Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
Svövu kynntist ég
fyrir tæpum 60 árum
þegar ég fór að venja
komur mínar á Bald-
ursgötu 7 þegar við
Gylfi bróðir hennar
vorum að kynnast.
Á Baldursgötu 7, sem var
stórt og mikið fjölskylduhús,
bjuggu fjórar kynslóðir, nánast
allt föðurfólkið þeirra.
Á þessum árum bjó Svava
þarna ásamt börnum sínum
tveim og var þá nýskilin við
mann sinn.
Það var mikill fengur fyrir
mig að kynnast öllu þessu ágæta
fólki en ég var eina barn for-
eldra minna svo ég naut mín í
margmenninu.
Það var mikill aldursmunur á
þeim systkinum, eða 17 ár, það
má því segja að Svava hafi kom-
ið töluvert að uppeldi Gylfa og
Svava
Felixdóttir
✝ Svava Felix-dóttir fæddist 3.
apríl 1922. Hún lést
14. apríl 2018.
Útför Svövu fór
fram 25. apríl 2018.
voru margar
skemmtilegar sög-
ur sagðar af þeirri
viðureign. Svava
var einstaklega vel
gerð manneskja,
umtalsfróm, rétt-
sýn og góð við
alla, hugsaði vel
um fólkið sitt og
stóð sig vel sem
einstæð móðir og
útivinnandi alla
tíð.
Svava var alltaf dálítið stelpu-
leg, hávaxin, grönn og kvik í
hreyfingum, var alltaf kát og
kunni að segja skemmtilega frá
og var þá oftar en ekki að gera
grín að sjálfri sér, hafði góða
nærveru.
Fjölskyldan var samheldin og
voru margar gleðistundir sem
við áttum með Svövu, fastur lið-
ur var lengi vel að fagna áramót-
um saman ásamt foreldrum
hennar og börnum á heimili okk-
ar Gylfa. Svava reyndist foreldr-
um sínum einstaklega vel og
hlúði að þeim alla tíð.
Góð frænka var hún börnum
okkar Gylfa, fylgdist vel með
öllu í okkar fjölskyldu og gladd-
ist með á tímamótum.
Var hún alla tíð í miklu uppá-
haldi hjá okkur, var sko frænkan
með stóru „fi“.
Vil ég þakka Svövu mágkonu
minni fyrir samfylgdina sem
aldrei bar skugga á
Hvíl í friði.
Jóhanna Oddgeirsdóttir.
Svava var stóra systir
mömmu minnar og var hún
ávallt eins og önnur móðir mín.
Hún afsakaði sig oftar en einu
sinni við móður mína þegar hún
var búin að vera eitthvað að
skamma okkur systkinin og
sagði að hún gleymdi því alltaf
að hún ætti okkur ekki!
Þegar ég var lítil kallaði ég
hana ávallt „ball-mömmu“ því ég
fékk að vera hjá henni þegar
foreldrar mínir fóru út að
skemmta sér. Það var alltaf glatt
á hjalla heima hjá henni í Ból-
staðarhlíðinni.
Þar var alltaf full dagskrá í
gangi. Kvöldið byrjaði ávallt inni
í eldhúsi þar sem hún poppaði
handa okkur og svo sátum við
hlið við hlið á sófanum inni í
stofu og horfðum á kvikmynd í
sjónvarpinu og borðuðum popp.
Svava elskaði bíómyndir og
þekkti alla Hollywood-leikarana
og sagði mér sögur af þeim sem
hún hafði lesið í dönsku blöð-
unum sem voru alltaf inni við
rúm hjá henni.
Svo 20 árum síðar eru þær
systur komnar til Hollywood og
keyra eins og herforingjar á lít-
illi Hondu Civic á milli okkar
Siggu systur minnar í Los Ang-
eles þar sem við erum báðar bú-
settar.
Það var heilmikið plan í
kringum þetta þar sem þær voru
báðar komnar vel á aldur og við
í mikilli bílaborg. Svo það var
hringt á milli og tilkynnt þegar
þær voru að leggja í hann og svo
aftur tilkynnt hinum megin þeg-
ar þær voru komnar á áfanga-
stað. Við Sigga vorum orðnar
ansi stressaðar einu sinni þegar
þær voru ekki komnar til mín á
tilteknum tíma.
Það voru engir gemsar þá svo
ekki var hægt að hringja í þær.
Svo loksins koma þær og höfðu
lent í smáóhappi. Það hafði verið
keyrt aftan á þær en enginn
meiddur og engar skemmdir á
bílnum. Svo þær brenndu bara
af stað aftur. Þessi bílferð þeirra
er ákveðinn samhljómur fyrir
lífsferð þeirra beggja.
Þær stóðu ávallt saman eins
og klettar, stöppuðu stálinu hvor
í aðra og heldu svo áfram
ótrauðar.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
þær systur fóru til okkar Siggu
og kom þá aldrei annað til
greina en að Svava og mamma
kæmu báðar enda með eindæm-
um nánar og eigum við ófár
minningar úr heimsóknum
þeirra. Það var alltaf svo gott að
vera í nálægð Svövu því hún var
svo lífsglöð og auðvelt að tala við
hana um alla heima og geima.
Hún var svo góð og komst beint
inn í hjartastað hjá öllum sem
hún hitti.
Allan sinn starfsferil vann
hún hjá Tollstjóra og jafnframt
því að vinna fulla vinnu var
Svava einstæð móðir og ól upp
tvö yndisleg börn, Guðrúnu og
Jón, á tollstarfskonulaunum.
Þótt launin hafi ekki verið há, þá
var hún rík því Guðrún og
Nonni, eins og hann er ávallt
kallaður, eru vel gift og eiga
dásamleg börn og barnabörn.
Í síðasta skipti sem ég hitti
Svövu var hún komin á Grund
og sat frammi að horfa á gamla
Hollywood-mynd í sjónvarpinu
eins og við höfðum svo oft gert
saman. Hún ljómaði öll þegar
hún sá mömmu og þær sátu og
skiptust á sögum um löngu liðna
tíð.
Frá Los Angeles sendum við
Sigga systir og fjölskyldur okkar
innilegar samúðarkveðjur til
Guðrúnar og Sófa, Nonna og
Gullu, barna þeirra og barna-
barna.
Heba Þórisdóttir.
✝ Guðmundur Jó-hannsson
fæddist í Reykjavík
30. janúar 1950.
Hann lést 13. apríl
2018.
Foreldrar hans
voru Ragnheiður
Guðmundsdóttir
frá Reykjavík, f.
1926, d. 2009, og
Jóhann Magnússon
frá Tungu í Tálkna-
firði, f. 1927, d. 1952. Ragnheið-
ur giftist síðar Jóhannesi Vil-
helm Hansen Ólafssyni, f. 1922,
d. 2007, og gekk hann Guð-
mundi í föðurstað.
Systkini Guðmundar eru
Ólafur Davíð Stefán, f. 1957,
Sigríður, f. 1958, og Jón, f. 1961.
Árið 1971 kvæntist Guð-
mundur Herdísi Sigurjóns-
dóttur, f. 1949. Börn þeirra eru:
1) Ragnheiður, f. 1970, maki
Sigtryggur Klemenz Hjartar, f.
1970. Börn þeirra eru: a) Hjört-
ur Páll, f. 1993, sambýliskona
hans er Tanne
Nörgaard, f. 1991,
b) Herdís Helga, f.
1995, c) Halldór
Klemenz, f. 2000,
og d) Helena Krist-
ín, f. 2011, öll bú-
sett í Kaupmanna-
höfn og 2) Kristín,
f. 1972.
Guðmundur
stundaði sjó-
mennsku frá unga
aldri og útskrifaðist úr Stýri-
mannaskólanum 1971 og eftir
það starfaði hann ýmist sem
stýrimaður eða skipstjóri. 1981
hætti hann til sjós og hóf nám í
pípulögnum og starfaði sem
slíkur til ársins 2017. Hugur
hans leitaði þó alltaf aftur á sjó-
inn og árið 1991 keypti hann sér
trillubátinn Hafstein HF-246 og
réri á honum yfir sumartímann
þar til 2006.
Úför Guðmundar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag,
27. apríl 2018, klukkan 11.
Vor í lofti, sumarið framund-
an og líður að því að hjólhýsin
séu tekin úr geymslu eftir vet-
urinn, þá kemur þetta símtal
þar sem fregnin um að Guð-
mundur pípari vinur okkar og
ferðafélagi sé dáinn. Þessi fregn
kom okkur öllum í opna skjöldu,
áttum við að trúa því að þessi
góði drengur sem Guðmundur
var verði ekki lengur á meðal
okkar, sú er víst raunin því mið-
ur.
Sem ferðafélagi var Guð-
mundur ómissandi, skemmtileg-
ur, hjálpsamur og úrræðagóður.
Að hugsa til þess að Guð-
mundur verði ekki með okkur
framar er sárt og komum við til
með að sakna hans á komandi
ferðalögum.
Elsku Dísa og fjölskylda, okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur
og megi guð gefa ykkur styrk
vegna fráfalls Guðmundar.
Ferðafélagar margra undan-
farinna ára,
Gunnlaugur og Lovísa,
Sæmundur og Þórunn,
Ástgeir og Arnbjörg,
Óskar og Elín, Sigurður
Valur og Margrét.
Guðmundur
Jóhannsson
✝ HrafnhildurJónsdóttir
fæddist á Dalvík
29. janúar 1939.
Hún lést á krabba-
meinsdeild LSH
13. janúar 2018.
Hún var yngst
barna Sigur-
bjargar Ágústs-
dóttur húsmóður
og Jóns Arngríms-
sonar, fiskmats-
manns. Hún gekk í Dalvík-
urskóla og óx upp við leik og
störf, svo sem barnapössun,
síldarsöltun o.fl. Hún fór ung að
heiman til Reykjavíkur og
stundaði þar verslunarstörf, svo
sem í Melabúðinni og Tísku-
versluninni Markaðnum. Síðan
lá leiðin til Kaupmannahafnar
til náms í gluggaskreytingum,
auglýsingatækni og
verslunarskreyt-
ingum, hún vann
svo við fagið í
Reykjavík.
Árið 1964 giftist
hún Davíð Haralds-
syni, hönnuði og
sjómanni. Þau
fluttu til Dalvíkur
og síðan lá leiðin til
Akureyrar þar sem
var húsmóðir og
stundaði verslunarstörf. Þau
hjónin eignuðust þrjú börn. 1)
Rut, f. 21. júní 1965, d. 9.5.
1968. 2) Haraldur, f. 13.5. 1970,
og 3) Hrafn, f. 20.8. 1972, d.
26.3. 2000.
Árið 1995 lá leiðin aftur til
Reykjavíkur, á Kleppsveg 52.
Útförin fór fram í kyrrþey
29. janúar 2018.
Við minnumst Hrafnhildar
með ljóði eftir son hennar, Hrafn
Davíðsson, betur verður það ekki
gert.
Þú læðist gegnum lífið,
stráir góðmennsku þinni kringum þig,
gefur af þér þó að mótbáran sé stór
börn þín og litlu börn þeirra dafna
vel undir vængjum þínum.
Í gegnum lífið hefur vænghaf þitt
verið mikið og hlýja þín hefur streymt
frá þér í fang þeirra
sem hafa komist í tæri við nálægð
þína,
litu börnin barna þinna hafa notið
þess
að hvíla undir vængjum þínum og við
hlýju hjarta þíns.
Þú hefur gefið af þér allt sem þú átt og
oft meira til
brunnur hlýju þinnar virðist
ótæmandi
og hjarta þitt stærra en himinhvolfið
heilræði þín koma alltaf á þeim tímum
sem þeirra er þörf til þeirra
sem þurfa á þeim að halda.
Nálægð þín er ómetanleg og mun
aldrei gleymast.
Börn þín og litlu börn þeirra hafa
dafnað
vel í hlýju þinni
þú læðist í gegnum lífið, stráir góð-
mennsku þinni í kringum þig.
Við munum alltaf njóta áranna sem við
höfum átt með þér og
einnig þeirra ókomnu
bæði í gleði og sorg.
Davíð Haraldsson,
Haraldur Davíðsson og
Jóel Kristinn Hrafnsson.
Hrafnhildur
Jónsdóttir
Elsku afi Gylfi.
Nú er komið að
því að kveðja þig og
okkur þykir það svo
ótrúlega sárt. Þú
hefur alltaf verið fastur punktur í
tilveru okkar, alltaf til staðar og
við verðum ætíð þakklát fyrir að
hafa átt þig að.
Þegar Hildur átti spjall við
ykkur ömmu eina kvöldstund og
talið barst að dauðanum fórst þú
ekki mjög fínt í hlutina frekar en
fyrri daginn og sagðir eins og þér
var líkt að þú vildir engar helvítis
grenjur þegar það kæmi að þér
að kveðja. Þú vildir að við mynd-
um gleðjast yfir minningum og
fagna lífinu sem þú fékkst. Við
viðurkennum að það hafa samt
sem áður þónokkur tár fengið að
falla síðan þú veiktist og varst
síðan skömmu síðar tekinn frá
okkur – alltof snemma. Á sama
tíma minnumst við þín með gleði
og þakklæti fyrir tímann sem við
áttum saman.
Við eigum svo margar og góð-
ar minningar um þig, hamagang-
inn, góða skapið og hláturinn.
Það var sama hvað kom upp, þú
mættir með látum og fannst leið
til að leysa málin. Það var eins og
ekkert væri of erfitt fyrir þig. Til
dæmis þegar Ásta læsti bíllykl-
ana sína inni í bíl einu sinni. Þú
taldir ekki þörf á að kalla út lása-
smið heldur opnaðir bíldyrnar
sjálfur með þinni aðferð. Á tíma-
bili leit út fyrir að þú myndir taka
hurðina í tvennt, slíkar voru að-
farirnar, en að sjálfsögðu redd-
aðir þú þessu eins og öðru. Löngu
seinna þegar þú varst að sýna
nokkrum afkomendum Hafrænu
og Ásta missti bíllyklana sína í
höfnina varstu ekki lengi að kalla
út kafara til að ná í þá. Þú settir
spotta í sjóinn þar sem þú taldir
lyklana hafa dottið og auðvitað
lenti spottinn beint ofan á lykl-
unum. Kafarinn fann því lyklana
þrátt fyrir að þeir væru hálfnið-
urgrafnir. Þú hefur kennt okkur
svo margt með því hvernig þú
tókst á við lífið, alltaf með þína
miklu lífsgleði að vopni. Vanda-
✝ Gylfi Baldvins-son fæddist 8.
september 1941.
Hann lést 28. mars
2018. Útför Gylfa
fór fram 10. apríl
2018
málin voru til að
leysa þau og þú
varst ekki að velta
þér upp úr því liðna.
Fyrir okkur verð-
ur þú alltaf flottasti
skipstjórinn, aðal-
fiskibollugerðar-
kokkurinn, ýktasti
jólaskreytinga-
meistarinn, fljótasti
uppvaskarinn (hver
annar en þú nær að
klára að vaska upp diskana og
glösin á meðan fólk er ennþá að
borða), frábærasti bingóstjórinn,
hressasti, fyndnasti, hrekkjótt-
asti og einfaldlega besti afinn. Þið
amma hafið alltaf verið tilbúin til
að gera allt fyrir okkur barna-
börnin og staðið með okkur. Fyr-
ir það verðum við alltaf þakklát.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Þín barnabörn,
Ásta, Baldvin, Hildur, Ása
og fjölskyldur.
Elsku afi Gylfi. Heimsins besti
afi. Mikið á ég eftir að sakna þín.
Mér þykir svo sárt að hugsa til
þess að ég eigi ekki eftir að hitta
þig aftur. Það var sárt að horfa
upp á þig veikjast og svo tapa
baráttunni. Sterki afi minn. Mér
finnst ósanngjarnt að þú hafir
þurft að yfirgefa þennan heim
strax en svona getur lífið verið.
Ég get samt ekki annað en ver-
ið þakklát fyrir allar góðu minn-
ingarnar. Þær eru óteljandi og
fullar af hamingju og hlátri. Þið
amma hafið alltaf verið og verðið
alltaf mínar fyrirmyndir. Svo frá-
bær, dugleg og hjartahlý.
Ég mun alltaf verða stolt af
þér, elsku afi. Þú varst svo mikið
hörkutól. Í mínum augum þá
gastu tæklað allt. Svo sterkur og
góður.
Ég veit fátt betra en að hlæja
með þér, elsku afi, og ég finn hvað
það er sárt að hugsa til þess að ég
eigi aldrei eftir að hlæja með þér
aftur. En ég þarf ekki annað en
að loka augunum, þá heyri ég
hláturinn þinn. Hann var svo
smitandi og skemmtilegur.
Takk fyrir allt, afi. Takk fyrir
afafiskibollurnar, hláturinn og
knúsin. Ég mun aldrei gleyma
þér og ég ætla að vera dugleg að
segja Jökli sögur af afa Gylfa.
Þín,
Tinna Stefánsdóttir.
Gylfi
Baldvinsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
DAGMAR SVALA RUNÓLFSDÓTTIR,
Krosshömrum 5,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 17. apríl.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 30. apríl
klukkan 13.
Guðjón Sigurbergsson
Rúnar Ingi Guðjónsson María Guðmundsdóttir
Ómar Guðjónsson Kelli Arenburg
og fjölskylda
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
HEIÐBJARTAR BJÖRNSDÓTTUR,
Vopnafirði.
Fyrir hönd afkomenda hennar,
Þorgerður Tryggvadóttir Gylfi Ingimundarson
Hulda Tryggvadóttir Jóhann Jakobsson
Gunnar Björn Tryggvason Birna Einarsdóttir
Emma Tryggvadóttir Steindór Sveinsson
Aðalbjörn Björnsson
Móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir
og systir,
EMILÍA ÁGÚSTSDÓTTIR,
er látin.
Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Guðbjörg Yuriko Ogino Aron Jörgen Auðunsson
Emiko Erla
Erik Árni Ogino
Guðbjörg Jónsdóttir
Bogi Ágústsson
Grétar Karlsson
Brynjar Bergþórsson