Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS FLATAHRAUN 31 * 220 * HAFNARFIRÐI S: 5658911 * www.ledljos.com 400w - 500w - 600w - 800w 42000LM - 52500LM- 63000LM - 84000LM 15°/30°/60°/ SKIPA & BÁTA LED KASTARAR svarað um þessa tilgátu. Þorgils segist engu að síður vera í miklu og góðu sambandi við hollenskan verj- anda Sindra, Michiel M. Kuyp. Mörg lögfræðileg álitaefni - En hvað gerist þegar Sindri kemur heim? „Það er mjög góð spurning. Í augnablikinu bíður hans ákveðin réttaróvissa. Verið er að skoða möguleikana í stöðunni. Það liggur ekki fyrir hvort hann fari beint í fangelsi. Núna erum við að skoða hvaða lagaheimildir eru til staðar. Það eru mörg lögfræðileg álitaefni uppi í þessu máli, sem er með því áhugaverðasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Flestir lögfræðingar eru á þeirri skoðun að Sindri hafi ekki verið í haldi þegar hann fór. Til að geta strokið þarftu væntanlega að vera í varðhaldi,“ segir Þorgils, sem hefur starfað sem lögmaður í rúm fjögur ár, aðallega í saka- málum. Miðað er við að Sindri verði fram- seldur til Íslands innan þessara 19 daga sem hann er í varðhaldi í Hol- landi. Þorgils segir minnst viku geta liðið þar til Sindri komi heim, þar sem stimpla þurfi marga pappíra í stjórnkerfinu, hér og úti. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er góð leið til að slaka á og hvíla símann, sem hefur verið fastur við eyrað nánast allan sólarhringinn að undanförnu,“ segir Þorgils Þor- gilsson lögmaður, sem tók próf á mótorhjól í vikunni og ekur nú um göturnar á Suzuki-hjóli af gerðinni GSXS 750. „Þetta er ágætis byrjendahjól. Það hefur verið draumur minn lengi að læra á mótorhjól og ég ákvað fyr- ir um mánuði að skella mér á nám- skeið hjá Njáli Gunnlaugssyni. Ég náði síðan prófinu og er farinn að hjóla í vinnuna. Þetta er alveg hrikalega gott, mæli með þessu,“ segir Þorgils, en hann hefur verið mikið í fréttum að undanförnu sem lögmaður Sindra Þórs Stefánssonar, fangans sem flúði af Sogni 17. apríl sl. og komst úr landi til Svíþjóðar í flugi, í sömu vél og Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra. Sindri var sem kunnugt er hand- tekinn í Amsterdam sl. sunnudag og hefur verið úrskurðaður í 19 daga varðhald. Hann hefur óskað eftir því að vera framseldur til Íslands. Mikill áhugi erlendra fjölmiðla Þorgils segir álagið hafa verið mikið síðustu daga og mál Sindra fengið mikla athygli, ekki bara hér á landi heldur einnig erlendis. „Eftir að öll dramatíkin fór í gang byrjaði síminn að hringja, stanslaust,“ segir Þorgils en erlendir fjölmiðlar hafa einnig verið á höttunum eftir lög- manninum. „Það er mikill áhugi fyr- ir málinu úti.“ Þorgils segist hafa verið í sam- bandi við Sindra eftir handtökuna í Amsterdam þó að honum væri skip- aður hollenskur verjandi. Þorgils er áfram lögmaður Sindra hér á landi og vinnur núna við að undirbúa heimkomu hans. „Annars er aðgangur að gæslu- varðhaldsföngum í Hollandi ekki jafn góður og hér á landi.“ Verjandi Sindra í Hollandi gerði athugasemd við handtökuna og taldi íslensku lögregluna hafa elt Sindra uppi og vísað hollenskum starfs- bræðum á hann. Upplýsingar í málaskrá hafi verið meiri en einhver vegfarandi gat vitað. Spurður út í þetta segist Þorgils ekki hafa fengið aðgang að gögnum hollensku lög- reglunnar og því geti hann engu Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögmaður Þorgils Þorgilsson við mótorhjólið sitt, að loknu prófi í vikunni. Góð leið til að slaka á, segir hann. Mótorhjólið góð leið til að hvíla símann  Mál Sindra Þórs fær mikla athygli, segir lögmaður hans Próf Þorgils stóðst prófið með stæl, en ljósmyndari Morgunblaðsins var að æfa sig þarna á eigin hjóli þegar hann hitti á lögmanninn fyrir tilviljun. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Lamaður maður sem hefur búið á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli í ellefu ár hefur ekki fengið að snúa þangað aftur eftir aðgerð á Landspít- alanum vegna mótmæla starfsfólks. Tryggvi Ingólfsson hlaut alvar- legan mænuskaða eftir að hann datt af hestbaki árið 2006, hann er lamaður að hálsi og þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Í lok nóvember var hann lagður inn á lungnadeild Landspítalans til rannsókna vegna erfiðleika með öndun. Eftir áramót kom í ljós að kaplar í raföndun voru ekki að virka og var ákveðin aðgerð um tveimur vikum síðar til að laga það. Tryggvi óskaði eftir að fara aftur heim til sín á Kirkjuhvol á meðan hann biði eftir aðgerðinni en fékk þá þau svör þaðan að best væri að hann kæmi ekki fyrr en eftir að- gerð. Rétt fyrir páska var hann út- skrifaður af Landspítalanum og þá kemur í ljós að á Kirkjuhvoli voru tólf starfsmenn búnir að skrifa und- ir undirskriftalista þar sem þeir hótuðu að ganga út ef Tryggvi kæmi aftur. Meðal ástæðna sem voru gefnar upp var mikið álag, óöryggi og að Tryggvi væri erfiður í skapi. Fjölskylda Tryggva og fleiri hafa barist í þessu máli síðan en enn liggur Tryggvi inni á Landspít- alanum. „Við erum að vera nokkuð ráðalaus. Það er mánuður síðan hann átti að koma heim og liggur enn á lungnadeild Landspítalans og tekur þar tvö pláss sem þau sár- vantar,“ segir Finnur Bjarki Tryggvason. Málið er nú í vinnslu hjá Margréti Tómasdóttur tals- manni sjúklinga og komið inn á borð Embættis landlæknis. „Forstöðukona Kirkjuhvols fór yfir það með okkur hvers vegna starfsfólkið mótmælti komu pabba og það hljómaði allt eins og stjórn- unarvandi. Okkur var sagt að við- vera pabba skapaði mikinn kvíða og að þau teldu sig ekki geta tryggt öryggi hans, það vantaði upp á þjálfun starfsfólks. Þau hafa talað um að umönnun hans hafi verið mikið á herðum sama starfsfólksins og það sé komin svolítil þreyta í mannskapinn. Pabbi er búinn að vera þarna í ellefu ár og umönn- unin hefur verið frábær, því er þetta staða sem var erfitt að sjá fyr- ir,“ segir Finnur og bætir við að málið snúi ekki bara að föður hans, það sé eitthvað sem þurfi að kryfja innandyra á Kirkjuhvoli. „Pabbi getur ekki komið til baka í óbreytt ástand. Það er eitthvað verið að vinna í hans málum en ég velti fyrir mér hvort það sé eitthvað verið að gera fyrir starfsfólkið með kvíðann og vanlíðanina. Ef það er ekkert verið að gera í því er ekki verið að vinna í málinu.“ Finnur segist líta á mál föður síns sem frelsissviptingu og að hann hafi ráðfært sig við lögfræðing um málið sem sagði það hreint og klárt mannréttindabrot. Ólöf Guðbjörg Eggertsdóttir, hjúkrunarforstjóri Kirkjuhvols, segir að ekki sé verið að úthýsa Tryggva. „Við erum að skoða málin og vinna í því að tryggja öryggi hans. Það þarf að hafa nóga mönn- un í kringum vistmenn og okkur vantar kannski faglegt starfsfólk til að vera hjá okkur,“ sagði Ólöf sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveit- arstjóri Rangárþings eystra, sagði alla vera að reyna að gera sitt besta. Margrét Tómasdóttir, tals- maður sjúklinga, vildi ekki ræða málefni einstakra sjúklinga. Lömuðum manni meinað að snúa aftur heim  Tólf starfsmenn dvalar- og hjúkrun- arheimilis hótuðu að ganga út Mótmæli Tryggvi Ingólfsson fær ekki að snúa til baka á Kirkjuhvol.  17. apríl: Sindri Þór flýr út um glugga á Sogni.  17. apríl: Nær flugi í Leifsstöð til Svíþjóðar.  19. apríl: Lögregluna grunar að Sindri sé staddur á Spáni.  20. apríl: Fréttablaðið birtir yfirlýsingu frá Sindra þar sem hann segist m.a. koma heim „fljótlega“.  22. apríl: Sindri handtekinn í miðborg Amsterdam.  24. apríl: Úrskurðaður í sólar- hrings varðhald.  25. apríl: Úrskurðaður í 19 daga gæsluvarðhald. Frá Sogni til Amsterdam MÁL SINDRA ÞÓRS Sindri Þór Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.