Morgunblaðið - 27.04.2018, Page 28

Morgunblaðið - 27.04.2018, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 ✝ Guðný LindaÓladóttir fædd- ist 2. október 1971. Hún lést á Land- spítalanum 17. apríl 2018. Foreldrar henn- ar eru Óli Már Guð- mundsson, f. 24. júní 1940, d. 21. mars 1997, og Hrefna Guðmunds- dóttir, f. 9. septem- ber 1944. Bræður hennar eru Klemens Arnarson, f. 5. janúar 1968, og Guðmundur Loftur Ólasson, f. 21. febrúar 1976. Eftirlifandi maki Guðnýjar Lindu er Markús Hallgríms- son, f. 13. janúar 1966. Börn þeirra eru Hallgrímur, f. 1. júlí 1988, og Magnea Sif, f. 4. desember 1997. Hún átti þrjú barnabörn, þau eru: Róbert Máni, Markús Júlían og Bríanna Rós Hallgrímsbörn. Útför Guðnýjar Lindu fer fram frá Neskirkju í dag, 27. apríl 2018, klukkan 13. Þriðjudagurinn 17. apríl er mikill sorgardagur fyrir okkar fjölskyldu, þegar eiginkona mín Guðný Linda Óladóttir lést á Landspítalanum eftir stutt veik- indi. Guðný fæddist í október 1971 og hún var hrókur alls fagnaðar hvar sem hún fór og var elskuleg manneskja. Leiðir okkar lágu saman árið 1996 og byrjuðum við búskap nokkrum mánuðum seinna. Hallgrímur sonur minn var strax í miklu uppáhaldi hjá Guðnýju enda tók hún hann sem sinn eigin og svo fæddist Magnea Sif dóttir okkar árið 1997, hún var augasteinn móður sinnar. Guðný var alltaf ákveðin og hafði mikil áhrif á líf mitt og hvatti mig áfram, sem varð til þess að ég fór í flug- virkjanám í Tulsa í Bandaríkj- unum árið 2000. Þar bjuggum við í tvö ár öll saman og Guðný stundaði nám í Tulsa Comm- unity College á þessum árum. Næsti stóri kafli í lífi okkar var þegar Guðný fékk inngöngu í Sussex University í Englandi árið 2002 og bjuggum við í Brighton, þar sem Guðný hafði áður verið au pair hjá yndislegri fjölskyldu sem hún var alltaf í sambandi við. Á þessum þremur og hálfa ári sem við bjuggum í Brighton eignuðumst við frá- bæra vini til lífstíðar. Við flutt- um heim til Íslands árið 2005 eftir að ég fékk vinnu sem flug- virki og Guðný vann við skrif- stofustörf fram að 2011 en hætti að vinna vegna lungnaveikinda. Þrátt fyrir mikil veikindi var hún samt sem áður mikil sel- skapsmanneskja og mikill gleði- gjafi. Líf Guðnýjar breyttist í ágúst 2014 þegar hún fékk ann- að tækifæri á nýju lífi með lungnaígræðslu í Svíþjóð eftir árs bið. Þessi þrjú og hálft ár voru mjög viðburðarík hjá okk- ur. Við ferðuðumst mikið er- lendis sem innanlands enda var það draumur hennar að ferðast og sjá heiminn. Á þessum árum var hún kosin formaður Sam- taka lungnasjúklinga og sat í stjórn Öryrkjabandalags Ís- lands ásamt setu í nefndum SÍBS og áttu þau störf hug hennar og hjarta. Eiginkona mín Guðný Linda gerði mig að þeim manni sem ég er í dag og er ég endalaust þakklátur fyrir þessi 22 ár sem við fengum sam- an. Við munum sakna þín að ei- lífu ástin mín og „ég elska þig út í geim, í kringum sólina og aftur heim“, eins og þú sagðir oft við Magneu dóttur okkar. Hvíldu í friði elsku ástin mín. Þinn eiginmaður Markús Hallgrímsson og börn. Til Guðnýjar Lindu dóttur minnar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. Kveðja, mamma. Það er til lítill harðgerður fugl, alpasvölungur, sem talinn er ein harðgerðasta dýrategund á jörðinni. Þessi litli fugl, sem sjaldan hættir sér hingað til lands, berst á móti vindinum, í hvaða veðri sem er í allt að sex mánuði án þess nokkurn tíma að unna sér hvíldar, hvað þá stíga til jarðar. Þessi einstaki eigin- leiki þessa fallega fugls, að berj- ast áfram og gefast ekki upp þótt veður séu válynd og dökkir skýjabólstrar allt um kring, lýs- ir í mínum huga persónuleika og karaktereinkennum systur minnar sem nú er fallin frá langt um aldur fram. Það þarf sérstakan karakter til að berjast í gegnum þá sjúkrasögu sem systir mín barð- ist í gegnum hin síðari ár. Í mörg ár var barist við sjálfs- ofnæmi sem hægt og hljótt eyði- lagði alla virkni í lungum. Sú vegferð var oft á tíðum mjög erfið en endaði samt á svo ljúf- sáran hátt þegar hún naut ein- stakrar fórnfýsi líffæragjafa sem blés í burt öllum óveðurs- skýjum hennar og gaf henni áframhaldandi líf. Sem var svo eintakt. Lífið er jú gjöf, í raun stærsta gjöf sem hver fær, og systir mín tók því opnum örmum eftir lungnaskiptin. Hún hafði varla tíma til að taka pappírinn af pakkanum, enda þolinmæði nokkuð sem öðrum var gefið. Nú skyldi „liffa og njóta“. Brölt var út um allt – bæði innanlands og utan, með einn tvífættan eða einn fjórfættan lafmóðan í eft- irdragi. Allt skyldi gert í öðru eða þriðja veldi enda læðist að manni sá grunur að hún hafi alltaf vitað að þau spil sem hún hafði á hendi myndu nú ekki fleyta henni langt. Hin síðari ár hefur systir mín verið óþreytandi í því að vinna fyrir ýmis líknarsamtök enda upplifað það á eigin skinni hvað það óeigingjarna starf sem þar fer fram skiptir miklu máli. Hún gaf af sér eins og hún gat til annarra sem stóðu frammi fyrir þeim áskorunum sem hún hafði þurft að berjast í gegnum hin síðari ár. Sú fórnfýsi skipti hana öllu máli og mótaði að miklu leyti lífssýn hennar, sem síðan varð grunnurinn í lífsstarfi hennar. Það eru um margt nöturleg og svo óendanlega ósanngjörn örlög að lúta í lægra haldi fyrir krabbameini á nokkrum vikum, þegar búið er að berjast við annan vágest í mörg ár og rétt merja sigur. Að ná 46 árum þeg- ar lífaldur hennar kynslóðar verður örugglega rúmlega 90 ár er sorgleg staðreynd. En samt er þetta veruleikinn sem við okkur blasir. Kæri Markús. Ég veit að missir þinn er mikill. Ég vil þakka þér fyrir einstaka fórn- fýsi og þrautseigju í gegnum öll árin og veikindin. Það er gott til þess að hugsa að þið náðuð að lifa lífinu að fullu síðustu þrjú árin og þú fékkst aftur að upp- lifa lífið í sinni fallegustu mynd með systur minni. Það eru ekki margir sem hefðu gengið í gegn- um þennan langa kræklótta stíg með jafn miklu æðruleysi og þrautseigju og þú. Þú hefur alla mína virðingu fyrir það. Hvíl í friði, elsku systir. Klemens. Elskuleg frænka mín, Guðný, lést langt um aldur fram þriðju- daginn 17. apríl síðastliðinn. Þegar ung kona er kvödd og hefur barist hetjulegri baráttu við æðri öfl og tapað setur mann hljóðan og maður upplifir einnig reiði yfir óréttlátum örlögum. Hún Guðný frænka mín hafði reynt svo margt síðustu árin og sigrast á erfiðleikum á aðdáun- arverðan hátt. Ég dáðist að æðruleysi hennar og dugnaði. Hún hafði fengið annað tækifæri í lífinu, var svo yfirmáta þakklát fyrir það og lifði lífinu til fulls síðustu árin. Því er það svo óréttlát að hún hafi fengið ann- an banvænan sjúkdóm sem lagði hana að velli á ótrúlega skömm- um tíma. Ég og Guðný ólumst upp næstum eins og systur í Vestur- bænum, aðeins örfá hús á milli heimila okkar. Og þegar við vor- um litlar voru margir sem héldu að við værum einmitt systur, bæði vegna þess hve mikið við vorum saman en einnig vegna þess að við vorum taldar líkar. Æskan leið við leik og gleði og við brölluðum ýmislegt saman í góðra vina hópi. Guðný var tveimur árum eldri en ég en leyfði yfirleitt þessari litlu frænku sinni að fylgja með án þess að kvarta yfir því, allavega þannig að ég yrði vör við. Mörg sumur fékk ég til dæmis að fylgja henni í sumarbúðir norð- ur í land þar sem Ægir frændi sem var jafngamall Guðnýju tók á móti okkur og við þríeykið vorum ávallt miklir og góðir vinir. Við eyddum alltaf miklum tíma saman hjá ömmu okkar sem var okkar besti vinur, ætt- móðirin sem dró alla í fjölskyld- unni saman, þar sem allir vildu koma og drekka kaffi, fá mjólk- urkex eða möndluköku og þar hittumst við Guðný yfirleitt dag- lega. Þegar við vorum unglingar breyttist vinskapurinn aðeins, aldursmunurinn skipti enn minna máli og ef eitthvað var urðum við nánari. Við tók skemmtilegur tími þar sem við unnum saman, skemmtum okk- ur saman og ferðuðumst saman. Þegar við svo fullorðnuðumst breyttust hlutirnir eins og oft gerist og hjá okkur varð fjar- lægðin meiri, en væntumþykjan og gleðin þegar við hittumst alltaf til staðar. Við systkina- barnahópurinn höfum alla tíð búið að þeim miklu tengslum og vináttu sem sköpuðust á heimili ömmu okkar, svo miklum að oft hefur þótt eftirtektarvert. Við höfum sem betur fer lagt rækt við að viðhalda þessum tengslum og enginn var dug- legri en Guðný við að passa upp á það. Reglulegir hittingar skipulagðir víðs vegar um heim- inn og hún yfirleitt potturinn og pannan í því. Það er mikið skarð í hópi okkar nú og mikill sökn- uður en ég veit að við erum ákveðin í að passa að halda áfram að rækta tengsl okkar og minnast okkar yndislegu frænku. Tilfinningar mínar titra og tárakirtlarnir eru barmafullir þegar ég kveð frænku mína allt, allt of snemma. Elsku Markús, Magnea, Halli, Hrefna, Klemens og Gummi, innilegar samúðar- kveðjur, minning um yndislega konu mun lifa. Saknaðarkveðja. Sólrún Kristjánsdóttir. Óréttlæti! Það var það fyrsta sem kom í huga minn þegar mér var tilkynnt um andlát vinkonu minnar Guðnýjar Lindu Óla- dóttur. Guðný hafði barist hetjulega við sinn lungnasjúk- dóm, fengið ný lungu og nýtt tækifæri til að taka þátt í lífinu, en fékk ekki að njóta nema í þrjú og hálft ár. Guðnýju kynntist ég í Vesturbæjarskóla. Leiðir okkar lágu ekki mikið saman í byrjun en í Hagaskóla myndaðist með okkur vinskapur og vinkvenn- ahópur sem hefur haldist síðan. Guðný kynntist klettinum sín- um, Markúsi, og syninum Halla og hófu þau sambúð í Kópavogi. Stuttu seinna eignuðust þau Magneu Sif. Ekki leið á löngu áður en að fjölskyldan flutti til útlanda. Ekki hafði það áhrif á samskiptin og oft urðu símtölin ansi löng. Stundum hafa sam- skiptin verið lítil, stundum meiri, en síðustu ár hefur vin- skapurinn verið mikill og ein- lægur. Guðný var hörkutól, kraft- mikil, ákveðin, hafði sterka rödd og líka réttlætiskennd. Hún lá ekki á skoðunum sínum og tjáði þær þegar hún vildi að þær heyrðust. Guðný var sönn vin- kona, hrein og bein og góður hlustandi. Þegar Guðný veiktist fyrir nokkrum árum var hún stað- ráðin í því að breyta heiminum ef hún fengi tækifærið til þess, og það gerði hún heldur betur. Hún varð formaður Samtaka lungnasjúklinga og hafði áhrif á marga til að skrá sig sem líf- færagjafa. Guðný naut þess að ferðast og hitta fólk. Við fjölskyldan og vinir fengum að njóta tímans með henni töluvert undanfarin ár. Ferðirnar okkar til Barce- lona, Parísar, Krakár og Þakgils eru ógleymanlegar, auk allra göngutúranna. Zumba- og jóga- tímarnir verða tómlegri en áður. Við munum sakna hennar sárt. Elsku Markús, Magnea Sif, Halli, Hrefna og fjölskylda. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, Guðný mun lifa í hjört- um okkar allra um ókomna framtíð. Katrín, Ómar og fjölskylda. Fyrir tveimur árum var Guðný Linda kosin formaður Samtaka lungnasjúklinga. Hún kom með ferskan blæ inn í félag okkar og var einstaklega áhuga- öm um velgengni félagsins og félagsmanna. Guðný sat í ýms- um nefndum á vegum samtak- anna, t.d. í stjórn SÍBS og fleiri. Hæfileikar og frumkvæði Guð- nýjar nutu sín vel innan samtak- anna, sem við þökkum og mun- um minnast hennar fyrir. Samtök lungnasjúklinga senda Markúsi, Magneu, Hall- grími og barnabörnum, einnig öðrum aðstandendum, innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd stjórnar Samtaka lungnasjúklinga, Aldís Jónsdóttir. Kveðja frá SÍBS Fram undan var sumarið og tilhlökkun þegar lóan, spóinn og krían og aðrar vængjaðar tón- listarverur fá einar rofið kyrrð- ina í sveitasælunni. Vorið breyttist skyndilega í vetur þeg- ar dánarfregn Guðnýjar Lindu barst okkur. Nú er litrófið breytt og birtan hefur dofnað. SÍBS syrgir góðan félaga og máttarstólpa í starfi. Skarð er fyrir skildi í Samtökum lunga- sjúklinga þar sem Guðný starf- aði sem formaður af miklum eldmóð áður en kallið mikla kom. Nú þegar himnafaðir kallar hana á sinn fund þá sitjum við hin eftir hljóð og ringluð. Hvernig má þetta vera? Það er enginn sanngirni í því að ung kona falli frá í blóma lífsins. Við trúum því samt að þeir sem deyja séu ekki horfnir. Þeir eru aðeins komnir á undan. Hugsanir um liðna tíð brjót- ast fram, um þá gleði sem Guðný var okkur öllum og það sem er komið í stað, sorgina. Eðlilega koma minningar upp á yfirborðið s.s. stjórnarfundir SÍBS þar sem Guðný var ávallt staðföst og lagði fram mál sitt af rökfestu og sanngirni. Jólafögn- uður fyrir starfsfólk og stjórn SÍBS í desember síðastliðnum eru góðar minningar. Hún talaði svo fallega um eiginmann sinn og hversu mikils virði hann væri henni. Hann var hennar besti félagi. Hún lagði greinilega mik- ið upp úr fjölskyldulífinu. Ekki var hægt annað en að þykja vænt um Guðnýju, bara fyrir þá mannkosti sem hún bar. Hún var áhugasöm um líf og til- veru fjölskyldu sinnar, ættingja og vina sinna. Guðný var hrein- lynd, hógvær og heiðarleg manneskja en um leið glaðvær og einlæg. Í nálægð hennar leið manni vel. Líkt og sólin breiddi Guðný birtu og yl til samferða- manna sinna. Hún hafði skoð- anir á mönnum og málefnum og setti mál sitt vel fram og var sanngjörn. Guðný var áhugasöm um vel- ferð þeirra félaga og einstak- linga sem störfuðu með henni. Samtök lungnasjúklinga voru henni mikils virði. Hún lagði sig alla fram og átti mikinn þátt að byggja upp þá dagskrá sem var orðin umfangsmikil þegar hún féll frá. Félagar í SÍBS og aðildar- félögum kveðja góðan félaga með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Sorgin er mikil og sendum við fjölskyldu hennar dýpstu sam- úðarkveðju. Mannsandinn líður ekki undir lok, minning um góða manneskju lifir í hjarta og minni. Líkt og sólin sem virðist ganga undir, en alltaf heldur áfram að lýsa. Sveinn Guðmundsson, formaður SÍBS. Guðný Linda Óladóttir ✝ Þórólfur Þor-steinsson fædd- ist á Innri-Kleif í Breiðdal 24. janúar 1935. Hann lést á heimili sínu, Laugartúni 19a á Svalbarðseyri, 12. apríl 2018. Foreldrar hans voru Þorsteinn Sig- tryggsson, f. 1900, d. 1967, og Aldís Sigurgeirsdóttir, f. 1896, d. 1988. Systkini Þórólfs: Sig- tryggur, f. 1929, d. 2014, Árný Elsa, f. 1933, hálfbróðir: Stein- grímur Vigfússon, f. 1918, d. 1975. Þórólfur kvæntist 27. desem- ber 1964 Önnu Jóhannesdóttur frá Hóli í Höfðahverfi, f. 1944. Foreldrar hennar voru Jóhann- es Jónsson og Sig- rún Guðjónsdóttir. Dætur Þórólfs og Önnu eru: 1) Þórdís, f. 9. ágúst 1965. Eiginmaður hennar er Þorvald- ur Vestmann, f. 1963. Börn Þórdís- ar: Eva Dís Guð- mundsdóttir, f. 1987, og Bjarki Þór Guðmundsson, f. 1990. Eva Dís á soninn Daníel Snæ, f. 2013, og Bjarki Þór dótt- urina Aríönu Ísis, f. 2015. 2) Árný Sveina, f. 16. júlí 1969. Eiginmaður hennar er Tryggvi Jónsson, f. 1965, og dóttir þeirra Anna Stella, f. 2000. Útför Þórólfs fer fram frá Svalbarðskirkju í dag, 27. apríl 2018, klukkan 13.30. Kynni okkar Þórólfs Þor- steinssonar hófust fyrir um það bil 70 árum þegar hann fluttist með foreldrum og systkinum úr Breiðdal, að Hvalnesi við Stöðv- arfjörð, þar sem þau bjuggu í nokkur ár, en fluttu síðar yfir í kauptúnið. Tóti byrjaði mjög ung- ur að vinna, eins og títt var á þeim árum. Fyrst við búskapinn, en síðan réðst hann til sjóróðra á trillubáti með þekktum aflamanni og sjósóknara, Þorgrími Vil- bergssyni á Stöðvarfirði, og vann hjá honum bæði á sjó og í landi um nokkurt skeið. En lífið var ekki bara vinna, Tóti var virkur þátttakandi í leikjum og ærslum æskunnar á Stöðvarfirði, þegar hlé varð á róðrum og annarri vinnu og/eða skóla. Hann hefur líklega verið 16 ára þegar hann tók þá sjálfstæðu ákvörðun að ráða sig í kaupavinnu norður til Eyjafjarðar. Lengst var hann kaupamaður á Skipalóni, eða 13 ár, og vann þá stundum utan heimilis, og við Eyjafjörð bjó hann og starfaði alla tíð. Hann vann á ýmsum stöðum bæði á sjó og í landi, eftirsóttur enda bæði hagur og duglegur. Endurminn- ingar mínar um samveru okkar Tóta á sumarmánuðum 1984 og 85, þegar við rerum saman á trillubáti sem ég átti á Stöðvar- firði, fiskuðum vel og ræddum margt, hér vorum við sannarlega á heimavelli, við rifjuðum oft upp þennan tíma. Tóti var gæfumaður í einkalífi. Hann kvæntist 27.12. 1964 Önnu Jóhannesdóttur frá Hóli í Grýtu- bakkahreppi. Þau bjuggu nánast allan sinn búskap á Svalbarðs- eyri, fyrst í Sunnuhvoli, en í bíl- skúrnum þar rak Tóti verkstæði um nokkurt skeið. Þau byggðu sér síðar íbúð í raðhúsi í Laugat- úni 19a og fluttu þangað 1980. Ár- ið 1995 lentu þau hjón í alvarlegu rútuslysi í Hrútafirði og slösuðust bæði, en hann þó enn verr. Ég held að Tóti hafi í raun aldrei bor- ið sitt barr eftir það. Gagnkvæmar heimsóknir fjöl- skyldna okkar eru fjölmargar í gegnum tíðina og fyrir þær er nú þakkað af heilum hug. Tóti spilaði oft fyrir okkur á harmónikuna og sungum við gjarnan hér fyrr á ár- um, þá var gjarnan skálað. Ég rifja einnig upp eitt sinn þegar ég kom til þeirra Tóta og Önnu. Ég stoppaði hjá þeim í nokkra daga en þegar ég fór tók ég hann með og við fórum norður um og gistum fyrir sunnan en héldum svo áfram ferðinni til Hafnar, þar sem hann stoppaði hjá mér í nokkra daga. Þegar lagt var upp í þessa ferð vorum við vel nestaðir af neftób- aki, sem við notuðum á þeim tíma báðir, og allar eldhúsrúllubirgðir heimilisins fyrir norðan hurfu. Þær Anna og Þórdís grínuðust oft með að ég hefði rænt Tóta. Einkar ljúft er að minnast síðustu samverustunda okkar síðastliðið haust, þegar við Þórey heimsótt- um þau hjónin í sumarhús við Eiðavatn, en þá náðum við að fara öll saman í mjög góðu veðri niður yfir Breiðdalsheiði um Breiðdal og Stöðvarfjörð. Ég og fjölskyldan öll sendum Önnu, Þórdísi, Árnýju Sveinu og þeirra fjölskyldum hjartans sam- úðarkveðjur. Kæri vinur, við hittumst síðar. Björn Kristjánsson (Bjössi). Þórólfur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.