Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 TÚNIKA 14.990.- Glæsilegar vorvörur Kringlunni 4c – Sími 568 4900 16.990.- JAKKI 9.990,- SKYRTA TIL SÖLU KAMÍNA DÖNSK HÖNNUN Kamínan er hönnuð í Óðinsvéum árið 1929 af virtasta framleiðanda Danmerkur. Ástand er gott og virkar vel. Engar skemmdir. Kamínan er staðsett í Reykjavík. Verðhugmynd: 850.000 kr. Stærð: Um það bil 190 cm. hafa Samband: Áhugasamir hafi samband á netfangið gullik87@gmail.com. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta mál hefur verið þvílík sorg- arsaga,“ segir Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri Hringrásar hf. Vísar hann í máli sínu til rússneska togarans Orlik sem legið hefur bund- inn í Njarðvíkurhöfn síðustu fjögur ár. Skipið er ryðgað og illa farið og þykir mikið lýti á svæðinu. Að sögn Daða keypti Hringrás skipið til niðurrifs fyrir mörgum ár- um. Til stóð að rífa það hér á landi en þá fengust ekki tilskilin leyfi, enda hafi reglur verið hertar til muna að hans sögn. Orlik hafi því dagað uppi í Njarðvík þar til Hringrás skipti um eigendur í fyrra. „Við fengum þetta í fangið með fyrirtækinu og höfum reynt að koma skipinu úr landi í rúmt ár, með misgóðum árangri,“ segir Daði. Síðasta sumar var skipið flutt til Hafnarfjarðar. Þar fór fram úttekt á botni skipsins til að hægt væri að fá það tryggt fyrir flutning yfir hafið. Skipið fékkst ekki tryggt og verður því ekki flutt héðan. Hringrás hafði svo gengið frá sölu á skipinu og þess var beðið að nýir eigendur mættu með dráttarbát til að sækja það. „En nýi eigandinn gekk úr skaftinu, hann hafði ekki fengið tilskilin leyfi til nið- urrifs,“ segir Daði. Yfirvöld í Reykjanesbæ hafa tals- verðar áhyggjur af veru Orlik í Njarðvíkurhöfn, enda hefur skipið tvisvar næstum slitið landfestar og einu sinni munaði litlu að skipið sykki. „Að mati hafnaryfirvalda er það spurning um tíma hvenær alvar- legt óhapp verður af veru skipsins í Njarðvíkurhöfn og því forgangsmál að finna varanlega lausn á þeim vandamálum sem togaranum fylgja,“ sagði í bókun á stjórnarfundi í Reykjaneshöfn. Þessi varanlega lausn verður að líkindum sú að Hringrás rífur skipið sjálft niður og hefur óskað eftir að- stöðu til þess í Helguvíkurhöfn. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ eru samþykk þessum áformum en það niðurrif verður ekki einfalt. Nýjustu vendingar eru þær að niðurrifið þarf að fara í umhverfismat. Í umsögn Umhverfisstofnunar segir að þar sem aðstæður til niður- rifs skipa séu ekki til staðar í Helgu- víkurhöfn geti framkvæmdin valdið umtalsverðum umhverfisáhrifum og sé því háð mati á umhverfisáhrifum. Meginhætta við framkvæmdina er talin vera í formi olíu- og efnameng- unar í jarðvegi fjörunnar í Helguvík. Talsvert magn hættulegra efna losn- ar við niðurrif skipsins, til dæmis úr- gangsolía, spilliefni frá rafgeymum, própan, freon og asbest. Þessi efni er að finna í tugum eða hundruðum kílóa í Orlik. Það var þungt hljóð í Daða, fram- kvæmdastjóra Hringrásar, þegar umhverfismatið barst í tal. „Það tek- ur held ég átján mánuði. Eitthvað verður að gera til að tryggja að skip- ið fari ekki niður á meðan.“ Augljóst er að Orlik hefur ekki gert annað en kosta peninga og fyr- irhöfn hjá Daða og hans fólki. „Við náum aldrei inn fyrir kostnaði í þessu máli. Þetta er bara vandamál fyrri eigenda sem við verðum að leysa.“ Niðurrif Rússatog- ara í umhverfismat  Togarinn Orlik hefur legið í Njarðvíkurhöfn síðan 2014 Ljósmynd/Víkurfréttir/Hilmar Bragi Ryðkláfur í Njarðvík Lítil prýði þykir að Orlik en hann verður að líkindum áfram á sínum stað enn um sinn. ISS Ísland hefur fjárfest í vél- menni sem mun sjá um skúringar í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði. Um er að ræða skúringavél frá svissneska fyrirtækinu Taski en Tandur hf. hefur umboð fyrir sölu slíkra véla á Íslandi. „Þetta er bara vélmenni sem þrífur gólf. Vélmennið þarf að læra hvernig á að ganga um rýmið, þannig það er gengið um með tækið og því er kennt hvað á að gera. Þegar það er búið að læra og fara um allt rýmið þarf bara að ýta á takka og tækið þrífur,“ segir Páll Sævar Guðjónsson, sölu- og þjónustu- fulltrúi, hjá Tandri hf. Hann segir vélmennið vera afar hentugt fyrir stór rými s.s. versl- unarmiðstöðvar, íþróttahús og flugstöðvar en erlendis eru slík vélmenni mikið notuð á spítölum og flugvöllum. Spurður hvort hann telji að innflutningur á slík- um vélmennum muni leiða til upp- sagnar á ræstingarstarfsfólki seg- ir hann það óhjákvæmilegt að svo sé. „Þessu fylgir auðvitað starfs- mannasparnaður, en það hefur verið erfitt að ráða í fólk í ræst- ingar þannig að þetta hjálpar til á öllum leiðum. Aðalatriðið er að þetta nær góðum árangri, því góð þrif á stórum svæðum eru erfið nema með aðstoð frá vélum.“ Tækin eru dýr en Páll segir að fjárfesting í slíku vélmenni borgi sig á einu til tveimur árum. „Ef þú þarft að ræsta rými sem eru fleiri þúsund fermetrar þarftu mannskap og tæki til þess en þetta tæki leysir þetta allt saman af hólmi.“ mhj@mbl.is Vélmenni skúrar Hvaleyrarskóla Morgunblaðið/Valli Hreingerningar Vélmennið var prufukeyrt í Hvaleyrarskóla í gær.  ISS Ísland fyrst til að nóta vélmenni í ræstingar  Hentugt fyrir stór rými

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.