Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Valli
Gleðjandi tískusýning Óneitanlega gleðja þessar flíkur augun. Verulega flottur afrakstur útskriftarnema bar fyrir augu fólks.
Frakkland þar sem fatahönnun er
eftirsóknarverður og stór iðnaður,“
segir Linda og bætir við að stærsti
hluti útflutnings Dana sé hönnun og
þar sé húsgagnahönnun stærst.
„Nemendur sem fara í fata-
hönnun verða að líta á starfsgrein-
ina af meiri alvöru. Mörg góð fyrir-
tæki hafa náð langt í útflutningi,“
segir Linda og nefnir fyrirtæki í úti-
vistarfatnaði, barnafötin As We
Grow, Farmers Market og Kron by
KRONKON.
„Það má ekki gleyma því að
prjónahönnunarfyrirtækið Hilda
flutti út vörur árið 1986 fyrir 6 millj-
ónir bandaríkjadala á þáverandi
verðlagi,“ segir Linda.
Íslensk hönnun mikilvæg
Útsjónarsemi, dugnaður, þraut-
seigja og eitthvað af listrænum
hæfileikum prýða góðan fatahönnuð
að mati Lindu sem hvetur áhuga-
sama og sérstaklega karlmenn til
þess að líta til erlendra þjóða og sjá
á hvaða stall þær setja fatahönnun.
„Það er líka nauðsynlegt að
styðja við bakið á íslenskri fata-
hönnun með því að kaupa vöruna.
Við megum ekki missa þekkingu á
fatahönnun úr landi vegna
metnaðarleysis og það er mikilvægt
að almenningur styðji við greinina
með því að kaupa íslenska hönnun,“
segir Linda sem telur að með réttu
hugarfari og stuðningi gæti fata-
hönnun orðið burðug atvinnugrein á
Íslandi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Níu útskriftarnemendur úr fata-
hönnunardeild Listaháskóla Ís-
lands sýndu fatahönnun sína á
tískusýningu í Læknaminjasafn-
inu í gærkvöldi. Fatahönnuðirnir
sem sýndu verk sín voru:
Aldís Rún Ingólfsdóttir
Anna Sif Gunnarsdóttir
Dögg Gunnarsdóttir
Norea Persdotter Wallström
Selma María Cassaro
Sigrún Lárusdóttir
Sólveig Dóra Hafsteinsdóttir
Tinna Christina Bigum
Una Guðjónsdóttir
Framtíðar-
fatahönnuðir
ÚTSKRIFTARNEMARNIR
Svalt Klæðin voru verulega svöl og mikið í lagt
enda útskriftarnemar búnir að vera lengi í námi.
Geggjað Ekkert vantaði upp á fegrun fótleggjanna með
blómstrum og rauða slæðan var líka augnayndi mikið.
Nútíminn Sannarlega kynlaus flík og flott sem þessi sýndi.
Andlitsskraut Ýmsir frumlegir
fylgihlutir prýddu fyrirsæturnar.