins, vekur athygli á því að um
einskiptistekjur er að ræða. Ef söluhagnaðarins
nyti ekki við væri tap á rekstri borgarinnar í
mesta góðæri Íslandssögunnar. Hann bendir á
að skuldir borgarsjóðs hafi vaxið um 15 milljarða
og handbært fé minnkað. „Reksturinn er ekki
sjálfbær til framtíðar. Þegar allt er dregið sam-
an lítur þetta út eins og nýsprautaður bíll sem á
að selja rétt fyrir kosningar,“ segir Eyþór.
Þrefalt meiri afgangur borgarsjóðs
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að borgarbúar séu að njóta uppbyggingarinnar
Eyþór Arnalds Sjálfstæðisflokki segir að rekstur borgarinnar sé ekki sjálfbær til framtíðar
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhús Frambjóðendur líta rekstraruppgjör Reykjavíkurborgar ekki sömu augum.
Ársuppgjör borgarinnar
» Ástæður fyrir betri rekstr-
arniðurstöðu borgarsjóðs skýr-
ast af hærri skatttekjum, hærri
framlögum Jöfnunarsjóðs,
hærri tekjum af sölu bygging-
arréttar og söluhagnaði fast-
eigna. Á móti kemur gjaldfærsla
vegna lífeyrisskuldbindinga.
» Helstu ástæður fyrir betri
niðurstöðu samstæðu Reykja-
víkurborgar og fyrirtækja henn-
ar eru tekjufærsla vegna hækk-
unar fasteignamats eigna
Félagsbústaða og lægri fjár-
magnsgjöld vegna framtíð-
arhagnaðar af raforkusamn-
ingum Orkuveitu Reykjavíkur.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reykjavíkurborg mun á næstu
vikum hefja viðræður við fyrirtæki
um uppsetningu biðskýla og auglýs-
ingastanda í borginni. Trúnaður
gildir um viðkomandi fyrirtæki.
„Þetta er heimild frá innkauparáði
borgarinnar til að viðhafa samnings-
kaup. Það komu engin tilboð og því
fáum við þessa heimild til að reyna
að ná samningum við áhugasama að-
ila á grundvelli útboðsgagna. Það er
aðili við borðið sem er að vinna í því
að skila inn tilboði, aðili sem ætlaði
sér að bjóða í verkið en náði ekki að
klára á sínum tíma,“ segir Þorsteinn
R. Hermannsson, samgöngustjóri
Reykjavíkurborgar. Hann kveðst
bundinn trúnaði um viðkomandi.
Fyrr í apríl var lagt fram erindi
frá umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar varðandi um-
rædda heimild, þar sem engin tilboð
bárust í opnu útboðsferli. Útboðið
var opnað fimmtudaginn 8. mars.
„Við munum fara yfir tilboðið og
meta hvort það sé fullnægjandi. Ef
það uppfyllir allar okkar kröfur, og
víkur ekki frá útboðsgögnum að
miklu leyti, þurfum við að fá heimild
innkauparáðs aftur til þess að ganga
til samninga við viðkomandi aðila.
Við förum í ferlið til að reyna að ná
samningum,“ segir Þorsteinn.
Hafa sex til níu mánuði
Hann segir aðspurður að skv. nú-
gildandi samningi hafi fyrirtækið
AFA JCDecaux sex til níu mánuði til
að taka niður grænu biðskýlin sem
fyrirtækið er með í borginni, ef nýr
aðili tekur verkefnið að sér. Núver-
andi samningur renni út 30. júní.
Stefnt er að því að setja ný skýli upp
um leið og þau gömlu eru fjarlægð,
eitt í einu. Þorsteinn segir borgina
ekki hafa heimild til breyta mikið frá
útboðinu. Ef frávik verða mikil í til-
boði muni borgin þurfa að efna til
annars útboðs á EES-svæðinu.
Reyna að semja um skýlin í borginni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Biðskýli við Lækjartorg Áformað er að skipta út hundruðum biðskýla.
Fulltrúar borgarinnar hefja viðræður um ný biðskýli fyrir strætisvagna Útboð skilaði ekki tilboði
Að óbreyttu verða núverandi biðskýli tekin niður smátt og smátt frá miðju sumri og ný sett í staðinn
Íslandsbikarkeppni Hjólreiðasambands Íslands
hófst í gærkvöldi með Morgunblaðshringnum í
fjallahjólreiðum. Ingvar Ómarsson og Halla
Jónsdóttir sigruðu í keppninni sem var á 6,8 kíló-
metra langri braut í nágrenni höfuðstöðva
Morgunblaðsins í Hádegismóum við Rauðavatn.
Ingvar stakk helsta keppinaut sinn af í þriðja
hring af fjórum. Halla fór fram úr keppinaut sín-
um á öðrum hring af þremur og hélt forskotinu.
Morgunblaðið/Hari
Átök í fyrstu hjólreiðakeppni ársins
Keppt í Morgunblaðshringnum í fjallahjólreiðum
Strandveiðifrumvarp atvinnuvega-
nefndar Alþingis var samþykkt í
gær. Það felur í sér breytingar á lög-
um um stjórn fiskveiða með það að
markmiði að auka öryggi sjómanna
og auka sveigjanleika í kerfinu.
Horfið er frá því kerfi að fastir fjórir
dagar í viku séu leyfilegir til strand-
veiða og sjómönnum gefst nú færi á
að velja þá 12 daga í mánuði sem ró-
ið verður. Fram kom við umræður
um málið á Alþingi að vonast er til
að þetta dragi úr hvata til þess að
róa í viðsjárverðum veðrum. Þá er
meðal annars aukið umtalsvert við
heildaraflaheimildir innan strand-
veiðikerfisins, eða um 1000 tonn,
auk þess sem ufsi er ekki talinn með
upp að hámarksafla í strandveiðum.
Bátum sem stunda strandveiðar
hefur fækkað síðustu ár. Í stjórn-
arsáttmála er kveðið á um að þróa
skuli strandveiðikerfið og eru þess-
ar breytingar tilraun í þá veru. Til
stendur að taka málið aftur upp í
haust og fara yfir árangurinn af
breytingunum.
Aukinn
sveigjanleiki
strandveiða
Aflaheimildir
auknar um 1000 tonn
Boðin voru út að lágmarki 210
biðskýli og að hámarki 50 aug-
lýsingastandar. Haft var eftir
Þorsteini Hermannssyni í byrjun
mars að verktaka yrði heimilt
að setja upp allt að 400 biðskýli
í borginni. Fjöldi skýla myndi
vega þungt þegar borgin veldi
verktaka til að setja upp og reka
biðskýli og auglýsingastanda.
Franska fyrirtækið AFA JCDe-
caux hefur rekið strætóskýlin í
borginni. Það á enga aðild að
núverandi samningaviðræðum.
Mest 400
FJÖLDI SKÝLA